Morgunblaðið - 17.09.1993, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1993
Um tillögu landlæknis
eftir Elísabetu Bertu
Bjarnadóttur
Þar sem ég veit að við erum allar
hörundssárar manneskjurnar, finnst
mér best að geta þess í upphafi
máls míns, að ég tel Ólaf Ólafsson
landlækni um margt fróman mann
og að hann hafí oft stutt við fram-
sækin málefni, heilsufari og þegnum
þessa lands til framdráttar.
Hins vegar þarf hann, vegna þess
hve hann er í leiðandi embætti í land-
inu og hefur því mikil völd sem geta
orðið að póiitískum ákvörðunum, að
hlusta vel eftir hveijar þarfir skjól- •
stæðingahóps hans eru og hvernig
þeim þörfum er best borgið. Von-
andi er skjólstæðingahópur Ólafs
enn neytendur heilbrigðiskerfisins
númer eitt en ekki vinnuveitendur
eða magnrannsóknir. Ekki síst
vegna þess hve margt er varðar
mannanna heill og hamingju er
ómælanlegt með ströngum mælistik-
um raunvísindanna ætti það að vera
eitt af markmiðum landlæknisemb-
ættisins að standa' vörð um hin svo-
kölluðu mjúku gildi, nú á þessum
úlfatímum er allt á að borga sig.
Fyrirtækin urðu upphaflega til
vegna fólksins en ekki öfugt.
Þar sem ég hef starfað að heil-
brigði íslensku fjölskyldunnar sem
félagsráðgjafi í áratug og tel mig
þekkja nokkuð örvæntingu hennar
er að kreppir og vonir og þrár eftir
mannsæmandi lífi, finn ég mig
knúna til að vekja þessa umræðu
þótt mér sé það óljúft að takast á
við landlækninn.
Frásögn sjúklings gild
„Það lægju eflaust
miklu fleiri í valnum
langt um aldur fram,
ef læknar hefðu alltaf
beðið eftir magnrann-
sóknum áður en þeir
gerðu sitt bezta.“
fram, ef læknar hefðu alltaf beðið
eftir magnrannsóknum áður en þeir
reyndu að gera sitt besta.
Skerðing á lýðréttindum
Ólafur segir að vottorðin þjóni
ekki tilgangi sínum. Ég vil þá spyija
hann og hvern þann sem stuðla vill
að útrýmingu þeirra, hvernig þeir
hyggist tryggja launþegum þessa
lands sama rétt og þeir hafa haft
til að láta sér batna af minniháttar
veikindum og fá óskert laun á með-
an. Möguleikinn á vottorðum þarf
að vera fyrir hendi. Það tryggir ekk-
ert fyrir alla vinnustaði þótt einn
siðferðilega sterkur aðstoðarbanka-
stjóri lofi mannúð. Er þá skemmst
að minnast þrefsins út af McDon-
ald’s mannaráðningunum. Máli mínu
til stuðnings bendi ég á að félags-
fræðilegar rannsóknir í Noregi sýna
að hástéttarmenntafólk og fólk í
leiðandi störfum hjá fyrirtækjum
þarf litla grein að gera fyrir veikind-
um sínum, því er trúað, meðan ver
launað menntafólk og ómenntaðir
eru undir smásjá ef þeir lasnast.
Fyrirbyggjum erfiðari
sjúkdóma
Við vitum bæði Ólafur, að lang-
vinnir eða krónískir sjúkdómar taka
oft að þróast með fólki ef ekki er
rétt brugðist við því álagi sem minni-
háttar heilsubrestur leiðar af sér
(svefnleysi, umgangspestar, verkir).
Einn hornsteinninn í siðfræði félags-
ráðgjafar er fyrst og fremst að leit-
ast við að hindra og fyrirbyggja að
fólk lendi í endalausri hringiðu fé-
lagslegrar vesældar og niðurlæging-
ar. I þeim vítahring vega sjúkdómar
oft þyngst. Það er því miklu ódýrara
bæði þjóðfélagslega séð og fyrir sál-
arheill einstaklingsins þegar mælt
er í kynslóðum að tryggja að fólk
geti farið heim og hvílt sig almenni-
lega, þegar það er lasið, án þess að
óttast atvinnumissi, heldur en að það
Elísabet Berta Bjarnadóttir
þurfi að þrauka, þróa illkynja álags-
sjúkdóma og vera svo lempað út-
byrðis í þjóðfélaginu. í fljótu bragði
getur tillagan virst flott, að hætta
þessu pappírsfargani sem vottorð
skapa. En ef málið er betur skoðað
og við þorum að horfast í augu við
að vinnumarkaðurinn er eins og
hann er, þá er mér nær að halda
að skammtímavottorðaskrif lækna
séu ef til vill þeirra stærsti skerfur
til fyrirbyggingar á langvinnum
sjúkdómum.
