Morgunblaðið - 01.10.1993, Síða 22

Morgunblaðið - 01.10.1993, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 1993 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði innanlands. I lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. Alþýðusambandið á sjálft að borga Að Alþýðusambandi íslands (ASI) standa átta lands- samtök. Innan þeirra eru um 220 félög og deildir. Auk þess eiga 25 félög beina aðild að ASÍ. Innan ASÍ eru, þegar allt er talið,^ um 65.100 ein- staklingar. Á vegum ASÍ og aðildarfélaga eru gildir sjóðir, auk þess sem árlegar tekjur ASÍ skipta mörgum tugum milljóna króna. ASÍ er ein stærstu, fjölmennustu og sterkustu heildarsamtök í landinu. í ljósi framansagðs er það fjarstæða hjá Láru V. Júlíus- dóttur, framkvæmdastjóra ASÍ, að spurning sé, hvort þessi hagsmunasamtök eigi ekki að fá hærri framlög úr ríkissjóði — af skattpeningum fólks og fyrirtækja — en nú er, en ríkið greiðir á þessi ári um 13 milljónir króna til ASÍ. Það er þvert á móti engin spurning að Alþýðusamband íslands á og getur eitt og sjálft staðið undir kostnaði við þá hagsmunagæzlu, sem sam- bandið sinnir, og þeirri sér- hæfðu vinnu sem henni heyrir til. Framkvæmdastjóri ASÍ segir í viðtali við Morgunblað: ið í gær að á skrifstofu „ASÍ starfí 13 manns og stór hluti vinnu þeirra sé unninn í þágu hins opinbera í formi setu í nefndum og ráðum og við að semja álitsgerðir og umsagnir til stjórnvalda“. Þetta á að réttlæta 13 milljóna ríkissjóðs- framlag til ASI árið 1993 og „spurninguna" um hærri meðgjöf hins opinbera á kom- andi árum. Það er á hinn bóg- inn harla líklegt að á vegum ríkisins, ráðuneyta og opin- berra stofnana sé nægilegt lið sérfræðinga til að sinna öllum störfum af þessu tagi í þágu hins opinbera. Alþýðusamband íslands er ekki eina dæmið um ríkissjóðs- framlög til hagsmunagæzlu- samtaka, sem gera verður at- hugasemdir við. Morgunblaðið hefur áður bent á það í for- ystugreinum að tímabært sé að endurskoða ríkissjóðsfram- lög til Búnaðarfélagsins og Fiskifélagsins. í leiðara Morgunblaðsins 19. september sl. er til dæmis bent á, að verulegur hluti af rekstrarkostnaði bændasam- takanna sé greiddur úr ríkis- sjóði, það er af skattgreiðénd- um og þar með neytendum. Til þessa lágu að vísu söguleg- ar ástæður, en nú er tímabært að linni. Á þessu ári fá Búnaðarfélag íslands, búnaðarsamtök í hér- uðum og Hagþjónusta land- búnaðarins samtals 140 millj- ónir króna úr ríkissjóði. Stöðu- gildi hjá Búnaðarsambandinu eru um 40 og um 30 greidd úr ríkissjóði. Það þýðir í raun að þrír af hveijum fjórum starfsmanna Búnaðarfélags íslands eru opinberir starfs- menn, eiga aðild að lífeyris- sjóði opinberra starfsmanna, þiggja laun af skattgreiðend- um og þar með neytendum. Fiskifélag íslands fær, svo annað dæmi sé nefnt, 6,3 m.kr. á fjárlögum þessa árs, en Búnaðarfélagið 83 m.kr., sem fyrr er vikið að. Starfs- menn Fiskifélagsins eru og flestir í lífeyrissjóði opinberra starfsmanna. Þessi skipan kann að hafa átt við fyrir ára- tugum en ekki lengur. Þetta er úrelt fyrirkomulag sem breyta þarf. Samtök launafólks í land- inu, ASÍ, eru stór og sterk hagsmunagæzlusamtök, sem gegna mikilvægu hlutverki í þágu umbjóðenda sinna. Það er sjálfgefið að þau hafí í sinni þjónustu sérhæft starfsfólk, sem fylgist með framvindu hins efnahagslega veruleika í þjóðarbúskapnum. Samtökin hafa hins vegar alla burði til þess að bera kostnað af eigin starfsemi og eiga a.