Morgunblaðið - 01.10.1993, Page 1
80 SIÐURB/C
222. tbl. 81.árg.
FÖSTUDAGUR1. OKTÓBER1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Mesti jarðskjálfti í hálfa öld ríður yfir vesturhluta Indlands
Tíu þúsund talin af
AÐ MINNSTA kosti tíu þúsund manns fórust og jafnmargir
særðust er öflugur jarðskjálfti reið yfir héröðin Maharashtra,
Andrha Pradesh og Karnataka í vesturhluta Indlands. Um fimm-
tíu þorp jöfnuðust nær alveg við jörðu og létust heilu fjölskyld-
urnar er hús þeirra hrundu. Mesti skjálftinn, sem mældist 6,4
á Richterkvarðanum, kom snemma um morgun er flestir voru
enn sofandi.
Mesti mannskaðinn varð í borg-
unum Umarga og Khilari sem eru
í um 450 kílómetra fjarlægð frá
Bombay.
Búast má við að tala látinna
eigi eftir að hækka verulega og
telja sumir að allt að tuttugu og
fimm þúsund manns kunni að
hafa farist
Þetta er mesta mannfall af
völdum landskjálfta í suðurhluta
Asíu í hálfa öld.
Sjá nánar á bls. 20.
Abkhazía
Síðasta
virkið
fallið
Tbilisi. Reuter.
SVEITIR aðskilnaðarsinna í
Abkhazíu náðu í gærmorgun
á sitt vald borginni Ocham-
chira og síðdegis féll borgin
Gali þeim einnig í skaut. Þar
með hafa aðskilnaðarsinnar
hrakið stjórnarher Georgíu
úr virkjum sínum í héraðinu,
að sögn talsmanns varnar-
málaráðuneytisins í Tbilisi. Á
mánudag féll Sukhumi, höfuð-
staður Abkhazíu, í hendur
uppreisnarmanna.
Soso Margishvili, talsmaður
varnarmálaráðuneytisins í Tbilisi,
sagði að sveitir aðskilnaðarsinna
hefðu ráðist úr þremur áttum á
Ochamchira í fyrrinótt. Fullyrti
hann að rússneskar hersveitir hefðu
liðsinnt aðskilnaðarsinnum en yfir-
völd í Moskvu hafa ætíð mótmælt
því að rússneskir hermenn ættu
aðild að átökunum í Georgíu.
Með falli Ochamchira hafa að-
skilnaðarsinnar náð þjóðveginum
meðfram Svartahafsströnd Abk-
hazíu á sitt vald. Sagði Margishvili
að ákaft væri barist um þijú þorp
í nágrenni vegarins, Tsager, Merk-
ula og Aradu.
Ringulreið í röðum georgíska
stjórnarhersins er sögð megin-
ástæða undanhalds stjórnarhersins
í Abkhazíu og þess að Ochamchira,
sem er 60 km suður af Sukhumi,
féil. Hersveitum sem vörðu borgina
bárust misvísandi fyrirmæli frá
mörgum foringjum. í gær var
stjómarherinn sagður safna liði og
ráða ráðum sínum suður af borg-
inni.
Þúsundir óbreyttra borgara voru
sagðir á flótta frá Ochamchira suð-
austur af borginni í átt til borgar-
innar Gali.
Jeltsín fellst á samninga-
viðræður við þingmenn
Moskvu. Reuter.
BORIS Jeltsín Rússlandsforseti féllst í gær á að hefja samningavið-
ræður með milligöngu rétttrúnaðarkirlqunnar til að binda enda á
deilu hans við þingmenn, sem hafast við í Hvíta húsinu í Moskvu.
Var greint frá þessu eftir fund Aleksý' öðrum patríarka, æðsta yfir-
manni rússnesku réttrúnaðarkirkjunnar. „Við ætlum að reyna að
frelsa Ilvíta húsið á rólegan hátt og án þess að stefna lífum al-
mennra borgara í hættu," sagði Júrí Lenov, talsmaður forsetans.
Munu sendinefndir frá báðum deiluaðilum eiga fyrsta fund sinn í
höfuðstöðvum kirkjunnar í dag.
Lcí Scala
lokað?
Róm. The Daily Telegraph.
CARLO Fontana, forstöðumaður
Scalaóperunnar í Mílanó, telur
hættu á að Ioka verði óperuhús-
inu í kjölfar verulegs niðurskurð-
ar á ríkisframlögum. Kemur
þetta fram í grein sem hann ritar
í dagblaðið Coríere della Serra.
Ríkisstjórn Ítalíu ætlar að skera
niður ríkisútgjöld um 1.400 milljarða
íslenskra króna á næsta ári, þar af
fímm milljarða vegna menningar-
mála. í fyrra var framlagið til La
Scala lækkað í þtjá milljarða króna,
sem Fontana segir ekki einu sinni
duga fyrir launakostnaði. Nú stendur
til að lækka framlagið um 400 millj-
ónirtil viðbótar. Næsta leikár Scalaó-
perunnar hefst 7. desember og sagði
Fontana í grein sinr.i að niðurskurð-
urinn „ógnaði tilveru" óperunnar.
Fréttastofan Interfax greindi frá
því að forsetinn væri reiðubúinn að
aflétta umsátrinu um Hvíta húsið ef
þeir sem þar hefðust við létu vopn
sín af hendi á sama tíma. Alexander
Rútskoj varaforseti bauðst hins veg-
ar til þess að þingmenn og stuðnings-
menn þeirra söfnuðu vopnum sínum
saman og þau yrðu geymd undir
eftirliti. A móti fór hann fram á að
aftur yrði veitt vatni og rafmagni til
þinghússins og símalínur opnaðar.
Það er einnig talið hafa vegið
þungt á metunum að andstaða við
stefnu Jeltsín gagnvait þinginu hefur
farið vaxandi i héruðum Rússlands,
þar sem kommúnistar ráða víða enn
ríkjum. Ráð, sem leiðtogar 60 af 88
héruðum Rússlands hafa stofnað,
kom saman í gær og krafðíst þess
að jafnt forsetinn sem þingið gæfu
eitthvað eftir af völdum sínum. Hót-
uðu þeir að grípa til efnahagslegra
og pólitískra aðgerða ella s.s. að
hætta að greiða skatta til ríkisins.
Sergei Shakrai, helsti lögfræðilegi
ráðunautur Jeltsíns, sagði hins vegar
ekki koma til greina að verða við
þeirri kröfu. Þá komu leiðtogar frá
Síberíu saman í borginni Novosib-
irisk og hótuðu að loka fyrir olíu-
og gasleiðslur og stöðva lestarsam-
göngur um Síberíu ef forsetinn af-
létti ekki umsátrinu.
Ekki NATO-aðild
Vestrænir stjórnarerindrekar
sögðu í gær að Jeltsín hefði ritað
leiðtogum Frakklands, Þýskalands,
Bandaríkjanna og Bretlands bréf þar
sem hann varaði þá við að veita ríkj-
um Austur-Evrópu aðild að Atlants-
hafsbandalaginu. „Jeltsín leggur til
að NATO og Rússar tryggi sameigin-
lega öryggi Austur-Evrópu í stað
þess að bandalagið víkki út í aust-
ur,“ sagði einn stjórnarerindreki.