Morgunblaðið - 05.12.1993, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1993
33
skilvirkari rekstur BHM og hreinni
línur milli þeirra og annarra félags-
manna BHM og stuttu síðar var
nafni Launamálaráðsins breytt í
BHMR.
Ásthildur fór ekki til hlés úr form-
annsstarfinu. Næsta lota hennar var
í stjórn Orlofssjóðs BHMR. Þar
þurfti að marka stefnu BHMR, reisa
þjónustumiðstöðina sem kölluð er
Brekkuþing, kaupa aðliggjandi land,
skipuleggja það og reisa ný hús. Þá
fór sjóðurinn einnig að taka virkan
þátt í samstarfi annarra launþega-
samtaka og Samvinnuferða/Land-
sýnar um ódýrar orlofsferðir til út-
landa auk þess sem boðið var upp
á ódýrar úrvalsferðir innanlands.
Það er sem í gær að Ásthiidur
varð fimmtug. Við það yndislega
tækifæri hélt ég henni litla tölu þar
sem meðal annars sagði:
„Um bráðum níu ára skeið hafa
forlögin teymt okkur í einum hópi
um nokkuð þröngan stíg. Við höfum
verið þar nokkur saman — sum öðr-
um lengur.
Þetta hefur verið mikil lífsreynsla.
Við höfum hlegið og við höfum grát-
ið og oft hefur okkur verið þungt í
hug. Oft var allt upp í loft og við
körpuðum og kýttum eins og gerist
aðeins meðal þeirra sem eru bundn-
ir saman. Og við vorum öll bundin
saman af sameiginlegum markmið-
um, sókninni eftir bættum kjörum
félaga okkar og allra ríkisstarfs-
manna í BHM.
Það er margs að minnast. Á dög-
um Kjaradóms — megi hann hvíla í
friði og ekki ganga aftur — var ekki
algengt að samningar næðust um
kaup og kjör okkar félagsmanna.
Þess vegna minnist ég sérstaklega
haustsins 1982 þegar Ásthildur, sem
þá var formaður Launamálaráðs
BHM, og fjármálaráðherra skrifuðu
undir kjarasamning. Það var svona
heldur viðunandi samningur eftir
aðstæðum, fram kominn eftir ötult
starf í Launamálaráðinu og góða
samstillingu allra hinna rúmlega 20
stéttarfélaga sem þar áttu aðild. Það
er ánægjulegt að líta til þessa tíma
þegar verkstjórnin gekk upp og vel
tókst til.
En lífið er ekki bara leikur. Árið
1984 gerði Launamálaráðið samning
við annan fjármálaráðherra um sér-
staka rannsóknarnefnd til að kanna
kjör sambærilegra stétta á almenn-
um markaði og leggja óyggjandi
gögn fyrir Kjaradóm. Það var erfið
ákvörðun. Hún var ekki erfið vegna
þess að við, fulltrúarnir í iaunamála-
ráðinu, værum ósamstillt. Nei, fjarri
fór því. Þar sögðu menn: þetta er
hinsta tilraunin til vísindalegrar
kjarabaráttu. Og menn bættu við:
með þessu móti verður Kjaradómur
annaðhvort nýtur eða sprengdur í
loft upp. Nei, þetta var ekki erfitt
af þeim sökum.
En um þær mundir voru margir
félagsmenn okkar á þeirri skoðun
að okkur bæri að hafa hljótt um
okkur á meðan „herrarnir tala“. ASI
var nefnilega á tali við VSI. Nokkr-
ir þeirra skvettu þá heldur hressilega
yfir okkur. Við tókum þetta öll nærri
okkur. Mér eru þær þrengingar
minnisstæðar og hversu Ásthildur
var þá döpur.
Það leið auðvitað ekki langur tími
þar til allir vildu þessa Lilju kveðið
hafa. Ári síðar var niðurstaða nefnd-
arinnar burðarásinn í viðmiðunum
og kröfugerðum félaganna og eftir
næsta árið var Kjaradómur sprung-
inn í loft upp. Samanburðarnefndin
reyndist hinn mjói rauði tundurþráð-
ur: hún opinberaði þann launamun
sem Kjaradómur heyktist á að 1eið-
rétta.
Þeir — vinir okkar og félagar —
sem í upphafi stungu okkur ótt og
títt með orðsins brandi — þeir komu
ekki til okkar að taka orð sín aftur.
Vonandi veitist þeim léttara en okk-
ur að gleyma þessum tima.
En stundum hefur gatan leitt
okkur í skemmtilegra útsýni. Þannig
hefur það verið með samstarf okkar
í stjórn Orlofssjóðs BHMR. Þar höf-
um við haft það spennandi verkefni
að auðvelda félagsmönnum okkar
að njóta orlofa sinna. Þar hefur okk-
ur dottið margt í hug og sumu höf-
um við þegar hrundið í framkvæmd.