ð gera það. Það er liðin tíð að hags- munagæzlusamtök eigi kröfu til fjárlagaframlaga. Sú brýna nauðsyn brennur hins vegar á bökum alþingismanna að draga verulega úr ríkissjóðs- útgjöldum næsta árs og næstu ára, sníða þau að efnum sam- félagsins og tekjum ríkisins. Framlögin til Alþýðusam- bandsins, Búnaðarfélagsins, Fiskifélagsins og hliðstæðra aðila eru að vísu ekki þunga- vigtarútgjöld í fjárlagadæm- inu, ein og sér, en að baki þessum fjárframlögum liggur úreltur hugsunarháttur, sem leiðir til margvíslegra annarra fjárútláta ríkissjóðs, sem einn- ig er ástæða til að afnema. Verkaiýðshreyfíngin sjálf er hins vegar orðin fjármála- veldi, sem getur greitt sinn eigin kostnað sjálf og á auðvit- að að hafa frumkvæði um það, að þessi framlög verði felld niður á fjárlögum og sýna með þeim hætti gott fordæmi. ir MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 1993 23 Fjármálaráðherra um ársfundina í Washington Ekkert óeðli- legt við ferðina FRIÐRIK Sophusson fjármálaráðherra visar á bug að för full- trúa íslenskra stjórnvalda á ársfundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans í Washington sé gagnrýni verð og bendir á að þeir nýti ferðina til að sinna ýmsum öðrum fundum og viðræðum. Hann segir að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Al- þjóðabankinn greiði ferðakostnað og uppihald bæði aðal- og varafulltrúa í stjómum þessara stofnana, en af hálfu Islands era það Sighvatur Björgvinsson viðskiptaráðherra og Friðrik Sophusson. Er einnig greiddur kostnaður aðal- og varafulltrúa í sjóðráði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, af hálfu Islands eru það Jón Sigurðsson Seðlabankastjóri og Finnur Sveinbjömsson, skrifstofustjóri í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu. „Það er ekkert óeðlilegt við þetta. Bandalag starfs- manna ríkis og bæja Fær þrjár milljónír kr. frá rík- inu árlega RÍKIÐ veitir á þessu ári þrjár milljónir kr. til starfsemi Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, en Morgunblaðið greindi frá því í gær að ASÍ fær 13 milljónir árlega. Heild- artekjur BSRB eru á þessu ári um 45 milljónir og er framlag ríkisins, að sögn Ögmundar Jónassonar, formanns BSRB, veitt til hagdeildar og fræðslu- starfs BSRB. Ögmundur segir að fræðslustarfið felist m.a. í að kynna fólki réttindi þess og skyldur í starfi, en hagdeild- in hafí með höndum vinnslu margvís- legra gagna, útgáfu á kjararann- sóknum, útreikninga og undirbúning á lagafrumvörpum og fleiri þátta í samvinnu við ríki og sveitarfélög. Ögmundur segir að framlag ríkis- ins hafí verið svipað að raungildi um árabil en að auki hafí orlofssjóður BSRB fengið styrkveitingar öðru hvoru, en ekki í ár. Hann segir að helsta tekjulind BSRB sé félagsgjöld sem nemi 0,35% af föstum mánaðar- launum félagsmanna. Hingað koma menn úr fjármálalífinu alls staðar að og það er eitt af stærri verkefnum þeirra sem sækja þessa fundi að hitta menn úr fjármála- stofnunum. íslendingarnir hafa verið hér á fjölda smærri funda til þess að fjalla um lánamál stofnana og íslenska ríkisins. Þessir fundir eru notaðir í þeim tilgangi. Þetta er