Morgunblaðið - 17.09.1993, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1993
Fyrrum
kommún-
istarí sókn
í Póllandi
Varsjá. Reuter.
FLOKKUR fyrrum kommún-
ista í Póllandi, „Lýðræðis-
bandalag vinstri manna“
vinnur sigur í þingkosningun-
um í Póllandi á sunnudag, ef
marka má skoðanakannanir.
Ólíklegt er talið að nokkur einn
flokkur fái meira en 20% atkvæða
í kosningunum en hægri og mið-
flokkar munu tapa verulegu fylgi,
reynist kannanir réttar.
Smáflokkum spáð fylgistapi
Flokkur fyrrum kommúnista
nýtur fylgis um 15% kjósenda en
á hæla honum koma tveir flokkar,
Bændaflokkurinn, sem forðum var
smáflokkur sem starfræktur var
við hlið Kommúnistaflokks Pól-
lands og „Lýðræðisfylkingin“,
flokkur Hönnu Suchocku, starf-
andi forsætisráðherra.
Búist er við að smáflokkar, sem
urðu til er Samstaða, verkalýðs-
hreyfingin óháða, klofnaði verði
fyrir miklu fylgistapi sem og flokk-
ar kaþólskra.
Umbótastefna í hættu?
Reuter.
Bændur gegn GATT
t T# JPIPiIIé jgÉi
*) f -J ,1^3 yf / WyM
,-:y
■ ipfP*' ■ y.
I i ••• ■ ■ - ■ ' í';
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópubandaiagsins ít-
rekaði í gær að samkomulag það sem náðst hefði
við Bandaríkjastjóm væri í samræmi um landbúnað-
arkafla GATT væri í samræmi við landbúnaðarregl-
ur EB. Frakkar krefjast þess að samið verði upp á
nýtt um landbúnaðarmálin en Edouard Balladur,
forsætisráðherra Frakklands, sagði að þeir myndu
mæta með opnum hug á ráðherrafund bandalagsins
á mánudag. Þýska stjórnin sagði í gær að ef ekki
næðist GATT-samkomulag væri framtíð EB í hættu
sem og pólitískur stöðugieiki í austurhluta Evrópu.
Michel Camdessus, framkvæmdastjóri Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins, sagðist í gær harma það að Frakkar
kysu að beijast gegn GATT-samkomulaginu, þar
sem það skaðaði jafnt ímynd þeirra á alþjóðavett-
vangi og hagsmuni þeirra sjálfra. „Þegar þú er fjórða
mesta útflutningsþjóð veraldar þá lokar þú ekki
dyrunum," sagði Camdessus, sem sjálfur er Frakki.
Franskir bændur hafa undanfarna daga efnt til
mótmæla á hraðbrautum við París og á myndinni
má sjá nokkra bændur, sem tilheyra öfgasamtökun-
um Cooperation Rurale halda á borða þar sem „efna-
hagslegri hryðjuverkastefnu" Bandaríkjastjómar er
mótmælt.
Lögum hefur nú verið breytt
þannig að hver flokkur þarf að fá
minnst 5% atkvæða til að fá kjör-
inn fulltrúa á þingi. I síðustu kosn-
ingum árið 1991 fengu 29 flokkar
fulltrúa á þingi.
„Lýðræðisbandalag vinstri
manna“ kveðst ekkert eiga sam-
eiginlegt með kommúnistum og
hagfræðingar sem Reuters-frétta-
stofan leitaði til kváðust ekki eiga
von á því að sigur þessa flokks
myndi verða tii þess að stefna
þróun í átt til markaðshagkerfis í
hættu.
Rússar ætla að einangra
eldflaugar Komsomolets
Moscow, Reuter.
RÚSSAR hyggjast reyna einangra tvær kjarnorkuflaugar í sovéska
kafbátnum Komsomolets sem sökk í Barentshafi í apríl 1989 til þess
að koma í veg fyrir geislamengun sem eyðilagt gæti fiskimið í norð-
urhöfum í allt að sjö aldir, að sögn Tengíz Borisovs, formanns rúss-
neskrar stjómarnefndar sem fjallar um sérstök viðfangsefni neðan-
sjávar.
ff
HAFRAGRÍN
ff
„Pabbi segir að AXA haframjölið
sé algjört hafragrín.
Borísov sagði að ákveðið hefði
verið að „innsigla" flaugarnar tvær
þar sem veruleg hætta væri á að þær
tærðust ella upp og plútóníum læki
úr þeim. Yrði að ljúka því verki
næsta sumar og gilti einu hvað það
kostaði. Áætlaður kostnaður næmi
milljónum dollara og vonuðust Rúss-
ar til þess að vestræn ríki tækju þátt
í kostnaði. Hann sagði að engin
hætta stafaði af kjamakljúfunum,
aflvélum Komsomolets-kafbátsins,
að minnsta kosti ekki í bráð.
