Morgunblaðið - 14.11.1993, Side 25
24
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1993
+
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1993
25
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Arvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar:
691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði
innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið.
Ný vígstaða sljórn-
arfiokkanna
Stuðningsmönnum ríkisstjómar-
innar hefur íjölgað og and-
stæðingum hennar hefur fækkað
skv. nýrri skoðanakönnun um fylgi
stjómmálaflokkanna, sem Féiags-
vísindastofnun Háskóla íslands
hefur gert fyrir Morgunblaðið.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur aukið
fylgi sitt verulega frá því að Fé-
lagsvísindhstofnun gerði sams
konar könnun í maímánuði sl. eða
um átta prósentustig. Hins vegar
hefur Alþýðuflokkurinn heldur
tapað fylgi, ef miðað er við maí-
könnun Félagsvísindastofnunar en
bætt stöðu sína frá febrúarkönnun.
Athyglisvert er, að bæði Fram-
sóknarflokkur og Alþýðubandalag
tapa fylgi skv. þessari könnun,
hvor flokkur um sig um fjórum
prósentustigum en þriðji stjómar-
andstöðuflokkurinn, Kvennalist-
inn, bætir verulega við sig fylgi.
Það hefur gerzt áður í slíkum
könnunum á milli kosninga, að
Kvennalisti hefur náð Iangt en
ekki haldizt á því fylgi.
Telja má víst, að batnandi staða
Sjálfstæðisflokksins í könnun Fé-
lagsvísindastofnunar endurspegli
það gjörbreytta andrúm sem er í
landinu eftir aðgerðir ríkisstjómar-
innar í vaxtamálum. Það er á hinn
bóginn umhugsunarefni fyrir for-
ystumenn Alþýðuflokksins, hvers
vegna flokkur þeirra nýtur ekki
góðs af þeim nýja byr, sem ríkis-
stjómin hefur fengið. Ekki sízt þar
sem Sighvatur Björgvinsson, við-
skiptaráðherra Alþýðuflokksins,
var einn helzti hvatamaður aðgerð-
anna í vaxtamálum. Er hugsan-
legt, að þrátt fyrir allt sé varkárni
almennings svo mikil, að kröfur
Alþýðuflokksins um róttækar
breytingar á ýmsum grandvallar-
þáttum þjóðfélagsins eigi takmark-
aðan hljómgrann? Eða er það rétt,
sem haldið var fram á flokksstjórn-
arfundi Alþýðuflokksins fyrir
skömmu, að embættaveitingar
flokksins hafi veikt stöðu hans
mjög?
Allt er þetta umhugsunarefni
fyrir forystusveit Alþýðuflökksins.
Og enda þótt Sjálfstæðisflokkurinn
hafi bætt stöðu sína mjög í þess-
ari könnun mundi slík útkoma í
kosningum hins vegar ekki vera
viðunandi fyrir flokkinn.
Fyrir þremur mánuðum var
staða ríkisstjómarinnar mjög veik
og ástæða til svartsýni um útkomu
stjómarflokkanna í sveitarstjórn-
arkosningum næsta vor. Sam-
kvæmt könnun, sem Félagsvís-
indastofnun gerði fyrir ríkissjón-
varpið og skýrt var frá í fyrradag
mundi Sjálfstæðisflokkurinn halda
meirihluta sínum í borgarstjómar-
kosningum í Reykjavík við óbreytt-
ar aðstæður í framboðsmálum
minnihlutaflokkanna. Það út af
fyrir sig er mikilsverður árangur
í ljósi erfiðrar stöðu flokksins á
landsvísu á undanfömum mánuð-
um og misserum. Hins vegar er
ekki ólíklegt, að sú niðurstaða
þessarar könnunar, að sameigin-
legt framboð vinstri flokkanna
tryggi þeim meirihluta verði til
þess að hleypa nýju lífi í þær um-
ræður.
Meginniðurstaða þessara kann-
ana beggja er sú, að nú er lag
fyrir stjórnarflokkana til þess að
hefja nýja sókn. Þeir hafa byrinn
með sér þessa stundina og eiga
að grípa það tækifæri, sem nú
hefur gefizt til nýrra átaka.
HELGI
Af* ÞEGARÉGVARÍ
tlO.]
