Morgunblaðið - 01.10.1993, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 01.10.1993, Qupperneq 10
seer mtiöTxo .1 huoacjutbö’í öi«ajhv:uo«om MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 1993 Herdís Þorvaldsdóttir og Gunnar Eyjólfsson í hlutverkum sínum. Ástarbréf á Litla sviði Þjóðleikhúss FYRSTA frumsýning á Litla sviði Þjóðleikhússins á þessu leikári verður sunnudaginn 3. október kl. 20.30. Þá hefjast sýningar á Ástar- bréfum, eftir bandaríska leikskáldið A.R. Curney. Ástarbréf er óvenjulegt sviðsverk, einkum vegna þess að persónur leiksins lesa bréf hvor til annarrar allan tímann. Flyljendur eru Herdís Þorvalds- dóttir og Gunnar Eyjólfsson. Efni leiksins er það að Melissa og Andy byija að skrifast á sem böm, að því er virðist að undirlagi foreldra sinna. Sambandið þróast með árunum gegnum bréfin, en það er svo margt sem kemur í veg fyrir að þau nái saman, þau fínna aldrei réttan stað eða rétta stund fyrir ástaijátningu fyrr en dauðinn hefur knúið dyra. Andrés Sigurvinsson er leikstjóri, Þórunn S. Þorgrímsdóttir sér um útlit sýningarinar, Ásmundur Karls- son hannar lýsingu og Úlfur Hjör- var þýddi verkið. Önnur sýning á Ástarbréfum verður föstudaginn 8. október. Hugmynd-Höggmynd í Listasafni Sigurjóns SÝNINGIN Hugmynd-Högg- mynd, úr vinnustofu Sigurjóns Ólafssonar, í safni hans á Laug- arnesi, verður opnuð laugardag- inn 2. október kl. 15. Verk frá ólíkum tímabilum í list Siguijóns hafa verið sett upp og í ljósmyndum og textum er reynt að lýsa mismunandi vinnslustigum verkanna. Verkfæri og ýmsir munir úr vinnustofu listamannsins eru einnig sýnd til að varpa ljósi á ferl- ið frá hugmynd til listaverks. Um þessar mundir eru liðin fimm ár frá því að Listasafn Siguijóns var vígt og opnað almenningi 21. október 1988. Ári síðar var safnið gert að sjálfseignarstofnun og eru í stofngjöf Birgittu Spur áttatíu listaverk eftir Siguijón. Frá opnun safnsins hafa þar að auki borist margar gjafir frá einstaklingum og eru nokkrar þeirra á sýningunni. Sýningin Hugmynd-Höggmynd mun standa uppi fram á vor og er sérstaklega hönnuð með skólafólk í huga. I vetur er svo áformað að bjóða upp á dagskrá fyrir börn og foreldra þeirra. Safnið er opið á laugardögum og sunnudögum frá kl. 14-17 og er kaffistofan opin á sama tíma. Tónleikar í Hafnarborg BJÖRN Björnsson baryton- söngvari heldur einsöngstón- leika í Hafnarborg, menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar, mánudaginn 4. október. Björn syngur bæði íslensk lög og ítalskar aríur við undirleik Guð- bjargar Sigurðardóttur. Tónleikam- ir á mánudag heQast klukkan 20.30. Sýningin Hugmynd-Höggmynd, verður opnuð á morgun, laugar- dag. 6 Kvikmynda- hátíð í dag Kvikmyndahátíð Listahátíðar í Reykjavík verður haldin í Há- skólabíói og hefst í dag. Morg- unblaðið birtir dagskrána jafn- óðum og hér á eftir fer fyrsti dagurinn. Allar sýningar hefjast kl. 23. Simple Men. Hal Hartley leikstýrir. USA. Bræður leita föður síns í gamanmynd. Autum Moon. Clara Law leikstýrir. Hong Kong. Masat- oshi Nagase úr Mystery Train er japanskur túristi í Hong Kong. Mynd um ást, vináttu og góðan mat. Síðasta sýning á mánudag. La Scorta. Ricky Tognazzi