Borísov sagði að eftir að kjam-
orkuflaugamar hefðu verið innsigl-
aðar lægi ekki mjög á að hífa þær
upp á yfirborð sjávar og eyða þeim
en óumflýjanlegt væri þó að gera
það innan nokkurra ára. Út af fyrir
sigt væri tæknilega mögulegt að
grafa þær í jörð á hafsbotni en al-
þjóðasamþykktir kæmu í veg fyrir
það.
Þegar hann var búinn að sannfœrast
um gœðin gerði hann nefnilega
verðsamanburð og þótti
verðið á AXA haframjölinu
svo hlœgilega lágt.
Hollur matur þarf greinilega
ekki að vera dýr,
segir hann glaður í bragði og fœr sér
aftur ískálina.“
HAFRAMJÖL
Meiri kraftur - minna verð!
Máekkí
heitaMaó
í Kína
Peking. Reuter.
YFIRVÖLD í Naiying í Kína hafa
neytt eigendur veitingahúss þar í
borg til þess að skipta um nafn á
húsinu. Það hafði verið kallað Maó
en borgarstjórnin hefur lagt bann
við nafngiftinni á þeirri forsendu
að það „skaðaði sögutilfinningu
alþýðunnar“ að gera nafn leitog-
ans látna að söluvöru.
í sal veitingahússins hafði verið
komið fyrir styttu af Maó í fullri
stærð og þjónamir gengu um með
mynd af kommúnistaleiðtoganum í
barminum. Á veggjum vom borðar
með slagorðum sem eignuð hafa ver-
ið leiðtoganum. Tónlistin sem seytl-
aði úr hátölurum meðan gestir
snæddu á veitingum vom lög sem
samin höfðu verið Maó til heiðurs.
Myrtu pilt-
ar ferða-
manninn?
TVEIR 13 og 15 ára piltar
liggja undir grun um að hafa
myrt breskan ferðamann, Gary
Colley, á Flórída sl. þriðjudag
og eru þegar í varðhaldi vegna
bílþjófnaðar. Þeir eru einnig
taldir hafa framið vopnað rán
á hótelherbergi í bænum
Montecello en sýnt þykir að
sama byssa hafi verið notað við
ránið og morðið á Colley.
Efnahagsráð-
stafanir í Japan
JAPANSKA stjórnin kynnti í
gær ráðstafanir í efnahagsmál-
um sem ætlað-er að snúa efna-
hagssamdrætti við og stuðla
að aukningu þjóðarframleiðsl-
unnar. Verður m.a. verð á raf-
magni og gasi til heimilisnota
lækkað og dregið úr opinberum
afskiptum af atvinnulífi.
Shevardn-
hætt kominn
EDÚARD Shevardnadze leið-
togi Georgíu slapp naumlega
er aðskilnaðarsinnar í Abkhaz-
íu gerðu í gær sprengjuárás á
byggingu í Súkhúmí þar sem
hann sat á fundi. Tíu óbreyttir
borgarar biðu bana og rúmlega
50 særðust er aðskilnaðarsinn-
ar tóku nokkur þorp umhverfis
borgina í gærmorgun.
Eriðfleikar
Græningja
FRESTA varð landsfundi
flokks Græningja í Bretlandi í
gær þar sem aðeins 40 manns
mættu til fundarins. Skráðir
flokksmenn voru 18.500 árið
1990 en hefur fækkað í 4.600
vegna hatrammra innan-
flokksátaka og klofnings.
Nýr stjóri hjá
Independent
PATRICK Morrissey var í gær
ráðinn framkvæmdastjóri
breska blaðsins Independent.
Hann náði miklum árangri sem
framkvæmdastjóri dagblaða
fjölmiðlakóngsins Roberts
Maxwells 1985-90.
Pjátur í byrð-
ing Titanics
BANDARÍSKIR sérfræðingar
halda því fram að ástæður þess
að Titanic sökk eftir árekstur
við borgarísjaka í jómfrúrferð
sinni árið 1912 megi rekja til
þess að byrðingur skipsins hafi
verið smíðaður úr lélegu stáli.
Rússar biðja
um hjálp
RÚSSAR hvöttu vestræn ríki
til þess í gær að íjárfesta í iðn-
aði í heimskautahéruðum
landsins og hjálpa þannig við
að uppræta úreltar verksmiðjur
sem valdið hafa mikilli mengun.
Brettasiglari í
mál við vatns-
félagið
BRESKUR brettasiglari höfð-
aði í gær mál á hendur Syðra-
vatnsfélaginu og segir það bera
ábyrgð á því að hann sýktist
af lifrarbólgu við brettasigling-
ar undan borginni Eastbourne.
Heldur hann því fram með
stuðningi lækna að fyrirtækið
hafi ekki hreinsað hoiræsaskolp
nógu vel áður en því var sleppt
í sjó fram.