Morgunblaðið - 05.12.1993, Qupperneq 2
2 FRETTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1993
EFNI
Tillaga um lokun grunnslóðar Siglfírðinga
„Verið að taka frá
okkur lífsbjörgina“
HAFRANNSÓKNASTOFNUN mun eftir helgi leggja til við sjávarút-
vegsráðuneytið að grunnslóðinni frá austurkanti Skagafjarðar og í
Eyjafjarðarál og tíu mílur út verði með reglugerð lokað fyrir línuveið-
um. Kynntu þeir smábátamönnum á Siglufirði þetta í fyrrakvöld. Sjó-
menn hafa mótmælt þessari lokun, segja að með henni sé verið að
loka nánast öllum hefðbundnum veiðisvæðum þeirra og. taka frá þeim
lífsbjörgina.
Sveinn H. Zophaniasson á Siglu-
fírði sagði í samtali við Morgunblað-
ið að veiðieftirlitsmenn hefðu byijað
að mæla fiskinn í haust um það leyti
sem smábátar voru að byija á línu.
Forstöðumaður veiðieftirlits Fiski-
stofu og fiskifræðingur hefðu síðan
kynnt smábátasjómönnum á Siglu-
firði fyrirhugaða mikla lokun á fundi
með þeim fyrir norðan í fyrrakvöld.
Lagt væri til að allt veiðisvæðið út
af Siglufirði og Fljótum yrði lokað.
Reglur Hafrannsóknastofnunar
kveða á um að loka beri svæðum ef
fjórðungur af aflanum er 55 sm eða
smærri fiskur og varð það niðurstað-
an úr mælingum. Sveinn sagði að
mælingamenn hefðu ekki sést á þess-
um slóðum fyrr en í fyrrahaust og
síðan hefðu verið skyndilokanir á
nokkrum hólfum og reglugerðarlok-
un á takmörkuðu svæði. Skyndilokun
stendur yfir í viku en með reglugerð
er hægt að banna veiðar til lengri
tíma.
Dæmigerður „Norðlendingur"
Sveinn sagði að fískur væri nokk-
uð smár á þessum veiðisvæðum, frá
40 og upp í 80 sentímetrar að lengd.
Þetta væri dæmigerður „Norðlend-
ingur“, hvorki smærri né stærri en
hann hefði verið frá öndverðu og
menn sæju ekki fram á breytingar í
þeim efnum. Smábátamenn fóru
fram á það í haust að fiskurinn yrði
aldursgreindur, ekki aðeins lengdar-
mældur. Var það gert í nóvember
og þá unnið úr sýnum af austurhluta
svæðisins, ekki Fljótagrunninu sem
Sveinn segir að sé aðal veiðisvæðið.
Hann segir að niðurstaðan hafi verið
sú að 40-50% af fiskinum væri fjög-
urra ára og yngri og afgangurinn
væri því „hægvaxta" 5-6 ára fískur,
samkvæmt orðum fiskifræðinga.
Taldi Sveinn að þetta sýndi að norð-
lenski þorskurinn yxi hægar og þyrfti
því að hafa önnur viðmiðunarmörk
við ákvarðanir um lokanir.
Tíu smábátar með kvóta róa með
línu frá Siglufirði, auk þess sem tíu
krókaleyfísbátar til viðbótar byija á
iínu að loknu veiðistoppinu í desem-
ber og janúar. Sveinn sagði að þess-
ir bátar kæmust ekkert á sjó ef öllu
þessu svæði yrði lokað. Sjómennirnir
og beitningafólkið hefði ekki að
neinni annarri atvinnu að hverfa og
ætti ekki rétt á atvinnuleysisbótum.
Valdið sem fískifræðingarnir hefðu
væri því skelfilegt. Sjómennirnir hafa
lagt til við Hafrannsóknastofnun að
þeim hluta svæðisins þar sem stærsti
fiskurinn veiðist verði haldið opnu
og þeir hafa einnig sent sjávarút-
vegsráðherra bréf með ósk um að
hann beiti sér fyrir minnkun svæðis-
ins.
Morgunblaðið/Kristinn
í eina gámafrystihúsi í heiminum
GUNNAR Magnússon og Rússinn Dimitri eru hér að vinna að lokafrá-
gangi á eina frystihúsi sinnar tegundar í veröldinni. Um er að ræða færan-
legt frystihús í átta samliggjandi gámum, sem komið verður fyrir um borð
í rússnesku verksmiðjuskipi í eigu útgerðarfyrirtækisins UTRF í
Petropavlovsk á Kamtsjatka. Það er fyrirtækið IeeMac sem gerði samning
um smíði frystihússins síðastliðið vor og er um að ræða eitt af stærri
útflutningsverkefnum íslendinga á sviði tækni og hugvits fyrir erlendan
sjávarútveg. Samningsupphæð er 3,1 milljón dollara, um 225 milljónir
króna. Smíði frystihússins og hönnun er alíslenzk og eru flest tæki í því
íslenzk. Helztu undirverktakar eru Landssmiðjan, Kæling og Sigurplast,
en meðal annars má nefna að vogir eru frá Marel og fískikör frá Sæ-
plasti. Frystihúsinu fylgir svo afkastamikil ísvél, en verksmiðjuskipið stund-
ar ekki veiðar, heldur tekur aðeins físk frá fískiskipum á miðunum og
mun sjá þeim fyrir ís til að kæla fiskinn.
