Morgunblaðið - 19.01.1994, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 19.01.1994, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JANUAR 1994 Egill Hauksson jarðskjálftafræðingur við California Institute of Technology Fundur álframlciðcnda Einn stærsti skjálfti undir borgarsvæði í Kalifomíu „ÞETTA er líklega með stærstu skjálftum sem átt hafa sér stað undir borgarsvæði í Kaliforníu. Hreyfingin varð á lóðréttu mis- gengi sem liggur undir San Fern- ando-dalnum, undir talsverðu þéttbýli og því urðu miklar skemmdir á mannvirkjum," sagði Egill Hauksson, jarðskjálftafræð- ingur við California Institute of Technology í Pasadena, háskóla sem sér um jarðskjálftamælingar í Suður-Kaliforníu. Egill sagði að rétt fyrir norðan skjálftasvæðið í fyrradag hefði orðið 6,4 stiga skjálfti í febrúar árið 1971. „Sá skjálfti varð á norðurhlið dalsins á lóðréttu misgengi sem liggur und- ir fjöllin. Þessi skjálfti varð hins vegar á misgengi sem liggur í hina áttina, til suðurs undir dalinn. Það er eins og þama sé hryggur á milli og hefur því skolfið báðum megin á honum.“ „Það er erfitt að tjá sig um það hvort stór Kaliforníuskjálfti sé yfir- vofandi. Það liggja plötuskil í gegn- um Kaliforníu og er San Andreas sprungan hluti þessara skila. Um 15-20% hreyfmga á plötuskilunum eiga sér stað á sprungum sem eru beggja vegna San Andreas, allt að 100 km tii hvorrar handar. Brotna plöturnar þar upp í minni blokkir sem em að hreyfast framhjá hverri annarri í skjálfta sem þessum," sagði Egill. Egill Hauksson sagði að svonefnd- ur stórskjálfti í Kaliforníu, allt að 8 stig á richter, gæti aðeins orðið á 250 til 300 km langri sprangu og væri San Andreas-sprungan því eina sprangan sem slíkur skjálfti gæti orðið á en hún er um 1.000 km. JARDSKJÁLFTAMÆLINGAR Richter-kvaröinn er þekktasti mælikvarðinn á styrkleika jaröskjálfta KRAFTUR JARÐSKJALFTA BHUGSANLEG AHRIF Teningur endurspeglar mismunandi styrkleika jarðskjálfta Tjón af völdum skjálfta ræðst af nálægö borga viö skjálftamiðju og hvers vel byggö hús og mannvirki eru byggð. ► Aberandi sprungur í jörð ► Alvarlegar skemmdir i múr- og tréverki ► Hætta á miklu jarðskriði ► Fólk á erfitt með að standa og stýra bifreiðum Strompar brotna og sprungur koma í húsvepgi ► Leiðslur rifna í sundur; eldhætta ■ Skjálftann finna allir ► Hús hristast, gler brotnar, húsmunir hreyfast úr stað KRT „Jafnvel þótt þessi skjálfti hafi verið 6,6 á richter og valdið miklum skemmdum er hann tiltölulega lítill samanborið við þann stóra. Lengdin á sprungufletinum sem hreyfist í þessum skjálfta var ekki nema 25-30 km eða tíundi hluti þess sem hreyf- ist í þeim stóra.“ Hvað með frekari skjálfta af sömu stærðargráðu og skjálftinn í fyrra- dag? „Það verða eftirskjálftar, það hafa þegar orðið þrír á bilinu 5 til 5,5 stig og slíkir eftirskjálftar geta orð- ið næstu mánuði og ár. Það er ekki hægt segja neitt ákveðið um fram- hald, hvort það verði fleiri svona stórir skjálftar." „Mikið af rannsóknunum sem við stundum núna beinast ekki svo mik- ið að því að geta spáð fyrir um skjálfta því þó hægt væri að segja fyrir um jarðhræringar og flytja alla í burtu stæði eftir sá vandi að allt væri í rúst eftir á. Þá væri ekki hægt að segja fólkinu að fara heim aftur. Þess vegna er miklu meiri áhersla á það lögð í rannsóknunum að reyna að skilja áhrif skjálfta, hvernig þeir hrista setlögin og hvernig bylgjurnar hrista bergið. Þeim upplýsingum er ætlunin að koma til verkfræðinga svo þeir geti hannað byggingar, hraðbrautir og önnur mannvirki á þann hátt að þau geti staðið skjálfta af sér,“ sagði Egill. Egill Hauksson sagði fjölskylduna hafa sloppið vel frá skjálftanum. „Sem betur fer sluppum við alveg við tjón. Húsið okkar er í 30 km fjarlægð frá upptökum skjálftans en hristist ekki mikið þar sem það stendur á föstu bergi en ekki setlög- um. Hús sem byggð era ofan á set- lögum hristast meira en hús á föstu bergi. Setlagabyggð getur orðið mun verr úti þó hún standi í miklu meiri fjarlægð frá upptökum en okkar hús,“ sagði Egill að lokum. Sammála um aðstoð við Rússa Brussel. Reuter. FULLTRÚAR á fundi helstu ál- framleiðsluríkja, sem hófst í Brussel í gær, ræddu hvemig skera mætti heimsframleiðslu á áli niður um tvær milljónir tonna, eða um 10%. Nokkrar þjóðir, ekki síst Bandaríkja- menn og Kanadamenn, lögðu mikla áherslu á að allar tak- markanir, sem yrðu ákveðnar, yrðu að vera