Morgunblaðið - 17.09.1993, Blaðsíða 44
Gæfan fylgi þér
í umferðinni
SJOVA
LMENNAR
slm%9n^SÍMÍlRÉF6M18Í, 'pÓSTHÓLF^foiO^/ AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Ekki dregur úr skattsvikum þrátt fyrir skattkerfisbreytingar
* Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
A flugi yfir Mosfellsbæ
NÝR og fullkomin svifdreki í eigu Áma Gunnarssonar íslandsmeistara svífur yfír Mosfellsbæ og í baksýn má sjá Esjuna.
Nefnd um framtíð-
arskipulag löggæslu
Embætti
ríkislög-
reglustjóra
tilumræðu
NEFND sem starfar á vegnm
dómsmálaráðherra til að gera til-
lögur um framtíðarskipulag lög-
gæslumála í landinu mun skila til-
lögum sínum til ráðherra um
næstu mánaðamót. Samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins
hafa verið ofarlega á blaði nefnd-
arinnar hugmyndir um að setja á
stofn embætti ríkislögreglustjóra
sem færi með stjórn og samræm-
ingu löggæslumála i landinu sem
nú heyra undir dómsmálaráðu-
neytið. Þorsteinn Geirsson, ráðu-
neytisstjóri og formaður nefndar-
innar, vildi ekkert tjá sig um störf
nefndarinnar í samtali við Morg-
unblaðið í gær. Hann sagði stefnt
að því að kynna tillögur nefndar-
innar um mánaðamót og meðan
það hefði ekki verið gert lægju
engar tillögur fyrir.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins er gert ráð fyrir að nefndin
leggi einnig til að aðstaða allra lög-
regluembætta í landinu verði jöfnuð
þannig að þau fái sambærileg verk-
efni.
Þjófnaðarbrot til
staðarlögreglu?
Tekjutap ríkis og sveitar-
félaga 11 milljarðar á ári
i NÝRRI skýrslu um umfang skattsvika hérlendis kemur fram
að ekki hefur dregið úr skattsvikum frá árinu 1985 þrátt
fyrir skattkerfisbreytingar frá þeim tíma. Áætlað tekjutap
ríkis og sveitarfélaga vegna skattsvika nemur 11 milljörðum
króna á ári. Fjármálaráðherra hefur boðað hertar aðgerðir
gegn skattsvikum í framhaldi af niðurstöðum skýrslunnar.
Togari
fékkdufl
í vörpuna
TOGARINN Tálknfirðing-
ur fékk tundurdufl í vörp-
una er skipið var statt um
30 sjómílur norður af
Kögri. Skipverjar til-
kynntu Landhelgisgæsl-
unni um duflið og ákveðið
var að senda menn vestur.
Samkvæmt upplýsingum
frá stjórnstöð Landhelgis-
gæslunnar um miðnættið í
gær var ákveðið að Tálknfírð-
ingur sigldi inn til Bolungar-
víkur um nóttina en sprengju-
sérfræðingar frá LHG áttu að
fljúga vestur er birti í morgun.
Talið er að tundurduflið sé frá
árum seinni heimsstyijaldar-
innar.
Nefnd á vegum fjármálaráðu-
neytis sem vann að gerð skýrsl-
unnar kemst að þeirri niðurstöðu
að óframtaldar tekjur hafí numið
sem svarar 4,3% af landsfram-
leiðslu árið 1992. Þetta samsvarar
því að 16 milljarðar króna hafi
ekki verið gefnir upp til skatts.
Nefndin leggur fram ítarlegar
tillögur til úrbóta og telur að hert
skattaframkvæmd með auknum
mannafla til skattrannsókna og
skattaeftirlits ásamt þyngri refs-
ingum við skattsvikum séu þær
leiðir sem mestu máli skipta.
Fjármálaráðherra boðar
aðgerðir
Fjármálaráðherra hefur boðað
að hann muni bregðast við tillög-
um nefndarinnar með fjórþættum
aðgerðum. Skipuð verður nefnd til
að endurskoða reglur um rekstrar-
kostnað og reiknað endurgjald.