.Þýzkalandi 1973
þýddi ég i Lesbók nokkur
nútímakvæði úr þýzku,
>• <> þ.á m. „konkret“-ljóð eftir
SPJQ.ll Helmut Heissenb?íttel,
Samtímamenn. En við eig-
um ekki þróaða ljóðlist í þeim stfl. Ljóð af þessum
skóla reyna á þanþol tungunnar til hins ítrasta og era
einatt gjörsamlega óskiljanleg. En samt - og þráttfyr-
ir órökvísina og sundraða framsetningu - má finna
merkingu sem er öllum augljós þegar töfralykli hefur
verið brugðið í skrána, ef svo mætti segja. í Lesbók
nefni ég dæmi þess og ástæðulaust að vega í þann
knérann. En ég sé nú við nánari athugun að í einu
þessara kvæða sem ég snaraði á sínum tíma og er
eftir Wilhelm Szabo, Ég hitti orð mitt, hlutgerir skáld-
ið orð, hugrekki, kraft og kærleika, ekki ólíkt því sem
Jóhann Siguijónsson og Steinn gerðu:
Ég mætti orði mínu
á munni lygara.
Það þekkti mig ekki.
Það snerist gegn mér.
Ég hitti hugrekki mitt.
Það jók andúðina á mér.
Mundi ekki það var frá mér komið,
en vakti fjandmanni mínum gleði.
Ég sá kraft minn
aftur í athöfn ofsækjandans.
Ég þekkti hann ekki lengur.
Hann reif hús mitt af grunni.
Ég fann kærleika minn.
Óafvitandi þjónaði hann böðlinum.
Ég var honum löngu ókunnur.
Rólega reiddi hann til höggs.
í ljóði Hans Dieter Scháfer, Póstkort frá Kairó, eru
nokkur fræðileg einkenni þess módernisma sem hér
er til umræðu:
Mig langar að lesa eitthvað
um kúbismá.
Svölurnar syngja
á þökunum.
Hér eru engin tré.
Skrifaðu mér hvort snjór sé í N?ímberg.
Hægt mjakast sólin.
Skugginn hreyfir sig.
inniskósmiðurinn vinnur
fyrir græna stjörnu.
í þekktasta ljóði sinu, Seint, segir Elisabeth Borchers:
Vindurinn er orðinn bitur
og lemur fuglana
þeir syngja ekki lengur
Jörðin er orðin grá
skip þjökuð af svefni
og stöðvast ekki
Borschers er á svipuðum aldri og fyrrnefnd skáld,
fædd 1926. Fræg er ljóðlína hennar: Eia wasser reg-
net schlaf... og minnir á þekkt íslenzkt ljóð, miklu
eldra, eiaperlur... Þetta orð, eia, rakst ég stundum á
í alpaskáldskap. Einnig anímönur(l)
Eins og sjá má af ljóði Borschers hefur skáldkonan
ekki farið varhluta af súrrealistískum áhrifum. Tog-
streita milli draums og veruleika er einkenni á mörgum
ljóðum hennar og talað um „flótta hennar inní draum-
inn“. Orð sem era dæmigerð fyrir súrrealista einsog
vindur og fuglar og virðast sprottin úr draumsvefni
era fléttuð inní samhengi raunverulegrar reynslu. I
Seint er einsog skáldkonan vakni af svefni og sigli
inní veraleikann. Söngurinn er þagnaður og vindurinn
lemur fuglana; svefnskip skáldkonunnar stefnir inní
sterkan vind áþreifanlegrar skynjunar.
En módemisminn í kvæðinu Að degi til eftir Paul
Celan var mér þó mest að skapi. Og samt var þetta
líklega enginn módernismi!
Héraskinnshiminn. Enn
skrifar stór vængur greinilega.
Einnig ég, minnstu þess
fugl, kom
eins og trana.
Célan lézt 1970 í París, þá kominn í forystusveit
þýzkra ljóðskálda. Hann var þá um fimmtugt. Móðir
hans dó í útrýmingabúðum nazista og Celan hefur
minnzt þess í stuttu og ódauðlegu kvæði. Hann lærði
af frönskum symbólistum og súrrealistum og þýddi
ljóð eftir Rimbaud og Valéry á þýzku. Celan sagði
einhveiju sinni, Ljóðið er einmana. En fjórða ljóðabók
hans hét Sprachgitter, 1959, eða: Talrimlar, þ.e. fang-
elsisrimlar, en svo voru þeir örlitlu gluggar nefndir í
miðaldaklaustrunum þarsem nunnurnar gátu talað við
umheiminn. Celan vill minna á hversu erfitt er að
komast í samband við veraleikann með tungunni einni.
