Morgunblaðið - 14.11.1993, Síða 42

Morgunblaðið - 14.11.1993, Síða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1993 Forsætis- og utanríkisráðherra falið að svara EB um grænmetisinnflutning Ekkí er búist við frekari töfum á innflutningnum FORSÆTISRÁÐHERRA og utanríkisráðherra hefur verið falið að ganga frá svari við umkvörtunum Evrópubandalagsins vegna tafa á að innflutn- ingsleyfi fengist fyrir gúrkur og tómata frá Hollandi. Ekki er búist við frekari töfum á innflutningsleyfum frá og með morgundeginum þar sem innlend framleiðsla á þessum tegundum mun nánast vera á þrotum. Evrópubandalagið sendi utanríkis- ráðuneytinu bréf í vikunni, þar sem kvartað var yfir því að ísland standi ekki við tvíhliða samning við Evrópu- bandalagið um frjálsan innflutning á fjórum grænmetistegundum, papr- iku, salati, tómötum og gúrkum eftir 1. nóvember. Bréfið var sent vegna tafa á því að innflutningsleyfi feng- ist fyrir gúrkur, og munnleg kvörtun barst vegna samskonar tafa á inn- flutningsleyfi á tómötum. Jón Baldvin Hannibalsson utanrík- isráðherra sagði, að kvörtunarefninu yrði svarað og íslensk stjórnvöld yrðu að skýra hvernig þau hygðust tryggja að þetta endurtæki sig ekki. Tafir á innflutningsleyfinu voru vegna þess að sérstök innflutnings- nefnd taldi í fyrstu að næg innlend framleiðsla væri á markaðnum en samkvæmt búvörulögum er það skil- yrði fyrir innflutningsleyfi á landbún- ' aðarvörum að svo sé ekki. Síðan kom í ljós, að framboð var ekki nægilegt og þá var leyfið veitt. Utanríkisráðu- neytið hefur gefið EB munnlegar skýringar á þessu og drög að skrif- legu svari voru rædd á ríkisstjórnar- fundi í gær. Samningur íslands og Evrópu- bandalagsins tengist gildistöku samningsins um Evrópska efnahags- svæðið sem ekki hefur enn tekið gildi vegna þess að hann hefur ekki verið staðfestur í öllum ríkjum EB. Þegar Jqn Baldvin var spurður hvort íslend- ingar gætu ekki á móti kvartað við Évrópubandalagið yfir því, sagði hann það rétt vera. „Það breytir ekki því að við höfum sjálfir undir- gengist þessa skuldbindingu. Þessi samningur gekk í gildi 15. apríl og hvað svo sem líður töfum annarra á heildarsamningnum er þetta auðvit- að spurning um hvemig við ætlum að efna þá skuldbindingu sem við höfum tekist á herðar,“ sagði Jón Baldvin. Grænmeti fyrir fisk Þess'i grænmetisinnflutningur er í samræmi við samning sem Island gerði við EB og tók gildi í vor. Er samningurinn tilkominn vegna þess að Spánn og fleiri EB ríki töldu að samningurinn um Evrópska efna- hagssvæðið tæki ekki nægilegt tillit til þeirra hagsmuna. Fram komu kröfur um fiskveiðiheimildir í land- helgi EFTA-ríkja og kröfur um að þau heimiluðu innflutning á ákveðn- um ávaxta- og grænmetistegundum. íslensku samninganefndarmenn- imir í EES-viðræðunum töldu að ís- land ætti að gefa talsvert eftir á þessu sviði til að geta betur staðið á stífum kröfum varðandi tollaðgang fyrir sjávarafurðir og að hafna veiði- heimildum. ísland skrifaði undir samning um innflutning ávöxtum og grænmeti og fimm blómategundum í maí 1992 um leið skrifað var undir sjávarútvegsamning við Evrópu- bandalagið. Samningamir áttu fyrst að taka gildi um leið og EES, en þegar Sviss felldi EES-samninginn sumarið 1992 og gildistaka hans fre- staðist, var-fallist á að grænmetis- samningurinn tæki gildi strax 15. apríl sl. Deilt um túlkun laga Samkvæmt samningnum er Is- lendingum heimilt að banna innflutn- ing á grænmetistegundunum fjómm frá 15. mars til 1. nóvember meðan innanlandsframleiðsla er í fullum gangi. Á öðrum tímpm á innflutning- ur að vera frjáls og tollalaus. Land- búnaðarráðuneytið hefur hins vegar litið svo á, að samkvæmt búvömlög- um sé hægt að banna innflutning á búvörum ef innlend framleiðsla full- nægir-eftirspurn og þau lög séu æðri þessum milliríkjasamningi. Um þá túlkun hafa landbúnaðarráðherra og utanríkisráðherra deilt. Morgunblaðið/Björn Blöndal Bílvelta á Reykjanesbraut Keflavík. BÍLVELTA varð á