Morgunblaðið - 01.10.1993, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 1993
talað, ballerína með kórónu sem gat
dansað og svo þau skötuhjú Barbie
og Ken. Þegar Ragnar var ekki í
heimsókn var líka hægt að hverfa
til fjarlægra slóða í stofunni hennar
ömmu með því að skoða myndirnar
í albúminu af sérkennilega húsinu
hans með pálmatijám í garðinum
og dást að frændsystkinunum Roi>
ald og Dagmar sem léku sér með
síamsketti og voru falleg og sól-
brún. Þeir bræður Ásvaldur faðir
minn og Ragnar voru um margt
líkir í háttum og útliti þó lífsstíll
þeirra og stjórnmálaskoðanir hafi
verið ólíkar. Þeir höfðu gaman af
að takast á um heimsmálin á árum
kaldastríðsins og minnist ég margra
skemmtilegra umræðna við eldhús-
borðið á þeim vettvangi. Hafði ég
sjálf mikla ánægju af að rökræða
bandarískt þjóðfélag við Ragnar
eftir því sem ég eltist og hafði að
sjálfsögðu, með mínar hugsjónir um
velferðarríkið, marga heimatilbúna
fordóma í garð þess. Það kastaði
þó ekki rýrð á álit mitt á Ragnari
sem var ætíð mjög hlýr í garð okk-
ar systranna og áhugasamur um
hagi okkar.
Ragnar var farsæll maður í
einkalífi og störfum. Efalítið hefur
þó blundað með honum í gegnum
lífíð þessi ljúfsári tregi sem ein-
kennir marga þá sem setjast að á
erlendri grund. Ást hans á Islandi
var sterk og hvorki aldur né heilsa
öftruðu honum frá því að ákveða
heimsókn til Islands nú í sumar.
Af jieirri för varð þó ekki.
Eg kveð frænda minn með virð-
ingu og þakklæti fyrir þann ljóma
sem hann gaf bernsku minni með
tilvist sinni. Eftirlifandi eiginkonu
hans, Evu, börnum, barnabörnum,
systkinum sem og öðrum ástvinum
hér heima og í Bandaríkjunum votta
ég mína dýpstu samúð.
Regína Ásvaldsdóttir.
mann sinn ungan að árum og flutt-
ist þá suður með Ásvald og Guð-
rúnu. Föðurfólki sínu kynnist Ragn-
ar eftir að hann er uppkominn og
var ætíð mjög gott samband á milli
þeirra.
Ragnar fékk snemma áhuga á
matargerðarlist og vann sem nemi
á Hótel Borg. Hann fór á síld sem
kokkur þó hann væri ekki fullnuma
í greininni og síðan réðst hann til
Eimskip og sigldi út með Fossunum.
Árið 1941 varð hann eftir í New
York og lærði matreiðslu á Hótel
Waldorf Astoria. Hugur hans
stefndi þó alltaf heim að námi loknu
en í New York kynntist hann
stórglæsilegri stúlku af ítölskum
ættum, Evu, og ákvað að setjast að
í Bandaríkjunum. Eva var ekkja
með tvo unga syni og saman eign-
uðust Ragnar og Eva tvö börn,
Dagmar og Ronald. Ragnar starf-
aði sem einn af yfirmatreiðslu-
mönnum á Waldorf til ársins 1955
en þá fluttist fjölskyldan vestur til
Los Angeles í Kaliforníu. Þar starf-
aði hann sem yfirmatreiðslumaður
á hótelunum Beverly Hilton og
Ambassador í fjölda ára. Síðustu
ár starfsferils síns annaðist hann
mötuneyti fýrir yfírmenn hjá stóru
orkufyrirtæki í Los Angeles og tók
einnig að sér veislur fýrir heimili
og fyrirtæki.
Ragnar var mikill íjölskyldumað-
ur og áhugasamur um heimili sitt
og garðrækt. Hann var heiðarlegur
og hreinskiptinn í fasi. Ragnar var
mótaður af því sjálfsöryggi sem
einkennir þá sem þurfa snemma að
læra að treysta á sjálfa sig í lífsbar-
áttunni og hafði einlæga trú á því
að viljinn væri allt sem þyrfti til
að komast áfram í lífinu. Banda-
rískt þjóðfélag hentaði honum því
vel þrátt fyrir að hann væri mikill
íslendingur í sér og ræktaði vel
tengslin við landið og fólk sitt.
Æska mín er órjúfanlega tengd
minningunni um heimsóknir frá
Ragnari frænda í Ameríku. Hann
kom með reglulegu millibili til ís-
lands að sumri til og dvaldist þá á
heimili foreldra minna og ömmu í
Kópavogi. Það var dálítill heims-
borgarabragur yfir Ragnari þar
sem hann gekk um götuna heima
í síðum rykfrakka og með hatt.
Heimilið fékk á sig framandlegan
•blæ, ilmur af rakspíra lá í loftinu
og hljómurinn af íslensku með út-
lendum hreim. Að eiga frænda í
Ameríku var líka stöðutákn meðal
vinkvennanna á þessum árum því
heimsóknunum fylgdu alltaf stórir
pakkar. Dúkkan Kathy sem gat
Minning
Ragnar Bóasson
Þó þú langfórul! legðir sérhvert land undir
fót, bera hugur og hjarta samt þíns heima-
landsmót (St. G. St.)