leikstýrir. Ítalía. Spennumynd um dómara sem rannsakar Maf- íuna. Poison. Todd Haynes leik- stýrir. USA. Hero er heimildar- mynd um barnungan morðingja. Horror er s/h hrollvekja. Bönnuð innan 16 ára. Brunahvammur Börkur Arnarson og Svanur Kristbergsson. Myndlist Eiríkur Þorláksson Sameiginleg verkefni aðila í ólík- um geirum menningarlífsins eru með því erfiðasta sem listamenn takast á við. Þó eru til í listasög- unni mörg dæmi þess að þekktir myndlistarmenn hafi unnið leik- myndir fyrir leikhús, tónskáld sam- ið tónverk í kringum bókmenntaleg- ar frásagnir o.s.frv.; samvinnan hef- ur þannig oft verið nokkuð einhliða. Þó eru til frá þessu ýmsar undan- tekningar, og sýning á einni slíkri fer nú senn að ljúka í Reykjavík. í Gallerí Sólon íslandus við Bankastrætið hefur undanfarið staðið yfir sýning sem Börkur Arn- arson ljósmyndari og Svanur Krist- bergsson tónlistarmaður og ljóð- skáld hafa unnið saman og gefið nafnið „Brunahvammur". Hér er um hálfgildis innsetningu að ræða, þar sem allt rými salarins (og næsta nágrenni) er nýtt saman', og umhverfið fyllt margræðum myndum, ljóðum, tónlist, lýsingu og gufu, sem eiga að umlykja sýn- ingargestinn eins og heiðaþoka. Uppruni nafnsins segir örlítið um það inntak, sem listamennirnir eru að sækjast eftir: Brunahvamm- ur mun vera eyðibýli á Vopna- fjarðarheiði, þar sem nú sjást að- eins óljósar tóftir, og hljóð náttúr- unnar og minninganna er hið eina sem heyrist dags og nætur. Slíkt umhverfi er með vissum hætti draumaland nútímans, þegar skarkali borgarlífs og síbylju leitast við að kaffæra öll skilningarvit mannsins á sem tryggastan hátt. Á sýningunni eru tæplega þijá- tíu verk, auk skyggnimynda sem varpað er á veggi, og seiðandi tón- listar sem leikur um salinn. Þar er um að ræða frumsamið tónverk Svans, sem flæðir fram líkt og lækur á fjalli, og er einkar áheyri- legt, um leið og það er hvílandi. Ljóð hans birtast einnig í ýmsu formi, og er framsetningin ætíð til þess fallin að styrkja hinn knappa texta. Böt'kur Arnarson hefur þeg- ar vakið á sér athygli fyrir óvenju- leg ljósmyndaverk sín, t.d. _á sýn- ingum í Nýhöfn og Gallerí Úmbru; hér heldur hann áfram á sömu braut með nýstárlegum vinnu- brögðum. Athyglisverðustu ljósmyndirnar eru eflaust verk nr. 1-4, þar sem filma er sett inn í undna rnottu úr glerfiber, en myndefnið má túlka sem það sem drífur manninn áfram; hugsunin, kynkvötin, hjartalagið og fæðuþörfin. Þessi einföldu verk styrkjast síðan af veikri lýsingunni. I verki nr. 16 birtist eins konar þroska- eða þróun- arsaga, þar sem hinir einstöku rammar fylgja manninum í gegnum einfalda formþróun frá sáðfrumu til eldflaugar; verkið er einnig einkar skemmtilega sett upp. Fleiri verk byggja á eins konar samspili ljósmynda og'ljóðlína, og kemur það samspil stundum vel út. Ljóð í veltiramma við hlið ljós- mynda af gullfiskum (nr. 14) er ný reynsla fyrir flesta; ljóðlínur eins og „ég er saffron hins kalda kyns“ og „hjartað á steðjann" fá á sig annarlegan hljóm í þessu samhengi. Svipað má segja um verk nr. 21-26, þar sem ljóðlínurn- ar verða ósjálfráður myndvaki: „fæðingartárin bergmála á dauða- stundinni"; „minningin hefur kennt mér að gleyrna". Samspil af þessu