Morgunblaðið - 16.01.1994, Qupperneq 52
KJÖRBÓK
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
MORGIJNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJA VÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3010 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Morgunblaðið/Júlíus
Eldur í flugeldageymslu
ALLT tiltækt lið slökkviliðsins var kallað út er eldur kom upp við víkur. Slökkviliðsmönnum tókst fljótlega að komast fyrir eldinn áður
Fiskislóð 94 skömmu eftir hádegi í gær. Þar hafði kviknað í flugelda- en hann komst í flugeldana.
geymslu Slysavarnafélagsins og lagði mikinn reyk yfir miðborg Reykja-
*
Samtök sjómanna fordæma setningu bráðabirgðalaga á verkfall sjómanna
Mannréttíndi sjómanna
afnumin með lögunum
FYRSTU fiskiskipin lögðu úr höfn þegar að kvöldi föstudagsins strax
og fréttir bárust af bráðabirgðalögum ríkisstjórnarinnar á verkfall
sjómanna, sem staðið hefur yfir frá því í byrjun árs og í gær voru
fiskiskip í óðaönn að búa sig á sjó. Samtök sjómanna á fiskiskipum
komu saman tii fundar í gærmorgun og samþykktu ályktun þar sem
fordæmt er það gerræði ríkisstjórnarinnar að afnema með bráðabirgða-
lögum þau sjáifsögðu mannréttindi sjómanna að geta varið kjör sín
með frjálsum samningum.
í ályktuninni segir ennfremur að
ríkisstjórnin falli í þá gryíju sem
svo margir fyrirrennarar hennar
hafi fallið í á undan henni að beygja
sjómenn undir bráðabirgðalög sem
leysi engan vanda en' séu sniðin að
þörfum forystu Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna. Það sé álit
Sölumiðstöðin jók útflutning
sinn um 2 milljarða í fyrra
SALA Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna á fiskafurðum á síðasta ári
nam um 21 milljarði króna og hefur aldrei verið meiri í íslenzkum
krónum talið. Alls voru flutt utan um 91.500 tonn af frystum afurðum
og er þorskurinn þar enn mikilvægasta tegundin, enda jókst útflutning-
ur á honum þrátt fyrir minnkandi aflaheimildir. Japan var mikilvæg-
asti markaðurinn, en Bandaríkin sækja á á ný.
Upplýsingar um framleiðslu og
sölu afurða frystihúsa innan vébanda
SH komu fram á fundi með verkstjór-
um og framleiðendum nú í iok vik-
unnar. Sölumiðstöðin seldi alls á síð-
asta ári, samkvæmt bráðabirgða-
tölum, afurðir fyrir um 21 milljarð
króna á móti liðlega 19 milljörðum
árið 1992.
SH flutti út 1992 83.000 tonn af
frystum afurðum og í fyrra nam sal-
an 91.500 tonnum af frystum afurð-
um, þar af eru um 8.5.QQ tonn frá
erlendum aðilum, Mechlenburger
Hohcseefischerei og rússneskum skip-
um. í raun er um að ræða svipað
magn af íslenskum skipum. Aukning-
in hvað tegundir varðar liggur aðal-
lega í úthafskarfa og öðrum afurðum
fyrir Asíumarkað, svo sm síld og
loðnu.
Stærsti einstaki markaðurinn var
Asía með um liðugan fjórðung af
magninu. Næst koma Bandaríkin,
aftur í öðru sæti, með um 22% og í
því þriðja söluskrifstofan í Hamborg
með liðlega 21%. Skrifstofan í París
var með 16% og Bretland 13% magns-
ins. I fyrra var Asía í fyrsta sæti og
Frakkland í öðru, en Bandaríkin í því
þriðja. Þorskurinn er enn mikilvæg-
asta tegundin enda jóskt framleiðsla
og útflutningur á honum í fyrra. Þá
var nokkur aukning í sölu á síld og
loðnu til Japans.en samdráttur varð
í sölu á ufsa. Útgerðarfélag Akur-
eyringa, Grandi og Vinnslustöðin í
Vestmannaeyjum voru enn sem fyrr
þau fyrirtæki innan SH sem stóðu
að baki mestum verðmætum í útflutn-
ingi samtakanna.
