Morgunblaðið - 14.11.1993, Blaðsíða 2
2 FRETTIR/INNLEIUT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1993
EFNI
Húsið í Hegranesi 29 ónýtt eftir eldsvoða
Brunasár konunn-
ar ekki alvarleg
ELSA Sigurvinsdóttir, sem var hætt komin í húsbruna í Hegranesi
29 i gærkvöldi, liggur nú á Landspítalanum og eru brunasár sem
hún hlaut ekki talin alvarleg. Hún var ein í húsinu þegar eldurinn
kom upp. Slökkvistarf gekk greiðlega en húsið er talið ónýtt eftir
brunann.
Rannsóknarlögreglan kannar nú
orsök brunans í Hegranesi 29. Elsa,
sem er 64 ára, hafði kveikt upp í
arni í stofu en síðan brugðið sér
frá. Heyrði hún þá mikið eldsnark
í stofunni, flýtti sér þangað og sá
að eldur var laus. Er talið hugsan-
legt að slúglð hafí nlður f arínlnn
og eldur komlst f húsbúnað, Elsa
hlaut brunasár á höndum er hún
gerði tilraun til að slökkva eldinn,
Hún reyndi síðan að komast út
um glugga en tókst ekki að opna
hann þar sem vinnupallur við húsið
hindraði að hægt væri að opna
gluggann til fulls. Maður sem átti
leið hjá sýndi mikið snarræði er
hann spennti gluggann upp og
bjfti'gaði hennl á gfðustu stundu,
Eldurlnn brelddlst mjög hratt Ut
um húaið og varð það alelda á
skömmum tíma,
Jackson í
Keflavík?
BOEING 727-leiguflugvél frá
Grand Air, á vegum banda-
ríska kvikmyndafyrirtækisins
MGM, millilenti í Keflavík á
föstudagskvöldið á leið frá
Bandaríkjunum til Bretlands-
eyja. Fjöldi blaða- og frétta-
manna i Evrópu hringdi i ís-
lensku flugstjórnarmiðstöðina
á föstudagskvöld og fram eft-
ir nóttu til að fá fregnir um
ferðir vélarinnar, en þeir full-
yrtu að rokkstjarnan Michael
Jackson væri um borð í vél-
inni.
Þotan hafði nokkurra klukku-
stunda viðdvöl á Keflavikurflug-
velli. Voru aðeins fimm farþegar
um borð og héldu þeir kyrru
fyrir í vélinni en tveir áhafnar-
meðlimir fóru inn í flugstöðvar-
bygginguna. Kom upp orðrómur
um að Michael Jackson væri í
vélinni en áhöfnin fékkst ekki
til að staðfesta það. Hélt vélin
ferð sinni áfram til Luton í Bret-
landi laust upp úr kl. 22.
Sjá bls. 4.
Morgunblaðið/Þorkell
Tölvur telja atkvæðin
PJÓBIB stwrfsmetin færa atkvæðln á tölvur I stnð 20-80 mntms sem
hefðu þurft að vinna við talningu samkvæmt gamla lagiuu, A mynd-
inni eru Kristin Líndai og Sólveig Ámadóttir við atkvæðatOIvurnar
á kjörstað prófkjörsins i Kópavogi í gær.
Tækninýjung 1 prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi
Prófkjörsatkvæði talin í
tölvu í fyrsta skipti á Islandi
VIÐ próflgör Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi í gær, laugardag, var
tekin upp sú tækninýjung að nota tölvur við talningu og úrvinnslu
atkvæða. Atkvæðatalning i prófkjörinu er mjög flókin þar sem hver
kjósandi raðaði frambjóðendum f átta sæti á atkvæðaseðlinum en alls
voru 17 frambjóðendur í kjöri í prófkjörinu. Tölvuvinnslan átti að
auðvelda talninguna mjög og stytta tímann sem úrslitanna var beðið
um fleiri klukkustundir. „Við reiknum með að þetta taki ekki nema
helming þess tima sem talningin tók áður. Við erum að feta inn á
nýja braut en þetta virðist vera mjög markvisst og öruggt kerfi,“
segir Jón Atli Kristjánsson, formaður kjörstjórnar.
Þegar blaðamaður Morgunblaðs-
ins hitti kjörstjórnarfulltrúa í próf-
kjörinu, þá Jón Atla Kristjánsson,
Jónas Frímannsson og Snorra G,
Tómasson í gærmorgun, áætluðu
þeir að talning gæti hafist milli kl.