eig- inlega markaðstorg slíkra viðskipta sem hér fer fram þessa dagana," sagði Friðrik. Benti hann á, að auk þátttöku í ársfundum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans hefði hann, ásamt embættismönnum fjármála- ráðuneytisins, sótt fund fjármálaráð- herra Norðurlandanna og Eystra- saltsríkja um stuðning Norðurlanda við þessi ríki, sem fram fór í Wash- ington 27. sept. en sá fundur var haldinn þar og á þessum tíma að ósk íslendinga til þess að spara ferðir til Norðurlandanna. Fundur með fjármálaráðherra Bandaríkjanna í gær var send úr fréttatilkynning frá iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu í tilefni af umfjöllun fjölmiðla um ferðina og kostnað af henni. Þar kemur m.a. fram að að Friðrik Soph- usson og Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra munu í dag sækja fund sem fjármálaráðherra Banda- ríkjanna boðaði til þar sem rætt verð- ur um fjárhagsaðstoð ríkja heims við Palestínumenn í framhaldi af friðar- samningunum við Israel. Síðar í dag munu Friðrik, Sighvat- ur og Jón Sigurðsson svo sitja ráð- stefnu íslensk-ameríska verslunarfé- lagsins um viðskipti íslands og Bandaríkjanna í Washington og mun Jón Baldvin einnig ávarpa ráðstefn- una. Fjármála- og utanríkisráðherra eru væntanlegir til landsins í nótt. Fréttu fyrst af uppsögnum í fjölmiðlum Ráðherra segir stöðuna hafa verið þrönga STARFSFÓLK á leikskólum ríkisspítalanna hefur vítt heil- brigðisráðherra vegna þess að það frétti fyrst um uppsagnir sínar gegn um fjölmiðla. Heilbriðisráðherra segir að þröng staða hafi verið í málinu og ekki unnt að koma í veg fyr?T~ að þannig færi. Hann sagði að ráðuneytið myndi leggja sitt af mörkum til að sem minnst röskun yrði á högum starfs- fólks og barna á leikskólunum. Anna K. Jónsdóttir, formað- ur stjórnar Dagvistar barna, segir að ummæli sín um bruðl á leikskólunum hafi átt við rekstur þeirra fyrir nokkrum árum. Ráðherrann talar við stúdenta Morgunblaðið/Sverrir FJÖLMENNI var á fundi Vöku um íslenskan landbúnað. Aðalumræðuefnið var innflutningur á landbúnaðarafurðum og þurftu framsögumenn- irnir, Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra og Þorvaldur Gylfason hagfræðiprófessor að svara mörgum spurningum stúdenta og kennara þeirra sem voru á fundinum. Landbúnaðarráðherra á fundi í Háskólanum um íslenskan landbúnað Framleiðslukerfi landbún- aðar afnumin á næstu árum SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN ætlar að beita sér fyrir af- námi framleiðslukerfa landbúnaðarins á næstu árum. Þetta kom fram í máli Halldórs Blöndals landbúnaðarráðherra á hádegisfundi sem Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, efndi til í Odda, húsi félagsvísindadeildar Háskóla Islands, í gær. Fundarefnið var íslenskur landbúnaður og fór mestur tími í umræður um innflutning á landbúnaðarvörum. Fram- söguerindi fluttu landbúnaðarráðherra og Þorvaldur Gylfa- son prófessor í hagfræði. Framleiðslu- og verðstýring böl Halldór Blöndal sagði það vera mikið böl fyrir landbúnaðinn að vera bundinn opinberri framleiðslu- og verðstýringu, að hana bæri að af- nema og Sjálfstæðisflokkurinn ætl- aði að beita sér fyrir því. Þá sagði hann hörmulegt að frumvarp sem heimilaði innflútning landbúnaðaraf- urða undir sérstökum kringumstæð- um hefði dagað uppi á Alþingi sl. vor. Halldór sagði að bændur vildu lækka verð á sínum vörum en kostn- aður milliliða væri alltof mikill, slát- urkostnaður væri t.d. 3-4 sinnum hærri en í nágrannalöndum og verð- lagning verslana óeðlileg. Hann tók sem dæmi að verslanir hefðu mikinn hagnað af því að selja mjólkurafurð- ir og notuðu hann til að standa und- ir kostnaði við aðra v.