Milli hennar og umheimsins eru talrimlar. Skáldið er
einsog miðaldanunna sem situr í kláustri sínu og hvísl-
ar útum gluggann. Betur er ekki hægt að lýsa Celan
og Verkum - og raunar þeim módernisma sem Örn
Olafsson fjallaði um. Celan leit svo á að súrrealisminn
væri „gullgerðarlist Ijóðs og ástar og mun halda fram-
tíðinni opinni fyrir okkur“. Einsog oft er um skáld,
ekkisízt Jóhann Siguijónsson, var dauðinn Celan
ónæðissamur nágranní. Og vegna þess að hugur hans
var með þeim sem voru drepnir í Auschwitz er hann
stundum nefndur í sömu andrá og Nelly Saschs sem
Jóhannes úr Kötlum snaraði á islenzku. M
(meira næsta sunnudag)
u
TGÁFUFÉLAG MORG-
unblaðsins, Arvakur
hf., hefur staðið að
útgáfu þess mestan
hluta þess tíma, sem
blaðið hefur komið út.
Hins vegar hafa for-
ráðamenn útgáfufé-
lagsins lítið gert af því að lýsa viðhorfum
sínum og afstöðu til rátgáfu blaðsins á
opinberam vettvangi. í afmælishófi, sem
útgáfufélagið efndi til fyrir starfsmenn
blaðsins og maka þeirra fyrir viku, í til-
efni af 80 ára afmæli Morgunblaðsins,
fluttu tveir af forráðamönnum Árvakurs
hf., þeir Haraldur Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri Morgunblaðsins, og Hall-
grímur Geirsson, stjórnarformaður Árvak-
urs hf., stefnumarkandi ræður, þar sem
viðhorf þeirra til blaðsins, útgáfu þess og
framtíðarstarfsemi koma fram. Ékki er
úr vegi, að lesendur Morgunblaðsins kynn-
ist sjónarmiðum þeirra og þess vegna era
kaflar úr ræðum þeirra birtir hér í Reykja-
víkurbréfi.
í ræðu sinni sagði Haraldur Sveinsson,
framkvæmdastjóri Morgunblaðsins, m.a.:
„í dag minnumst við þess að fyrir nokkr-
um dögum vora 80 ár liðin frá því að
Morgunblaðið hóf göngu sína ...
Allt það sem Morgunblaðið hefur viljað
flytja hinni íslensku þjóð hefur staðið og
mun standa á síðum þess.
Morgunblaðið er ekki gefið út fyrir eig-
endur Árvakurs, útgáfufélags þess.
Morgunblaðið er ekki gefíð út fyrir rit-
stjóra þess.
Morgunblaðið er ekki gefíð út fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn.
Morgunblaðið er ekki gefið út fyrir
starfsfólk þess.
Morgunblaðið er gefíð út vegna lesenda
sinna.
Þegar höfuðáhersla útgáfunnar er
vegna lesendanna og íslensku þjóðarinnar
gefur það okkar ágætu viðskiptavinum,
auglýsendunum, hið besta tækifæri til að
ná til meirihluta íslendinga.
Menn hafa talið, að mikil átök hafí oft
orðið um stefnu blaðsins. Svo er ekki.
í meginatriðum hefur blaðið haft stefn-
una frá þeim Vilhjálmi Finsen og Ólafí
Björnssyni að leiðarljósi. Þótt stundum
hafí aðeins komið hlykkur á vegferðina
hefur okkur í meginatriðum tekist að halda
stefnunni beinni.
Sumir sem komið hafa til starfa á Morg-
unblaðinu hafa ekki í byijun áttað sig á
því hvemig starfað er á blaðinu. Um einn
þeirra var sagt: „Hann kom á Morgunblað-
ið til þess að breyta því. En þegar hann
fór þaðan hafði Morgunblaðið breytt hon-
um.“
Þetta er eins og við segjum í dag:
Kjarni málsins.
Við vitum öll, að hér hefur ávallt ríkt
hinn sanni Morgunblaðsandi, allir starfs-
menn reyna eftir megni að stuðla að því
að gera blaðinu kleift að þjóna lesendum
sínum sem allra best.