18 og 19 og að henni yrði lokið
milli kl. 1 og 2 í nótt. Ef talningin
hefði farið fram með hefðbundnum
hætti væri það mikil handavinna
fyrir 20 til 30 manns, sem hefðu
þurft að handflokka alla atkvæða-
seðla, raða frambjóðendum í sæti
og telja í hvert sæti. Er líklegt að
sú vinna hefði tekið 8 til 10 klukku-
stundir, að sögn þeirra.
í gær voru hins vegar aðeins fjór-
ir starfsmenn við að skrá atkvæðin
inn á fjórar tölvur en öll atkvæðin
eru færð inn tvisvar á tvær tölvur
og síðan eru upplýsingarnar fluttar
inn á samanburðarforrit í annarri
tölvu sem ber niðurstöðurnar saman
og birtir úrslit prófkjörsins.
íslenskt forrit notað
Höfundur forritsins sem notað er
við talninguna er Sigurður Einarsson
verkfræðingur hjá ístak en Sigurður
Konráðsson kerfisfræðingur hafði
yfírumsjón með tölvuvinnslunni í
gær. Sagði hann að ekkert væri slak-
að á kröfum um öryggi við atkvæða-
talninguna en gert væri ráð fyrir
að hver starfsmaður gæti skráð um
200 atkvæðaseðla á klukkustund og
því gæti talningin öll tekið um fimm
klukkustundir sé miðað við að 2.000
manns greiði atkvæði á kjörstað eins
og áætlað hefur verið. Auk þess
þurfti að telja utankjörfundarat-
kvæði eftir að kjörfundi lauk kl. 22
i gærkvöldi.
Jón Atli sagði að þessi tækninýjun
hefði mikla kosti og ætti að geta
nýst í kosningum í fleiri sveitarfélög-
um. „í prófkosningum þar sem
margir eru ( kjöri og stórir listar þá
segir það sig sjálft að úrvinnsla og
talning er mjög erfitt verkefni og
þar kemur þessi tækni að miklu
gagni,“ sagði hann.
Fjárþörf LÍN heftir niimik-
að um rúma tvo milljarða
FJÁRÞÖRF Lánasjóðs íslenskra
námsmanna hefur minnkað um
rúma tyo milljarða króna frá
því sem var áður en reglum
sjóðsins var breytt 1991, að sögn
Gunnars I. Birgissonar, for-
manns stjórnar LÍN. Reiknað
er með að fjárþörfin í ár sé
2,7-2,8 milþ'arðar, en að óbreytt-
um reglum hefði fjárþörfin ver-
ið 4,8 miRjarðar, sem hefði þýtt
að framlag ríkissjóðs til sjóðsins
hefði þurft að vera upp undir
þrír miHjarðar til að forða hon-
um frá gjaldþroti.
Gunnar sagðist telja að tvennt
kæmi til sem skýring á minni lán-
tökum í sjóðnum. Annars vegar
Bóluefni við Peking-fiensunm aftur í vikunni
Heimsmet í bólusetningu
BÓLUEFNI við Peking-flensu er uppurið hjá Lyfjaverslun
ríkisins en búið er að dreifa um 40 þúsund skömmtum af efn-
inu. Væntaniegir eru um 5 þúsund skammtar í vikunni. Þór
Sigþórsson forstjóri Lyfjaverslunarinnar segir að búið sé að
bólusetja um 15% þjóðarinnar sem sé að öllum líkindum heims-
met á þessu sviði, og það mesta sem gerst hefur hérlendis.
Már Kristjánsson sérfræðingur í smitsjúkdómum þjá Rannsókn-
arstofu Háskóla íslands í veirufræði segir að flensan komi
óveryulega snemma í ár eða um tveimur mánuðum fyrr en
vanalega.
Tvö tilfelli af flensunni hafi
greinst með vissu. Stofninn sem
hefur greinst nú kallast H3N2
var hér fyrir nokkrum árum og
liggja engar upplýsingar fyrir um
að hann sé skaðvænni en aðrir
sambærilegir stofnar.
Hann segir þó mest um vert
að vara fólk við að flensunni
geta fylgt bakteríusýkingar, sem
geti gert vart við sig þegar fólki
virðist vera að batna. Slái því
skyndilega niður með háum hita
og veikindum á það að leita til
læknis.
