Morgunblaðið - 14.11.1993, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1993
37
jat vm M M ■kJl ■ M A I \A—N / \AC' IK IA—N A D
ATVIIiWÍUAuOl # o//N/(j7yA/\
A
KOPAVOGSBÆR
auglýsir stöðu innheimtufulltrúa við leikskóla
Kópavogs frá áramótum 1993-1994.
Um er að ræða afleysingu, 50% stöðu fyrir
hádegi í eitt ár.
Starfið felst m.a. í tölvuskráningu og úr-
vinnslu á biðlista og vegna innheimtu leik-
skólagjalda.
Upplýsingar gefur leikskólafulltrúi í síma
45700.
Umsóknarfrestur er til 22. nóvember nk.
Starfsmannastjóri.
Sölumaður
Fyrirtækið er traust og rótgróið innflutnings-
og smásölufyrirtæki með alhliða heimilistæki.
Starfið felst í afgreiðslu og sölu í verslun
fyrirtækisins. Um hlutastarf er að ræða,
50-80%, eftir hádegi.
Leitað er að konu eða karli með reynslu af
og áhuga á sölustörfum. Þekking á heimilis-
tækjum æskileg.
Umsóknarfrestur er til og með 17. nóvem-
ber nk.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Afleysinga- og ráðningaþjónusta
Lidsauki hf.
Skólavörðustig 1a - 101 Reykjavik - Simi 621355
LANDSPITALINN
Reyklaus vinnustaður
ENDURHÆFINGAR- OG HÆFING-
ARDEILD LANDSPÍTALANS
í KÓPAVOGI
Sjúkraþjálfarar! Þetta er tækifærið sem þið
hafið beðið eftir til að breyta til og prófa eitt-
hvað nýtt. Óskum eftir að ráða sjúkraþjálfara
til starfa við endurhæfingardeild Landspítala
í Kópavogi. Fjölbreytt og áhugavert starf á vel
búinni endurhæfingardeild. Kjörið tækifæri til
að hafa áhrif á mótun endurhæfingarþjónustu
fyrir fatlaða. Möguleiki á afleysingastöðu til 9
mánaða eða fastri stöðu.
Upplýsingar gefa Guðný Jónsdóttir, yfir-
sjúkraþjálfari og Martha Ernstdóttir, deildar-
sjúkraþjálfari, í símum 602725 og 602726.
ELDHUS LANDSPITALANS
Matarfræðingar óskast til starfa í eldhús og
starfsmannamatsal Landspítala.
1. Verkstjóri í sérfæðisdeild. Matarfræð-
ingsmenntun eða sambærileg menntun
æskileg.
Vinnutími frá 7.00-15.30 (vaktavinna).
2. Yfirmaður í starfsmannamatsal Landspít-
ala. Matarfræðingsmenntun eða sam-
bærileg menntun æskileg.
Vinnutími frá 7.00-15.30.
3. Matarfræðingur óskast til starfa í fram-
leiðslueiningu.
Vinnutími frá 7.00-15.30 (vaktavinna).
Umsóknarfrestur er til 25. nóvember 1993.
Upplýsingar gefur Olga Gunnarsdóttir
í síma 601513.
RIKISSPIT ALAR
Ríkisopitalar eru ^elnn fjölmenrftisti vinrHistaður é íslandi mei> 8t#rfsemi
um land allt. Sem háskákisjúkrahús beitir stofnunln sér fyrir markviseri
•meðferö 9júkra, fræöslu heilbriöðisstétta og fjölbreyttri rannsóknastarf-
semi. Okkur er annt um velferð allra þeirra, sem viö störfurh fyrir og með,
og leggjum megináherslu á þekkingu og virðingu fyrir einstaklingnum.
Starfsemi Ríkisspítala er helguð þjónustu við almenning og við höfum
ávallt gæði þjónustunnar, gagn hennar og hagkvæmni að leiðarljósi.
Járniðnaðarmenn
Hraðfrystihús Eskifjarðar óskar að ráða fjöl-
hæfa járniðnaðarmenn til framtíðarstarfa.
Upplýsingar gefa Skúli, vinnusími 97-61126
og Björn, vinnusími 97-61108.
*>
Þjóðminjasafn íslands
Safnvörður við Sjó-
minjasafn íslands
Starf safnvarðar við Sjóminjasafn íslands í
Hafnarfirði er laust til umsóknar. Ráðið verð-
ur í starfið til eins árs frá 1. janúar 1994 að
telja.
Safnvörður hefur umsjón með daglegum
rekstri Sjóminjasafnsins í umboði þjóðminja-
varðar.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi
í menningarsögu eða skyldum greinum og
hafa nokkra starfsreynslu á minjasafni.
Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 1. des-
ember nk.
Þjóðminjavörður,
Þjóðminjasafni íslands,
Suðurgötu 41, 101 Reykjavík.
miiGiiii
eRiiiiiia
imiiftii
IIIIIIDEI
IftftEftBIIl
B ftftlft ftftft |
Frá Háskóla Islands
Lausar eru til umsóknar eftirtaldar hluta-
stöður (37%) við læknadeild sbr. 3. mgr.
