Morgunblaðið - 17.09.1993, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1993
29
I
í
(
(
<
<
<
<
<
<
eignaðist Dúddi hross af þessu
skjótta kyni. Eitt þeirra var mest-
megnis hvítt á annarri hliðinni en
rautt á hinni. Þegar Dúddi reið eitt-
hvað norðureftir sveitinni horfði
hvíta hliðin á hestinum að bæjum
og búandliði. Þegar hann fór til
baka sneri rauða hliðin að bæjum.'
Þar er líklegt að fólk hafi haldið að
hann hafi haft hestakaup í þessari
ferð. Riðið brott á gráum og komið
aftur á rauðum. Þetta hefur þá ver-
ið vegna þess að fólk mundi ekki
eftir skjótta hestakyninu í Hátúni
og á Syðri-Húsabakka.
Við Siguijón ræddum aldrei um
skáldskap utan einu sinni. Ég hef
löngum haft fyrir sið að kanna land-
fræðilegan vettvang sögusviða. Og
í eitt skipti bað ég Siguijón að fara
með mér á hestum nokkurn spöl
þessara erinda. Það stóð nú ekki á
honum að verða við þessari bón.
Mig minnir að hann hafi þá verið
að liðka til skjóttan hest fyrir séra
Gunnar í Glaumbæ. Nú gerist ekk-
ert nema við ljúkum ferðinni og síð-
an lýk ég bókinni í fyllingu tímans
og sendi eintak til míns ágæta fylgd-
armanns skömmu fyrir jól. Það voru
snjóalög og hríðarveður á Norður-
landi um þetta leyti. Einn morgun
var ég fyrir skömmu kominn í skrif-
stofu mín, þegar síminn hringdi. Það
var þá enginn annar en Siguijón í
símanum. Sagðist hann hafa fengið
bókina kvöldið áður og lesið hana
um nóttina. Þarna um morguninn
hefði hann síðan gengið suður í
Varmahlíð til að hringja í mig. Ég
bjóst við hinu versta. Ja, ég vildi
ekki segja það í sveitasímann, sem
ég þarf að segja við þig, sagði hann.
Gastu ekki skrifað mér heldur en
fara að ganga þetta í snjónum og
hríðinni. Nei, mér lá að að tala við
þig, sagði hann. Og mér fannst stöð-
ugt syrta í álinn. Síðan ræddi hann
nokkuð enfi bókarinnar, einkum það
sem hann taidi sig kannast við. Og
svo sagði hann, hátt og snjallt í sím-
ann: Mér finnst bókin góð. Og með
það var hann farinn.
Við vorum ekkert, sagði hann
liggjandi í rúmi sínu í sjúkrahúsinu
á Sauðárkróki. En við höfum báðir
spjarað okkur. Svo brosti hann og
tók upp viskýfleyg og bauð mér,
eins og við værum staddir undir
vegg við Stafnsrétt. Ég saup dug-
lega á fleygnum, enda hafði mér
ekki áður verið boðið að súpa á fleyg
í sjúkrahúsi. Hann kvaðst mega
hafa þetta hjá sér. Hann sagðist
ekki spyija neinn. Og mér skildist
að snúningapilturinn frá Hátúni
væri kominn það nærri leiðarlokum,
að enginn dirfðist að segja honum
fyrir verkum, ekki einu sinni: Og
flýttu þér nú. Svo leið nokkur stund
við upprifjanir, sem voru okkur báð-
um kærar. Það er svo með tvo ein-
staklinga, sem þekkjast vel og
þekkja vel hvor til annars, að enginn
getur endurtekið upprifjanir þeirra.
Við vorum að kveðjast og vissum
það báðir. Han bauð mér aftur úr
fleygnum, eins og til að bæta fyrir
að þetta yrði ekki lengra. Ég sneri
aftur út í kalda norðanáttina.
Siguijón Jónsson verður mér
ógleymanlegur maður. Hann átti
marga samferðamenn næstum öld-
ina á enda, sem eins og hann, sköp-
uðu Ut og líf í kringum sig með fjör-
legum tilþrifum og mikilli mann-
elsku, sem í raun gekk út yfir allt
líf sem nærri þeim kom. Syðra-
Skörðugil heldur áfram að vera
merkisteinn, sem ókunnugum er
vísað til ofan af Vatnsskarði. Fleiri
slíkir staðir eru í Skagafirði, þótt
höfðingjar þeirra séu löngu liðnir.