Már segir, að ekki þurft allir
bólusetningu gegn flensunni, en
áhersla sé lögð á að bólusetja
þá sem eru veikir fyrir á ein-
hvem hátt, einkum þá sem eru
með hjarta- og öndunarfærasjúk-
dóma því þeim sé hættara en
öðrum að fá fylgikvilla flensunn-
ar og eiga einnig erfiðara að
glíma við flensuna sjálfa. „Þeir
sem eru með aðra sjúkdóma, s.s.
krabbamein eða eyðni, eru einnig
í sérstakri hættu og síðan er
reynt að bólusetja fólk 65 ára
og eldra. Fólk sem vinnur t.d. á
sjúkrahúsum og við sjúkraflutn-
inga er einnig hvatt til að láta
bólusetja sig,“ segir Már.
væri fólk orðið meðvitaðra um að
skuldsetja sig ekki snemma á lífs-
ferlinum og minnka þannig mögu-
leikana á til dæmis að eignast
húsnæði síðar á lífsleiðinni og hins
vegar væm kröfur um námsfram-
vindu orðnar strangari, en hlutfall
þeirra sem skila fullri námsfram-
vindu hefur hækkað úr 30% þegar
eldri reglur giltu og farið í 64% í ár.
Framlag ríkissjóðs 1.700
milljónir
Hann sagði að þetta væm hag-
stæðustu lán sem fólk gæti tekið.
Þau bæra aðeins 1% raunvexti og
meðgjöf ríkissjóðs, sem fælist í því
að greiða niður muninn á þessum
vöxtum og almennum vöxtum,
væri nú 1.700 milljónir króna á
ári, en hefði verið 2,8-3 milljarðar
að óbreyttu. Að mati Ríkisendur-
skoðunar féllu 66% af námsaðstoð-
inni sem kostnaður á ríkissjóð eft-
ir eldri löggjöf en samkvæmt nýju
lögunum er þessi kostnaður talinn
vera 54%.
Gunnar sagði að námsmönnum
í haust hefði fjölgað frá síðasta
hausti en lánþegum hefði fækkað.
Námsmenn væm nú álíka margir
og þeir vom skólaárið 1988/89
þegar þeir vom mjög margir.
A
► l-44
f
Sveitarfélög í eina
sæng
►Umræður um sameiningu sveit-
arfélaga stendur nú sem hæst.
Margar spumingar hafa vaknað
og sýnist sitt hverjum um svörin
viðþeim./lO
Nafnið hrífur í Napólí
►Alessandra Mussolini, sonar-
dóttir Benitos Mussolini og þing-
maður nýfasista á góða möguleika
á því að verða næsti borgarstjóri
í Napólí./12
Orrahríð athafna-
manns
►Rætt við Orra Vigfússon um
Iftkvolðíti', vlðskiptl ng ýnmiu' uppú=
kemur,/14
Vetrartíakan
►Linurnar hafa verið lagðar í
hár- og fatatisku vetrarins, Hárið
á að vera í náttúrulegum litum,
lóttog ftjálslogt./16
Louvre 200 ára
►Louvre-safnið í París er 200 ára
um þessar mundir, Það hefur nú
stækkað um helming og aðkomu-
rýmið neðanjarðar hefur tífald-
ast./18
B
► l-24
Surtsey þrítug
►Surtur fer sunnan, með sviga
lævi, segir í Völuspá. Fyrir réttum
þrjátíu árum, 14. nóvember 1963,
reis Surtsey úr Atlantshafinu suð-
ur af íslandi./l
Munkurinn sem aidrei
sefur
► Af Lama Zopa Rinpocte og nýju
stúpunni á Hádegishólum i Kópa-
vogi./lO
Hef haft unað af því
að messa
►Rætt við séra Arngrím Jónsson,
sem nú hefur látið af prestsstörf-
um eftir hálfrar aldar þjónustu./
12
»1 imiii's MMrMWV*. IUH1.VVI . iCtiomnn ( Vjnf
*a\tu -1
*MVfl ( . 4MU HU'UIK IIMM it\ iUI *
@SK3
t. .
jgpj
PMISW ML'
c
BILAR
►1-4
Hver var hún Merce-
des?
►Bílnöfn, sem em öllum töm, eiga
rætur slnar að rekja til vefstóla-
smiða, tannþjólaframleiðenda og
tölugerðarmanna./2
Vel búin Sonata
► Reynsluakstur á Hyundai Son-
ata, sem þykir ríkulega búinn bíll
og á hagstæðu verði./4
fastirþættir
Fréttir 1/2/4/6/bak
Kvikmyndahúsin 22
Leiðari 24
Helgispjall 24
Reykjavikurbréf 24
Minningar 28
Iþróttir 43
Útvarp/ajónvarp 44
Gárur 47
Mannlffsstr. 6b
fdag 7b
Dægurtónlist
Kvikmyndir
Fólk t fréttum
Myndasögur
Brids
14b
16b
18b
20b
20b
20b
Skák 20b
Bí6/dans 21b
Bréftil blaðsins 24b
Velvakandi 24b
Samsafnið 26b
INNLENDAR FRÉTTIR-
2-6-BAK
ERLENDAR PRÉTTIR-
1-4