Morgunblaðið - 05.12.1993, Page 11
MORGÚNBLÁÐIÐ SÚNNUDAGUR 5. DESEMÚER 1993
11
í 50 ára skeið eða frá 15 ára aldri.
Mál þetta kom upp um miðjan
ágúst sl. og segir Oddgeir að út-
gerðin hafi dregið af honum 16.000
krónur eftir átta daga túr. Hann
kærði málið til verkalýðsfélags síns
og var rekinn daginn eftir. Aðspurð-
ur um viðbrögð félaga hans um
borð segir Oddgeir að hann hafi
frétt að þeir væru flestir hættir
núna. „En þegar ég ræddi við þá á
sínum tíma sögðu nokkrir að þeir
hefðu ekki efni á að missa plássið
sitt um borð og það hafði ég raun-
ar ekki heldur ef út í það er farið.
En ég læt ekki svína svona á mér,“
segir Oddgeir.
Oddgeir vinnur nú hjá Keflavík-
urbæ og hefur vinnu þar fram að
áramótum. Hann segist hafa svip-
ast um eftir plássi er hann var rek-
inn af Albert en ekkert fengið og
síðan hætt þeim tilraunum þegar
honum bauðst núverandi vinna. „En
ég vil vinna áfram á sjó enda hefur
það verið mín vinna allan minn fer-
il,“ segir hann. „Og ég hef vonir
um að komast á loðnuskip um ára-
mót hjá skipstjóra sem ég hef þekkt
lengi og unnið með áður.“
Oddgeir hefur enn ekki fengið
16.000 krónurnar endurgreiddar og
hefur hafið málarekstur gegn út-
gerðinni til að fá hlut sinn bættan.
Aðeins fengið íhlaupavinnu
Það eru ekki bara hásetar sem
lent hafa í því að verða reknir fyrir
að neita að taka þátt í kvótakaup-
um. Ómar Jakobsson var stýrimað-
ur á Albert er þetta mál kom upp
og hann mótmælti eins og Oddgeir
með þeim afleiðingum að hann var
rekinn í land. Ómar segir að hann
hafi aðeins fengið íhlaupavinnu síð-
an hann var rekinn og það komi
sér afar illa þar sem hann er fjöl-
skyldumaður og tekjumissirinn hef-
ur bitnað á heimilinu.
Ómar hefur stundað sjómennsku
í 27 ár og segir að hann hafi aldrei
lent í neinum vandræðum í líkingu
við þessi. „Það var hreint með ólík-
indum hvernig þessi kaup okkar bar
að því það var ekki talað við neinn
um borð heldur kaupin einfaldlega
dregin frá við uppgjörið fyrir júlí-
rnánuð," segir Ómar. „Ég hef ekki
reynt að útvega mér pláss annars
staðar enda tel ég það ekki til neins
þar sem þessi kvótakaup sjómanna
eru orðin svo algeng hér um slóðir.
Og menn láta bjóða sér þetta þar
sem atvinnuleysi er í landi og lítið
um vinnu. Útgerðin gengur á lagið
við þessar kringumstæður.“
Ómar telur að þátttaka sín í
kvótakaupunum hafi numið um
60.000 krónum í júlí og ágúst.
Hann er ekki viss um nákvæma
tölu þar sem hann hafi enn ekki
fengið ágústuppgjörið í hendur.
Lögfræðingur FFSÍ hefur gert
kröfu um greiðslu á 600.000 krón-
um honum til handa en þar inni í
er uppsagnarfrestur sem Ömar hef-
ur heldur ekki fengið greiddan. „Ef
útgerðin hefði talað við mannskap-
inn fyrirfram hefðu þeir sem ekki
vildu vera með getað hætt og hinir
haldið áfram. En svona framkoma
felur í sér að það ætti að setja sjó-
ræningjafána á bátinn öðrum til
viðvörunar," segir Ómar.
Hvað framtíðina varðar segir
Ómar að hún sé óviss. Hann hafi
tekið meiraprófið til að eiga betri
möguleika á vinnu í landi en það
sé bara ekki mikið um störf.
