Morgunblaðið - 05.12.1993, Side 29

Morgunblaðið - 05.12.1993, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1993 29 frá því — og viti menn, einn af svörtu steinunum var krosslaga! Nú var ekki beðið boðanna held- ur flogið í kröppum hring og tekin dýfa niður að þessu afbrigðilega „grjóti" og, jú, þama var litla flug- vélin innan um stórgrýtið. Sjá mátti rák eftir hana á ísnum og hafði hún staðnæmzt örskammt frá stórum kletti. Við hlið hennar stóð flugmað- urinn og veifaði ákaft til okkar. Við hringsóluðum þar yfir meðan við vorum að ná nægilegri hæð til að komast í talstöðvarsamband við flugvöllinn og tilkynna fund okkar. Eftirleikurinn var eins og í ótrú- legustu skáldsögu. Eftirlitsbátur úr danska flotanum var af tilviljun þama á næstu grösum og brunaði nú undir okkar leiðsögn að landi til að sækja flugmanninn, sem gekk þurrum fótum um borð. Katalína lenti síðan hjá bátnum og flutti flug- manninn til Narsarsuaq og lenti þar um það leyti sem við voram að ganga frá Sólfaxa inni í flugskýli. Þegar líða tók á kvöldið varð ég dálítið undrandi yfir því að Conrad skyldi ekki hafa haft neitt samband við okkur sem höfðum fundið hann — enginn vafí var á því að hann átti okkur líf sitt að þakka. Hann hafði haft orð á því við flugmenn Katalinu-flugbátsins að ef ekki hefði verið búið að fínna hann fyrir myrkur hefði hann áformað að leggja af stað fótgangandi og freista þess að komast til byggða. Ég get hiklaust staðhæft að úr slíku ævintýri hefði hann aldrei komizt lífs af. Hann var á algjörri eyði- strönd, og hefði orðið að ganga hundrað kflómetra yfír íjöll og jökla, og krækja fyrir djúpa fírði til að komast til næsta mannabú- staðar. Það hefði tekið vel útbúna göngugarpa marga daga að ferðast þessa leið. Conrad var nestislaus, klæddur rykfrakka og lágum götu- skóm! Ég leitaði hann uppi á hótelinu því að mér lék forvitni á að líta þennan bjartsýnismann. Ég fann hann í herbergi sínu og var hann genginn til náða. Ekki fór hann fram úr rúminu, en þegar ég hafði kynnt mig rétti hann mér hönd sína og þakkaði mér fyrir veitta hjálp. Nokkram vikum seinna fékk ég hjartnæmt þakkarskeyti frá konu hans." Endalokin Þorsteinn segir í kaflanum frá fleiri ævintýrum í Grænlandsflug- inu á Sólfaxa en hér verður aftur gripið niður í niðurlagi kaflans „En nú styttust óðum dagar hans Sólfaxa okkar. Það var á laugar- degi síðla hausts á sama ári, sem hann varð eldinum að bráð. Um eftirmiðdaginn höfðum við farið í ískönnunarflug og að því loknu ekið honum inn í skýlið. Þar vora fyrir tveir Katalínu-flugbátar danska flughersins, og síðar bættist í hópinn lítil tveggja hreyfla flug- vél, sem var í ferjuflugi. Um kvöld- ið var stjörnubjartur himinn, vest- angola eða kaldi og töluvert frost. Vegna þess að Katalína hafði komið frá Syðra-Straumfirði þenn- an dag voru þama tvær áhafnir úr flughemum, og efnt var til gleð- skapar í Katalínu-bamum um kvöldið. Að venju var okkur íslend- ingum boðin þátttaka. Ekki varð gleðskapur þessi langlífur. Um tíu- leytið skrapp ég út á hlað til