öruflokka. Hann sagði að íslenskir neytendur yrðu að beita sér fyrir því að þessir hlutir breyttust. Kynbætur með náttúrulegum aðferðum Halldór sagðist vilja beita sér fyr- ir því að lækka álögur á fóður fyrir dýr sem gefa af sér hvítt kjöt, þ.e. kjúklinga og svín. Þá sagðist hann vilja gera kjúklinga- og svínabænd- um kleift að kynbæta dýrin með náttúrulegum aðferðum. íslenskir Tryggvi Pálsson framkvæmdastjóri við Islandsbanka Tröppum vexti niður eins og þeir fóru upp Meðalvextir á skuldabréfum banka og sparisjóða tæp 17% VEXTIR á óverðtryggðum útlánum lækka hjá íslandsbanka, Búnaðarbanka og sparisjóðunum um allt að 3 prósentustig í dag. Þá hefur Islandsbanki hækkað vexti vísitölubundinna lána um 0,2 prósentustig. Forráðamenn íslandsbanka og Búnaðarbanka búast við frekari vaxtalækkunum á næstu vikum. Stefán Pálsson, bankastjóri Búnaðarbanka, segir að vaxtabreytingin sé áfangi að því marki að lækka vexti eftir hækkanir í lgölfar gengisfellingar i júní. Staðan verði endur- metin I bankanum eftir tíu daga. „Ég tel að nafnvextir verði að lækka enn frekar og hef trú á að það gerist í næsta mánuði," segir Stefán. Aðspurður segir hann að vaxtaskiptasamningar Seðlabanka og viðskiptabankanna hafi engin áhrif á vaxtaákvarðanir nú eða næstu mánuðina. Þeirra muni aðeins Helstu vextir bank 1.okt.1993 , Landsbanki INNLÁNSVEXTIR: Vextir breyting 7.00 0.00 a og sp íslandsbanki Vfextir Breyting 3,25 -3,50 arisjóð Búnaðarbanki Vextir Breyting 5,00 -1,50 a Sparisjóðir Vextir Breyting 7,50 0,00 Bundnir skiptikjarareikn. Overttyggfl kjfir 7,00 -3,75 "8,75 0,00 ÚTLÁNSVEXTIR: Almenn víxillán, .7nn n Rn meflalfnrvoxtir 1Í,W-U,0U 17,30 -1,00 17,20 0,00 16,00 -0,40 Almenn skuldabréfalán, 7R7n nnn meðalvextir 16,80 -3,00 17,20 -2,00 17,00 0,00 Afurðalán í kr., 17 cn nnn meðalvextir U’UU 15,75 -3,50 16,25 -2,00 17,20 0,00 Raunvextir á þriggja mánaða víxli með gjalddaga um næstu áramót eru nú um 14,9% að meðaltali, miðað við verðbólguspá. Fyrir vaxtahækk- anir í kjölfar gengisfellingar í lok júní voru raunvextir á víxlum um 9,6%, miðað við verðbólgu á árs- grunni. gæta ef verðbólga fari á skrið á nýjan leik. íslandsbanki lækkar mest Meðalvextir á almennum skulda- bréfalánum lækka um 3 prósentustig í íslandsbanka, en 2 prósentustig í Búnaðarbanka og eru óbreyttir í sparisjóðunum og Landsbanka. Is- landsbanki lækkar forvexti á víxlum um 1 prósentustig, Landsbanki um 0,5 en sparisjóðirnir um 0,4. Vextir afurðalána lækka um 3,5 prósentu- stig í íslandsbanka og um 2 pró- sentustig í Búnaðarbanka. Lækkun á óbundnum og óverðtryggðum innl- ánsreikningum íslandsbanka er 3,5 próseijitjistig, -en 1,5 prósentustig í Búnaðárbanka. Búnaðarbanki lækk- ar einnig vexti á óverðtryggðum bundnum skiptikjarareikningum um 3,75 prósentustig. í íslandsbanka eru meðalvextir á skuldabréfum nú 16,8%, en 17,2% í Búnaðarbanka, 17% í sparisjóðunum og 16,7% í