Morgunblaðið - 17.09.1993, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1993
17
Morgunblaðið/Sverrir
Bjarni Halldórsson, annar sölustjóra Borgarplasts, og Björgvin
Bjarnason, framkvæmdastjóri Ósvarar, handsala samninginn, en
skipshöfnin af togara útgerðarfyrirtækisins var viðstödd og fékk
veitingar í tilefni þessa.
Borgarplast selur
600 ker til Osvarar
Málþing um endur-
reisn Viðeyjarstofu
I TILEFNI af fimm ára afmæli endurreisnar Viðeyjarstofu efnir
Reykjavíkurborg til opins málþings í Viðey nk. sunnudag. Þar verða
flutt erindi um endurreisn Stofunnar, um höfund hennar, N. Eigtved.
Skoðanakönnun DV
á fylgi flokkanna
Kvennalisti
vinnur á og
tap Alþýðu-
bandalags
KVENNALISTINN eykur fylgi
sitt á kostnað Alþýðubandalags-
ins ef marka má skoðanakönnun
sem DV hefur gert á fylgi sljórn-
málaflokkanna. Könnunin náði
til 600 manna og var hópnum
jafnt skipt milli kynja og höfuð-
borgarsvæðis og landsbyggðar.
Meira en þriðjungur úrtaksins
eða 35,7% voru óákveðnir og 10%
vildu ekki svara.
Kvennalistinn fær nú 16,9% at-
kvæða en fékk 12,7% í síðustu
könnun. Alþýðubandalagið fær
13,2% atkvæða en fékk 16,5% í síð-
ustu könnun sem fram fór í júní.
Sjálfstæðisflokkurinn fengi 33,4%
atkvæða sem er nánast það sama
og hann fékk í síðustu könnun og
Framsóknarflokkurinn fengi um
einu prósentustigi minna en í síð-
ustu könnun 26,4% atkvæða en
fékk áður 27,6%. Alþýðuflokkurinn
bætir við sig tæpu prósentustigi,
fengi 9,8% en fékk 8,9% samkvæmt
könnuninni í júní.
FRIÐARSTUND fer fram í
Fríkirkjunni í Reykjavík næst-
komandi sunnudag klukkan
14. Undirbúningur friðar-
stundarinnar er unninn af
presti Fríkirkjusafnaðarins,
séra Cecil Haráldssyni í sam-
vinnu við nokkur áhugamanna-
félög um mannrækt og frið.
Þau félög eru Lífssýn, Nýald-
arsamtökin, Ljósheimar/Isl.
Heilunarfélagið, Snæfellsás og
Bahai samfélagið. Cecil Har-
aldsson sagði í samtali við
Morgunblaðið að um guðsþjón-
ustu yrði að ræða en það væri
hins vegar óvepjulegt að þessi
samtök sameinuðust með þess-
um hætti. „Það er mjög gott
að það komi saman fólk sem
hefur áhuga á því málefni sem
um er að ræða og hefur áhuga
á því að efla kirkjustarf," sagði
hann.
í fréttatilkynningu frá undirbún-
ingsnefnd friðarstundarinnar segir:
„Máttur bænarinnar er öflugasta
mannlega afl sem til er. Þegar við
stillum saman hug og hjörtu margra
manna í sameiginlegu átaki til að
breyta ímynd heimsins og fylla
hann af friði, erum við hvert og
eitt okkar þátttakendur í mótun
nýrrar heimsmyndar."
Allir velkomnir í kirkjuna
Markmið samverustundarinnar
er að sameina fólk með mismun-
andi lífsviðhorf og trúarskoðanir í
bæn fyrir friði á jörðu. Sagði sr.
Cecil að fólk frá nokkrum þeim
áhugamannafélögum sem unnið
hafa að undirbúningi friðarstundar-
innar hefði haft samband við sig
og stungið upp á að haldin yrði
sameiginleg friðarstund í kirkjunni.
„Eg sá ekki ástæðu til annars en
að bjóða fólkið velkomið, ég býð
alla velkomna í kirkju hjá mér,“
sagði hann.
Dagskrá hefst kl. 13.50 með
tónlist. Pálmi Gunnarsson syngur:
Allt sem við viljum er friður á jörð.
Upphafsorð prests, bæn (allir
biðja saman), sálmur nr. 539 (allir
BORGARPLAST hf. og Ósvör
hf. á Bolungarvík undirrituðu
samning um kaup Ósvarar á 600
taka þátt), guðspjall, sálmur nr.
331 (allir taka þátt), hugleiðing
prests, bæn (allir biðja saman),
sálmur nr. 550 (allir taka þátt),
leikið á hörpu.
1. Hugleiðing og bæn (allir biðja
saman), 2. hugleiðing og bæn (all-
ir biðja saman), 3. hugleiðing og
bæn (allir biðja saman), 4. hugleið-
ing og bæn (allir biðja saman),
5. hugleiðing og bæn (allir biðja
saman. Tónlist (hörpuleikur).
Hugleiðsla Erlu Stefánsdóttur.
Tónlist. Friðrakerti tendruð og
kveðju orðprests, tónlist og friðar-
stund lokið.
„MENN hafa alltaf þörf fyrir að
endurnýja hjá sér. Auðvitað
dregur þó úr því ef tekjurnar
minnka, en það gekk ágætlega
hjá netabátunum á vertíðinni,
sérstaklega á Suðvesturlandi, og
það er því alltaf möguleiki á að
einhveijir telji sig sjá ástæðu til
að kaupa þessi skip, ef þeim
finnst verðið skaplegt" segir Jón-
as Haraldsson skrifstofustjóri
þjá LIU er hann var spurður
hvort hann teldi vænlegan mark-
að fyrir fjögur línu- og netaskip
frá Nýfundnalandi hér í ljósi
tekju- og aflasamdráttar, en LÍÚ
hefur nú milligöngu um sölu
skipanna hér á landi fyrir sljórn-
völd á Nýfundnalandi.
