Morgunblaðið - 05.12.1993, Page 46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1993
GOLF
Hetjan frá Belfry
írski kylfingurinn Christy O’Connoryngri íheimsókn hérá landi
Forsetanum
sagttil
Hannes Guðmundsson,
forseti Golfsambandsins,
var kallaður á svið á Sögu
til að sýna hvernig á að slá
golfbolta. O’Connor virtist
ánægður með sveif luna
hjá forsetanum.
Ballybunion er einn frægasti strandvöllur í heimi. Hér má sjá hina gríðar-
lega fallegu 10. flöt.
Löng hefðfyrir
golfi á írlandi
Ferðaskrifstofan Samvinnu-
ferðir-Landsýn gekkst fyrir
kynningu á írskum golfvöllum
á Súlnasal Hótel Sögu sl. mið-
vikudagskvöld. Golfferðir
hafa mjög færst í vöxt á síð-
ustu árum og SL hefur reynd-
ar rekið sérstakan golfklúbb
með þeim farþegum sem far-
ið hafa í golfferðir til útlanda
með ferðaskrifstofunni.
Um 250 golfklúbbar eru á ír-
landi og þeir rótgrónustu
eru aldargamlir. Portmamock í
Dyflinni og Ballybunion í sv-hluta
írlands eru án efa frægustu vell-
irnir enda hafa bestu kylfingar
heimsins leikið á þeim á alþjóðleg-
um mótum. Aðrir nýrri koma fram
eins og Mount Juliet, vettvangur
Opna írska meistaramótsins sl.
sumars, sem hannaður var af Jack
Nicklaus.
Um 39 sjávarvellir eru á ír-
landi, það er golfvellir sem liggja
meðfram ströndinni en sam-
kvæmt upplýsingum frá Richard
Mulroonay, ferðamálastjóra ír-
lands eru aðeins um rúmlega eitt
hundrað slíkir til í heiminum. Slík-
ir vellir eru oft á tíðum erfiðari
því að minna skjól er fyrir vindi
og kylfingar geta þurft að glíma
við mjög erfíðar aðstæður.
Christy O’Connor yngri hefur
eins og margir aðrir atvinnukylf-
ingar starfað við að hanna golf-
velli og sá nýjasti er Galville Bay
sem er á vesturströndinni.
Hins vegar snýst golf ekki allt-
af um að leika á erfiðustu völlun-
um heldur að finna völl við sitt
hæfi. Það ættu allir kylfíngar að
hafa í huga, þó ekki væri nema
til þess að halda í góða skapið.
ÞAÐ er ekki oft sem heimsfrægir kylfingar koma
hingað til lands. Það gerðist þó í vikunni þegar
írinn Christy O’Connor yngri kom hingað í boði
Samvinnuferða Landsýnar. Hann dvaldi hér í rú-
man sólarhrrngog leiðbeindi og sýndi áhugasöm-
um kylfingum. Óhætt er að segja að íslendingar
hafi tekið vel við sér því hátt á þrjú hundruð manns
mættu á Súlnasal Hótel Sögu til að fræðast um
írska golfvelli og til að sjá hinn þekkta kylfing leika
listir sínar.
Christy O’Connor er 45 ára að
aldri og óneitanlega einn af
reyndari kylfingum heims. Hann
hefur verið meðal
Frosti ■ keppenda á evr-
FiAQQnn opska atvmnumann-
skrífar atúmum í 24 ár og
tvívegis verið í Ryd-
er-bikarliði Evrópu gegn Bandaríkj-
unum. Hljótt hefur verið um hann
að undanfömu eða frá því hann
sigraði í bresku meistarakeppninni
(British Masters) í fyrra. Hann
meiddist á hendi og lék aðeins á
ellefu mótum í ár en þau hafa ekki
verið færri hjá honum á ferlinum.
Hann hefur hins vegar ekki setið
aðgerðarlaus, því hann hann hefur
hannað golfvöll á Galway Bay á
írlandi auk þess sem hann skrifaði
kennslubók um golf sem nýlega er
komin út. Það er því fróðlegt að
heyra skoðanir þessa manns sem
oftlega er minnst sem hetjunnar frá
Belfry.
Fimm stjömu líf
„Líf atvinnukylfingsins er fimm
stjörnu líf, hvort sem mönnum líkar
það eða ekki. Kostimir eru þeir að
þú kemur til með að sjá margt og
kynnast mörgu áhugaverðu fólki.
Mikil ferðalög koma hins vegar nið-
ur á fjölskyldulífinu, kylfingur sem
keppir á atvinnumannamótunum í
Evrópu ferðast rúmlega sex þúsund
kílómetra með flugi og mótin hafa
breyst mikið. Aðstæður hafa batnað
en samkeppnin er mikið harðari,"
sagði O’Connor í samtali við Morg-
unblaðið á miðvikudag. „Þegar ég
byijaði ferilinn þá voru yfírleitt um
fimm kylfingar sem höfðu raun-
hæfa möguleika á sigri í mótum.