Sj úklingaskatturinn
Sjúklingar og aðstandendur
þeirra er hópur sem á erfitt með að
bera hönd fyrir höfuð sér, því þeir
eiga einfaldlega um of sárt að binda
til að geta varið sig eða afhjúpað
sársauka sinn. Við sem á einhvern
hátt tengjumst heilbrigðisþjón-
ustunni verðum því að ganga fram
fyrir skjöldu. Það hefur fallið skriða
á velferðarkerfið síðustu misseri og
mál að linni. Mín ósk til landlæknis-
ins nú er sú, þar sem hann virðist
vilja minnast veglega 75 ára afmæl-
is stéttar sinnar, að hann stuðli að
fyrirbyggingu vanda af þessu tilefni
og láti kanna í hvelli út á hvað sjúkl-
ingaskattatillaga ríkisstjórnarinnar
gengur. Ef hún boðar auknar álögur
á þá sem þegar geta lítið veitt sér,
þá fylki hann sveit sinni gegn henni.
Fleiri munu þá ekki sitja hjá.
Með virðingu.
Höfundur starfar sem
félagsráðgjafi við Unglingaheimili
ríkisins og hefur áður starfað
bæði við heilbrigðis- og
menntakerfið.
Er samdráttur í heilbrigð-
iskerfinu spamaður?
Þar hnýt ég fyrst um í tillögu
Óiafs er hann segir eitthvað á þá
leið að kvartanir þær sem skamm-
tímavottorðin séu veitt vegna, séu
t.d. bakverkir, svimi, þyngsli í höfði,
verkir í liðum, svefnleysi o.s.frv. Hér
hafi læknar oft ekki við annað að
styðjast en frásögn sjúklings sjálfs
sem erfítt væri að henda reiður á
og huglægt mat.
Hornsteinninn í siðgæðisreglum
allra þeirra er vinna við manneskjur
er að sýna virðingu framburði þess
er leitar.
Ég er því gáttuð á þessari skyndi-
legu tortryggni landlæknis í garð
sjúklinga og finnst hún mjög var-
hugaverð einmitt núna þegar at-
vinnuleysið steðjar að, stéttaskipt-
ingin verður æ hraðari og útskilnað-
ur þeirra er minna mega sín eða eru
ekki alltaf sammála vinnuveitendum
fer vaxandi. Hvernig hafa þá læknar
yfirleitt getað starfað fram til þessa
ef málflutningur neytendahópsins er
ekki marktækur? Það lægju eflaust
miklu fleiri í valnum Iangt um aldur
eftir Ragnar Jónsson
Sífelldur niðurskurður á helztu
sjúkrahúsum í Reykjavík er nú far-
inn að bitna verulega á þjónustu við
sjúklinga. Biðlistar lengjast og er
biðtími eftir helztu aðgerðum bækl-
unarlækna nú orðinn það langur að
árangur ýmissa aðgerða er í hættu.
Slysa- og bæklunarlækningadeild
Borgarspítalans hefur sl. 2 ár haft
til umráða 32 legurúm til ráðstöfun-
ar fyrir slasaða sjúklinga með
áverka á beinum og liðum og sjúkl-
inga með sjúkdóma í stoðkerfí, sem
þurfa aðgerðar við. Þessum legur-
úmum hefur nú verið fækkað í 20,
sem er rétt nægjanlegt til að sjá
fyrir þörfum slasaðra sjúklinga.
Á biðlista slysa- og bæklunar-
lækningadeildar Borgarspítalans
eru nú rúmlega 500 sjúklingar og
hefur íjölgað um 120 á hálfu ári.
Um hálft hundrað bíður eftir aðgerð
á nýju krossbandi á hné, 30 bíða
eftir sérstökum spengingaraðgerð-
um á baki, hundrað eftir gerviliðsað-
gerð og svo má lengi telja.
Forvamir gegn slysum og sjúk-
dómum em yfirleitt góðar. En
stjómvöld verða einnig að sjá til
þess að nægjanlegt fjármagn fáist,
svo unnt sé að veita þá þjónustu sem
slasaðir og aðrir sjúklingar eiga
rétt á lögum samkvæmt.
Borgarspítalinn sér um meðferð
á nær öllum alverlegum slysum á
íslandi. Sjúklingar með áverka á
höfði, hrygg, höndum og með alvar-
lega áverka á bijóst- og kviðarholi
era alltaf fluttir á Borgarspítalann.
Þar er eini þyrlupallurinn við sjúkra-
hús hér á landi og þar er miðstöð
neyðarbílsins.
Slysa- og bæklunai’lækningadeild
Borgarspítalans sér um daglegan
rekstur slysadeildarinnar í samráði
við aðrar deildir innan spítalans.