Ég vona að okkur takist í framtíðinni
eins og hingað til að halda forustunni í
blaðaútgáfu á íslandi.
Að fylgjast með stefnum og straumi í
íslensku þjóðlífi, upplýsa og fræða þjóðina
um allt það sem er efst á baugi innan-
lands og erlendis hveiju sinni og kapp-
kósta að allar fréttir séu sem sannastar
óg öruggastar og blaðið njóti óskoraðs
trausts ungra og aldinna íslendinga.
Ég fullyrði, að með hinu ágæta sam-
starfí aðila, útgefenda, ritstjóra og starfs-
manna allra, hefur okkur tekist að skapa
okkur traustan sess í íslensku þjóðlífí. Ég
vil því nota tækifærið og þakka öllum
starfsmönnum þeirra hlut í því að þetta
hefur tekist.
Með traustri efnahagslegri stöðu erum
við engum háðir.
Fjárhagslegt sjálfstæði þýðir um leið
sjálfstæði til óháðrar afstöðu til manna
ogmálefria.
í ár tókst okkur að ná því langþráða
marki að koma allri starfsemi blaðsins
aftur undir eitt þak.
Nýtt og hentugt húsnæði til þess að
Metnaðar-
málað
fjölga út-
gáfudögum
bæta vinnuaðstöðu starfsfólksins er mikil-
vægt.
Eg vil færa öllum þeim sem stuðluðu
að því að framkvæmdimar gengu hratt
og vel fyrir sig hinar bestu þakkir. Sérstak-
lega vil ég þakka Helgu Gunnarsdóttur
arkitekt."
í RÆÐU SINNI
sagði Hallgrímur
Geirsson, formaður
stjórnar Árvakurs
hf., m.a.: „Við
fögnum nú 80 ára
afmæli Morgun-
blaðsins í nýjum
húsakynnum sem tekin voru í notkun á
afmælisárinu ... Á merkum tímamótum
er við hæfí að horfa fram á veg.
Það er eitt meginverkefni útgefenda
Morgunblaðsins í samvinnu við starfsfólk
þess að marka þróunarstefnu fjölmiðilsins
til lengri tíma lifíð. í því felst ekki síst að
taka mið af örri tækniþróun og nýta hana
sem skynsamlegast eftir efnum og ástæð-
um til að fullnægja þeim kröfum sem gerð-
ar era til nútímaftölmiðils.
Á 75 ára afmæli Morgunblaðsins var
það stærst og brýnast verkefni að reisa
nýtt húsnæði fyrir starfsemi blaðsins sem
þá var á fjórum stöðum í borginni.
Annars vegar töldum við að aukin arð-
semi og hagræði fælist í því að sameina
starfsemina á einum stað. Hins vegar og
ekki síður töldum við áríðandi að skapa
blaðinu skilyrði til fjölbreyttari og víðtæk-
ari fjölmiðlunarstarfsemi en kostur var á
að óbreyttu.
Nú á 80 ára afmæli Morgunblaðsins er
þessum áfanga náð og nú blasir líka við
að nýta skilyrðin til nýrra átaka.
Við hljótum áfram að vera vakandi fyr-
ir þeim möguleikum sem felast í að til-
einka okkur önnur tilbrigði ftölmiðlunar
sjálfstætt eða í samvinnu við aðra og það
er metnaðarmál að bæta þjónustu Morgun-
blaðsins með fjölgun útgáfudaga.
Svo er örri tækniþróun fyrir að þakka
að vandinn er ekki skortur á möguleikum
heldur öllu fremur að velja og hafna með
hliðsjón af því hvemig blaðið megi sem
best fullnægja þeim kröfum sem til þess
eru gerðar.
Tæknivæðing Morgunblaðsins er hins
vegar ekkert markmið eitt og sér. Eftir
sem áður er það efni og inntak þess sem
miðlað er sem máli skiptir.
Þegar við tileinkum okkur nýja tækni
er því mikilvægt að við gæðum hana lífí
og vitsmunalegu inntaki, verðum áfram
herrar hennar en ekki þrælar.
Gott Morgunblaðsfólk.
Við byggjum á góðum grunni. Við eigum
því láni að fagna að njóta þess veganestis
sem framkvöðlar Morgunblaðsins, for-
svarsmenn og starfsfólk hafa veitt okkur
í 80 ár.