Unnið er að endurskoðun á lögum
um bókhald og frumvarp um starf-
semi endurskoðenda er til umfjöll-
unnar.
Áhersla verður lögð á að upp-
ræta svarta atvinnustarfsemi til
að tryggja skattalegt jafnræði
fyrirtækja og eðlilega samkeppni.
Starfsemi Skattrannsóknarstjóra
ríkisins verður styrkt með því að
fjölga starfsmönnum sem ein-
göngu fást við að rannsaka svarta
atvinnustarfsemi.
í skýrslunni er einnig að finna
niðurstöður skoðanakönnunar sem
sýna að skattasiðferði hefur hrak-
að á undanfömum árum. Sam-
kvæmt könnuninni myndu rúm-
Iega 70% þeirra sem svöruðu
stunda skattsvik ef þeim gæfíst
kostur á slíku.
Sjá miðopnu: „Skattsvik jafn
mikil...“
Það mundi e.t.v. hafa í för með
sér að staðarlögregluembættin á að-
alstarfssvæði RLR, sem er höfuð-
borgarsvæðið, tælqu að sér rannsókn
á allmörgum brotaflokkum, svo sem
þjófnaðarbrotum, sem nú heyra und-
ir RLR, sem áfram hafí á hendi rann-
sóknir alvarlegustu afbrotamála.
Óljóst er hvort lagt verður til að á
móti flytjist miðstöð rannsókna fíkni-
efnamála frá fíkniefnadeild lögregl-
unnar í Reykjavík til RLR.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins yrði breyting sú sem fælist
í stofnun embættis þessa hliðstæð
því sem var er fangelsismál í landinu
voru sett undir forræði sérstakrar
fangelsismálastofnunar, en þau
höfðu áður verið undir beinni yfír-
stjórn ráðuneytis.
Aformað að senda varð-
skipsmann í Smugnna
Mun gera mælingar á afla íslensku skipanna á miðunum
ÞORSTEINN Pálsson, sjávarútvegsráðherra, hefur samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins, uppi áform um að senda mann frá
Landhelgisgæslunni í Smuguna til þess að fylgjast með samsetn-
ingu afla íslenskra skipa sem þar eru að veiðum. Samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins er gert ráð fyrir að starfsmaður
Landhelgisgæslunnar fari til Ósló á næstunni og mun hann fara
með norsku eftirlitsskipi á miðin til að fara um borð í íslensku
skipin, en gengið verður endanlega frá því í dag í ráðuneytinu
hvernig þessu verður hagað. Morgunblaðinu tókst ekki að ná í
sjávarútvegsráðherra vegna þessa máls í gærkveldi þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir.
Níu íslensk skip eru nú að veið-
um í Smugunni og telur norska
strandgæslan að mikið sé af und-
irmálsfíski í afla íslensku skip-
anna. í kjölfarið óskaði sjávarút-
vegsráðherra eindregið eftir því
að veiðum yrði hætt nú þegar á
þeim svæðum þar sem umtals-
verður smáfiskur væri í afla. Skip-
stjórar íslensku skipanna, sem
voru tíu en eru nú níu þar sem
Hólmanesið er lagt á stað heim,
komu í gær á framfæri orðsend-
ingu þar sem lýst er óánægju með
fréttir íslenskra fjölmiðla af smá-
fiskadrápi.
„Dauður sjór“
Skipstjórunum fínnist „mikil
lágkúra að íslendingar skuli láta
Norðmenn eina og sér matreiða
ofan í sig fréttir til flutnings og
útgáfu yfirlýsinga af hálfu ráða-
manna“, eins og segir í skeyti
skipstjóranna. Þar kemur enn-
fremur fram varðandi smáfiska-
drápið að aflinn hafi verið
400-500 kíló eftir 5 til 6 tíma tog
og því nánast dauður sjór.
Sjá einnig frétt á miðopnu.