Skagfirðingar eiga að gera meira
af því að minna á það, sem merki-
legt er í sögu þeirra. Það yrði mjög
í anda þess mikla félagshyggju-
manns, sem Siguijón var. Nú fæ
ég hann t.d. ekki lengur til liðs við
uppbyggingu Vallnalaugar, þar sem
þjóðveldið þvoði sár sín. En menn
verða að kunna að taka töpum sín-
um. Mestu hafa þó tapað við frá-
fall þessa snilldarmanns, kona hans
og börnin fjögur. Það verður seint
bætt. Ég votta þeim samúð mína.
Indriði G. Þorsteinsson.
Fleirí minmngargreinar um
Sigurjón Jónasson bíða birt-
ingar og munu birtast í blað-
inu næstu dnga.
Jörundur Pálsson
arkitekt - Minning
Fæddur 20. desember 1913
Dáinn 6. september 1993
Minning um góðan vin getur aldr-
ei orðið hlutlaus, en þó þykist ég
geta sagt með sanni, að Jörundur
Pálsson, arkitekt og listamaður, var
fágætur ágætismaður og bar margt
til. Hann fékk í vöggugjöf listræna
hæfileika, sem hann bar gæfu til
að rækta á langri starfsævi.
Auðvitað eru það forréttindi að
hljóta slíka gjöf en einnig skyidur
sem lagðar eru á herðar þess sem
hlýtur.
Að loknu stúdentsprófí tók hann
óhefðbundna stefnu og fór til náms
í auglýsingateikningu í Kaup-
mannahöfn, og lauk þar prófi á
irem árum. Hann var því einn af
’rumheijum þeirrar starfsgreinar á
[slandi og stundaði hana í nokkur
ár. En þegar færi gafst eftir styij-
aldarlok fór hann enn í víking og
nú til náms í arkitektúr og lauk enn
prófi. Eftir það var húsagerðarlist
ævistarf hans. Einnig var hann
kunnur myndlistarmaður og hélt
nokkrar málverkasýningar. Hann
var hrifnæmur fyrir fögrum söng
og klassískri tónlist og komst í sjö-
unda himin yfir góðri myndlist hver
sem í hlut átti öfundarlaust og af
einlægni. Hann var mikill náttúru-
unnandi, glöggur skoðandi sem
hreifst ekki síður af hinu smágerða
en því sem blasti við allra augum.
Ég heyri tungutak Jörundar í þessu
kvæði eftir Carl Sandburg sem
Magnús Ásgeirsson sneri á íslensku:
Gult fijóduft
á glampandi bývæng,
grátt ljós
í furðuaugum
fagurrar konu,
rauðar rústir
í litbrigðum
lækkandi sólar.
Hann var þessi notalega mann-
gerð, sem upp úr þurru gat boðið
til veislu, brugðið á sig svuntu og
töfrað fram dýrðlegan mat og vín
við hæfi, með undirleik yndislegrar
tónlistar - allt innan marka hófs
og háttprýði.
Auðvitað var líf hans ekki eilífur
dans á rósum frekar en okkar hinna.
En hann vissi að þó gleðin sé stund-
leg er hún nesti ef í nauðir rekur.
Hann hlúði að henni í hjarta sínu
og gat ornað sér við minningar um
sæludaga á bökkum Laxár í Aðal-
dal, en þar stóð hann sælastur
manna sumar hvert um áratuga
skeið.
Hann var líka sagnasjór og sög-
umar oftast kímnar og góðviljaðar
sem vöktu hlátra en meiddu ei neinn.
Og nú haustar að og að þessu
sinni með mildi og blíðu, en vekur
engu að síður trega í sál manns.
Ég minnist þess að allir þeir góðu
drengir íslenskir, sem voru skólafé-
lagar mínir í Kaupmannahöfn á ár-
unum fyrir stríð, hafa nú lokið
göngu sinni og minningunni fylgir
sár söknuður og djúpt þakklæti fyr-
ir samfylgdina.
Skáldið Carl Sandburg lýkur
kvæðinu hér að framan svo:
- svo safna eg
og hleð ykkur
minningar mínar.