Reykjanes- braut á Strandaheiði laust eftir hádegi á föstudag. Ökumaður- inn sem var einn í bílnum var fluttur í sjúkrahúsið í Keflavík. Meiðsli hans voru ekki alvarleg og fékk hann að fara heim að skoðun lokinni. Á myndinni er verið að hjálpa ökumanninum út úr bílnum. Landbúnaðartilboðið verð- ur sent GATT á mánudaginn LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA segir, að tilboð íslendinga til GATT um innflutning landbúnaðarafurða og tollamál í því sambandi, verði sent til GATT eftir helgina. Hafa landbúnaðarráðherra og utanríkisráðherra átt fundi um tilboðið undanfarið en þá hefur greint á um það. „Okkar tilboð verður sent til GATT á mánudag," sagði Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra við Morgunblaðið í gær. Hann vildi ekki upplýsa hvað fælist í tilboðinu, að öðm leyti en því, að það væri í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórn- arinnar frá því í janúar á þessu ári. „Ég lagði þessar tölur fyrir rík- isstjórnina í september með fyrir- vara um tæknilega útfærslu. Nú er verið að fara yfir málið og verð- ur gengið frá því á mánudag," sagði Halldór. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra sagðist telja að hægt yrði að ljúka málinu upp úr helginni en embættismenn myndu um helgina útfæra ýmis álitamál í kjölfar viðræðna þeirra ráðherr- anna. Þrjú ágreiningsefni Deila ráðherranna hefur einkum verið um þrennt. í fyrsta lagi fyrir- vara um magntakmarkanir á nokkrum tegundum afurða sem lúta framleiðslustýringu. í öðru lagi um tollígildi að því er varðar vörur sem ekki hafa lotið innflutningstak- mörkunum. Loks hefur ráðherrana greint á um hve háir tollar skuli vera á þeim landbúnaðarvörum, sem íslendingar skuldbindi sig til að hleypa inn í landið. Þótt ísland aflétti innflutningsbanni á landbún- aðarvörum getur það lagt háa tolla á vörunar í staðinn. Hins vegar verða stjórnvöld að heimila inn- flutning á sem svarar 3-5% af inn- anlandsneyslu með lágum eða eng- um tollum. Ráðuneytin hafa hins vegar ekki verið sammála um hvemig skil- greina eigi lága tolla. Landbúnaðar- ráðuneytið telur að þeir geti verið talsvert háir, svo framarlega sem þeir séu lægri en upprunalegu toll- arnir en utanríkisráðuneytið vill takmarka þessa tolla mun meira. I minnisblaði landbúnaðarráðherra til ríkisstjórnar í september er lagt til, að tollar á þessum vörum verði ekki hærri en 50% af almennu toll- atilboði. Það er hins vegar mun hátt, og segir Jón Baldvin Hanni- balsson að helmingurinn af því geti svarað til allt að 350% tolls. I.O.O.F. 3 = 17511158 = II. I.O.O.F. 10 = 17511158 = Sp. D MÍMIR 5993111519 II11 Frl. □ HELGAFELL 5993111519 VI □ GIMLI 5993111519 II 6 □ HLÍN 5993111416 IVA/ H.v. kl. 16:00. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Almenn samkoma í kvöld kl. 20.00. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Almenn samkoma kl. 16.30. Raeðumaður Hafliði Kristinsson. Barnagæsla og barnasamkoma á sama tíma. Allir hjartanlega velkomnir. Athugið: Samvera fyrir eldri safnaðarmeðlimi ó morgun, mánudaginn 15. nóvember, kl. 15.00. Kristilogrt félag hcilbrigóisstétta Fundur verður í safnaðarheimili Laugarneskirkju mánudaginn 15. nóvember kl. 20.00. Ræðumenn og efni: Séra Jóna Hrönn Bolladóttir: Neyðaraðstoð. Séra Jón Bjarmann: Bænaþrennur. Séra Magnús Björnsson: Bænin, lykill að Drottins náð. Allir velkomnir. v > Frá Sálarrannsókna- félagi íslands §■■■■ Hið vinsæla nám- W^S skeið Hel9u Sig- J og handa", verður :|Pu haldið föstudags- i laugardagskvöld- ið 20. nóvember á Sogavegi 69. Bókanir í símum 618130 og 18130. Stjórnin. fdmhjnlp Almenn samkoma í Þríbúðum, Hverfisgötu 42, í dag kl. 16.00. Fjölbreytt dagskrá með miklum söng. Samhjálparkórinn tekur lagið. Vitnisburðir. Barnagæsla. Ræðumaður Brynjólfur Ólason. Kaffi að lokinni samkomu. Allir velkomnir. Samhjálp. SÍK, KFUM/KFUK, KSH Kristniboðsdagurinn Stórsamkoma fyrir alla fjölskyld- una I Breiðholtskirkju kl. 17.00 í dag. Edda