Morgunblaðið - 19.01.1994, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUK 19. JANÚAR 1994
VEÐUR
Ráðningarstofan
fer í Engjateig
Reykjavíkurborg hefur fest kaup á hluta húseignarinnar á
Engjateigi 11 fyrir Ráðningarstofu borgarinnar. Kaupverðið er
45 milljónir króna.
Borgarráð samþykkti kaupin á
fundi í gær. Undanfarið hefur
borgin leitað að hentugu framtíð-
arhúsnæði fyrir Ráðningarstof-
una. Húsnæðið á Engjateigi 11,
sem er eign Engjateigs hf. (Kiwan-
ishreyfíngarinnar á íslandi) er
rúmir 606 fermetrar, auk hlut-
deildar í sameign, sem telst rúmir
105 fermetrar, eða alls ríflega 711
fermetrar. Það telst 41,49% allrar
eignarinnar. Kaupverðið er 45
milljónir og greiðast 2 millj. við
undirritun kaupsamnings, 15.
mars 2 millj. og 15. maí 1 milljón.
Þá yfírtekur borgin áhvílandi veð-
skuldir, samtals um 20 milljónir
og afgangurinn, 20 milljónir,
greiðist með skuldabréfi til tíu ára
útgefnu af borgarsjóði.
Húseignina fær borgarsjóður
afhenta tilbúna undir tréverk þann
15. mars. Seljandi gengur frá sam-
eign innanhúss, að fráskilinni
lyftu, sem verður sett innan árs
frá því að húsið verður tekið í
notkun. Þá gengur seljandi frá
húsinu að öllu leyti að utan og lóð
skal vera fullfrágengin næsta
haust. Þá eiga bflastæði að’vera
tilbúin undir malbik fyrir 1. júní.
-----» ♦ 4---
Þrenn ljós
ágatnamót
UMFERÐARLJÓS verða á
þessu ári sett upp á gatnamót-
um Hringbrautar/Bræðraborg-
arstígs, Langholtsvegar/Skeið-
arvogar og Snorrabraut-
ar/Flókagötu/Egilsgötu.
Borgarráð samþykkti þetta á
fundi í gær. Þá var eínnig sam-
þykkt að setja upp gangbrautar-
ljós vestan gatnamóta Hringbraut-
ar og Birkimels.
Sorpa býr til mold
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að Sorpa standi fyrir tilraun á
jarðgerð úr garðaúrgangi og hrossataði í ár og á næsta ári. Reikn-
að er með að unnið verði úr um 10 þúsund tonnum úrgangs og
er vonast til að með þessu fáist um 7-8000 rúmmetrar af gæðamold.
Tilraun þessi á að fara fram
ofan á haugnum í Gufunesi, sem
næst 'starfsvæði Sorpu. Leitað
verður samstarfs við verktaka á
starfssviðinu eftir því 'sem hag-
kvæmt þykir. Markmiðið er að fá
reynslu af 2-3 kunnum aðferðum
til jarðgerðar og þékkingu á þeirri
afurð sem þær skila.
Áætlaður kostnaður við tilraun-
ina er 6 milljónir króna hvort ár
og skiptist sá kostnaður á sveitafé-
lögin sem standa að Sorpu, enda
kemur fram í umsögn stjómar
Sorpu til borgarráðs að borgin lít-
ur svo á að hér sé um að ræða
endurvinnslu á efni, sem að
stærstum hluta safnast á gáma-
stöðunum, þ.e. garðaúrgangi.
IDAGkl. 12.00
HeknHd: Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurspéki. 16.30 i gær)
Formenn bankaráða ræða
skýrslu Ríkisendurskoðunar
Morgunblaðið/Ingyar Guðmundsson
Gripinn eftir innbrotstilraun
LÖGREGLAN hljóp ungan mann uppi í Breiðholtinu í fyrrinótt, eftir
að hann hafði verið staðinn að tilraun til innbrots í verslunina Breið-
holtskjör við Amarbakka. Til ferða mannsins og félaga hans sást um
kl. 3 um nóttina, en þeir urðu varir við að fylgst var með þeim og
forðuðu sér á hlaupum. Sá sem lögreglan greip reyndist ölvaður. Að
sögn Ómars Smára Ármannssonar, aðstoðaryfírlögregluþjóns, hefur
innbrotum fjölgað um 50% milli áranna 1991 og 1993. Ef innbrotið
í Breiðholtskjör hefði heppnast hefði það orðið hið áttunda á sama
sólarhring í Reykjavík.
SIGHVATUR Björgvinsson við-
skiptaráðherra átti síðdegis í
gær fund með formönnum
bankaráða ríkisbankanna og
Seðlabankans. Ráðherra sagði
að þeir hefðu farið mjög gaum-
gæfilega yfír skýrslu Ríkisend-
urskoðunar um kaup og kjör
bankastjóra bankanna og hann
hafí bent formönnum bankaráð-
anna á að ákvarðanir í þessum
efnum væru á þeirra valdi.
VEÐURHORFUR I DAG, 19. JANUAR
YFIRUT: Skammt norður af Vestfjörðum er985 mb laegð sem hreyfist-
lítið í nótt en fer síðan austur. Á Grænlandshafi er 955 mb lægð.sem
fer austur með suðurströndinni í nótt en síðan norðaustur. Milli Græn-
lands og Labrador er hæðarhryggur sem hreyfist austur.