Jón Ingvarsson, formaður stjómar
SH, segir að allar horfur séu á því
að dótturfyrirtæki SH erlendis muni
skila góðri afkomu fyrir síðastliðið ár.
sjómannasamtakanna að þrátt fyrir
yfirlýsingar stjórnvalda um að úti-
loka beri þáttöku sjómanna í kvóta-
braskinu sé ekki að því stefnt í
raun. Sjómenn neyðist nú sem lög-
hlýðnir borgarar landsins til að
standa upp úr kjaradeilu með það
ömurlega hlutskipti að réttur þeirra
og kjör séu engu betur tryggð en
áður. Þá segir: „Þar sem samnings-
réttur sjómanna hefur verið fluttur
til löggjafarvaldsins beina sjó-
mannasamtökin því til Alþingis ís-
lendinga að sett verði lög strax og
þing kemur saman, sem kveði skýrt
á um lausn allra þeirra þátta, sem
skildir voru eftir óleystir við setn-
ingu bráðabirgðalaganna, þar með
taldir allir óleystir sérveiðisamning-
ar.“
Fiskiskipalotinn úr höfn
Samkvæmt upplýsingum frá Til-
kynningaskyldu um hádegi í gær
höfðu um 100 skip haldið úr höfn
frá því að bundinn var endir á verk-
fall sjómanna á föstudagskvöld,
mest frá Vestmannaeyjum og ann-
ars staðar af Suðurlandi, en lítil
hreyfing var enn á skipum á Norð-
urlandi og Austurlandi.
Sjá á bls. 6: Ummæli forystu-
manna LIU og samtaka fisk-
vinnslustöðva
Byrjað að
ræða haust-
kosningar
Á UNDANFÖRNUM mánuðum
hafa komið fram raddir innan
stjórnarflokkanna um kosningar í
haust í stað vors 1995, þegar
reglulegar alþingiskosningar eiga
að fara fram. Þessar hugmyndir
hafa ekki síst komið fram innan
Sjálfstæðisflokksins. Ýmsir telja
nauðsynlegt að ný ríkisstjórn með
nýtt umboð kjósenda komi að erf-
iðri fjárlagagerð fyrir árið 1995.
Möguleikinn á haustkosningum er
talinn háður því að sá stöðugleiki sem
skapast hefur í þjóðfélaginu verði
viðvarandi, verðbólga verði nálægt
núllinu, vextir lækki áfram og at-
vinnuástand versni ekki til muna frá
því sem nú er. Komi stjórnarflokk-
arnir þokkalega út úr sveitarstjóma-
kosningunum í vor er talið enn llk-
legra að stjórnvöld boði til kosninga
þegar í haust.
Það sem helst þykir mæla á móti
því að efnt verði til alþingiskosninga
strax í haust er að árið í ár verður
samdráttarár og ef um efnahagsleg-
an bata verður að ræða síðar á þessu
ári verði hann ekki farinn að segja
til sín með áþreifanlegum hætti þeg-
ar gengið yrði til kosninga.
Sjá fréttaskýringu, „Haustkosn-
ingar?“,' á bls. 10-11.
Stálverksmiðjan
í Hafnarfirði
ítalimir
hættavið
kaupin
Mestar líkur á að
verksmiðjan verði
seld til niðurrifs
EKKERT verður af kaupum
ítalska stáliðjufyrirtækisins
Sider Planting Scaligera
SpA á stálverksmiðjunni í
Hafnarfirði en formleg stað-
festing á þessu liggur nú
fyrir samkvæmt upplýsing-
um Lárusar Blöndal lög-
fræðings fyrirtækisins hér á
landi.
ítalska fyrirtækið hugðist
kaupa stálverksmiðjuna í sam-
vinnu við Furu hf. í Garðabæ
en ástæða þess að ekkert verð-
ur af kaupum er sú að ekki
náðust samningar við Lands-
virkjun varðandi orkuafhend-
ingu til verksmiðjunnar en
Itölunum þótti of mikill kostn-
aður fylgja því að verða við
kröfum Landsvirkjunar um að
setja upp búnað til að koma í
veg fyrir spennuflökt frá
bræðsluofni verksmiðjunnar.
Var ofninn talinn hafa valdið
raforkutruflunum hjá notend-
um í Hafnarfirði og í hluta
Breiðholts á meðan Islenska
stálfélagið hf. starfrækti verk-
smiðjuna. Kostnaður við úr-
bætur vegna spennuflöktsins
var áætlaður á bilinu 100-150
millj. kr. Nú eru mestar líkur
taldar á að verksmiðjan verði
seld til niðurrifs.