Morgunblaðið - 16.01.1994, Qupperneq 1
88 SIÐUR B/C
12. tbl. 82. árg.
Minnihluta-
hópar í sókn
BANDARÍKJAMENN hafa sett fjölda
laga sem koma eiga í veg fyrir að
fólki sé mismunað vegna litarháttar,
kynferðis, o.s.frv. Nýjasti hópurinn
sem krefst réttinda sinna er fólk sem
á við offitu að stríða og nú þegar
hafa dómstólar úrskurðað í að
minnsta kosti tveimur slíkum málum.
Hið opinbera á Rhode Island var ný-
lega dæmt til að greiða konu 100.000
dali (um 7,3 milljónir ísl. kr.) í skaða-
bætur fyrir að neita henni um starf,
en konan vegur 145 kíló. Þá varð hið
opinbera ennfremur að ráða konuna
í vinnuna sem hún sótti um, sem var
á sambýli fyrir þroskahefta. í hinu
tilvikinu úrskurðaði hæstiréttur í
Kaliforníu, að eigandi heilsubúðar
gæti ekki neitað konu, sem á við of-
fituvandamál að stríða, um vinnu ef
offita hennar stafaði af efnaskipta-
sjúkdómi. Eigandinn gæti neitað kon-
unni þætti sannað að offitan væri
hennar eigin sök. Fleiri gætu fljótlega
bæst í sístækkandi flokk minnihluta-
hópa, m.a. ófríðir. Segir lögfræðingur
hjá Bandaríska borgararéttindasam-
bandinu að setja verði lög hið snar-
asta til að vernda ófríða gegn mismun-
un. Segir hann að mismununin hefjist
þegar í barnaskóla þar sem kennarar
hygli börnum sakir fríðleiks.
Geislamorð
í HVERT sinn sem rússneski forstjór-
inn settist í skrifborðsstólinn færðist
hann einu skrefi nær dauðanum.
Hann hafði hins vegar enga hugmynd
um það og hafði ekki grun um hvað
var að draga hann til dauða. Læknar
forstjórans sáu hins vegar fljótt að
hann hafði látist úr geislun. f ljós kom
að komið hafði verið fyrir geislavirk-
um hlut í stól forstjórans og var geisl-
unin 1 stólnum um 20 röntgen, eða
1,5 milljón sinnum meiri en venjulegt
er á skrifstofum. Talið er að keppi-
nautar forstjórans, sem stýrði um-
búðaframleiðslu, hafi framið geisla-
morðið.
Kristilegir út-
nefna Herzog
KRISTILEGIR demókratar (CDU),
flokkur Helmuts Kohls, kanslara
Þýskalands, útnefndu gær Romans
Herzogs, dómara við stjórnlagadóm-
stólinn, forsetaframbjóðenda flokks-
ins.
STOFNAÐ 1913
SUNNUDAGUR16. JANÚAR1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Fiskiskipaflotinn úr höfn
STRAX eftir setningu bráðabirgðalaga ríkisstjórnarinnar létu fiskiskip úr höfn á miðin og um hádegisbilið í gær höfðu um eitt hundrað
skip látið úr höfn samkvæmt upplýsingum Tilkynningarskyldunnar. Á myndinni sést þegar landfestar Krosseyjarinnar eru losaðar í Hafnar-
fjarðarhöfn og á innfelldu myndinni sést þar sem skipveiji á Frera fer um borð.
Fyrri umferð forsetakosninganna í Finnlandi fer fram í dag
Vanianiiálai’áðheiTTinn
dregrir Ahtisaari uppi
Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins.
ELISABETH Rehn varnarmálaráðherra Finnlands myndi sigra Martti Ahtisa-
ari í annarri umferð forsetakosninganna ef marka má skoðanakönnun sem
birt var á föstudagskvöld á rás 3 í finnska sjónvarpinu. Ahtisaari, sem er
forsetaefni jafnaðarmanna, hefur hingað til verið sigurvegari í þeim könnun-
um sem mælt hafa fylgi frambjóðenda í annarri umferð þar sem aðeins
tveir frambjóðendur taka þátt. Samkvæmt skoðanakönnunum hefur hann
enn vinninginn í fyrri umferð kosninganna.
Könnunin sýnir að 55% kjósenda myndu
styðja Rehn (Sænski þjóðarflokkurinn) en
45% Ahtisaari, ef þau væru keppinautar í
síðari umferðinni. Keppti Ahtisaari við Paavo
Váyrynen (Miðflokkurinn) í annarri umferð
fengi Ahtisaari 64% en Váyrynen 36% og í
hugsanlegri baráttu Ahtisaari og Raimo II-
askivi (Hægri flokkurinn) fengi Ahtisaari
52% og Ilaskivi 48%.
Fylgi Rehn, sem er önnur tveggja kvenna
meðal 11 frambjóðenda, hefur farið verulega
vaxandi upp á síðkastið. Fylgi hennar er tvisv-
ar eða þrisvar sinnum meira en fylgi Sænska
þjóðarflokksins, þ.e. um 20% í fyrri umferð
kosninganna. í skoðanakönnun sem birt var
á föstudag var fylgi Ahtisaari 24,2%, Rehn
21,5%, Ilaskivi 20,2% og Váyrynen 16,4%.
Það þykir nokkuð öruggt að Ahtisaari
verði frambjóðandi í annarri umferð. Loka-
slagurinn í fyrri umferðinni stendur þess
vegna milli þeirra Rehn, llaskivi og Váyryn-
en. Stuðningsmenn Ilaskivis hafa sakað jafn-
aðarmenn um að reyna að koma Rehn að í
annarri umferð kosninganna vegna þess að
þeir telji að hún yrði auðveldari bráð fyrir
Ahtisaari en karlmennirnir Ilaskivi og Váyr-
ynen.
Atkvæðagreiðslu utan kjörstaða lauk á
þriðjudaginn og var þá um það bil þriðjung-
ur kjósenda búinn að greiða atkvæði. Áldrei
áður hafa jafn margir, þ.e. um 300.000
manns, greitt atkvæði á undan formlegum
kosningadegi. Fyrri umferð forsetakosning-
anna verður á sunnudaginn og síðari umferð
að þrem vikum liðnum.
Framtíð
fyrir stafni
* HEIMTIR
* ÚR
HELJU
ÞORARINfsJ
GUNNARSSON
VARÐ AÐ HÆTTA
Ag..SYNQlA ÞEOAR
skbiitA fantas
HANN HErUR QEFID
ui lO RA KURi BANDA
LÍ-jjN
C£S£.y.
SJOBASAMNIhLQINN