Morgunblaðið - 16.01.1994, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1994
19
Breytingar á
færslu tékka
Þeir sem
fyrstir
, framvísa
njóta for-
gangs á
innstæðu
TÉKKAR verða framvegis bók-
færðir fyrir fullt og fast á
tékkareikninga þegar þeim er
framvísað í bönkum og spari-
sjóðum en áður hafa þeir verið
bókfærðir eftir númeraröð
tékkheftisins í lok hvers dags.
Skiptir því meira máli en áður
hvenær dags tékka er framvís-
að í banka vegna þess að þeir
| sem fyrstir framvísa tékka njóti
forgangs á innstæðu.
Samvinnunefnd banka og spari-
sjóða tilkynnti um þessa breytingu
í gær en hún á að taka gildi 6.
desember. Nýja bókunaraðferðin
er nefnd samtímabókum tékka.
Núverandi bókunaraðferð, sem
verið hefur við lýði í tæpa tvo
áratugi, byggist á bókun tékka í
tékkanúmeraröð. Öllum innleyst-
um tékkum dagsins er í dagslok
raðað eftir númerum tékkaeyðu-
blaðanna og bókast tékki með
lægsta tékkanúmeri fyrst, burtséð
frá því hvenær dagsins honum
hefur verið skipt í bankanum.
Hefur því ekki ráðist fyrr en í lok
hvers dags hvaða tékkar væru
h g6ðir'
Gamla kerfið í gildi
- í fréttatilkynningu samvinnu-
w nefndarinnar segir að þetta fyrir-
komulag hafi í sumum tilvikum
reynst óheppilegt þegar innstæða
er ekki næg fyrir Öllum framvísuð-
um tékkum dagsins. Að sögn
Helga H. Steingrímssonar, sem
sæti á í samvinnunefndinni, hefur
lengi verið unnið að breytingum á
þessu fyrirkomulagi en það reynst
tæknilega erfitt. Nú hafi hins veg-
ar tekist að ráða á þessu bót. Sá
sem fyrstur framvísi tékka njóti
forgangs á innstæðu, eins og var
áður en núverandi kerfi var tekið
upp fyrir 20 árum.
Bankarnir leggja á það áherslu
p á að í langsflestum tilvikum, það
er þegar ávísað er á innstæðu eða
ónotaða yfirdráttarheimild, verði
j| viðskiptamenn ekki varir við
breytta framkvæmd. Helgi segir
jafnframt að breytingin hafi lítil
) eða engin á hrif hjá tékkareikn-
ingshöfum.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
Cheerios
FÆÐUHRINGURINN
Það er samhengi á milli mataræðis og heilsu.
Heilsan er dýrmæt og þess vegna er ætíð skynsamlegt að huga að samsetningu
fæðunnar sem við neytum. Cheerios er ríkt af hollustuefnum og inniheldur
sáralítið af sykri og fitu. 1 hverjum Cheerios „fæðuhring“ er að finna bragð af
góðum, trefjaríkum og hollum mat; fyrir fólk á öllum aldri.
* 1 skammtur cða 30 g.
RDS: Ráðlagður dagskammtur.
Cheerios - einfaldlega hollt!
ÚTSALAN HAFIN
GLÆSISKÓRINN GLÆSIBÆ
YDDAF46.13/8lA