Morgunblaðið - 05.12.1993, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1993
25
Hafsteinn Jóhannsson kafari og siglingakappi er maður sem lifir lífinu
eins og hann vill og lætur engan segja sér fyrir verkum, stendur fastur á
sínu og óttast hvorki ofsa úthafsins né átök við yfirvöld. Hann var
fyrirferðarmikill villingur í bernsku en lærði síðar köfun og gat sér síðar
frægðarorð sem helsti bjargvættur fiskiskipa á íslandsmiðum og var
ætíð skjótur á vettvang á Eldingunni.
Hafsteinn hefur siglt víða um úfin höf á nýrri Eldingu og vann fyrir
nokkru það fáheyrða afrek að sigla einn umhverfis hnöttinn á
heimasmíðaðri skútu án þess að hafa nokkurs staðar viðkomu á
leiðinni. í nærri fimm mánuði sá hann hvergi til lands og hafði
ekki samskipti við nokkra lifandi veru, nema sævardýr og fugla
himinsins.
Hafsteinn á Eldingunni er fjörmikil og ógleymanleg lýsing af sterkum
og sérstæðum einstaklingi sem mætir hverri mannraun af djörfung og
siglir ótrauður sinn sjó - einn á báti umhverfis hnöttinn.
ev '-Jr
>■
Hafborg
- Snjöll og trúverðug lýsing
á veruleika sjómannsins
Hafborg eftir Njörð P. Njarðvík er snjöll lýsing á lífi og veruleika
íslenskra sjómanna á öld síðutogaranna; skáldsaga sem leiðir
hvern landkrabba inn í hrollkaldan heim sjómannsins sem á hið
kaldranalega haf að ævilöngum veruleika og lýsir á lifandi hátt
gráglettnum samskiptum skipverjanna og baráttu
mannskepnunnar við náttúruöflin.
„Samfélagið um borð verður einkar trúverðugt og sama má
—I gegnir um lýsingar á athöfnum skipsfélaganna í landi. ...
I athyglisverð lýsing á sérstökum þætti íslensks mannlífs,
þætti sem hingað til hefur verið vanræktur f íslenskri
sagnagerð." (Jón Þ. Þór, Tíminn)
Fjórða hæðin
- Margslungin og áhrifarík skáldsaga
Fjórða hæðin eftir Kristján Kristjánsson er margslungin saga um mannleg samskipti og
blekkingar minninganna, saga sem knýr lesandann áfram í leit að því sem undir býr.
„Skáldsaga Kristjáns Kristjánssonar er ákaflega vel heppnuð. Mikil natni er lögð í
persónusköpun bræðranna, málnotkunin ríkulega raunveruleg. Bréf bræðranna
eru til að mynda frábærlega gerð. Frásagnartæknin er þaul-
hugsuð og vel útfærð í alla staði þannig að útkoman verður
átakamikil saga og listilega trúverðug lýsing þess tíma og
staðar sem hún fjallar um.“ (Ólafur Haraldsson, Pressunni)
„... lýsingin er hrífandi dramatísk, myndræn og nákvæm, með
áherslu á breytileikann." (Örn Ólafsson, DV)
IÐUNN