tagi er aðail þess sem hér getur að líta, og er óvenjugott jafnræði með miðlunum. Helsti ókostur þessarar sýning- ar er einfaldlega staðurinn. Skark- ali kaffihússins á hæðinni fyrir neðan glymur í sýningarsalnum, auk þess sem dynur mikillar um- ferðar berst utan frá. Því nær sýn- ingargesturinn aldrei fyllilega að njóta þeirrar kyrrlátu stemningar, sem augljóslega er stefnt að. Und- irtitill sýningarinnar er „Nótt í galleríi", og væri það væntanlega sá tími sem sýningin nyti sín hvað best; dauf lýsing á myndir og Ijóð, undiralda tónlistarinnar og þögn næturinnar væru hið fullkomna umhverfi. En þess fá áhorfendur ekki notið að sinni, þó vissulega væri slíkur sýningartími athyglis- vert framtak. Á sýningunni er hægt að fá keyptar hljóðsnældur með tónlist Svans og ljóðabók hans, sem Börk- ur gerði kápu fyrir. Engin sérstök sýningarskrá liggur frammi, en á lista yfir verkin er að finna þakkir listamannanna til ijölda fyrirtækja og einstaklinga, sem hafa aðstoðað við undirbúning sýningarinnar; er ánægjulegt að sjá hversu víða þann stuðning er að finna. Þessari nýstárlegu innsetningu þeirra Barkar Arnarsonar og Svans Kristbergssonar, „Brunahvammur - nótt í galleríi", í sýningarsalnum yfir kaffihúsinu Sólon Islandus í Bankastræti lýkur sunnudaginn 3. október. Klassískur gítarleikur í Kringlunni á laugardögum KRISTINN H. Árnason gítarleik- ari kemur fram á fyrstu tónleikun- um sem verða í Kringlunni á hverjum laugardegi fram að des- ember i tilefni af 100 ára afmæli spænska gítarsnillingsins Andres Segovia. Hann spilar kl. 13 verk eftir Bach og Tárrega og kl. 14 spilar hann verk eftir Tárrega, Granados og Barrios. Næstu laugardaga á þessum sömu tímum Ieika ellefu „klassískir gítar- leikarar“ spænska, suður-ameríska og klassíska tónlist frá ýmsum lönd- um til að heiðra minningu Segovia. í hvert skipti kemur fram nýr gítar- leikari og spilar af efnisskrá sem hann velur sjálfur. Gítarleikaramir sem koma fram í Kringlunni starfa við gítarkennslu í Reykjavík og nágrenni. Þeir eru; Einar Kristján Einarsson, Jón Guð- mundsson, Kristinn Ámason, Páll Eyjólfsson, S. Rúnar Þórisson, Símon H. ívarsson, Sveinn Eyþórsson, Þor- kell Atlason og gítartríó sem skipað er Þresti Þorbjömssyni, Halldóri Ól- afssyni og Pálma Erlendssyni. Kristinn H. Ámason lauk burtfarar- prófí frá Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar árið 1983 og stundaði framhaldsnám í Bandaríkjunum og síðan á Spáni. Hann hefur komið víða fram, m.a. í útvarpi og sjónvarpi. Á fyrri tónleikum laugardagsins spilar hann „Garotte en Rondeau“, „Bourrée og tvo menúetta eftir Bach og „Recur- dos de la Alhambra" eftir Tárrega. í seinna sinnið sem Kristinn kemur fram leikur hann fjórar prelúdíur og „Marzurka" eftir Tárrega, „La Maja de Goya“ eftir Granados og „E1 su- eno en la floresta" eftir Barrios. Morgunblaðið/Þorkell Gítarleikararnir sem fram koma í Kringlunni, f.v. Sveinn Eyþórs- son, Þröstur Þorbjörnsson, Jón Guðmundsson, Páll Eyjólfsson, Krist- inn Árnason, Rúnar Þórisson og Símon H. ívarsson, en á myndina vantar Einar Kristján Einarsson, Þorkell Atlason, Halldór Ólafsson og Pálma Erlendsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.