Morgunblaðið - 16.01.1994, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 16.01.1994, Qupperneq 6
6 FRETTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1994 Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Selir við Jökulsárlón TÆPLEGA tuttugu selir spóka sig þessa dagana við Jökulsárlón á Breiða- merkursandi. Þar hafa þeir fundið síld í miklu magni, en risavaxinn fjörð- ur liggur inn eftir lóninu. Hann var uppgötvaður með íssjá í fyrra. Selirn- ir voru hinir forvitnilegustu og fjörugustu, þegar ljósmyndarinn birtist. Islenskur læknir hlýtur verðlaun fyrir vísindagrein Dregið úr dánartíöni vegna höfuðáverka BOGI Ásgeirsson heilaskurð- læknir hlaut verðlaun á tíunda alþjóðaþingi heilaskurðlækna sem haldið var í Acapulco í Mex- íkó í október sl. Þingið er haldið fjórða hvert ár og eru veitt verð- laun fyrir þá vísindagrein um heila- eða mænuáverka sem best þykir hverju sinni að mati alþjóð- legrar dómnefndar. Bogi Ás- geirsson hlaut verðlaunin ásamt meðhöfundunum Per Olof Grande og Carl-Henrik Nord- ström og eru þau kostuð af V olvo-verksmiðjunum. Grein þremenninganna heitir „A new therapy of post-traumatic brain oedema based on transcapill- ary absorption via reduction of cap- illary hydrostatic pressure" og lýsir nýrri meðferð við heilabjúg eftir höfuðáverka. Meðferðin er þróuð í samstarfi svæfingardeildar og heilaskurðdeildar háskólasjúkra- hússins í Lundi en læknarnir þrír starfa allir við það sjúkrahús. Segir Bogi að forsaga málsins sé sú að JOHAN Jörgen Holst, utanríkis- ráðherra Noregs, lést í Ósló að morgni fimmtudags 13. janúar 1994. Johan Jörgen Holst átti að baki farsælan feril sem vísindamaður og fyrirlesari um alþjóðastjórnmál, síð- ar aðstoðarvarnarmálaráðherra og aðstoðarutanríkisráðherra Noregs, en varð vamarmálaráðherra og síð- ast utanríkisráðherra lands síns. Útför Johans Jörgens Holsts fer meðal sjúklinga með alvarlega höf- uðáverka eftir slys sé hópur sem ekki svari þeirri meðferð við heila- bjúg sem mest er notuð í heiminum í dag. Auðkennist hópurinn af djúpu meðvitundarleysi og háum þrýstingi í heila, auk þess sem blóðflæðis- mælingar í heila sýni að heilaæðar fram í Ósló laugardaginn 22. janúar 1994. Vegna andláts Johans Jörgens Holsts, utanríkisráðherra Noregs, mun Iiggja frammi minningarbók fyrir alla sem votta vilja samúð vegna fráfalls hans. Minningarbókin mun liggja frammi í sendiráði Noregs, Ejólu- götu 17 í Reykjavík, nk. þriðjudag og miðvikudag, 18. og 19. þessa mánaðar, báða dagana frá kl. 14-16. svara ytra áreiti ekki á eðlilegan hátt, t.d. öndun eða breytingum á blóðþrýstingi. Hin nýja meðferð, sem meðal annars miðast að því að minnka þrýstinginn í háræðum heilans, hafi verið reynd á þessum hópi. Þegar þrýstingur minnki í háræðum dragist vökvi úr heila- vefnum inn í háræðarnar og á þann hátt minnki heilabjúgurinn. Með nýju meðferðinni hafi dregið úr 70% dánartíðni í 20% og þeir sem lifi nái sér mun betur. Grein er gerð fyrir afdrifum fyrsta sjúklingahóps- ins sem hlaut meðferðina og hann borinn saman við hóp sem með- höndlaður var með hefðbundnum læknisaðferðum víðast hvar. Þess- ari nýju meðferð er að sögn Boga beitt á þá sjúklinga sem hafa heila- bjúg eftir höfuðáverka og er sam- starf að hefjast við fjölda heila- skurðdeilda innan Svíþjóðar um að innleiða þessa meðferð. Einnig kemur fram að fulltrúar erlendra heilaskurðdeilda hafi sýnt áhuga á að reyna meðferðina. Minningarbók vegna and- láts Johans Jörgens Holsts Bráðabirgðalögin Rétt ákvörð- veiða þau 10 þúsund tonn af síld sem eftir er að veiða á vertíðinni. un hjá stjóm- völdum - segir Amar Sigur- mundsson, formaður Samtaka fiskvinnslu- stöðva ARNAR Sigurmundsson, for- maður Samtaka fiskvinnslu- stöðva, segist ekki hafa séð að önnur leið hafi verið út úr ógöngum sem sjómannadeilan var komin í en setning bráða- birgðalaga, þótt það væru von- brigði að ekki skyldi hafa tekist að ganga frá málunum með frjálsum samningum. „Ég tel að þetta hafí verið rétt ákvörðun hjá stjórnvöldum. Það var búið að þaulkanna þetta og það var ekki grundvöllur til samn- inga. Ég kenni samtökum sjó- manna að nokkru um hvernig kom- ið er og að aðalkrafan um að taka á meintu kvótamisferli hafi vikið fyrir kröfum um stórvægilegar breytingar á fiskveiðistjórnarlög- unum og kröfum sem fólust í að leggja niður frjálst