Morgunblaðið - 05.12.1993, Síða 16

Morgunblaðið - 05.12.1993, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1993 þá er betra að vera þolinmóður. Þolinmæði og aftur þolinmæði er það eina sem dugar. í fjóra daga hef ég verið að betjast við að fá menn til að hreinsa eftir sig í heilsuræktar- stöð hótelsins svo að hægt verði að taka hana í notkun en það hefur ekki gengið ennþá. Þeir segja að hún sé hrein en það eru máln- ingarslettur um öll gólf og á öllum skápum og ég tek ekki við henni svona. Þeir eru loks- ins farnir að hreinsa sletturnar en þvílík vinnubrögð. Þeir skilja ekki um hvað málið snýst og fyrir þeim er þetta alger óþarfi miðað við þeirra eigið húsnæði. Annað dæmi get ég nefnt og það er að þeim finnst allt í Iagi þó svo þeir stífli rör og lagnir með steypu. Ég trúði heldur ekki mínum eigin augum þegar búið var að setja lítinn og aumingjaleg- an eldhúskrana ofan við stórt marmarabaðk- ar í heilsuræktinni. Það þótti í lagi; það kom þó vatn í karið.“ Spennandi tímar En þrátt fyrir alla erfiðleika þá sagði Hall- dór að tímarnir væru mjög spennandi. Kín- vetjar væru mjög ákafir í að tileinka sér sem flestar nýjungar og það sem fyrst. Sú stað- reynd að umsókn þeirra um Ólympíuleikana var hafnað hafi orðið þeim talsverð vonbrigði en þeir myndu ekki gefast upp. í þeirra huga væri það spurningin um að halda andlitinu en það sé eitt af þjóðareinkennum Kínveija. Þeir ættu því eftir að leggja hart að sér til að ná því takmarki að taka við leikunum. íslendingurinn Halldór Briem rekur Hiltonhótelið í Peking og glímir þar við annan menn- ingarheim að versla þar miðað við Vináttuverslanirnar sem reknar eru af ríkinu. Þangað eiga útlend- ingar ekkert erindi nema þeir hafi sérstakan áhuga á að verða móðgaðir. Starfsfólkið er í einu orði sagt hræðilegt. Enginn lyftir hendi fyrir þig eða sinnir þér á nokkum hátt. Al- geng afsökun er að þeim sé ómögulegt að standa upp vegna skyndilegrar þreytu.“ Hvert sem litið er má sjá merki breyting- anna í átt að opnara þjóðfélagi í Peking. Enginn skortur er á vörum og sagði Halldór að áður en hann tók við hótelinu hafí hann verið búinn undir að þurfa að sækja öll að- föng til Hong Kong ef miða ætti við vestræn hótel en sú hefur ekki verið raunin. „I Peking fæst allt sem til þarf og er mikil breyting frá því sem áður var. Þetta eru örar breyting- ar, sem við fylgjumst með frá degi til dags,“ sagði hann. „Sumir Kínveijar taka þessum breytingum vel og ræða málin opinskátt en aðrir þora ekkert að segja. Og annað sem ▲ Halldór ásamt konu sinni Líðu og syninum Magnúsi Dimitri. Magnús er á leið á skóla í Bandaríkjunum en þau hjónin sjá loks fram á eigið húsnæði í Peking eftir 16 mánuði á hóteli. ◄ Halldór Briem hótelstjóri í anddyri Hótel Hilton í Peking, sem opnað var 23. september síðastliðinn. ég hef tekið eftir er að hér er að myndast nýr aðall. Aðall með fullar hendur fjár.“ Fyrir Kínveija eru þetta miklar breytingar á skömmum tíma og tók Halldór sem dæmi að hann sæi að kínverskt starfsfólk hótelsins ætti erfitt með að skilja þennan vestræna heim sem það kemst í kynni við. „Að vísu greiða hótelin og önnur erlend fyrirtæki hærri laun en almennt þekkist í Kína en svo sjá þeir auðlegð gestanna sem koma með fullar hendur fjár. Sjá þá skipta um föt oft á dag, borða á veitingastöðum, koma úr versl- unarleiðangri hlaðnir varningi sem greitt er fyrir með árslaunum nokkurra verkamanna. Peningar virðast ekki skipta nokkru máli.“ Halldór sagði að þetta væri Kínveijunum óskiljanlegt. Að vísu hefðu þeir kynnst þeirri nýlundu að ef vel væri unnið og spart farið með þá tækist þeim að spara fyrir hlutum sem áður voru ófáanlegir. „Þetta sést best á stórmörkuðum á sunnudögum þar sem gefur að líta haf af Kínveijum sem eru að skoða innfluttan varning sem þeir hafa ekki ráð á. Það finnst þeim sárt.