Með örfáum orðum langar mig að
minnast föðurbróður míns, Ragnars
Bóassonar sem iést á sjúkrahúsi í
Los Angeles í Kaliforníu hinn 2.
ágúst, 75 ára að aldri.
Ragnar var fæddur á Seyðisfírði
18. maí 1918. Hann ólst fyrstu árin
upp hjá einstæðri móður sinni,
Sveinrúnu Jónsdóttur og afa sínum
og ömmu þeim Jóni Jónssyni kennd-
um við Austdal og Guðrúnu Mar-
gréti Einarsdóttur en þau bjuggu
að Miðbæ á Seyðisfirði. Sveinrún
giftist síðar Andrési Rasmussen og
áttu þau þijú börn, Guðrúnu f.1923,
Oddnýju f.1925 og Ásvald f.1928.
Oddný lést aðeins tveggja ára að
aldri. Fjölskyldan bjó við þröngan
kost og fór svo að hjónin Sturla
Vilhjálmsson og Guðlaug Guð-
mundsdóttir hlupu undir bagga og
tóku Ragnar ungan að aldri í tíma-
bundið fóstur. Þau hjón ólu samtals
upp 11 fósturböm og er þeirra
minnst sem mikils sómafólks.
Ragnar lærði snemma að standa
á eigin fótum. Fór ungur sem vinnu-
maður í sveit á sumrin til Margrét-
ar móðursystur sinnar á Mjóafirði
og á bæinn Mýri í sömu sveit.
Minntist hann ávallt þessa fólks
með virðingu og þakklæti. Um
fermingu fer hann aftur til Sturlu
og Guðlaugar sem þá voru flutt
suður og bjuggu í Garðinum og síð-
ar í Skeijafirði. Tengslin við móður
sína og yngri hálfsystkini vom þó
sterk og Ragnar saknaði æskuslóð-
anna. Sveinrún missti síðan eigin-
<0
VIÐEYJARSTOFA
fyrir smærri og stærri hópa
^Cs>
Eftirminnileg ferð fyrir stórfjölskylduna,
starfsmannafélögin, niðjamótin, átthagasamtökin,
félagssamtökin og alla hina hópana.
<0(£>
(hinni sögufrægu Viðeyjarstofu „Slotinu", er rekinn vandaður
veitingastaður. Par svigna borðin undan krásunum,
rétt eins og þau gerðu fyrir 200 árum.
Matseðillinn og matreiðslan er þó með öðrum hætti en þá var.
J q)(c) *
Má freista ykkar með ævintýralegri ferð
og sælkeramáltíð á góðu verði!
Sigling út í Viðey tekur aðeins 5 mínútur á afar geðþekkum báti.
Q>(D
Upplýsingar og borðapantanir í símum 6219 34 og 6810 45
Missið ekki af léttum og skemmtilegum
styrktartónleikum í Langholtskirkju
Jóhann Sigurðarson leikari kynnir
Karlakór Reykjavíkur tekur lagið
___________________Stjórnandi Friðrik S. Kristinsson______________
Blásarakvintett Reykjavíkur leikur létt-klassíska tónlist.
Bernharður Wilkinsson, Daði Kolbeinsson, Einar Jóhannesson, Joseph
__________________Ognibe, Hafsteinn Guðmundsson.__________
Auður Hafsteinsdóttir
leikur iög eftir Massenet og Elgar
______________Guðríður S. Sigurðardóttir leikur á píanó.__________
Kuran Swing verður í léttri sveiflu og leikur kiassískan jazz*
Zsymon Kuran, Haukur Ragnarsson, Björn Thoroddsen, Olafur
Þórðarson
Útívorið**
Einar Clausen, Halldór Torfason, Þorvaldur Friðriksson og Ásgeir
____________________________Böðvarsson.________________
Kór Langholtskirkju, Blásarakvíntett Reykjavíkur, Guðríður S.
Sigurðardóttir og Ólöf Kolbrún flytja lög úr vinsælum söngleikjum.
South Pacific, Cats, Carousel og Oklahoma.
Stjórnandi Jón Stefánsson
Sunnudaginn 3. okt. kl. 16.00
Þriðjudaginn 5. okt. kl. 20.00
Miðvikudaginn 5. okt. kl. 20.00
Miðasala í Langholtskirkju
Opið laugardag og sunnudag milli kl. 13.00 og 16.00.
'KuranSwingleikuráþriðjudagogmiðvikudag- **Út(voriðsyngjaásunnudag
Leikfimi: Fyrir byrjendur
og íþróttafólk, eldri
borgara, ófrískar konur
og konur með barn á brjósti.
Topp-tímar fyrir þá
sem vilja grennast
Þolfimi. Funk
Brennslutimar.
vaxtamótun,
Kvennatimar
Pallatimar
Prekhringur.
Kraftganga.
Hlaupahópur.
Skíðahópur.
I J.L. húsinu