Hveragerði reyk-
laus um aldamótin
BÆJARSTJÓRN Hveragerðis hefur ákveðið að stefna að því að bærinn
verði reyklaus árið 2000. Að sögn Hallgríms Guðmundssonar bæjar-
stjóra þýðir það ekki að þeir sem reykja verði ekki velkomnir í bæinn
en að viðhorfið gagnvart því að reykja ekki verði hins vegar mjög
jákvætt. Þessi ákvörðun tengist uppbyggingu bæjarins sem heilsubæjar
en til að hægt verði að markaðssetja hann sem slíkan er æskilegt að
lífsstill íbúanna sé sem heilsusamiegastur.
Heilsuráðstefna var haldin í
Hveragerði um síðustu helgi þar sem
hugmyndir um uppbyggingu bæjar-
ins sem heilsubæjar voru kynntar
íbúum í bænum. Forsvarsmenn bæj-
arins taka mið af þeim kröfum sem
gerðar eru til heilsubæja í Þýska-
landi, þar sem heilsubær er skil-
greint hugtak og verður að uppfylla
ströng skilyrði, en ráð er fyrir því
gert að flestir gestir Hveragerðis
sem heilsubæjar muni koma frá
Morgunblaðið/RAX
Litli trommuleikarinn
SJÁLFSTÆÐIR plötuútgefendur héldu á föstudagskvöld tónleika og köll-
uðu Aðventurokk. Á annað þúsund manns kom saman á Hótel íslandi til
að hlýða á listamennina. Á myndinni flytur Sigrípur Beinteinsdóttir lagið
um litla trommuleikarann með aðstoð frænda síns, Ásgeirs Vals Einarssonar.
Þýskalandi. Þá er einnig haft til hlið-
sjónar átak Heilbrigðisstofnunar
Sameinuðu þjóðanna (WHO) um
heilbrigði fyrir alla árið 2000. Að
sögn Hallgríms Guðmundssonar á
Hveragerði langt í land í sumum
efnum með að uppfylla skilyrði þau
sem sett eru en í öðru tilliti er bær-
inn vel settur. Reykingar eru eitt
þeirra mála sem taka þarf á.
Áhersla lögð á yngstu íbúana
Hallgrímur segir að reykingaátak-
ið verði unnið í samvinnu við félög
og fyrirtæki í Hveragerði. Þeir sem
standa að því eru dvalarheimilið Ás,
heilsustofnun Náttúrulækninga-
félags íslands, Lionsklúbbur Hvera-
gerðis, íþróttafélagið Hamar og Hót-
el Örk auk Hveragerðisbæjar. Mark-
miðið sem sett verður er að árið
2000 verði ekki fleiri en 15% Ibú-
anna sem reykja. Áhersla verður
lögð á að brýna fyrir fólki að taka
tillit til bama. Leitað verður eftir
samstarfi við þá sem vinna með börn-
um, í leikskóla, grunnskóla og
íþróttastarfi.
Bærinn styður markmið
Strax milli jóla og nýárs verður
efnt til opins námskeiðs fyrir þá sem
vilja hætta reykja um næstu áramót
og síðan verður fylgst með árangri
á eins til tveggja ára fresti og
fræðslu og markmiðasetningu breytt
með tilliti til niðurstaðna.
Bæjarstjóm Hveragerðis sam-
þykkti samhljóða í gær að bærinn
yrði reyklaus sem vinnustaður og
að bærinn myndi styðja þau mark-
mið sem félagasamtök í bænum taka
upp á eigin vegum til að draga úr
reykingum.
-------»-■» ♦-------
Amsterdam
Islenskar
myndir hjá
Sotheby’s
TVÆR myndir eftir Sigurð Guð-
mundsson, myndlistarmann i
Hollandi, verða boðnar upp hjá
Sotheby’s í Amsterdam hinn 9.
desember nk.
Hér er um að ræða ljósmynd sem
er stækkuð á gelatin silfurpappír
og stærð hennar 82 x 90 sm. Mynd-
in er frá árinu 1979 og matsverð
hennar er 6.000 til 8.000 hollensk
gyllinni eða um 230-305 þúsund
krónur. Verkið hefur verið sýnt á
ýmsum listasöfnum í Evrópu og
Bandaríkjunum, þar á meðal á
Listasafni íslands árið 1991. Einnig
verður á þessu uppboði boðin upp
grafíkmynd eftir Sigurð frá 1987
sem heitir Landslag. Matsverð er
um 5.700 til 7.800 krónur.
