Morgunblaðið - 17.09.1993, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 17.09.1993, Blaðsíða 42
 42 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1993 KNATTSPYRNA Ásgeir yfirþjálf- ari allra landsliða Gústaf Adolf Björnsson og Guðni Kjartansson verða aðstoðar- - menn hans og þeirfélagar stjórna einnig fræðslumálum KSÍ ÁSGEIR Elíasson, landsliðsþjálfari, var ígær ráðinn yfirþjálf- jari allra karlalandsliða KSÍ og með honum voru ráðnir Gú- staf Adolf Björnsson og Guðni Kjartansson, en þeir þrír sjá um þjálfun og fræðslumál. „Við væntum þess að að með þessu hafi verið tekin framfaraspor í þjálfara- og fræðslu- málum. Við væntum mikils af störfum þessara manna, sem mynda samstarfshóp og vinna saman á ýmsum sviðum knattspyrnunnar," sagði Eggert Magnússon, formaður KSÍ. Asgeir verður jafnframt því að vera a-landsliðsþjálfari, með yfirumsjón með 21 árs, 18 ára og 16 ára landsliðunum, en hann og Gústaf Adolf sjá um þjálfun og undirbúning 21 árs og 16 ára landsliðsins, en Guðni sér um þjálf- un og undirbúning 18 ára lands- liðsins. Guðni mun stjórna 18 ára landsliðinu í Wales í byijun októ- ber, þar sem liðið mætir Wales og Eistlandi í keppni um að komast í 16-liða úrslit næsta sumar. Ásgeir og Gústaf Adolf stjórna 16-ára liðinu í úrslitakeppninni, sem fer fram á írlandi næsta sumar. Gústaf Adolf verður jafnframt fræðslufulltrúi KSÍ — hefur um- sjón með fræðslu og útbreiðslu- starfi sambandsins, hæfileikamót- um, knattþrautum og knatt- spymuskóla KSÍ. Gústaf Adolf og Ásgeir verða í fullu starfi hjá KSI. „Það má segja með þessari skipulagsbreytingu skiptist skrif- stofa knattspyrnusambandsins í tvennt — annars vegar almenn störf og hins vegar þjálfun og fræðslumál," sagði Eggert Magn- ússon, formaður KSI, er hann kynnti breytingarnar. Arnarí fótspor Jóhannesa ÞegarArnar Gunnlaugsson lék með Feyenoord gegn Akra- nesi í Evrópukeppninni á Laugar- dalsvellinum, fetaði hann þar með í fótspor Jóhannesar Eðvaldsson- ar, sem lék með Celtic á vellinum 1975. Báðir eiga þeir það sameig- inlegt að hafa leikið Evrópuleik gegn sínum fyrri félögum, en Jó- hannes lék með Celtic gegn Val. Hvorugum tókst að skora, en Jó- hannes var nær því — hann mis- notaði vítaspymu; skaut framhjá marki Valsmanna, sem máttu þola tap, 0:2. Það var enginn annar en Kenny Dalglish, sem kom Celtic á bragðið gegn Val. MorgunblaðiA/Bjami Arnar Gunnlaugsson í baráttu við Ólaf Þórðarson, hetju Skagamanna. ENGINN ER BETRI ad margra mati STÓRÚTSÖLUMAMAÐURINN BÍLDSHÖFÐA 10 SÁ GAMLI GÓÐI Skólavörar, geisladiskar, skór, fatnaður, blóm °g gjafavörur, skartgripir, vefnaðarvörur, leðurvörur og margt margt fleira. Skífan - Studio - Sonja - Taxi - Saumalist - Partý - í takt - Skó- verslun Reykjavíkur - Hans Petersen - Eitt og annað - Herrahúsið - Skartgripaskrínið - Liljan - Blómalist - Bamabúðin - og margir fleiri. OPNUNARTÍMI: Mánud. — fimmtud. frá kl. 13—18 Föstudaga frá kl. 13—19 Laugardaga frá kl. 10—16 Frítt kaffi og video fyrir börnin Gústaf Adolf Björnsson, Ásgelr Elíasson og Guönl Kjartansson sjá um þjálfun og fræðslumál á vegum KSÍ. FRJALSIÞROTTIR Fimmtán ára bann fyrir að segja ósatt Surður-Afríkumaðurinn Sipho Mkhaliphi hefur verið dæmdur í fimmtán ára keppnisbann fyrir að segja ósatt. Mkhaliphi, sem er maraþon- og götuhlaupari, sló um sig þegar hann kom heim frá Bandaríkjunum i sumar og sagðist hafa orðið sigurvegari í 160 km hlaupi í Boulder í Col- orado — hlaupið vegalengdina á mettíma. Árangri hans var slegið upp í þarlendum blöðum og hann gerður að hetju. Þegar forráðamenn fijálstþrótta í S-Afríku fóru að grennslast nánar um árangur kappans í Bandaríkjunum, kom í ljós að maðkur væri í mys- unni. Jú, Mkhaliphi hafi verið skráður til leiks og hafið hlaupið, en hann hafí hætt hlaupi sínu áður en það var hálfnað. Hetjan fyrrverandi — sem sagði ósatt og baðaði sig síðan í frægðarljómanum, mun ekki sjást á hiaupabrautinni næstu fímmtán árin; hann hleypur nú meðfram veggjum f Jóhannesarborg. HANDKNATTLEIKUR Islendingar mæfa Rússum — í keppni um þriðja sætið í heimsmeist- arakeppni 21 árs landsliða í Egyptalandi. Danir og Egyptar leika til úrslita „ÞAÐ er sárt að markatala skeri úr um það hvort við lékum um fyrsta sæti eða þriðja sæti,“ sagði Þorbergur Aðal- steinsson, landsiiðsþjálfari, eftir að Ijóst var að ísland myndi leika um þriðja sætið — eftir að Egyptar lögðu Svía að velli, 23:15, í gærkvöldi. ísland vann Portúgal í gær, 31:21, og voru íslendingar og Egyptar jafnir að stigum, með átta stig, en Egyptar voru með betri markatölu — 30 mörk í plús, en íslendingar 17. Við mætum Rússum í leik um þriðja sætið á laugardaginn, en Egyptar og Danir leika til úr- slita," sagði Þorbergur og sagði hann að möguleikarnir á bronssæt- inu væru jafnir. “Danir hvíldu marga af sínum bestu leikmönnum þegar þeir léku gegn Rússum og máttu þola tap, 25:29. Það er ljóst að þetta er besti árangur sem við höfum náð í heimsmeistarakeppni — og ég vona að við náum að tryggja okkur þriðja sætið og koma heim með bronsverð- launin." Tap íslands gegn Rúmeníu, eftir erfiðan sigurleik gegn Egyptalandi, kom í veg fyrir að íslenska liðið leiki til úrslita gegn Dönum. íslensku strákamir byijuðu með miklum látum gegn Portúgal í gær — og leikmenn Portúgals gáfu eftir. „Páll Þórólfsson átti mjög góðan leik og skoraði átta mörk og þá var Patrekur Jóhannesson, sem skoraði einnig átta mörk, sterkur í vörn og sókn. Róbert Sighvatsson skoraði sex mörk af línu úr sex skotum, en aðrir sem skoruðu voru Dagur Sig- urðsson fjögur mörk, Ólafur Stef- ánsson tvö, Jason Ólafsson tvö og Sigfús Sigurðsson eitt. Það var mik- il pressa á strákunum, en þeir náðu að sýna mikið keppnisskap og léku vel,“ sagði Þorbergur. Egyptar léku gegn Svíum í gær- kvöldi og sáu hátt í 30 þús. áhorfend- ur leikinn. Svíar réðu ekkert við Egypta. Þess má geta að öllum leikj- um Egypta hafði verið sjónvarpað beint, nema leiknum í gærkvöldi. Það gerðu Egyptar til að fá fleiri áhorfend- ur í hina stóru íþróttahöll sína, sem var nær troðfull, eða um 30 þús. áhorfendur. Svíar og Ungveijar leika um fímmta sætið á heimsmeistaramótinu. KORFUKNATTLEIKUR Keflvíkingar töpuðu stórt Keflvíkingar máttu þola stórtap, 64:124, fyrir Zalgiris í seinni leik lið- anna í Evrópukeppni meistaraliða í Litháen. Leikmenn Zalgiris skor- uðu þrettán fyrstu stig leiksins og voru yfir 67:38 í leikhléi og um miðj- an seinni hálfleik var forskotið orðið 42 stig, 92:50. Keflvíkingar voru ekki ánægðir með aðstæður, en leikið var á trégólfi í gömlum hermanna- bragga, eins og Hálogalandi. Jonathan Bow skoraði 19 stig, Guðjón Skúla- son 18, Birgir 8, Jón Kr. 7, Kristinn 6, Böðvar 3, Sigvin 2, Brynjar 2 og Sigurður Ingimundarson 2, en hann var rekinn af leikvelli með fímm villur þegar fimm mín. voru búnar af seinni hálfleik.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.