Er Dauðinn kemur
hann klærnar
skal bijóta
á einhverju,
sem eg held eftir.
Og satt er það, að nú, að Jörundi
Pálssyni gengnum, höldum við vinir
hans eftir fullu fangi af minningum
um góðan dreng.
Atli Már.
Undir skólans menntamerki
mætast vinir enn í dag.
Sýnum öll í vilja og verki
vöxt og trú og bræðralag.
(Davíð Stefánsson.)
Fyrir rúmum 58 árum, nánar til-
tekið í júnímánuði 1935, útskrifuð-
ust 22 stúdentar frá Menntaskólan-
um á Akureyri. Þeir settu upp hvítu
húfurnar. Veður var svalt en bjart.
Þeir kvöddu sína ágætu kennara,
skólameistara og hans prýðilegu
frú. Þökkuðu kynnin, kennsluna,
góðar ábendingar og heilræði svo
og það einstaka menningarlega og
félagslega umhverfí, er þarna hafði
ríkt, sem þeir og höfðu átt þátt í
af veikum mætti. Skólahúsið sem
slíkt var þeim innilega kært og átti
sína sérstöku þökk skilda.
Svo var ferð fram haldið á nýjum
vettvangi, að meira námi, að nýjum
störfum og nýjum baráttumálum.
Óskin um að rækja af fremd fornar
dáðir og að láta fagra drauma ræt-
ast bjó þeim í bijósti og að sýna
það í nokkru að afl og anda ættu
þeir sem dvalið hefðu innan veggja
MA.
Stúdentarnir voru að þessu sinni
22 að tölu. Þar af ein stúlka. Nú
skildu þeirra vegir. Krossgötur voru
margar og lágu til allra átta. Lífs-
mátinn var mismunandi. Lífsbarátt-
an sömuleiðis. Og nú í dag er gata
meiri hluta þessa hóps gengin hér
á enda. Sól til viðar sígin. Hinir,
sem eftir eru, stytta sporin. Hærur
krýna höfuð, ef um hár er að ræða,
og fyrr en varir kemur og þeirra
kveðjustund. Sá bleiki bíður í varpa
og/eða Karon ferjumaður leggur
árar útbyrðis. Reiðubúinn að hefja
róður yfir ána Styx yfir til stranda
nýrra ókunnra landa. Þeir vita hvað
til síns friðar heyrir og þeim er í
raun ekkert að vanbúnaði. Flestir
orðnir hvíldinni fegnir, þá er kallið
kemur frá þeirra líkaböng.
Hópurinn frá 1935 hefur staðið
sig vonum framar. Sumir hveijir
gegnt hæstu stöðum í okkar þjóðfé-
lagi með prýði. Öll unnið drottins
veröld sitthvað til þarfa, þá eftir
er spurt um sólarlag. Öll hafa þau
haft til síns ágætis nokkuð.
Hinn 6. september sl. kvaddi enn
einn úr hópnum, Jörundur Pálsson
arkitekt. Hann var sonur merkis-
hjónanna Páls Bergssonar og Svan-
hildar Jörundsdóttur, löngum kennd
við Syðstabæ í Hrísey. Þau hjónin
áttu fjölda barna. Öll hin gervileg-
ustu og vel af guði gerð. Mörg
þeirra þjóðkunn. Mikið lista- og
manndómsfólk. Flest þegar gengin
á vit feðra sinna og nú hefur Jör-
undur bæst í þann flokk. En niðj-
arnir teknir við merkinu. Halda því
á loft og sögunni fram.
Jörundur var hinn mesti myndar-
maður að vallarsýn. Lundprúður og
viðmótshlýr. Hann var umsjónar-
maður síns bekkjar tvö síðustu árin
í skólanum og fór vel með vald sitt.
Listrænn prýðilega og því liðtækur
mjög við undirbúning skólahátíða.
Hann Var drengur góður í hvívetna.
Hann var arkitekt að menntun.
Vann hjá Húsameistara ríkisins um
fjölda ára. Rak og eigin teiknistofu
um skeið. Kirkjur byggðar eftir
teikningum Jörundar munu halda
nafni hans lengi á lofti. „Því aldur
deyðir engan mann, sem á það verk,
er lifir.“ (E.B.)