Já, það verður ekki annað sagt en
að gatan okkar og Ásthildar hafi
einnig gefið okkur gleðilegt útsýni.
Það er skrítið hvernig fólk, sem
halda mætti að þekktist ekki neitt,
kynnist náið þegar það gengur sam-
an í ólíkum veðrum. Ef ætíð hefði
allt gengið að óskum þá hefðum við
aidrei kynnst. Það voru sviptivind-
arnir — hryðjurnar og holskeflurnar
í fangið sem sviptu af okkur hvers-
dagsbrosinu og sparisvipnum og
blönduðu okkur í eina — að vísu oft
dálítið ruglingslega heild.
Það er þannig sem við, samstarfs-
fólk þitt úr Lágmúla 7, erum með
þér komin hingað á þennan útsýnis-
stað — í bland við fjölskyldu þína,
vini og samferðafólk á öðrum lífs
þíns leiðum. Við stöldrum hér við
með þér í þessum áfanga eina
skamma stund — en við erum öll
svo ung eins og þú og við endumst
ekki til langrar viðstöðu. Hins vegar
erum við þó komin á þann aldur að
við kunnum að njóta augnabliksins
og þinnar afmælisgleði. Þína skál!“
Þegar forystumaður fellur frá er
örðugt að tíunda störf hans. Eðli
málsins samkvæmt hefur hann unnið
að tíu málum fyrir hvert eitt sem
tekst að hrinda í framkvæmd. Þau
sem urðu að veruleika geta ef til vill
veitt okkur innsýn í drauma hans um
bætta aðstöðu hins almenna félags-
manns. Öll þau atriði sem hér hafa
flogið um hug mér sýna það brot úr
draumum okkar sem tókst_að hrinda
í framkvæmd og þar var Ásthildur í
fylkingarbrjósti.
Að leiðarlokum veit ég að allir
samstarfsmenn Ásthildar á vett-
vangi BHM og BHMR taka undir
með mér þegar ég af alhug þakka
her.nar óeigingjarna og fómfúsa
samstarf. Við urðum öll fyrir áfalli
við fráfall hennar sem þó heggur
miklu nær fjölskyldu hennar.
Jónas, börn ykkar og barnabörn
og Hulda móðir Ásthildar, ykkur
færi ég okkar innilegustu samúð-
arkveðjur.
Gísli Ólafur Pétursson.
t
Systir mín og frænka okkar,
JÓHANNA BJÖRNSDÓTTIR
áður til heimilis á Snorrabraut 34,
lést á Hrafnistu 26. nóvember. Útför hefur farið fram.
Guörún Björnsdóttir og frændsystkin.
t
Útför
GUÐLAUGAR ÁRNADÓTTUR,
Eskihlið 5,
sem lést föstudaginn 26. nóvember sl. fer fram frá Dómkirkjunni
kl. 15.00, þriðjudaginn 7. desember.
Fyrir hönd bræðrabarna og annarra ættingja,
Lydia Pálmarsdóttir,
Helga Steinunn Hróbjartsdóttir.
t
Alúðarþakkir til allra þeirra er auðsýndu okkur samúð vegna andl-
áts hjartkærrar eiginkonu minnar,
GUÐRÚNAR SVÖVU GUÐMUNDSDÓTTUR,
er lést 13. nóvemþer sl. á umönnunar- og hjúkrunarheimilinu
Skjóli.
Fyrir hönd barna okkar og annarra vandamanna,
Konráð Gíslason.
t
RAGNHILDUR STEINDÓRSDÓTTIR,
fyrrum kaupkona,
andaðist að Seljahlið 28. nóvember sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þökkum starfsfólki Seljahlíðar góða umönnun.
Diana Þ. Kristjánsdóttir, Ari G. Þórðarson,
Auður Kristjánsdóttir, Jón A. Stefánsson,
Birgir S. Kristjánsson, Sigríður Einarsdóttir.
Öm Kjærnested afhendir
Kristrúnu og Eyþári
lykilinn að íbúð þeirra.
I ÁLFTÁRÓS HFl
Allar nánari upplýsingar
ísíma: 91-641 340
V
Fyrsta Permaform-húsið í fflosfellsbæ
%
Permaform-ibúðir seldar
#
Frábærar viðtökur Permaform-íbúðanna koma
okkur ekki á óvart, því ódýr og hraður
byggingarmáti höfðar til nútímafólks.
Permaform-íbúðirnar eru afhentar fullbúnar að
utan sem innan. Tilbúnar innréttingar bíða
nýrra eigenda sem ekkert þurfa að gera annað
en að raða í skápa og stinga kaffikönnunni í
samband! Næstu Permaform-íbúðirnar verða
tilbúnar til afhendingar í júní 1994.
Permaform - byggingarmáti nútímafólks!
/V'
/V-\
V