Morgunblaðið - 05.12.1993, Blaðsíða 1
104 SIÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
278. tbl. 81. árg. SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1993 PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS
Heimabrugg-
arar þurrka
upp vatnsból
HEIMABRUGG í Engelsfors í Svíþjóð
er orðið svo umfangsmikið að á stundum
hefur legið við vatnsskorti í bænum.
Hefur hreppstjórnin hótað að leita til
Iögreglunnar, linni brugguninni ekki.
Lagt hefur verið til að stækka vatns-
veituna en hreppstjórnin þvertekur fyrir
að greiða háar fjárupphæðir til slíks.
Einfaldari og ódýrari lausn sé að bæj-
arbúar hætti að brugga.
„Lífræntu sjón-
varp á markaðinn
VIÐKVÆMIR sjónvarpsáhorfendur,
pottablóm og skrautfiskar geta nú andað
léttara því á næsta ári er von á „líf-
rænu“ sjónvarpi á markaðinn. Það er
suður-kóreski framleiðandinn Samsung
sem hefur þróað sjónvarp sem gefur
ekki frá sér innrauða geisla sem hafa
áhrif á pottablóm og gullfiska. í tilraun-
um lifðu prestafíflar (chrysantheum)
góðu lífi í 45 daga fyrir framan sjónvarp-
ið lífræna en aðeins 30 daga fyrir fram-
an venjulegt sjónvarp. Fiskar, sem settir
voru í búr fyrir framan sjónvörpin, syntu
helmingi hraðar fyrir framan tæki Sams-
ungmanna.
Ónæmir fyrir
kólesteróli
VÍSINDAMENN í Atlanta í Bandaríkjun-
um telja sig hafa fundið ástæðu þess að
sumt fólk getur kýlt sig út af kólester-
ólríkri fæðu allt sitt líf án þess að kenna
sér meins. Segjast vísindamennirnir telja
að fólk þetta sé fætt með erfðavísi sem
geri það ónæmt fyrir þeirri tegund kól-
esteróls, sem er að finna í mat.
Helgispjöll í
flugvélamatnum
FRANSKIR farþegar í flugi British
Airways milli Lundúna og Parísar hafa
rekið upp ramakvein að undanförnu yfir
matreiðslu breskra kokka flugfélagsins.
Það sem gekk fram af farþegunum var
sú hugdetta matreiðslumannanna að
setja tómatfyllingu í hið nánast heilaga
„croissant" eða hveitihom. „Þegar ég
leit á matarbakkann ætlaði ég ekki að
trúa mínum eigin augum. Aðeins Bretum
gæti dottið annað eins í hug,“ var haft
eftir einum frönsku farþeganna, sem
líkti matargerðinni við heigispjöll. Eitt
bresku dagblaðanna lagði til við mat-
sveina flugfélagsins að gera enn frekari
tilraunir í eldhúsinu og stakk upp á
nautabuffi með vanillusósu og rabar-
baragraut með sinnepi.
Snjónum fagnað
Morgunblaðið/Ragnar Axelsson
UNGA kynslóðin tók snjónum sem féll á Suðvesturlandi í vikunni fagnandi. Þessi hópur skellti sér á sleða í Ártúnsbrekkunni um leið og
fyrsta tækifæri gafst.
Bili Clinton um kjarnorkuvopnaáætlanir kommúnista í N-Kóreu
Vill komast hjá átökum
við stjórnina í Pyongyang
Washington. Reuter.
BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna,
kvaðst í gær mundu sýna festu gagnvart
Norður-Kóreumönnum þótt hann vonaði í
lengstu lög, að ekki þyrfti að koma til átaka
vegna hugsanlegra kjarnorkuvopnaáætl-
ana þeirra. Stjórnin í Pyongyang svaraði
í gær kröfum Bandaríkjastjórnar um eftir-
lit með kjarnorkuverum og rannsókna-
stofnunum í Norður-Kóreu og gaf nokkuð
eftir en þó er langt í frá, að svörin teljist
fullnægjandi. Víetnam hefur nú bæst í hóp
þeirra ríkja, sem leggja hart að Norður-
Kóreustjórn að standa við samninginn um
takmörkun við útbreiðslu kjarnorkuvopna.
Að sögn bandaríska dagblaðsins The New
York Times hefur Norður-Kóreustjórn fallist
á að veita eftirlitsmönnum Alþjóðakjarnorku-
málastofnunarinnar aukinn aðgang að þeim
kjamorkustöðvum, sem þeir hafa á()ur skoðað,
en bannar sem fyrr aðgang að öðrum. Án
þess að skoða þær geta eftirlitsmennirnir ekki
komist að þvi hve mikið plútóníum hefur ver-
ið notað til hugsanlegrar kjarnorkuvopna-
smíði. Þetta boð er talið algerlega ófullnægj-
andi en bandarískir embættismenn benda á,
að það viti þó á gott, að orðalagið var miklu
hófsamara en áður og laust við áróðurskennd-
ar upphrópanir.
Víetnam skorar á N-Kóreu
Clinton Bandaríkjaforseti sagði í Albuqu-
erque í Nýju Mexíkó, að aldrei yrði liðið, að
Norður-Kóreumenn kæmu sér upp kjarnorku-
vopnum en hann kvaðst vona, að þeir sæju
að sér og tækju upp samstarf við aðrar þjóð-
ir. Stjórnvöld í Víetnam hafa ákveðið að skora
á stjórnina í Pyongyang að fylgja samningnum
um takmörkun við útbreiðslu kjarnorkuvopna.
Víetnam og Norður-Kórea hafa nokkur tengsl
sín í milli en ekki er þó talið, að þau séu náin.
Kommúnistum spáð sigri
Róm. Reuter.
ÁTTA milljónir ítala, um 20% kjósenda,
ganga að kjörborðinu í dag í síðari umferð
borgarstjórnarkosninganna á Ítalíu. Kosið
verður í 124 borgum þar sem ekki náðist
hreinn meirihluti í fyrri umferð kosning-
anna. Síðustu skoðanakannanir bentu til
sigurs kommúnista á nýfasistum og Norð-
ursambandinu.
Mest spennan er í Napólí og i Róm. Ales-
sandra Mussolini, frambjóðandi nýfasista í
Napólí, hefur 8% minna fylgi en frambjóðandi
kommúnista í skoðanakönnunum og Francesco
Rutelli, frambjóðandi vinstrimanna og græn-
ingja í Róm, hefur 7% forskot á nýfasistann
Gianfranco Fini. Kommúnistum er spáð sigri
yfir Norðursambandinu í Genúa og Feneyjum.
KVOTABRASKIÐ
IURÆMDA
14
HJUKRUN
Á KROSSGÖTUM
MEÐ HAGSYNUM ÞJÓÐVERJUM
ÞÝSKHARKA
18