10. gr. laga nr. 77/1979:
Lektorsstaða í endurhæfingarfræði.
Lektorsstaða í fæðinga- og
kvensjúkdómafræði.
Dósentsstaða í líffærameinafræði.
Dósentsstaða í sálarfræði.
Lektorsstaða í lyflæknisfræði.
Dósentsstaða í lyflæknisfræði. Staðan
er bundin við starfsaðstöðu á Borgarspítala.
Gert er ráð fyrir að stöður þessar verði veitt-
ar til fimm ára frá 1. júlí 1994 að telja.
Einnig er laus til umsóknar hlutastaða (37%)
lektors í slysalækningum við læknadeild
sbr. 3. mgr. 10. gr. laga nr. 77/1979.
Umsækjendur skulu vera sérfræðingar í
bæklunarskurðlækningum. Gert er ráð fyrir
að staðan verði veitt sem fyrst eftir áramót
1993-1994, til 30. júní 1999.
Umsækjendur um ofangreindar stöður
skulu láta fylgja umsóknurn sínum rækileg-
ar skýrslur um vísindastörf þau, er þeir
hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo
og námsferil og störf. Með umsóknum
skulu send eintök af vísindalegum ritum
og ritgerðum umsækjenda, prentuðum og
óprentuðum. Ennfremur er óskað eftir
greinargerð um rannsóknir sem umsækj-
endur hyggjast stunda, verði þeir ráðnir,
og hvaða aðstaða er nauðsynleg fyrir fyrir-
hugaðar rannsóknir. Laun skv. kjarasamn-
ingi Fétags báskólakennara ogfjárimálaráð-
berjra.
Umsóknarfrestur er til 13. desember 1993
og skal umsóknum skilað til starfsmanna-
sviðs Háskóla íslands, Aðalbyggingu við
Suðurgötu, 101 Reykjavík.
Sjúkraþjálfarar
óskast
til starfa við Sjúkrahúsið á Egilsstöðum og
verkefni í nágrannabyggðum. Um er að ræða
tvö stöðugildi frá og með næstu áramótum
eða eftir nánara samkomulagi.
Upplýsingar gefur Einar R. Haraldsson í síma
97-11073 eða 97-11400.
ixi
Sálfræðingur
Sálfræðingur óskast, sem ráðgjafi, að nýju
meðferðarheimili fyrir börn á Geldingalæk á
Rangárvöllum (án búsetu).
Um er að ræða allt að 50% starf.
Nánari upplýsingar fást í félagsmálaráðu-
neyti í síma 609100 og hjá Ingva Hagalíns-
syni í síma 98-75164.
Umsóknum, ásámt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, skal skilað til félagsmálaráðu-
neytisins eigi síðar en 29. nóvember 1993.
Leikskólastjóri
Fyrirhugað er að opna nýjan leikskóla við
Miklaholt í mars 1994. Gert er ráð fyrir því
að leikskólastjóri hefji störf 15. janúar ’94.
Fóstrumenntun áskilin.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf skulu berast ieikskólafulltrúa
fyrir 26. nóvember 1993.
Nánari upplýsingar veitir leikskólafulltrúi í
síma 53444.
Félagsmálastjórinn í Hafnarfirði.
VIIMNUEFTIRUT RIKISINS
Administration of occupational safety and health
Bildshöföa 16 • Pósthólf 12220 • 132 Reykjavík
Deildarstjóri
fræðsludeildar
Vinnueftirlit ríkisins auglýsir lausa til umsókn-
ar stöðu deildarstjóra fræðsludeildar.
Starfið felur meðal annars í sér að hafa
umsjón með útgáfumálum stofnunarinnar,
ritstýra og hafa umsjón með útgáfu frétta-
bréfs, umsjón með námskeiðahaldi og ann-
ast samskipti við fjölmiðla.
Áhersla er lögð á að viðkomandi
uppfylli eftirtalin skilyrði:
• Háskólapróf í félagsfræði, sálfræði,
kennslufræðum eða skyldum greinum.
• Reynslu af kennslu og skipulagningu
námsefnis.
• Góða íslenskukunnáttu og geti notað
a.m.k. eitt Norðurlandamál og ensku.
• Þekki og geti notað ritvinnslu í tölvum.
• Geti unnið sjálfstætt, sé vel ritfær og
hafi hugarflug.
• Hæfileika til að umgangast fólk.
• Geta verið ráðgefandi um féiagsleg og .
samskiptaleg varvdamál sem tengjast *
vinnustöðum. ^
Nánari upplýsingar um .startið veitir fOFStjó
eáa skrjfstofustjóri í sífna 672500. LJaunæri
samkvæmt iaunakerfi opínberra starfsmanna.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist til Vinnueftirlits ríkisins,
Bíldshöfða 16,112 Reykjavíkfyrir 10. des. '93.