Við spitalann hefur þróast al-
menn bæklunarlækningadeild, sem
sinnir almennum beina- og liðaað-
gerðum, sem og áverkum á beinum
og liðum. Þetta fyrirkomulag, þar
Hermannajakkar
og buxur
m
fi
með lausu vattfóðri.
Jakki aðeins kr. S.4S0,-
buxur aðeins kr. 1.950,-
5% staðgreiðsluafsláttur,
| einnig af póstkröfum
* greiddum innan 7 daga.
mmúTiLíFmm
GLÆSIBÆ. SÍMI812922
sem bæklunarlæknar sinna slösuð-
um sjúklingum svo og almennum
bæklunarlækningum, er nauðsyn-
Iegt, þar sem þessi svið eru mjög
nátengd og er ekki unnt að stunda
slysabæklunarlækningar án þess að
hinum almenna þætti sé jafnframt
sinnt.
Slysa- og bæklunardeildin hefur
fylgst vel með nýjungum og hafa
nýjar aðferðir og tækni jafnan verið
tekin í notkun. Miklar framfarir
hafa m.a. orðið í handarskurðlækn-
ingum, liðaskurðlækningum,
hrj'ggjarskurðlækningum og hafa
bæst við sérfræðingar á þessum
sviðum. Við deildina starfar einnig
eini íslenski læknirinn með sérfræði-
viðurkenningu í bráðalæknisfræði.
1992 hófust aðgerðir við hrygg-
skekkju á börnum svo og ýmsar
aðrac. sérhæfðar hryggjaraðgerðir,
sem áður vora framkvæmdar er-
lendis og kostuðu mikla íjármuni.
Þessar aðgerðir hafa nú reynst mun
ódýrari hér á landi.
Vaxandi hópur fólks stundar nú
íþróttir, sér til ánægju og heilsubót-
ar. Aukinni íþróttaiðkun fylgir þó
ætíð nokkur slysahætta og gætir
þessa greinilega á biðlistum slysa-
og bæklunarlækningadeildar Borg-
arspítalans.
Þjóðartekjur hafa farið heldur
minnkandi undanfarin ár og hefur
þessa gætt í heilbrigðiskerfinu,
einkum í rekstri sjúkrahúsa. Þrátt
fyrir hagræðingu og aðhaldssemi í
rekstri gengur erfiðlega að ná end-
um saman.
Mjög margar bæklunarlækninga-
aðgerðir fela í sér beinan fjárhags-
legan ávinning, breyta óvinnufær-
um einstaklingi í vinnufæran, rúm-
föstum í rólfæran. Slys og sjúkdóm-
ar í stoðkerfi eru algengasta orsök
óvinnufæmi hér á Iandi og því aug-
ljóst að hér eru miklir fjármunir í
húfi.
Með því að nýta sér nýjustu tækni
sem völ er á og stytta legutíma eins
og unnt er hefur verið reynt að
auka fjölda aðgerða. Sjúklingar era
nú útskrifaðir svo fljótt eftir aðgerð-
ir, að ekki er hægt að ganga lengra.
Biðlistar hafa nú þrátt fyrir þetta
lengst veralega og er fyrirsjáanlegt
að með sama legurúmafjölda og
skurðstofuaðstöðu stefnir í algert
óefni.
Talsverð hætta er á að ýmsar
nýjungar s.s. í hryggjarskurðlækn-
ingum muni hér lognast útaf í nafni
Ragnar Jónsson
„Það er ósk mín að þeir
sem beita nú niður-
skurðarhnífnum svo
skarplega sjái þó til
þess, að unnt sé að
halda uppi lágmarks
þjónustu og beita
skurðhnífnum þar sem
við á.“
sparnaðar. Kostnaðarsöm bið slas-
aðra og veikra eftir aðgerðum mun
óhjákvæmilega lengjast veralega,
einnig í nafni sparnaðar. Er þetta
hagkvæmt?
Þessir sjúklingar hafa ekki mynd-
að nein hagsmunasamtök og munu
varla gera það. Fáir gerast því
málsvarar þeirra.
Það er ósk mín að þeir sem beita
nú niðurskurðarhnífnum svo skarp-
lega sjái þó til þess, að unnt sé að
halda uppi lágmarks þjónustu og
beita skurðhnífnum þar sem við á.
Skert þjónusta í slysa- og bækl-
unarlækningum er að mínu mati
þjóðhagslega óhagkvæm.
Höfundur er sérfræðingur á slysa-
og bæklunardeild
Borgarspítalans.
Fótlaga inniskór
Verð nú 1.995,-
Stærðir: 40-46
Litir: svart m/bláu
POSTSENDUM SAMDÆGURS 5% STAÐGREIÐSLUAFSLATTUR
Ioppskórinn
VELTUSUNDI • SÍMI: 21212
V.