Frá árinu 1982 sinnti hann nær
einvörðungu málaralist. Þar átti
fjallið Esja góðan að. Hún greip hug
hans allan. Myndir hans af Esjunni
frá ýmsum sjónarhornum voru
margar mjög athyglisverðar og fal-
legar. Hann hélt og myndasýningar
henni einni tileinkaðri.
Jörundur var hamingjusamlega
kvæntur hinni ágætustu konu, Guð-
rúnu Stefánsdóttur. Dugleg og
nærfærin eiginkona og honum
ómetanlegur styrkur og stoð í blíðu
og stríðu. Þau eignuðust tvö mann-
vænleg börn, Stefán og Guðrúnu.
Það var venja stúdentanna frá
1935 að koma saman einstöku sinn-
um. Stundum lá þá leiðin til Akur-
eyrar til að minnast meiri háttar
stúdentsafmælis þar. En einkum
var heimili Jörundar og Guðrúnar
tilvalinn mætingastaður. Þar var
hátt til lofts og vítt til veggja.
Húsráðendur þar frábærir. Gestum
fagnandi með opnum örmum og
umvafðir hlýju og vinsemd. Þar var
gott að mætast. Rifja upp minning-
ar frá MA. Syngja stúdentasöngva
og skiptast á gamanyrðum. Slíkar
stundir gáfu lífinu nýjan lit og fögn-
uð. Fyrir hin góðu kynni, sem ekki
gleymast, þökkum við samstúdent-
ar frá MA 1935 þeim Jörundi og
Guðrúnu af einlægum hlýjum huga
og þau munu lifa í minningu okkar
meðan enn er dagur.
Nú er orðið einum færra en fyrr
í þessum stúdentahópi. Brátt fara
hinir einn af öðrum þessa sömu
leið óumflýjanlega. Skyndilega lýk-
ur göngunni hér. Allur hópurinn og
makar hans eiga innan tíðar bústað
á öðrum sviðum. Væntanlega í
nokkru nágrenni. Þar kann að gef-
ast tóm til að hvílast á grænum
grundum nýrrar tilveru og njóta
næðis hjá silfurtærum lindum. Og
þar kann að vera tilefni til að syngja
fullum hálsi eins og í gamla daga:
„Gaudeamus igitur" og „Undir
bliku beitum þá bát og strikið tök-
um“. Þá verður allt andstreymi og
erfiði hérna megin grafar, von-
brigðin og órættu draumarnir fögru
að baki en gleði endurfundanna rík-
ir ein.
Mætur maður og listrænn hefur
nú horfið okkur af vettvangi dags-
ins og við kveðjum hann með sökn-
uði. „Drottinn minn gefi dauðum
ró og hinum líkn er lifa.“
Góð forsjón styrki og blessi eigin-
konu Jörundar, börn þeirra og aðra
ástvini á þessari erfiðu skilnaðar-
stund.
Einn af stúdentum frá MA 1935,
Eiríkur Pálsson frá Olduhrygg.
Jörundur fæddist á Ólafsfirði en
fluttist með foreldrum sínum
tveggja ára gamall til Hríseyjar og
ólst þar upp. Hann lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum á Akur-
eyri árið 1935 og fór að því loknu
til Kaupmannahafnar til náms í
auglýsingateiknun við Den tekniske
selskabssole. Jafnframt stundaði
hann nám í málaralist í undirbún-
ingsdeild Listaháskólans í Kaup-
mannahöfn. Jörundur lauk prófi í
auglýsingateiknun 1938. Hann
stundaði auglýsingateiknun í
Reykjavík í 15 ár, en fór þá til
náms í byggingarlist við Konung-
legu akademíuna í Kaupmanna-
höfn. Þaðan lauk hann prófi 1959
og starfaði síðan sem arkitekt hjá
húsameistara ríkisins.
Fyrstu kynni okkar Jörundar
voru í sambandi við stangveiði-
íþróttina. Þau kynni meðal annars
bundu okkur föstum vináttubönd-
um og ég er þakklátur fyrir öll þau
ár og þær gleðistundir sem við átt-
um einir saman eða með góðum
félögum.
Jörundur var hafsjór af skemmti-
legum sögum og atburðum sem
hann sagði okkur frá á sinn sér-
stæða og skemmtilega hátt. Þar
skákaði honum enginn okkar. Jör-
undur var jafnlyndur, orðvar og
ráðvandur maður og fastur fyrir
ef því var að skipta.