STORMVIÐVÖRUN: Búist er við stormi á Vesturdjúpi, Norðurdjúpi.Suð-
austurdjúpi, Suðurdjúpi og Suðvesturdjúpi.
SPÁ: Norðlæg átt, allhvöss eða hvöss um tíma norðaustantil á landinu-
en annars yfirleitt goía eða kaldi. Snjókoma með köflum norðaustan-
lands, él vestantii á Norðurlandi og norðantii á Vestfjörðum en bjart
veður að mestu sunnanlands. Frost um allt land.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG: Fremur hæg breytiieg átt og úrkomulítiö fram
eftir degi, en fer svo að snjóa og síðan að rigna vestanlands með vax-
andi suðaustan átt. Minnkandi frost.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Kólnar verulega aftur með suðvestan strekk-
ingi. Éljagangur verður sunnan og vestanlands og sums staðar norðan-
lands og austan í fyrstu, en léttir svo smám saman tíi þar um slóðir.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.4S, 12.45, 16.30, 19.30,
22. 30. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
O <á A
Léttskýjað Hálfskýjað
Heiðskírt
r r r * / * ***
f f * r * *
r f f r * f * * *
Rigning Slydda Snjókoma
Skýjað Alskýjað
V ^ V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Ymdörin sýnir vindstefnu
og flaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 víndstig.
10° Hitastig
Súld
Poka
'J
FÆRÐA VEGUM: <*.
Ftestir þjóðvegir iandsins eru nú færir, en umtalsverð hálka er mjög víða
á vegum landsins. Á Vestfjörðum er jeppafært um Kleiíaheiði og Háldán
og ófært er um Botns- og Breiðadalsheiðar. Möðrudalsöræfi eru færvel
búnum jeppum.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
i grænni línu 99-6315. VegagerðJn.
VEÐUR VIÐA
kl. 12.00 í gær
UMHEIM
að ísi tíma
hiti veður
Akureyri 4 akýjað
Reykjavík r-1 snjóéf
Bergen 2 rigning
Heismki +7 skýjað
Kaupmannahöfn 2 siydda
Narssarssuaq snjókoma
Nuuk +11 skafrenmnguf
Osló +8 skýjað
Stokkhólmur +7 iéttskýjaé
fiórshofn 8 rigning
Algarve 8 léttskýjað
Amsterdam S skýjaé
Barceiona 8 léttskýjað
Beriin 0 snjókoma
Chicago +29 heiðskirt
Feneyjar 8 léttskýjað
Frankfurt +1 léttskýjað
Glasgow 6 rigningogsúid
Hamborg 2 alskýjað
London 6 skýjað
LosAngeles 11 heiðskírt
Liixemborg vantar
Madrid vantar
Malaga 8 atekýjað
Mallorca 10 aiskýjað
Montreal +12 snjókoma
NewYork +1 alskýjað
Oriando 16 alskýjað
Parfe +1 þokumóða
Madeira 1« hálfekýjaö
Róm 13 skýjað
Vín 2 heiðskirt
Washington +6 léttskýjað
Wínnipeg +34 heiðskírt
„Formenn bankaráðanna höfðu
ekki séð skýrsluna fyrr og við fór-
um því mjög gaumgæfilega yfir
hana,“ sagði viðskiptaráðherra í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Hann kvaðst hafa bent þeim á að
allar ákvarðanir í þessum efnum
væru á valdi bankaráðanna.
„Bankaráðin eru þeir aðilar, sem
lögum samkvæmt eiga að taka
þessar ákvarðanir og ég benti for-
mönnum bankaráðanna á að það
væri talsvert mikill munur þama
á milli, mjög víða, jafnframt því
Morgunblaðið/Sverrir
Málin rædd
SIGHVATUR Björgvinsson viðskiptaráðherra með Ágústi Einars-
syni, formanni bankaráðs Seðlabankans, Kjartani Gunnarssyni, for-
manni bankaráðs Landsbankans, og Pálma Jónssyni, formanni bank-
aráðs Búnaðarbankans, á fundinum síðdegis í gær.
sem ég óskaði eftir því við þá að
þeir tækju kaup og kjör banka-
stjórnenda til skoðunar og ræddu
sín á milli um það til hvaða ráða
þeir teldu rétt að gn'pa,“ sagði
Sighvatur.
Jákvæðar undirtektir
Aðspurður um undirtektir bank-
aráðsformannanna þriggja, Kjart-
ans Gunnarssonar, Pálma Jóns-
sonar og Ágústs Einarssonar,
svaraði ráðherra: „Þeir tóku já-
kvætt í það, að fara yfír þessi
mál, bera sig saman og reyna með
einhveijum hætti að taka á mál-
inu.“
Ágúst Einarsson, formaður
bankaráðs Seðlabankans, sagði
við Morgunblaðið í gær, að loknum
fundinum með viðskiptaráðherra,
að í framhaldi þessa yrði skýrslan
rædd í bankaráðunum og síðan
myndu menn taka ákvörðun um
hvemig yrði tekið á þessum mál-
um.