Styrkur Morgunblaðsins hefur frá upp-
hafi legið í vandaðri og yfirvegáðri þátt-
töku í þjóðmálaumræðu og upplýsinga-
miðlun reistri á þekkingu og aga.
Styrkur Morgunblaðsins hefur ekki síð-
ur falist í því afli sem valið og samtaka
starfsfólk hefur leyst úr læðingi í þágu
blaðsins.
Útgefendur Morgunblaðsins era þakk-
látir ykkur vegna þess að þeir gera sér
grein fyrir því að sterk staða og hagur
Morgunblaðsins byggist á því að þar er
valinn maður í hveiju rúmi.
Það er um leið metnaðarmál okkar og
markmið að þeir sem að blaðinu starfa
njóti velgengni þess eins og kostur er og
aðstæður leyfa á hveijum tíma.
Það er von okkar útgefenda og ósk að
meðan okkur er falin forsjá Morgunblaðs-
ins berum við gæfu til þess með ykkur
að varðVeita og efla virðingu og reisn
Morgunblaðsins til að skila eftirkomend-
um.“
UMFJÖLLUN
Morgunblaðsins um
menningarmál er
enn til umræðu á
síðum blaðsins um
þessa helgi, eins og
hina síðustu. Þá birtist í blaðinu hörð gagn-
Umfjöllun
um menn-
ingarmál
REYKJAVÍKURBREF
Laugardagur 13. nóvember
+ +.:+;■ +.+■;; ■ / -
jgj p '■> g ggpgggl
STORBROTNIR FJALLATINDAR
Stöðvarfjörður gegnum Súlur, sunnan við fjörð á milli Breiðdals og Stöðvarfjarðar.
rýni á leikhúsgagnrýnanda og myndlistar-
gagnrýnanda Morgunblaðsins ásamt at-
hugasemd frá ritstjóram blaðsins. í Morg-
unblaðinu í dag, laugardag, birtast enn
greinar þar sem fjallað er um skrif tveggja
áðurnefndra gagnrýnenda.
í bók, sem út kom erlendis fyrir nokkr-
um mánuðum um bókaútgáfu var komizt
að orði eitthvað á þá leið, að bókaútgáfa
án umsagna í dagblöðum og tímaritum
um bækur væri vonlaus. Bókagagmýni
væri eins konar lífæð bókaútgáfunnar. Það
er áreiðanlega mikið til í þessu. Þeir, sem
á annað borð fylgjast með útgáfu bóka í
öðrum löndum þekkja það vafalaust af
sjálfum sér, að þeir panta bækur ekki sízt
eftir umsögnum, sem þeir lesa um bækurn-
ar í dagblöðum og tímaritum.
Það á við um þá, sem standa að menn-
ingarviðburðum yfírleitt, að þeim er í
mun, að umsögn birtist t.d. hér í Morgun-
blaðinu. Það sama á áreiðanlega við um
önnur blöð. Minna er um slíkar umsagnir
í tímaritum, þó birtast þær bæði í Skími
og Tímariti Máls og menningar. Enginn
getur vitað fyrirfram, hver umsögn gagn-
rýnanda er. Enginn getur fyrirfram búizt
við góðri umsögn. Þrátt fyrir það er leitað
stíft eftir því, að umsagnir birtist. Sem
dæmi má nefna, að Morgunblaðið hugðist
fella niður á þessum vetri umsagnir um
sýningar áhugamannaleikhúsa. Viðbrögð-
in við þeim áformum voru svo hörð, að
blaðið féll frá þeim. Þó hafa leiksýningar
áhugafólks oft fengið harða dóma hér í
blaðinu.
Morgunblaðið birtir ekki umsagnir um
alla bókatitla, sem út koma á hveiju ári.
Sennilega birtast umsagnir hér í blaðinu
um tæplega helming þeirra bókatitla, sem
út koma. Gagnrýni um bækur er stundum
góð, stundum hörð, eins og gengur. Ekki
er við öðra að búast. Þær bækur, sem
gefnar eru út á íslandi era ekki allar góð-
ar! Þrátt fyrir það, að oft birtist hörð gagn-
rýni um einstakar bækur er bæði útgefend-
um og höfundum í mun, að umsögn birt-
ist. Stundum getur hörð gagnrýni um bók
eða deilur, sem kvikna vegna harðrar
gagnrýni orðið til þess að auka sölu bókar
vegna þess, að slík umsögn og deilur geta
vakið forvitni fólks um viðkomandi verk.