Landsbanka. íslandsbanki er með hæstu meðalvexti víxillána, 17,3%, Búnaðarbanki með 1-7,2%, Landsbankinn með 17% og sparisjóð- irnir með þá lægstu, 16%. Búist við frekari lækkun „Ég held að 3-3,5 prósentustiga vaxtalækkun sé myndarlegt skref,“ segir Tryggvi Pálsson, fram- kvæmdastjóri við íslandsbanka. „Við höfum áður lýst því yfir að við teljum rétt að trappa okkur niður líkt og við tröppuðum okkur upp eftir gengisfellinguna í sumar. Eg bendi á það að íslandsbanki er stór- stígastur i lækkun nafnvaxta að þessu sinni.“ Tryggvi segir að búast megi við frekari lækkun vaxta en engin ákvörðun liggi fyrir um það hver hún verði, eða hversu skjótt. „Við tökum okkar ákvarðanir í samræmi við að- stæður í efnahagslífinu. Þetta er eins og verðákvörðun á vöru út úr búð, verslunareigandi tilkynnir sjaldnast fyrirfram að hann ætli að lækka verðið í næsta mánuði." neytendur hefðu ekki áhuga á svo- kölluðu hormónakjöti. Halldór sagði að eftir að GATT- samkomulagið tæki gildi, sem hugs- anlega verður í byijun árs 1995, yrðu lögð tollaígildi á innfluttar land- búnaðarvörur sem yrðu síðan afnum- in í áföngum til ársins 1998. ísland í algjöram sérflokki Þorvaldur Gylfason sagði ísland vera í sérflokki hvað innflutnings- höft á landbúnaðarvörum áhrærði. Alls staðar í Evrópu gætu neytendur valið á milli t.d. innlends og inn- flutts osts og skinku, meira að segja í Albaníu þar sem Þorvaldur var nýlega staddur. Þorvaldur rakti sögu innflutningsbanna, sagði innflutning á landbúnaðarvörum hafa verið leyfðan á síðustu öld og fram á þessa. Hann hefði síðan verið bannaður árið 1931 sem kreppuráðstöfun. Þeg- ar kreppunni lauk án þess að bann- inu væri aflétt hefði það verið rétt- lætt með heilbrigðisrökum og árið 1985 var það síðan lögfest. Þorvald- ur sagði ákvæði búvörulaga um að Framleiðsluráð landbúnaðarins hefði neitunarvald gegn búvöruinnflutn- ingi hugsanlega stangast á stjórnar- skrána vegna þess að innflutnings- bann væri ígildi skatts á neytendur og samkvæmt stjórnarskránni væri óheimilt að framselja skattlagning- arvald til aðila utan þings. Neitunar- vald Framleiðsluráðs væri í raun skattlagningarvald. Bændur hafa haft 50 ára - aðlögunartíma Þorvaldur sagði að íslendingar ættu ekki að sætta sig við að innflutn- ingur landbúnaðarvara yrði leyfður að einhveijum tíma liðnum, bændur hefðu haft 50 ára aðlögunartima og ætti það að vera nóg. Innflutnings- bannið kostaði hveija fíögurra manna fjölskyldu u.þ.b. 10.000 krónur á mánuði og ef fólkið í landinu hefði ekki þurft að eyða þeim í niðurgreiðsl- ur með íslenskum landbúnaðarvörum þá væri efnahagsvandi þjóðarinnar minni en hann er í dag. Ekki væri hægt að skilja vanda landbúnaðarins frá efnahagsvandanum í heild. Guðmundur Árni Stefánsson, heilbrigðisráðherra, kvaðst harma að starfsfólk leikskóla sjúkrahús- anna skyldi fyrst frétta af upp- sögnunum gegn um fjölmiðla. Málið hefði hins vegar tengst fjár- lagafrumvarpi sem ekki yrði lagt fyrir fyrr en í byrjun þings og hefði það skapað þrönga stöðu í málinu. Þrír mánuðir til stefnu Hann benti á að enn væru þrír mánuðir til stefnu. Starfsfólkinu hefði verið sagt upp formsins vegna en lögð væri áhersla á það að hálfu ráðuneytisins að það gæti starfað áfram og yrði allt gert til að sem minnst röskun yrði á hög- um barna