að kasta af mér vatni. A heiðskírum himni tindraðu stjörnur og frostið beit andlit mitt í vestangolunni. En nú tók ég eftir annarlegum bjarma í náttmyrkrinu í átt til flugvallar- ins. íbúðarblokk bar í milli svo að ekki sást til flugskýlisins, en enginn vafí lék á að eldur var laus þar í nánd. Ég flýtti mér inn á „krána" og tilkynnti hvað væri á seyði. Uppi varð fótur og fít og nú raku allir út í bíla sína til að athuga þetta nánar. Það var ógnvekjandi sjón, sem blasti við okkur þegar við komum fyrir homið — flugskýlið stóð í ijósum logum gaflanna á milli. Flugskýli þetta höfðu Banda- ríkjamenn reist á stríðsáranum, og var það smíðað eingöngu úr timbri. Þar sem það hafði alla tíð verið upphitað var viðurinn skraufþurr og fuðraði því upp eins og pappír. Slökkvistöðin var ekki nema í um 50 metra fjarlægð frá skýlinu, og unnu slökkviliðsmenn af kappi við að dæla vatni á eldinn, en réðu ekki við neitt. Þótt átakanlegt væri að horfa upp á þessa miklu eyði- leggingu var þetta óneitanlega stór- fenglegt sjónarspil. Öðra hvora urðu sprengingar þegar eldur komst í eldsneytisgeyma flugvélanna, og einnig var „flugeldasýning" þegar kviknaði í merkjabyssuskotum og neyðarblysum. Ékki leið á lörigu unz grindin ein stóð uppi, og að lokum féll hún eins og spilaborg og þyrlaði upp geysilegu neista- flugi. Hitinn frá báli þessu var svo mikill að málningin flagnaði af slökkvistöðinni. Við íslendingar, störðum þögulir og sorgmæddir á þessi hörmulegu endalok Sólfaxa, og í huganum kvöddum við „góðan vin“ sem hafði reynzt okkur svo vel. Nokkra síðar sá ég fyrirsögn í dönsku blaði: „íslenzki flugstjórinn grét þegar hann horfði á flugvél sína brenna“. Þetta var að vísu satt. Af völdum vinds og frosts rannu tár niður kinnar mínar — en í huganum felidi ég mörg tár af söknuði." Bókartitill: Viðburðarík flug- mannsævi Höfundur: Þorsteinn E. Jónsson Útgefandi: Setberg Útgáfudagúr: Komin út Verð: 3,350 kr. UTTU EKM FUKKM.YKT 06 RAKA VALDA ÞÉR EtGNATJÓNI! SAHARA rokagleypirinn er ódýi rakavöm sem vemdar húsnœíi og eígnir. Hver áfyBng dugar 2 - 3 mánuði á hvefja 50 m3 NOTKUNARMÖGULEIKAR: -á öllum stöðum sem em illa loftrœstir svo sem: kjöUumm, þvottahusum, baöherbergjum, geymstum, vönrhús, sumarbústaðum, hjáftýsum, tjaldvögnum bátum, bátaskýlum, sklpum ofl. ofl. EIGINLEIKAR: -dregur i sig raka og þurrkar andrúmslott. -kemur í veg fyrir fúaskemmdir og fúkkatykf. -kemur í veg fyrir myglu og rakaskemmdir. Heildsölubirgöir: sími: 9i-á7 07 80 Sölustaðir Sumarhús Hátelgsvegl, Esso afgrelöslur a höruöborgarsvœðlnu, Húsasmiðjan Skútuvogi, Ellingsen Ananaustum, Vélar og Jœkl Tryggvagötu, Vélorka Ananaustum, B.B. Bygglngavönjr Hallarmúla, S.G. Búorn Selfossi. N Y HANDBOK F Y R 1 R SÆLKERA Matreiðslubók 35 ára afmæli smjörsölunnar sf. I þessa bók höfum við valið úrval uppskrifta, sem hafa verið marg- reyndar í tilraunaeldhúsi Osta- og smjörsölunnar. Það er von okkar, að sem flestir geti fundið eitthvað við sitt hæfi OSTA- OG SMJÖRSALAN SF Ævar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.