Morgunblaðið - 05.12.1993, Page 32

Morgunblaðið - 05.12.1993, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1993 Frá afhendingunni. Frá vinstri: Jóhanna Sigurðardóttir ráðherra, Viktor Guðbjörnsson, tæknilegur framkvæmdastjóri ístex hf., Kristján Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Sæplasts hf., Sjöfn Stefánsdóttir, skrifstofustjóri Kjötbankans hf., Guðgeir Einarsson, framkvæmda- sljóri Kjötbankans, og Kristinn Jóhannesson, framkvæmdasljóri Kjöt- bankans. Viðurkenning fyrir gott starfsumhverfi VINNUEFTIRLIT ríkisins, Landssamband iðnverkafólks og félag ís- lenskra iðnrekenda mynduðu samstarfsnefnd árið 1991 til að undirbúa úttekt á starfsumhverfi í verksmiðjuiðnaði og fylgjast með framvindu þess. Uttektin var unnin af Vinnueftirlitinu og miðaði i senn að þvi að kanna ástand vinnustaða í matvæla, vefjar- og efnaiðnaði og bæta það. Hún náði til samtals 130 fyrirtækja með 2.700 starfsmönnum. Eftir að niðurstöður höfðu verið dregnar saman og gefnar út í skýrslu ákvað samstarfsnefndin að veita viðurkenningu einu fyrirtæki í hverri þeirra greina sem úttektin náði til. Biblía sem bömin geta lesið sjálf. Fæst í næstu bókaverslun. Viðurkenningin var veitt fyrir- tækjunum fyrir afbragðsárangur við að byggja upp gott starfsum- hverfi. Það matvælaiðnaðarfyrir- tæki sem hlaut viðurkenningu er Kjötbankinn hf. í Hafnarfirði, í vefjariðnaði ístex hf. í Mosfellsbæ og í efnaiðnaði var það Sæplast hf. á Dalvík. Viðurkenningin var afhent af Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra 26. nóvember á kynningarfundi um úttektina sem fulltrúum fyrirtækjanna, sem hún náði til, var boðið á. t Faðir okkar, SIGGEIR BLÖNDAL GUÐMUNDSSON, Sólheimum 23, lést á heimili sínu föstudaginn 3. desember. Garðar Siggeirsson, Sigrún Siggeirsdóttir, Ómar Siggeirsson, Erna Kristín Siggeirsdóttir, Snorri Siggeirsson og tengdabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, SALOME ÞORSTEINSDÓTTIR, Hrafnistu, Hafnarfirði, er lést 1. desember sl., verður jarðsungin frá Lágafellskirkju þriðju- daginn 7. desember kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar leyfi Hrafnistu að njóta þess. Ágúst Hálfdánarson, Bente Jensen, Kristján Þór Hálfdánarson, Margrét Jónsdóttir og barnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, LEIFUR GUÐMUNDSSON bryti, Hvannhólma 20, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudagínn 7. desember kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á heimahlynningu Krabbameinsfélags íslands. Steinunn Gfsladóttir, dætur, tengdasynir og barnabörn. t Systir okkar, GUÐMUNDA J. JÓHANNSDÓTTIR kennari frá Kirkjubóli, Brekkuhvammi 1, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðar- kirkju þriðjudaginn 7. desember kl. 13.30. Systkinin og aðstandendur. Ásthildur Erlings- dóttir — Minning Fædd 17. mars 1938 Dáin 22. nóvember 1993 Föstudaginn 3. desember var til moldar borin, langt fyrir aldur fram, frú Ásthildur Erlingsdóttir, lektor í dönsku við Kennaraháskóla íslands. Það var fyrir um það bil 13 árum sem undirrituð kynntist Ásthildi. Voru kynni okkar með þeim hætti að hún var prófdómari við dönsku- deild Háskóla íslands þar sem ég stundaði nám. Vegna þeirra kringumstæðna, að ég var „eksam- inant“ og hún „censor“, hefði mér efiaust átt að standa ógn af þessari konu, en því fór víðs fjarri. Ásthild- ur var afar glæsileg kona og fas hennar og framkoma vingjarnleg um leið og frá henni stafaði ákveðni, festa og myndugleiki. Á þeim árum var Ásthildur oftast í broddi fylk- ingar, þegar danskir menningarat- burðir áttu sér stað hér á landi, hvort sem um rithöfunda, leikara, prófessora eða konungborið fólk var að ræða. Þar sem leiðir okkar Ásthildar lágu oft saman vegna verkefna sem tengdust dösnkukennslu sem og kynningu á danskri menningu hér á landi, kynntumst við betur eftir því sem árin liðu. Ásthildur var mörgum kostum búin, og nokkrum árum seinna, þegar ég gerðist stunda- kennari við Kennaraháskóla íslands, kynntist ég mannkostum hennar enn betur. Sem yfirmanneskja og stjórn- andi var hún með eindæmum sam- viskusöm og nákvæm. Allt sem var í hennar umsjón var skipulagt þann- ig að ekkert brygðist; haldið