á leikskólunum. Viðræð- ur myndu fara fram milli forsvars- manna viðkomandi sjúkrahúsa og sveitarfélaga og myndi heilbriðis- ráðuneytið leggja sitt af mörkum til að góð samvinna kæmist á. Guðmundur Árni sagði að ljóst væri að áramót væru ekki góður tími til breytinga og væri því mikil- vægt að skapa aðlögun fyrir börn- in á leikskólunum. Meginefni máls- ins væri hins vegar að leikskólar væru samkvæmt lögurh á höndum sveitarfélaga en ekki ríkis og teldi hann sem heilbrigðisráðherra for- gangsverkefni að tryggja sjúkra- stofnunum fjármagn til að sinna sjúklingum. Misræmi Anna K. Jónsdóttir, formaður stjórnar Dagvistar barna, sagði í samtali við Morgunblaðið að þegar hún hefði talað um bruðl hjá leik- skólum spítalana hefði hún átt við rekstur þeirra fyrir fjórum til fimm árum þegar eftirspurn eftir hjúkr- unarfræðingum var sem mest. Þá hefði gætt mikils misræmis milli rekstar þar og rekstrar leikskóla á vegum sveitarfélaga. Hún sagff' að þá hefði verið hægt að tala um buðl á leikskólum spitalanna og þá hefði ekki verið til í dæminu að Sóknarkonur kæmust að með börn sín á þessum leikskólum. Málið gæti farið fyrir dómstóla Vanræksla og ónógar öryggisráðstafan- ir líklega orsök vinnuslyssins í Safamýri RANNSÓKN Vinnueftirlits ríkisins bendir til að vanræksla og ónógar öryggisráðstafanir hafi átt stóran þátt í vinnu- slysi þegar 19 ára piltur féll átta metra niður á steingólf í nýbyggingu Fram við Safamýri fyrir skömmu. Slit í öryggis- læsingu króks sem hann var hífður með er meginorsök slys- ins. Óheimilt er að vinna í sigbúnaði og hafði pilturinn enga líflínu. Vinnueftirlitið kannar nú hversu alvarlegt brotið er og gæti það farið fyrir rétt. Pilturinn slasaðist alvarlega en er á batavegi. Jens Andrésson, tæknifulltrúi hjá vinnueftirlitinu, sagði að piltur- inn hefði verið hífður upp með krana. Hann hefði verið í öryggis- belti með klofreimum og ólar ör- yggisbeltisins þræddar saman í svonefnda D-sylgju. Keðja hefði verið hengd í krók kranans en á henni verið svonefndur Kuplex- krókur með öryggislæsingu. Slitin öryggislæsing Kuplex-krókurinn væri hins vegar svo slitinn að um 6 milli- metra gap var milli króksnefsins og öryggislæsingarinnar. D-sylgj- an hafði svo þröngt innanmál að hún sat fremst á króknum sem er það þykkur við botninn að sylgjan náði ekki að setjast niður á hann. Pilturinn var hífður upp á slá í átta metra hæð með þessum bún- aði þar sem hann skyldi kanna herslu á boltum og var hann hífður til á slánni nokkrum sinnum. Milli hífinga kom slaki á vírinn og hef^r sylgjan þá runnið fram á krókimT og sloppið út um gapið við örygg- islæsinguna. Engin líflína Jens sagði að öll vinna í sigbún- aði hefði verið bönnuð af vinnu- eftirlitinu frá árinu 1992 og þessa vinnu hefði átt að framkvæma úr körfu eða af palli. Væri sigbúnaður notaður þyrfti að hafa líflínu og eins væri hægt að koma fyrir ör- yggisneti. Hvorugu var til að dreifa þegar pilturinn var hífður. Jens sagði að pilturinn hefði ekki verið með hjálm. Vinnueftirlitið mun gefa um- sögn um vinnuslysið og verði nið- urstaðan að um alvarlegt brot at- vinnurekanda eða verkstjóra sé að ræða fer málið fyrir rétt. Eins getur hinn slasaði eða lögmaður hans tekið málið upp.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.