Núna má segja að sjötíu kylfingar
eigi möguleika fyrir hvert mót. Þeir
bestu í dag eru líklega betri en
þeir sem voru á toppnum fyrir tutt-
ugu árum en menn verða einnig
að líta á að margt hefur breyst.
Til að mynda geta menn pantað sér
kylfur sem eru smíðaðar fyrir hvern
og einn en í gamla daga var ekki
hægt að sérpanta neitt.“
Högg Itfs míns
Morgunblaðið/Frosti
O’Connor hefur átt velgengni að
fagna í atvinnumótum í golfi án
þess þó að geta talist stórstjarna í
íþróttinni. Frammistaða hans í Ryd-
er-keppninni fyrir fjórum árum á
Belfry-vellinum í Englandi gerir það
þó að verkum að nafn hans verður
á spjöldum golfsögunnar um
ókomna tíð. Hann sigraði Fred Co-
uples í einstaklingskeppninni með
frábærri spilamennsku á síðustu
holunum. Kylfíngarnir voru jafnir
þegar þeir komu að átjándu holunni
en óhætt er að segja að annað högg
Irans hafí ráðið úrslitum. O’Connor
sló boltann með járnkylfu númer
tvö og boltinn hafnaði rúman metra
frá holunni. Couples sem var í mun
>betri aðstöðu þoldi ekki álagið og
hitti ekki flötina í innáskotinu.
„Þetta var besta högg ævi
minnar. Að vera íri og eini fulltrúi
þjóðar minnar í liðinu hefði ég ekki
viljað kynnast afleiðingum þess ef
ég hefði hitt boltann illa. Höggið
var mikils virði fyrir mig, fjölskyld-
una og föðurlandið."
„Þegar ljóst var að ég mundi
mæta Couples þá var það áfall fyr-
ir mig. Hann var númer eitt á
Morgunblaðið/Frosti
Christy O’Connor útskýrir fyrir íslenskum kylfíngum hversu einföld og
auðveld golfsveiflan er.
verja heiður föðurlandsins. Ef þú
tapar þá verður þú að bera tagið
með fjölskyldu þinni og þjóð. Ég
hefði reyndar gefið hvað sem er,
sjálfan mig meðtalinn til þess að
góðvinur minn Constantin Rocca
þyrfti ekki að verða fyrir þeirri
reynslu sem henti hann í síðustu
Ryder-keppni.“ Rocca missti stutt
pútt á 17. flöt og tapaði einnig síð-
ustu holunni í leik gegn Davis Love
III.
Góðar viðtökur
Eftir rúmlega þrjátíu tíma stopp
fór O’Connor og fylgdarmaður hans
af landi brott á fímmtudagsmorg-
unn, að eigin sögn ánægðir með
ferðina og viðtökur áhorfenda í
Súlnasal Hótel Sögu. Ekki er ólík-
legt að golfáhugamenn hér á landi
sjái meira af þessum írska snillingi
næsta sumar. Hann hefur þekkst
boð um að koma hingað til lands
og hefur lýst yfir áhuga sínum á
að leiðbeina íslenskum kylfingum.
Aðaltilgangur ferðarinnar verður
þó væntanlega laxveiði enda er
O’Connor mikill áhugamaður um
stangaveiði eins og reyndar margir
aðrir atvinnumenn í þessari íþrótt.
heimslistanum og ég vissi að ef ég
tapaði þá hefði verið sagt að ég
væri veiki hlekkurinn í liðinu og það
var ekkert sem ég vildi síður. Coup-
les er frábær manngerð og góður
vinur minn en hann tók ósigrinum
illa á sínum tíma. Ég náði svo að
sigra Couples aftur ári síðar í Dun-
hill-liðakeppninni á St. Andrews en
tap gegn honum hefði þýtt að menn
hefðu talað um sigurinn á Belfry
sem afrek sem ég gæti aldrei endur-
tekið,“ segir O’Connor og það læð-
ist óneitanlega að manni sá grunur
að líf hans væri eitthvað öðruvísi
ef að Couples hefði sigrað á Belfry.
Ryder-bikarinn er ekki venjulegt
íþróttakeppni heldur eitthvað fyrir-
bæri þar sem heiður og stolt fjöl-
skyldunnar og föðurlandsins eru í
veði.
Sumir til í að fóma lífinu
„Ryder-keppnin er einstakt golf-
mót. Fólk bíður í tvö ár eftir að
fylgjast með henni og keppendur
bera fána sinna þjóða. Þú heyrir
samlanda þína hvetja þig á vellinum
og veist að sumir áhorfenda væru
til í að fórna lífi sínu til þess að
þér tækist vel upp og næðir að