fiskverð. Þetta spillti mjög fyrir lausn deilunnar," sagði Arnar. Hann sagði það fagnaðarefni að nú gæti vertíð hafist en búast megi við að nokkurn tíma taki að koma öllum hjólum af stað. Sagði hann að verkfallið hefði orsakað mikið tekjutap hjá fólki í fisk- vinnslunni og hefði íþyngt fyrir- taékjum víða um land sem bæru miklar skuldir. Sagðist hann hafa áhggjur af því að ekki tækist að Ekki torvelda skipti á veiðiheimildum „Nú verður þriggja manna nefndin að setjast niður og ljúka þessu fyrir 1. febrúar. Þótt tíminn sé skammur þá held ég að stjórn- völd vilji ekki liggja undir því að það sé verið að fresta þessum hlut- um. Ég tel að nú beri nauðsyn til innan sjávarútvegsins að komast til botns í þessu deilumáli um meint kvótabrask. Ef ólöglegir hlutir hafa átt sér stað þá þarf að klára það mál með einhveijum hætt. En við í fiskvinnslunni viljum endilega standa við kjarasamninginn frá 1992 um hvað er heimilt og hvað óheimilt. Við styðjum lagasetningu núna til að treysta þann grunn en viljum líka benda á þá hættu sem getur falist i því ef lagasetningin myndi miða að því að torvelda skipti á veiðiheimildum og að sjáv- arútvegsfyrirtæki geti látið aðra veiða fyrir sig. Við teljum gífurlega mikilvægt að það verði áfram eins og verið hefur,“ sagði Amar. Sjómenn töluðu frá upp- hafi iini laga- setningu - segir Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ KRISTJÁN Ragnarsson formað- ur LIU, segir að deila útgerðar- manna og sjómanna hafi verið kominn í slíkan hnút að stjórn- völd hafi ekki lengur getað setið aðgerðarlaus. Það hefði verið ábyrgðarleysi. Sagðist hann hafa heyrt sjómenn strax á fyrstu dögum verkfallsins tala um að fljótlega yrðu sett lög á deiluna. Kristján sagði það einkar ánægjulegt að sjá skipin fara aftur á sjó og ekki veiti af við þær að- stæður sem við búum við að draga björg í bú. „Deiluefnin voru á margan hátt sérstök og að sjálf- sögðu æskilegra fyrir útvegsmenn að það tækjust samningar við sjó- menn og þess vegna lögðum við okkur alla fram um að ljúka þess- ari deilu með samningum," sagði hann. „Það tókst hins vegar ekki.“ Sljórnvöld líklegri „Þannig fór þessi deila af stað og það er augljóst að sjómannafor- ustan hefur talið líklegra að eiga um þetta við stjórnvöld heldur en að freista samninga við okkur,“ sagði Kristján. „Enda sýnist mér strax vera komnar fram hugmynd- ir um takmörkun á framsali sem hindrar eðlilega þróun og eðlilegt hagræði í greininni sem við hefðum ekki getað fallist á. Eins og þetta hugsanlega uppboðskerfí á afla- heimildum. Deilan var hins vegar komin í slíkan hnút að stjórnvöld gátu ekki setið lengur aðgerðar- laus. Það hefði verið ábyrgðarleysi af þeirra hendi að beita ekki með einhveijum hætti þeim ráðum sem eru til staðar til að leysa þennan Gordíonshnút sem þarna var kom- inn upp á milli manna en eftir stendur að ljúka þarf málinu með samnirigum. Þetta er því bráða- birgðalausn." Fyrirtækið íslensk myndsýn stofnað Morgunblaðið/Sverrir Stofnfundur ÍSLENSK myndsýn var stofnað formlega sl. föstudag. Borgar- sljórinn, Markús Órn Antonsson, bauð til fundarins sem haldinn var í Höfða. Frá vinstri: Einar Erlendsson, Ingibjörg R. Guð- mundsdóttir, Ólafur Jónsson og borgarstjórinn, Markús Örn Antonsson. Reiknað með 125 millj. í beinar tekjur STOFNFUNDUR félagsins íslenskrar myndsýnar var haldinn á Höfða sl. föstudag. Fyrirtækið hyggst standa fyrir alþjóðlegri ljósmyndahátíð hérlendis árið 1995, eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu. Segir í skýrslu Aflvaka Reykjavíkur hf. sem gerð var um verkefnið að ef sýningin dragi 500 ferðamenn til landsins megi gera ráð fyrir 125 milljóna beinum tekjum fyrir ferðaiðnaðinn og þá séu óbeinar tekjur ótaldar. Á fundinum voru samþykkt varðveita ímynd íslands, sem drög að skipulagsskrá og þar lands óspilltrar og hreinnar nátt- kom fram að stofnframlag næmi úru, í augum umheimsins. Mark- fimm milljónum króna og stofnfé mið stofnunarinnar verður meðal væri krónur 500.000. Borgar- annars að standa fyrir alþjóð- stjóri, Markús Örn Antonsson, legri ljósmyndahátíð annað hvert setti fundinn og þvínæst gerði ár og yerður sérstök dagskrá í Einar Erlendsson grein fyrir því sarribandi í tengslum við 50 hlutverki hennar, þ.e. að efla og ára afmæli lýðveldisins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.