í alla þræði og utan um alla þætti. Fyrir stundakennara var þetta ómetanlegt öryggi og vissuelga líka þægindi. Árlega Danmerkurför kennara- nema, próf, verkefni og allt sem að náminu sneri undirbjó hún af kost- gæfni og tillitssemi því alltaf var mannlegi þátturinn í fyrirrúmi. Sjálf met ég samfylgdina við Ást- hildi Erlingsdóttur mikils; samfylgd sem svo gjarnan hefði mátt vera lengri. Fyrir hönd stundakennara í dönsku við Kennaraháskóla Islands votta ég fyölskyldu Ásthildar Erl- ingsdóttur innilega samúð. Fari hún i Guðs friði. Auður Leifsdóttir. Bíömastofa Friðfinns Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sfmi 31099 Opið öll kvöld til kl. 22,-einnig um heigar. Skreytingar við öii tilefni. Gjafavörur. Það var í maí fyrir ellefu árum að Ásthildur lét undan þrábeiðni okkar félaga hennar í Launamála- ráði ríkisstarfsmanna í BHM, sem síðar nefndist BHMR, og gaf kost á sér til formannsstarfsins. Hún var kjörin einn sólbjartan vordag í hús- inu númer 3 á orlofssvæði BHMR í Brekkuskógi. Ásthildur var reyndust okkar á þessum vettvangi og var formaður í tvö ár þegar mjög á reyndi. Strax eftir að hún tók við fór í hönd um- fangsmikil samningalota og vel heppnað samstarf aðildarfélaganna í henni gat af sér aukinn kraft til að efla sjálfstæði ríkisstarfsmanna innan BHM og loks til stofnunar BHMR. Þótt hópur manna sitji saman er ekki alltaf um hnitmiðað samstarf að ræða. í Launamálaráðinu sátu tveir tugir fulltrúa — einn frá hveiju félagi háskólamenntaðra ríkisstarfs- manna. í störfum sínum í ráðinu fann hver maður fljótt að allir hinir áttu við sama vanda að etja og þess vegna gátu menn hiklaust þegið og gefið ráð og sótt styrk hver til ann- ars. Oft hafði hins vegar skortur á upplýsingum og samræmingu smækkað árangurinn þegar upp frá samningum var staðið. Undir forystu Ásthildar var lögð mikil áhersla á að vinna á þessu bót. Flestum þykir eðlilegt að meta störf til launa eftir vinnuframlagi og þannig að því meir sé greitt sem meira er unnið. Þetta á ekki við um forystu innan launþegahreyfinga. Öll kjarabarátta er hjaðningavíg þar sem örlítill árangur næst — kannski — og þá_ fyrir ótrúlega mikla vinnu. Þegar Ásthildur tók að sér for- mennskuna vissi hún sem var að vinnuálagið varð meira en tvöfalt. Það varð lágt tímakaupið hennar við undirbúning funda, gagnaöflun, fundarsetur, málafylgju, samræm- ingu milli samninganéfnda aðild- arfélaganna, stefnumótun og greinaskrif auk þess sem á henni hvíldi sú kvöð að sinna erlendu sam- starfi um leið og mikið gekk á hér heima. Ekki var heldur hægt að telja til launa það hefðbundna viðhorf sem félagsmennirnir yfirleitt hafa til for- ystumanna að ef ekki tekst það sem alla dreymir um eru engin gífuryrði of stór en þegar eitthvað tekst er það svo sjálfsagt að umtai er óþarft. Slík viðhorf fengu á Ásthildi. I hjaðningavígum er sjaldgæft að árangur náist — en það kemur fyr- ir. Sumarið 1982 var Ásthildur í sleitulausu samræmingarstarfi með samninganefndum allra aðildarfé- laganna og þannig var hægt að tryggja að upplýsingar bárust jafn- harðan á milli. Samstaðan var mun meiri en nokkru sinni og það ríkti gagnkvæmt traust manna í milli. Niðurstaðan varð sú að í október það ár var skrifað undir samninga við ríkisvaldið þar sem öll félögin voru sátt að kalla við niðurstöðuna og þau voru fullkomlega sátt hvert í annars garð. Þessi árangur styrkti samstarf félaganna. Þau tóku enn upp þráðinn að móta sameiginlega stefnu ríkis- starfsmanna innan BHM. Það fyrsta var að þau stóðu saman um að taka til sín rekstur orlofshúsanna í Brekkuskógi sem verið hafði á hendi BHM. Aukið sjálfstæði Launamála- ráðsins innan BHM leiddi af sér + Systir mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR ÞORGEIRSDÓTTIR, Sigtúni 41, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 7. desember kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á líknarstofnanir. Guðrún Þorgeirsdóttir, Þorgeir Baldursson, Ragna Gunnarsdóttir, Eyþór Baldursson, Gyða Ólafsdóttir, Hildur Baldursdóttir, Bjarni Finnsson, Hilmar Baldursson, Vigdís Hauksdóttir, Sólveig Baldursdóttir, Gunnar Hrafnsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.