Að sögn Sigríðar Ingvarsdóttur
hjá Sotheby’s á íslandi verður unnt
að bjóða í myndimar frá skrifstofu
uppboðsfyrirtækisins hér á landi.
Auglýsingablaðinu Kjarabót,
sem Okkar sérsvið gefur út, er
dreift með Morgunblaðinu i dag.
Unglingar fá ekki vinninga
nema í fylgd fullorðinna
FRAMVEGIS verða vinningar í spilakössum Rauða kross íslands ekki
greiddir út til unglinga undir 16 ára aldri nema þeir séu í fylgd fullorð-
inna. Um er að ræða þá kassa, þar sem vinningsupphæðin kemur fram
á miða, sem framvísa á til afgreiðslufólks. Hæsti vinningur er 3.000
krónur. Þá hefur verið ítrekað við eigendur söluturna, þar sem eru
spilakassar, að kassarnir séu ekki ætlaðir unglingum undir 16 ára aldri.
Að sögn Sigrúnar Ámadóttur
framkvæmdastjóra Rauða kross ís-
lands, hefur eigendum söluturnanna
verið ritað bréf og þeir beðnir um
að sjá til þess að vinningar séu ekki
greiddir út til þeirra sem eru yngri
en 16 ára, en söluturnar sjá um að
greiða út alla vinninga.
Þá hefur verið ítrekað, að spila-
kassar séu ekki ætiaðir unglingum
16 ára og yngri. „I raun er það ekki
ný regla,“ sagði Sigrún. „Kassamir
hafa alltaf verið og eru merktir þar
sem fram kemur að þeir séu ekki
ætlaðir unglingum undir 16 ára aldri
en vegna þeirra umræðna sem verið
hafa þá þótti ástæða til að undir-
strika þessa reglu enn frekar." Jafn-
framt hefur verið sett upp stærra
og meira áberandi skilti á þeim stöð-
um sem spilakassarnir eru, þar sem
fólk er áminnt um aldurstakmarkið.
Kvótabraskið
illræmda
►Fjórir sjómenn segja frá reynslu
sinni af þátttöku í kvótakaupum
og afleiðingum þess að neita að
vera með./lO
Hallarbylting
hluthafanna
► Samruni Volvo og Renault er
úr sögunni eftir söguleg átök innan
sænsku bílaverksmiðjanna./12
Hjúkrun á krossgötum
►Hvort eiga læknar eða hjúkrun-
arfræðingar að bera ábyrgð á
rekstri sjúkradeilda?/14
Annar hugsunarháttur
► Halldór Briem er hótelstjóri Hil-
ton-hótelsins í Peking og glímir
þar við annan menningarheim./16
Þýsk harka
►Kristín Maija Baldursdóttir,
höfundur Buddu-pistla sunnudags-
blaðsins, heldur áfram rannsókn-
um sínum á þýskri hagsýni./18
B
► l-32
íslenskar athaf nakonur
►Ekki alls fyrir löngu veitti Fé-
lagsmálaráðuneytið nokkrum litl-
um og tiltöluiega nýstofnuðum
fyrirtækjum styrk til að hleypa
styrkari stoðum undir starfsemina.
Fyrirtækin eiga það öll sameigin-
legt að vera í eigu og rekin af
konum. Morgunblaðið beinir eink-
um athyglinni að Hörpu Vilberts-
dóttur, sem er ein þessara kvenna,
25 ára að aldri og rekur ígul hf.,
sérstætt sjávarútvegsfyrirtæki á
Hvammstanga./l
Séðog lifað
►Jet Black Joe hefur hangið sam-
an gegnum þykkt og þunnt og
sendi fyrir skemmstu frá sér nýja
plötu sem virðist ætla að seljast
jafn vel og fyrri metsöluplata./8
Segi meiningu mína
við Pétur og Pál
►Einsetumaðurinn og bóndinn
Þórður Runólfsson í Haga sóttur
heim./12
"““zxsívx '.'Si.Æísais't"'"
BÍLAR
S- 4
__hnl «H»r«4 siitna kvcn-
fcyns vióskiplnvinum betur
tsiit..
nr
BILAR
► 1-4
Ford og konurnar
►Bandarísku bílaverksmiðjurnar
ætla að sinna kvenkyns viðskipta-
vinum betur./l
Reynsluakstur
►Rúmgóður aldrifs BMW með
nægu afli./4
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak
Leiðari 26
Helgispjall 26
Reykj avikurbréf 26
Minningar 32
Menning 36
íþróttir 46
Útvarp/sjónvarp 48
Gárur 5j
Mannlífsstr. lob
Dægurtónlist I8b
Fólk f fréttum 20b
Kvikmyndir 23b
Myndasögur
Brids
Stjömuspá
Skák
Bió/dans
Bréftilblaðsins 28b
Velvakandi 28b
Samsafnið 30b
24b
24b
24b
24b
25b
INNLENDAR FRÉTTIR-
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR-
1-4