Morgunblaðið - 16.01.1994, Page 13

Morgunblaðið - 16.01.1994, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1994 13 Undir fallöxinni Boðskapur íhaldsflokksins um fjölskyldugildin fellir hvern flokksbroddinn af öðrum. Með þessu hefur verið litið svo á að nú sé ætlun Majors að leggja f jölskyldugildin fyrir róða vegna þess hnekkis sem boðskapurinn heff ur beðið. Snúa eigi herferðinni inn á nýjar braut- ir, um samfélags- gildin. taka afleiðingum þess og víkja. Þingmenn og kalkúnar Vegna atburða síðustu vikna hafa undanfarna daga heyrst radd- ir um að Major bæri að draga sig í hlé. Hefði hann ekki frumkvæði að því sjálfur yrði safnað liði gegn honum og leiðtogakjör knúið fram. Stjórnmálaskýrendur telja þó ólík- legt að þingmenn íhaldsflokksins hafi kjark til þess vegna slæmrar stöðu flokksins. Breskt orðatiltæki um hugleysi segir að kalkúnar voni að jólin komi aldrei. Hefur það verið yfirfært á þingmenn íhalds- flokksins í umræðunni um hvort leiðtogaskipti væru í vændum vegna vandræða Majors og sagt að það síðasta sem þeir biðji um séu nýjar kosningar. Gerry Adams bjargvættur Majors? Kosningar eru þó óumflýjanlegar fyrir breska íhaldsmenn því sveitar- stjórnakosningar fara fram í maí og kosningar til þings Evrópu- bandalagsins í júní. Verða þær að einhverju leyti prófsteinn á stöðu stjórnarinnar. Því er spáð að árið verði Major erfitt því auk þessara kosninga koma til framkvæmda óvinsælar skattahækkanir sem koma munu við pyngju breskra þegna. Gagnrýnendur segja að vandi Majors sé heimatilbúinn, íhaldsmenn hafi misst fótar á svell- inu í áróðrinum fyrir afturhvarfs- stefnunni. Grasrótarhreyfmgin hafi tekið stefnuna um afturhvarf til hinna gömlu gilda, fjölskyldustefn- una, bókstaflega en ráðherrar og þingmenn hafi grafið undan henni með ábyrgðarlausri hegðan. Dragi íhaldsmenn ekki réttan lærdóm af atburðum síðustu vikna hljóti þeir og flokkurinn makleg málagjöld. Eina von Majors um að halda velli kunni því að vera sú að samningar um framtíð Norður-írlands og lykt- ir ofbeldisátaka þar komist í höfn. Nánast megi segja að pólitísk fram- tíð Majors sé í höndum leiðtoga stjórnmálaarms hryðjuverkasam- takanna IRA, Gerry Adams. ÚRVALS ÚRVALSFÓLK BFÓLI- . Ferðaklúbbur allra 60 ára og eldri Stofnfundur ferðaklúbbsins „ÚRVALS-FÓLK“ verður haldinn í Súlnasal Hótel Sögu sunnudaginn 16. janúar kl. 15. „ÚRVALS-FÓLK“ er ferðaklúbbur allra 60 ára og eldri sem áhuga hafa á ferðalögum og góðum félagsskap. Markmiðið er að gefa klúbbfélögum kost á skemmtilegum ferðum á hagstæðu verði. Dagskrá: • Starfsemi ferðaklúbbsins kynnt. • Ferðakynning. • Dansflokkur eldri borgara frá Dansskóla Sigvalda. • Dans. Allir velkomnir ^ ÚRVAL-ÚTSÝH Júlíus Hafstein borgarfulltrúa í 2. sætið Yeljum kröftugan málsvara fyrir störf og stefnu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Júlíus Hafstein, borgarfulltrúi, hefur undanfarin átta ár gegnt formennsku í íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur, umhverfismálaráði og ferðamálanefnd Reykjavíkur. Hann hefur reynst farsæll í störfum sínum og skilað árangri. Reykvíkingar hafa orðið vitni að gróskumiklu íþrótta- og æskulýðsstarfi í borginni á undanfórnum árum, orðið vitni að byltingu í umhverfismálumog séð Reykjavík þróast sem vaxandi ferðamannaborg. Júlíus biður sjálfstæðisfólk um stuðning í 2. sætið á framboðslista ílokksins í prófkjörinu 30. og 31. janúar nk. Kosningaskrifstofan er á Suðurlandsbraut 50 (bláu húsi v/Faxafen) - Sími 681056

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.