Morgunblaðið - 05.12.1993, Side 20

Morgunblaðið - 05.12.1993, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1993 Einfalt verk um flóknar kenndir Bókmenntir Ingi Bogi Bogason Kristján Þórður Hrafnsson: Húsin og göturnar. (64 bls.) AB 1993. Miðlægt yrkisefnið í þessari ljóðabók er gamalkunnugt og gæti rúmast í setningunni: Fólk ferst hjá. Þetta sambandsleysi persóna er málað í ýmsum tilbrigðum, enda kenndimar flóknar. Persónur ganga til móts við einveruna (Hús númer 18), allt deyr frá manni herna minningamar (Minningar) og sú tíð er liðin þegar eftirvæntingin óx í hveiju þrepi stigans (Enduróm- ur). Samfara þessu almenna sam- bandsleysi er lýst ástarsöknuði, eða söknuði almennt, sem ýmist er lát- inn beint í ljós eða er lítt dulinn. Hér er því á ferðinni efni sem snert- ir strengi í brjósti manna, einhvem tíma ævinnar. Samt heyrir það til undantekninga að ljóðin í þessari bók kveiki hliðstæðar tilfinningar hjá lesandanum og búa að baki sjálfum ljóðunum. Með þessu eru ekki bornar brigður á heilindi mæl- andans heldur er yfirfærsla tilfínn- inganna í listrænan búning einfald- lega ekki nógu sannfærandi. Þótt 4.0G 5. DESEMBER MILLI KL.I4:OOOG 17:00 28 BARNAKÓRAR UMI000 BÖRN SYNGJAjÓLALÖG SAMSÖNGUR LJÓSADÝRÐ VIÐ MYRKVUM SALINN EN LÝSUM UPP BÖRNIN MEÐ JÓLALJÓSUM ÓKEYPIS AÐGANGUR Kristján Þórður Hrafnsson. yrkisefni bókarinnar sé í heild knýj- andi er of algengt að flöt framsetn- ingin hamli því að textinn nái list- rænu flugi. Alltof oft skortir stílinn það listfengi sem efni ljóðanna ger- ir tilkall til, alltof oft dregur þung- lamalegur viðskeyttur greinir og ómarkvisst orðalag úr þeirri spennu sem ljóðin gætu búið yfir. Dæmi um ljóð af þessu tagi em Minning- ar, Með þér, Samverustund og Metró. En - dokum við. Undantekningar frá reglunni leynast sumstaðar. Auðvelt er að benda á dæmi sem fela í sér skáld- lega burði. Ljóðrænn styrkleiki þessarar bókar felst t.d. í öflugu myndmáli (Listaverk) og vel völdu yrkisefni (Þessi veröld sem við höt- uðum). Slík atriði sannfæra mann um að Kristján Hrafn eigi eftir að senda frá sér miklu betri ljóðabók. Eftirminnilegustu ljóðin lýsa sem leiftur ákveðnum augnablikum. 0g eru gjaman stutt (Maríumynd): Þrátt fyrir rayrkrið og frostið kápuna hlýju og vettlingana ljómar nekt þín himneskt þegar við kveðjumst á homi Pósthússtrætis og Austurstrætis ------»■■■♦' ♦---- 50 íslensk dægurlög FÉLAG tónskálda og textahöf- unda hefur sent frá sér nýtt nótnahefti með 50 íslenskum dægurlögum sem notið hafa vin- sælda undanfarin ár. Nýja heftið er gefíð út í tilefni af 10 ára afmæli félagsins. Flest laganna hafa áður birst í útgáfuröð íslenskra dægurlaga en nokkur koma nú í fyrsta skipti út á bók. Tónlistin er útsett fyrir píanó eða hljómborð, ásamt söng eða sóló- hljóðfæraleik. Magnús Kjartansson tónlistarmaður útsetti lögin og hafði umsjón með útgáfunni. Um 40 höfundar eiga efni í bókinni. Þetta er sjötta nótnahefti sem FTT gefur út á jafnmörgum árum og eru tvö af eldri heftunum upp- seld. Fyrri á árinu kom út söngbók- in 250 íslenskir dægurlagatextar. 50 úrvals íslensk dægurlög er 166 bls. að stærð, prentuð í Prisma og kostar út úr búð með/vsk. 2.280 kr. íslensk bókadreifing annast dreifíngu. + gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Starfsfólk tandsbanka Islands Kópavogi r \ ' til 21. ies. sfötoiMfiuiwjiwí lMm%\ítmíijhMh silfrAnmmmðkrtoni 20% afsláttu afeeisladiskumo: snældum, 10% afsl. a HANS PETERSEN HF Islandsba 'og starfsfólk senda viðskiptavinum sínumbestuióla-02 HANNYRÐAVERSLUN 4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.