Leikhús hefur verið starfrækt með
myndarbrag hér á íslandi í heila öld. Starf-
semi Leikfélags Reykjavíkur hófst seint á
síðustu öld. Á heilli öld hafa birzt umsagn-
ir um leiksýningar af ýmsu tagi, sumar
sýningar hafa verið hafnar til skýjanna,
aðrar sætt harðri gagnrýni. Sumar sýning-
ar hafa gengið heilan vetur og jafnvel leng-
ur, aðrar hafa fallið á skömmum tíma.
Engu að síður stendur leikhússtarfsemi
með miklum blóma. Fyrir hálfri öld var
eitt leikhús í Reykjavík, í gömlu Iðnó. Nú
eru rekin tvö glæsileg leikhús, Þjóðleikhús-
ið og Borgarleikhúsið, myndarlegt at-
vinnuleikhús er rekið á Ákureyri, auk
starfsemi fjölmargra fijálsra leikhópa.
Hörð gagnrýni um einstakar sýningar hef-
ur ekki kippt fótunum undan þessari starf-
semi, heldur hefur hún þvert á móti orðið
til þess, að það hefur oft staðið stormur
um íslenzkt leikhús og þegar upp er stað-
ið hleypa slíkar sviptingar nýju lífi í leik-
húsið.
Myndlistarstarfsemi er ótrúlega blómleg
hér á landi. Myndlistarsýningar era orðnar
svo margar, að það er nánast ómögulegt
fyrir áhugafólk að hafa yfírsýn yfír það,
sem er að gerast í myndlist eins og hægt
var t.d. fyrir aldarfjórðungi. Það er mikil
grózka í myndlist. Það sama á hins vegar
við um þessa listgrein eins og aðrar, að
þeir sem að sýningum standa vilja ekki
vera án myndlistargagnrýni. Þeir verða
að sætta sig við niðurstöðu gagnrýnand-
ans. En Morgunblaðið er að sjálfsögðu
opinn vettvangur fyrir þá, sem hafa aðra
skoðun en gagnrýnandinn. Deilur um ein-
staka sýningar eða málefni, sem tengjast
þeim era hins vegar líklegri til að auka
aðsókn að sýningum en draga úr þeim.
Með sama hætti og bæði listamenn og
lesendur geta gert kröfur til gagnrýnenda
um vönduð vinnubrögð og rökstudda um-
sögn er hægt að gera sömu kröfur til
þeftra, sem gagnrýna gagnrýnendur. Þeir
tveir greinahöfundar, sem fjalla um mynd-
listargagnrýni og leikhúsgagnrýni Morg-
unblaðsins hér í blaðinu í dag, laugardag,
gera það á þann veg, að við þá er ekki
hægt að rökræða. Málflntningur þeirra
byggist ekki á efnislegum forsendum. Hins
vegar er mikill sannleikur fólginn í orðum
Sigríðar Arnlaugsdóttur, sem einnig skrif-
ar um þessi mál í laugardagsblað Morgun-
blaðsins, en hún segir; „Hvers vegna má
aldrei segja sannleikann um leiksýningar
án þess, að allt ætli um koll að keyra? ...
Gagnrýni, sem er ekkert nema kurteisleg
lofsyrði eða þá að farið er í kringum veil-
urnar eins og köttur í kringum heitan
graut, er gagnrýni, sem ekki er mikið
gefandi fyrir.“
Flugmynd: Jón Karl Snorrason
„Hins vegar er
mikill sannleikur
fólginn í orðum
Sigríðar Arn-
laugsdóttur, sem
einnig skrifar um
þessi mál í laugar-
dagsblað Morgun-
blaðsins, en hún
segir: „Hvers
vegna má aldrei
segja sannleikann
um leiksýningar
án þess, að allt
ætli um koll að
keyra?... Gagn-
rýni, sem er ekk-
ert nema kurteis-
leg lofsyrði eða
þá að farið er í
kringum veilurn-
ar eins og köttur
í kringum heitan
graut, er gagn-
rýni, sem ekki er
mikið gefandi fyr-
ir.““
+