Morgunblaðið - 05.12.1993, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 05.12.1993, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1993 ATVIN N if A UGL YSINGAR Rafeindavirki 22ja ára maður með sveinspróf í rafeindavirkjun óskar eftir vinnu. Allt kemur til greina. Upplýsingar í síma 684965 eftir kl. 18.00. Fertug kona með matreiðslu að mennt óskar eftir atvinnu frá kl. 8.00-14.00. Allt kemur til greina. Upplýsingar í síma 46437. Atvinna óskast í desember Röskur maður með viðskiptamenntun óskar eftir vinnu, svo sem við skrifstofu-, lager- éða sölustarf. Ásmundur, sími 624650. Iðjuþjálfi Vinnu- og dvalarheimili Sjálfsbjargar, Hátúni 12, Rvík, leitar eftir iðjuþjálfa til starfa. Um er að ræða fullt starf. Meginverkefni starfs- manns er að sinna um hæfingu/endurhæf- ingu þeirra er dvelja í endurhæfingaríbúð Sjálfsbjargar, svo og íbúa Vinnu- og dvalar- heimilis Sjálfsbjargar. Nánari upplýsingar veitir Valerie Harris iðju- þjálfi og Tryggvi Friðjónsson framkvæmda- stjóri í síma 91-29133. Lögmannsritari Ritari óskast til starfa á lögmannsskrifstofu í Reykjavík. Góð ritvinnslukunnátta er nauð- synleg. Reynsla æskileg. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 13. desember nk. merktar: „Ritari - 1427“. Atvinnurekendur athugið! Vantar þig tímaþundna aðstoð? Tek að mér dreifingu, þjónustu og ýmiskonar snúninga. Hef bíl og farsíma. Upplýsingar í símum 684035 og 985-34595. Geymið auglýsinguna. Heimilisaðstoð Rösk, dugmikil og barngóð kona óskast til að gæta 2ja barna á heimili þeirra 4 virka daga í viku. Nánari upplýsingar í síma 685309. Skrifstofustarf Stórt þjónustufyrirtæki í borginni óskar eftir að ráða starfsmann til skrifstofustarfa. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi reynslu af bókhaldsstörfum. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf sendist til auglýsingadeildar Mbl. merktar: „B - 13056“ fyrir fimmtudaginn 3. desember. Skíðakennari eða skíðaþjálfari Skíðafélag í Reykjavík óskar að ráða skíða- kennara eða skíðaþjálfara fyrir byrjendur frá 15. janúar til aprílloka. Áhugasamir sendi inn umsóknir á auglýsingadeild Mbl. merktar: „Skíðakennari - 10000“, fyrir 15. desember nk. Sjúkraþjálfari óskast Heilsugæslustöðin í Þorlákshöfn hefur góða aðstöðu til leigu fyrir sjúkraþjálfara. Starf- semina þarf að byggja upp frá grunni. Mikil þörf er fyrir sjúkraþjálfara í sveitarfélaginu. Allar nánari upplýsingar eru veittar hjá hjúkr- unarforstjóra í síma 98-33838. FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ A AKUREVRI Fóstrur Laus er til umsóknar staða fóstru við leik- skólann Stekk, sem rekinn er af Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri. Staðan er laus frá 1. janúar nk. eða eftir samkomulagi. Umsóknir sendist til leikskólastjóra, sem jafnframt veitir nánari upplýsinar. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Laus staða Umsjónarmaður tölvumála Áskilin er menntun og/eða starfsreynsla í tölvumálum. Starfssvið er m.a. umsjón með PC-neti og IBM S/36. Umsóknarfrestur er til 13. desember nk. Upplýsingar um starfið gefur Magnús Bjarna- son í síma 41570, þriðjudag-föstudags eftir hádegi. Starfsmannastjóri. E/TtÍ heilsugæslustöðin á ísafirði Læknaritari Laeknaritari óskast að Heilsugæslustöðinni á ísafirði nú þegar eða eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar gefa Ólöf Jónsdóttir læknafulltrúi og/eða Guðjón S. Brjánsson framkvæmdastjóri í vs. 94-4500. Tölvunarfræðing- ur/kerfisfræðingur Stórt þjónustufyrirtæki í Reykjavík óskar eft- ir að ráða kerfisfræðing til starfa við hugbún- aðargerð sem fyrst. Þekking og reynsla í NATURAL og PL/1 forrit- unarmálum og ADABAS gagnagrunni skilyrði. Umsóknir óskast sendar auglýsingadeild Mbl. fyrir 13. desember merktar: „T-13057“. Ritari á lögmannsstofu Ritari með bókhaldsþekkingu óskast í 70% starf á lögmannsstofu. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf óskast sendar auglýsingadeild Mbl. merktar: „Lögm. - 10985“ fyrir 13. desember nk. Öllum umsækjendum verður svarað. Dýrahirðir Reykjavíkurborg óskar eftir að ráða dýrahirði í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í Laugardal. Auk almennrar dýrahirðu felst starfið í kennslu skólabarna og uppfræðslu almenn- ings um dýr og umhverfismál. Óskað er eft- ir búfræðingi eða sambærilegum starfskrafti. Umsóknum skal skilað til starfsmannastjóra ÍTR, Fríkirkjuvegi 11, á eyðublöðum sem þar fást, fyrir laugardaginn 23. desember 1993. Nánari upplýsingar gefurTómas Guðjónsson eða Sigurjón Bláfeld í síma 684640. Söludeild Tryggingafélag í borginni óskar að ráða ungan og reglusaman einstakling til framtíð- arstarfa í söludeild. Starfið er laust 1. jan. nk. Viðkomandi þarf að hafa stúdentspróf t.d. úr verslunarskóla eða aðra viðskipta- menntun. í boði er gott framtíðarstarf hjá traustu fyrir- tæki. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu okkar til. 11. des. nk. Guðnt Tónsson RÁÐC JQF & RÁÐN l N CARÞjÓN Ll STA TJARNARGÖTU 14, 101 RÉYKJAVÍK, SÍMI62 13 22

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.