í samræmi við sam- keppnislög viðkomandi ríkja. Jorn Keck í framkvæmdastjórn Evrópubandalagsins, sem er í for- sæti á fundinum, vildi ekki tjá sig um viðræðurnar en aðrir fundar- menn sögðu m.a. að Rússar hefðu kynnt áform um að endumýja úr- eltar álbræðslur sínar sem valda mikilli mengun. Allir eru sammála um að grípa verði til einhvetja aðgerða vegna stöðunnar sem kom upp á álmarkaðnum eftir að rúss- neski innanlandsmarkaðurinn hrundi vegna minni hergagna- framleiðslu og Rússar hófu stórút- flutning á áli. Árið 1990 fluttu þeir út 300 þúsund tonn en í fyrra 1,6 milljónir tonna. Hefur hið mikla offramboð leitt til mikilla verð- lækkana. Að sögn vestræns emb- ættismanns voru þó allir sammála um að ekki mætti útiloka Rússa frá heimsmarkaðnum og aðstoða yrði þá við að endurskipuleggja og endurnýja áliðnað sinn. Georgíj Gabúnía, formaður rúss- nesku sendinefndarinnar, sagði áður en fundurinn hófst að draga yrði úr heimsframleiðslu. „Við erum fylgjandi minni framleiðslu en þá verða allir að.leggja sitt af mörkum,“ sagði Gabúnfn. ÚTSALA 10 - 60% AFSLÁTTUR Vetrarfatnaður, skíðagallar, dúnúlpur, »hUfIIinBl^P íþróttaskór, íþróttagallar o.fl. sportbúðin Ármúla 40 ■ Sími 813555 og 813655 Halla Linker, ræðismaður íslands í Los Angeies-borg Ekkí vitað um venilegt tjón hjá íslendingum „HÉR hefur enginn íslendingur orðið fyrir slysum eða alvarlegu tjóni, svo ég viti til. Lausir hlutir brotnað og hjá mörgum er allt brotið og bramlað en þeir sem ég hef rætt við segja það vera dauða hluti sem hægt sé að endurnýja. Fólk er fegið að hafa sloppið lif- andi úr þessu,“ sagði Halla Linker, ræðismaður ísiands i Los Angel- es. Um 300 íslendingar búa í borginni og úthverfum hennar. María Ellingsen, leikkona, sem búsett er í Topanga-dalnum, sem liggur norður af San Fernando-dalnum, þar sem upptökin voru, sagði í gær að eftirskjálftarnir hefðu vanist að degi til en erfitt væri að sofna við stöðuga skjáita. Sagðist hún hafa sofnað á veröndinni heima hjá sér og að nágrannar sínir hefðu Ijaldað í fyrrinótt fremur en að sofa inni. Halla er búsett allfjarri upptök- unum en hún segir háhýsið sem hún býr í hafa sveiflast eins og kólf þegar skjálftinn gekk yfír. „Háhýsi eru hins vegar öraggustu byggingamar þar sem þau era byggð úr stáli. Hér eru sprungur í veggjum og allir lausir munir fóra á gólfið en húsið er öraggt," segir Halla en hún er búsett á 7. hæð. Um leið og skjálftinn reið yfír, fór rafmagnið af og lyftur urðu óvirk- ar. Segist hún hafa haldið sig inn- andyra og kveikt kertaljós. „Ég svaf á pallinum í nótt, gat ekki hugsað mér að vera inni,“ sagði María Ellingsen. Hún býr í trékofa en segist engu að síður hafa viljað vera utandyra, ef annar stór skjálfti riði yfír. Hélt að kofinn myndi færast úr stað „Það var skelfílegt þegar skjálft- inn reið yfir,“ sagði Man'a. „Allt lauslegt þeyttist úr hillum, skriða fór af stað í fjallinu fyrir ofan mig og ég hélt að kofinn myndi bókstaf- lega færast úr stað. Én hann stóð hristinginn af sér. Ég hugsaði bara um að koma mér út, en ég held að flestir hafi sest í dyragættirnar, sem era sagðir öraggustu staðimir í skjálftum. Sumir sátu stjarfír í dyrunuin í alian gærdag.“ Skorsteinninn hrundi Formaður Íslendingafélagsins í Los Angeles, Jóhanna JLewis, segist ekki vita annað en íslendingar í borginni, hafi sloppið ómeiddir og án teljanlegs tjóns. Sjálf er Jóhanna búsett í San Fernando-dalnum, um 8 km frá upptökunum. Hún segir mikið verk bíða fjölskyldunnar við hreinsun en auk lausra muna, hrandi strompurinn á húsi hennar og sprangur era í veggjum. „Lætin vora óskapleg, ég vaknaði við hrist- inginn og hann var svo mikill að ég varð að halda mér í rúmið til að skella ekki á gólfíð. Ég hafði mestar áhyggjur af dóttur minni sem svaf í herbergi þar sem mikið dót var í hillum." Jóhanna hefur verið búsett í Kalifomíu í 17 ár og segist ekki hafa upplifað neitt þessu líkt, þó jörðin hafi áður skolfið í jarðskjálft- um. Fólk sem búi í Kalifomíu verði hins vegar að gera sér grein fyrir hættunni á jarðskjálftum, þó að til- hugsunin um slíkt sé óskemmtileg. Reuter Sofið undir berum himni UM 15.000 manns eru heimilsilausir eftir jarðskjálftann sem reið yfir Los Angeles á mánudagsmorgun. Á myndinni leggst ein af fjöl- mörgum fjölskyldum, sem misstu heimili sín, til svefns í Reseda-garð- inum í borginni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.