B. Skúladóttir og Gunnar Þór Pétursson hafa kristniboðsþátt. Ræðumaður verður Ragnar Gunnarsson, kristniboði. Athugið að barna- stundir verða á sama tíma. Sam- koman er öllum opin - þér líka! VEGURINN P Kristið samfélag Smiðjuvegi 5, Kópavogi Fjölskyldusamvera kl. 11.00. Eitthvað fyrir alla aldurshópa. Almenn samkoma í kvöld kl. 20.00. Allir hjartanlega velkomnir. Dagskrá vikunnar: Munið bænastundirnar alla virka daga kl. 8.00 og á mánudögum og föstudögum einnig kl. 17.30. Mánudagur kl. 20.00: Grunnfræðsla, framhaldsfræðsla og kynningarfundur fyrir nýja. Miðvikudagur kl. 18.00: Biblíulestur með sr. Halldóri S. Gröndal. Kl. 20.30: Samkoma í Óskakaffi, Selfossi. Föstudagur kl. 20.30: Unglingasamkoma (13-15 ára). Laugardaginn kl. 21.00: Samkoma fyrir ungt fólk (16 ára og eldra). „Náðarár Drottins er i dag“ Sálarrannsókna- félag íslands Keith og Fiona Surtees starfa hjá félaginu frá 15. til 30. nóvem- ber. Keith verður með einkatíma í hefð- bundinni sam- bandsmiðlun, leiðsögn og dá- leiðslu aftur f fyrri líf. Fiona verður með tarotlestra og að- stoðar fólk við að ná tengingu við leiðbeinendur sína. Námskeið auglýst síðar. Bókanir í símum 18130 og 618130 milli kl. 9 og 17. Stjórnin. UTIVIST Hallveigarstig 1 • simi 614330 Dagsferð sunnud. 14. nóv. kl. 10.30: Um Skarösmýrarfjall. Vegna snjóa verður göngunni breytt j skíðagönguferð. Brottför frá BSÍ bensínsölu. Verð kr. 1200/1300. Aðventuferð f Bása 26.-28. nóv. Fullbókað er í þessa vinsælu ferð. Pantanir óskast staðfestar sem fyrst og eigi síðar en föstud. 19. nóvember. Fararstjórar verða Anna Soffía Óskarsdóttir og Ingibjörg S. Ásgeirsdóttir. Útivist. Hvítasunnukirkjan Vegurinn Hafnargötu 84, Keflavík. Samkoma kl. 11.00 árdegis. Jesús Kristur er svarið. Allir velkomnir. Sunnudagur kl. 11.00: Helgunar- samkoma og sunnudagaskóli. Lt. Sven Fosse talar. Kl. 20.00: Hjálpræðissamkoma. Major Káre og Reidun Morken stjórna og tala. Verið velkomin á Her. Mánudaginn kl. 16.00: Heimila- samband. FERÐAFELAG ÍSLANDS MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533 Helgina 26.-28. nóv.: Aðventuferð til Þórsmerkur Tilvalin fjölskylduferð. Aðvent- unnar minnst á viðeigandi hátt. Skiþulagðar gönguferðir meðan dagur endist. Kvöldvaka - óbyggðastemmning. Kjörin til- breyting í skammdeginu að vera með glöðu fólki í Þórsmörk. Farmiðar og upplýsingar á skrif- stofunni. Kómið með! Ferðafélag (slands. Auðbrekka 2 • Kópavoqur Almenn samkoma í dag kl. 16.30. Biblíulestur á þriðjudaginn kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. Ungt fóiK meðhlutverk WÆI YWAM - ísland Samkoma i Breiðholtskirkju f kvöld kl. 20.30. Madonna Polzin frá Ástralíu segir frá reynslu sinni af Guði. Mikill söngur og lofgjörð. Eirný Ásgeirsdóttir prédikar. Boðið til fyrirbænar. Allir velkomnir. FERÐAFELAG # ÍSLANDS MÖRKINNI 6 ■ SÍMI 682533 Dagsferðir sun. 14. nóv. 1) Kl. 10.30: Kræklingaferð f Hvalfjörð. Ferð i samvinnu við matarklúbb Vöku-Helgafells. Til- valin ferð fyrir alla fjölskylduna. Verð kr. 1.100. 2) Kl. 13.00: Gönguferð á Kjal- arnesi. Auðveld strandganga frá Brimnesi um Hofsvík (um 2-2'/2 klst.). Brottför frá BSÍ, austan- megin, og Mörkinni 6. Mætið vel búin og með nesti. Verð kr. 1.000. Frítt f. börn og unglinga. Þriðjudkvöld 16. nóv. kl. 20.30. Opið hús f Mörkinni 6 (risi). Ferðaútbúnaður til vetrarf erða. Helgi Benediktsson kynnir fatn- að og annan útbúnað til vetrar- ferðalaga. Allir velkomnir. Heitt á könnunni. Síðasta tækifæri til að skila myndum I Ijósmynda- samkeppnina. Ferðafélag fslands. Orð lífsins, Grensásvegi 8 Almenn samkoma og sunnu- dagaskóli kl. 11.00. Allir hjartan- lega velkomnir! Athugið: Næstk. föstudag kennir Robert Ekh frá Livets Ord. Sjónvarpsútsending á OMEGA kl. 14.30. Miðilsfundir Miðillinn Colin Kingschot verður með áruteikningar, miðilsfundi, kristalsheilun og rafsegulheilun til 21. nóvember. Upplýsingar í síma 688704. Silfurkrossinn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.