Jónas sagði aðspurður að það
væri ekki í verkahring LÍÚ að stuðla
að innflutningi skipa með þessum
hætti. „En við þurfum að eiga
mannsæmandi skip og skipin eru
svo úrelt samkvæmt landslögum,"
sagði hann. Jónas sagði einnig að
það hefði ekki síst vakað fyrir LÍÚ
að geta átt góð samskipti við stjóm-
fiskikerum á íslenzku sjávarút-
vegssýningunni í gær. Guðni
Þórðarson, framkvæmdastjóri
Borgarplasts, segir að samning-
ur um sölu á jafnmörgum ker-
um sé einnig í burðarliðnum.
Borgarplast hefur nú selt bæði
Ósvör og Þuríði hf. á Bolungar-
vík fiskiker.
Borgarplast hefur nú fengið
vottun um gæðakerfí fyrirtækisins
samkvæmt IST ISO 9001 staðlin-
um og segja forystumenn fyrir-
tækisins það vera mikilvægan
áfanga, sem þegar hafi skilað því
miklu. Fyrirtækið sýnir hefðbund-
in fískiker á sýningunni,*en auk
þess kynnir það nýjung í fram-
leiðslu bauja og belgja fyrir físki-
skipaflotann úr efninu polyvinylcl-
orid. Búizt er við því að fram-
leiðsla þessarar vöru hefjist af
fullum krafti á næsta ári. Ýmsar
aðrar nýjungar eru á döfinni og
má þar nefna samstarfsverkefni
Iðntæknistofnunar og Borgar-
plasts um leit að lausnum til að
auka frostþol plastefna, einkum í
vörubrettum, en það verkefni er
styrkt af Norræna iðnþróunar-
sjóðnum.
völd á Nýfundnalandi um ýmis
hagsmunamál í framtíðinni.
----» » ♦---
Alþýðusamband
Suðurlands
Arsþing
á Klaustri
12. ÞING Alþýðusambands Suð-
urlands verður haldið á Kirkju-
bæjarklaustri 18. og 19. septem-
ber. Þingið hefst kl. 13.30 á laug-
ardeginum.
Aðalmál þingsins verða kjara- og
atvinnumál. Auk þeirra verður fjallað
um fyrirhugaðar aðgerðir ríkisstjóm-
arinnar t.d. niðurskurð og auknar
álögur í heilbrigðiskerfinu. Skipu-
lagsmál verkalýðshreyfíngarinnar
munu einnig verða til umfjöllunar
og þá einkum með tilliti til hagsmuna
launafólks á Suðurlandi.
A þessu sumri eru liðin fimm ár
frá því endurreisn Viðeyjarstofu
lauk. Islenska ríkið hóf endurreisn-
ina, lauk við húsin að utan, en tók
síðar þá ákvörðun að afhenda
Reykjavíkurborg húsið að gjöf á 200
ára afmæli borgarinnar 1986. Stór
hluti verksins var þá eftir, en á veg-
um Reykjavíkurborgar var verkinu
nú lokið á tveimur ámm og Viðeyjar-
stofa og Viðeyjarkirkja opnaðar í
upprunalegri mynd 18. ágúst 1988.
Málþingið verður haldið í Viðeyj-
arstofu sunnudaginn 19. september
nk. Farið verður með Viðeyjarfeiju
úr Sundahöfn kl. 10 árdegis. Magnús
L. Sveinsson, forseti bæjarstjómar,
setur málþingið. Þorsteinn Gunnars-
son, arkitekt endurbyggingarinnar,
flytur erindi um endurreisnina. Curt
V. Jessen, arkitekt frá Danmörku,
sem var ráðgefandi fyrir íslensku
hönnuðina, flytur erindi um Nicolai
Eigtved, höfund Viðeyjarstofu og
Pétur H. Ármannsson, arkitekt, flyt-
ur erindi um dönsk áhrif á íslenska
byggingarlist. Allir munu fyrirlesar-
arnir skýra mál sitt með litskyggn-
um. Fyrirspumir og umræður verða
á eftir hveiju erindi, en gert er ráð
fyrir að þinginu ljúki um kl. 16.30.
Málþinginu stjórna sr. Þórir
Stephensen, staðarhaldari í Viðey,
og Magnús Sædal Svavarsson, bygg-
ingarstjóri Viðeyjar. Þátttaka er öll-
um heimil.
TRAUSTAR VORUR
OG ÞJÓNUSTA
VIÐ ÍSLENSKAN
FISKIÐNAÐ OG
13
IMMBÚ
HAÞRYSTIVOKVAKERFI
Drifbúnaöur fyrir spil o.fl.
Radial stimpildælur • Vökvamótorar
JjjSAB
ALLT TIL RAFSUÐU
Vélar, vír og fylgihlutir
INTERROLL
.% joKi
FÆRIBANDAMÓTORAR
MONO
FLYGT
LOWARA
DÆLUR
Ryöfríar há- og lágþrýstiþrepadælur
Fiskidælur • Slógdælur
þjónustudeild okkar veita sölumenn fúslega
faglegar upplýsingar- hafiö samband.
HÉÐINN
V E R S L U N
SELJAVEGI 2 SÍMI 624260
Friðarstund
í Fríkirkjunni
Skrifstofustjóri LÍÚ um sölu fjögurra
skipa frá Nýfundnalandi
Alltaf einhver þörf
á að endumýja skip
ARGUS/SÍA