“ Eftir að stjórnvöld ákváðu að taka upp samskipti við erlend ríki í ríkari mæli hefur þeim fjölgað verulega sem læra erlend tungu- mál önnur en rússnesku. Er það sérstaklega unga fólkið sem leggur stund á málanám enda slást hótelin og erlendu samstarfsfyrir- tækin um að ráða það til vinnu. „Það þykir mjög eftirsóknarvert að komast í málaskóla til að geta talað við okkur þessa útlendu djöfla eins og þeir stundum kalla okkur,“ sagði Halldór. Þolinmæði „Að koma upp fyrsta flokks hóteli í landi eins og Kína er ómetanleg reynsla sem ég hefði ekki viljað missa af,“ sagði Halldór. „Kínverskir verkamenn eiga oft erfitt með að skilja hvernig ganga á frá hlutunum og ANNAR HUGSUNAR HÁTTUR - ÖNIMUR MENNING eftir Kristínu Gunnarsdóttur ÍSLENDINGURINN Halldór Briem er hótelstjóri á Hótel Hilton í Peking, sem opnað var i lok september. Halldór kom til Peking í byrjun júní á síðasta ári og tók til við að undirbúa opnun hótelsins. Hann hefur starfað víða um heim síðastlið- in tuttugu ár, meðal annars á eynni Guam í Kyrrahafi og á Hawaii, en hótelið í Pek- ing er fyrsta hótelið sem hann tekur við og byggir nánast upp frá grunni. „Það tókst að opna hótelið þann 23. september en í Kína er það trú manna að tölurnar tveir og þrír boði jafna og stöðuga vel- gengni," sagði hann i samtali við blaða- mann Morgunblaðsins, sem nýlega var þar á ferð, um leið og hann býður okkur inn á barinn. Þar er hátt til lofts og vítt til veggja sem ýmist eru klæddir rauðvið eða silki og hátt uppi hanga listilega vel gerð gömul veggspjöld af kínverskum dans- meyjum, sem fundust á fornsölu. „Þetta er búið að vera ævintýri líkast. Hér ríkir allt annar hugsunarháttur, allt önnur menning sem við skiljum ekki alltaf sem búum í vestri eins og sagt er frekar en þeir okkur. Við erum ekki á sömu bylgju- lengd en ég er ekki að halda því fram að þeirra sé verri en okkar,“ sagði Hall- dór. „Við verðum að reyna að setja okkur í þeirra spor og mæta þeim á miðri leið en það kostar gífurlega þolinmæði." Hilton hótelið í Peking er eitt dæmi af fjölmörgum um samstarfsverk- efni milli Kínveija og erlendra að- ila. Undirbúningur og framkvæmdir hafa staðið yfír í mörg ár en allar framkvæmdir lágu niðri um tíma í kjölfar atburðanna á Torgi hins himneska friðar árið 1989 og var ekki hafíst handa fyrr en árið 1991. Hótel- byggingin er í 'eigu tveggja aðila, kínversks fyrirtækis eða réttara sagt ríkisins og Hong Kong „Real Estate“; en Hilton hótelkeðjan sér um reksturinn. A hótelinu eru 365 her- bergi, starfsmenn eru 720, þar af 30 erlend- ir. Þar eru fimm veitingastaðir með áherslu á mismunandi matseðla, kínverska, vestræna, japanska og austurlenska. Sagði Halldór að hann hefði óskað eftir heimíld til að ráða 45 erlenda starfsmenn en eigendur hefðu ekki gefið samþykki fyrir því. I Kína er hefð fyr- ir að vinnuvéitandi, sem er ríkið í flestum tilfellum, sjái fólki fyrir tryggri atvinnu, hús- næði, læknisþjónustu, menntun barna og ör- yggi í ellinní. „Við erum í nýja Kína og þetta er að breytast," sagði hann. „Áður var fólki séð fyrir öllu frá fæðingu til grafar. Þá var engum leyft að skipia um vinnustað þó svo vilji væri til þess. Stjórnvöld ákváðu hveijum og einum stað í lífinu. Nú er þetta breytt og fólk getur ákveðið sjálft við hvað það vinnur og jafnvel skipt um vinnustað.“ Breytingar og framfarir Sextán mánuðir eru síðan Halldór kom til Peking og sagði hann að miklar breytingar og framfarir hafi átt sér stað á þeim tíma. „Þegar ég kom voru flestir gráklæddir í Pek- ing, en eins og þú sérð þá er fólk vel klætt og komið í litrík föt,“ sagði hann. „Á þessu eina og hálfa ári hafa sprottið upp allir þess- ir útimarkaðir sem einstaklingar standa að og einkareknar verslanir. Er mikill munur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.