í feluleik
Gunnar Böðvarsson, búsettur í
Vestmannaeyjum, hefur stundað
sjó undanfarin þijú ár. Hann var
þvingaður til þátttöku í kvótakaup-
um á bátnum sem hann var á í
sumar en hann vill ekki að nafn
bátsins komi fram. „Þetta var lagt
upp þannig fyrir okkur um borð að
kvóti bátsins væri uppurinn og ann-
aðhvort væri fyrir okkur að taka
þátt í að kaupa viðbótarkvóta eða
bátnum yrði lagt,“ segir Gunnar.
„Menn sáu fram á að missa vinnuna
ef þeir yrðu ekki með og því töldum
við ekki um annað að ræða. En
þetta var mikill feluleikur sem síðan
fór í gang enda um ólöglegt athæfi
að ræða og máttu aðrir ekki vita
af þessu né kom þetta fram sérstak-
lega í uppgjörum okkar. Ég er til
dæmis alls ekki með það á hreinu
hvað ég borgaði mikið af mínum
hlut í kvótakaup."
Gunnar segir að hann hafi fyrir
nokkru tekið þá ákvörðun að hætta
á sjó og leita að vinnu í landi. Þessi
kvótakaup voru ekki undirrót þeirr-
ar ákvörðunar en lögðu sitt á vogar-
skálarnar. „Fyrir mig er dæmið
þannig að launin á sjó eru ekki
nægilega há miðað við erfiðið sem
maður leggur á sig og ekki hækka
launin ef maður þarf að kaupa kvót-
ann líka með útgerðinni,“ segir
Gunnar sem vinnur nú við netagerð
í Eyjum.
Aðspurður um afstöðuna til
kvótakaupa sjómanna segir Gunnar
að hann sé alfarið á móti þeim,
ekki bara sökum þess að þau eru
ólögleg heldur einkum sökum þess
að sjómenn hafa ekki of góð laun
fyrir og mega alls ekki við því að
hluti af þeim sé dreginn frá á þenn-
an hátt.
Fataviðgerðir
Fatabreytingar
Ofiidfrákl. 7.30"-
ogláugardaga ftákl. 10 - 1-f
Garðatorgi 3, Garöabæ, stmi 636680.
Mikið úrval af pilsum,
blússum,
jökkum,
drögtum,
peysum,
jakka-
peysum,
vestum,
slæðum
o g
treflum.
sommermQnn
Glugginn Laugavegi
SAMmI
40 1
FORSÝNINGAR SUNNUDAG
sirfff íii i . Iilll ,ISi;j)SS
m mmm i
'lbuchstonc ,
l’iclurcf I
Forsýning í Bfóborg kl. 9.
CHARLIE KIEFER CHRÍS OLIVER TIM , . REBECCA
SHEEN SUTHERLAND O’DONNELL PLATT CURRY * x DEMORNAY
ARaMíS •\THOS IS D'ARTAGNAN IS rokmos IS kicmiiw IS MHADY
ALL for one
ANDy FORALI.
*****
WALT#1 SÚEY PiCTURES
' u riUMNTS
np i i 111 nr i i d c c *****
. * I I i tz, 1 Jrl rvJc Jc
\A I I<sic PTFFR q
WALIDBNEY RCTURES^. CHARUE SHEEN KIEFER SUTHERLAHD CHRBÖ'ÖúMNHI OUVERFLATT TIMCURRY
rebecca m mm the three musketeers' k ™ osm pkmes , mm herek fc omm .« íulie mm
“5 MICHAEL KAMEN & !0HN F. LLNK *$£ WOLF KTOEGER DEAN SEMLER, A.C.S. •,£ NED D0WD „ WÍLLÍAMtÉLSONII
ftsKMN KERNER« p AV NET^MIÐ LOUGHERV ^ |0E ROTH « KXB WMM n STEPHENHREK
■ 1 -«£&£■»- a
•.>e«««.RW,»e«aeK»*í .
OMAM ocwwims*©
Forsýning í Bíóhöll kl. 9.