Oft er skammt milli lífs og dauða.
Fráfall Jörundar bar brátt að og
fyrirvaralaust og þess vegna er erf-
iðara en ella að sætta sig við missi
vinar og félaga eftir rúmlega 40
ára félagsskap og vináttu sem
aldrei bar skugga á.
Ég kveð vin og félaga með sökn-
uði og votta eftirlifandi eiginkonu,
Guðrúnu Stefánsdóttur, og börnum
innilega samúð mína.
Jón Kr. Sveinsson.
Bílamarkaóurinn
Smiðjuvegi46E
v/Reykjanesbraut.
Kopavogi, sími
B71800 ^
OPIÐ SUNIMUDAGA
KL. 13 - 18.
ATH! ERUM BEINTENGDIR VIÐ
BIFR.SK.ÍSL. V/VEÐBANDA O.FL.
Vantar nýlega bíla á
skrá og á staðinn,
ekkert innigjald
Toyota 4Runner V-6 '91, rauður, sjálfsk.,
ek. aðeins 17 þ., upphækkaður o.fl. Sem
nýr. V. 2.5 millj., sk. á ód.
MMC Pajero bensín ’86, brúnsans, 5 g.,
ek. 89 þ., Óvenju gott eintak. V. 850 þús.
Suzuki Swift GL Sedan ’90, hvítur, 5 g.,
ek. 44 þ. V. 690 þús., sk. á ód.
Chevrolet Camaro RS '91, blár, sjálfsk.,
(6 cyl), ek. 39 þ. V. 1490 þús., sk. á ód.
MMC Galant GLXi 4 x 4 ’91, Ijósbrúnn, 5
g., ek. 23 þ., rafm. í rúðum o.fl. Fallegur
bíll. V. 1450 þús.
MMC Galant GTi 16v ’89, 5 g., ek. 74
þ., ABS bremsur, álfelgur, sóllúga, rafm.
í öllu o.fl. V. 1250 þús.
Toyota Corolla XL '88, 3ja dyra, 5 g., ek.
56 þ. V. 550 þús.
Chevrolet Blazer Sport 4.3 I ’88, sjálfsk.,
ek. 98 þ. Góður jeppi. V. 1450 þús.
Toyota Corolla Sedan ’91, beinsk., ek.
52 þ. V. 750 þús., sk. á ód.
MMC Lancer GLX station '88, rauður, 5
g., ek. 95 þ. Gott eintak. V. 590 þús.
Citroen AX 11TRS ’91, blár, 5 g., ek. 19
þ. Sparneytinn bíll. V. 590 þús
Toyota Corolla DX '85, 4 g., ek. 90 þ.
V. 280 þús.
Ford Econoline 350 LXT 7,3 diesel '88,
14 farþega, blár, sjálfsk., ek. 94 þ. V.
1680 þús., sk. á ód.
Toyota Corolla Sedan '90, beinsk., ek.
60 þ. V. 680 þús.
Cherokee Laredo '86, sjálfsk., ek. 5 þ. á
vél. Óvenju gott eintak. V. 1050 þús.
Nissan Patrol langur diesel '84, hvítur, 5
g., ek. 180 þ. V. 1 millj., sk. á ód.
Isuzu Trooper SE 2.6i ’92, 7 manna, 5
g., ek. 14 þ. Ýmsir aukahl. V. 2.5 millj.
Chrysler New Yorker 2,2 turbo, '86, blár,
sjálfsk., ek. 180 þ., leðursæti, rafm. í öllu
o.fl. Toppeintak. V. 850 þús., sk. á ód.
Daihatsu Charade CS '90, hvítur, 4 g.,
ek. 69 þ. V. 490 þús. stgr.
MMC Colt GL '90, rauður, 5 g., ek. 80 þ.
V. 630 þús.
Suzuki Swift GL ’91, steingrár, 5 g., ek.
29 þ. V. 650 þús.
Ford 150 Custom EX Cap 4x4 ’88, rauð-
ur, 5 g., ek. 25 þ. mílur á vél. Toppeintak.
V. 1590 þús., sk. á ód.
Nissan SLX Sedan '93, rauður, sjálfsk.,
ek. 12 þ., rafm. í rúðum, spoiler o.fl. V.
1180 þús., sk. á ód.