Morgunblaðið - 19.01.1994, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 19.01.1994, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 1994 7 og Skriðuhreppur NORÐURLAND Hvammshr. sshreppur VESTUR- Breiðuvíkur- LAND Sjáumst! Kringlan 8-12, sími 686244 i*ff ff Kosið aftur: NORÐURLAND EYSTRA " K Tf II " fl Enn unnið að sameiningu sveitarfélaga 'IRÐIR AvnaHakhrpnnur f t. ¥&■ m xom i í\y> ♦ JL AUSTURLAND Samþykkt í Laxárdalshr., Fellsstrandarhr., Haukadalshr. og Suðurdalahreppur í Ólafsvlk, utan Ennís, hreppur og Staðarsveit Kosið aftur----------- Borgarnes, Borgarhreppur, Stafholtstungnahreppur, Norðurárdalshreppur, Álftaneshreppur og Hraunhreppur Keflavík, Njarðvlk, Hafnahreppur Hðfn, Nesjahreppur og Mýrahreppur SUÐURLAND Kosið aftun Breiðdalshreppur og Stöðvarfjarðarhreppur Sameining sveitarfélaga Önnur umferð áfímmstöðum ÖNNUR umferð atkvæðagreiðslu um sameiningu sveitarfélaga verð- ur í sautján sveitarfélögum á fimm stöðum á landinu í febrúar og mars. Fyrri umferðin hefur nú leitt til ákvörðunar um sameiningu níu sveitarfélaga I tvö og viðræður eru enn í gangi á nokkrum stöðum. Skipstjórinn á Bergvík við sjópróf vegna strandsins í Vöðlavík Telur sig hafa rekið fót- inn í sjálfstýringuna SKIPSTJÓRINN á Bergvík VE 505 telur sig hafa rekið fótinn í sjálfstýringslúsina og breytt stefnu bátsins án þess að verða þess var með þeim afleiðingum að hann strandaði í Vöðlavík 18. desem- ber siðastliðinn. Kom þetta fram í sjóprófum vegna strands skips- ins sem fram fóru hjá héraðsdómara Austurlands á Egilsstöðum. í vitnaleiðslum í sjóprófunum lýsti skipstjórinn, Hörður Þórarinn Magnússon, því að vegna veikina stýrimanns hefðu þeir þurft að hætta veiðum og fara með hann til læknis á Seyðisfirði. Þar var maðurinn skilinn eftir og siglt morguninn eftir áleiðis til Eski- fjarðar þar sem jólafrí var að hefj- ast. Venjuleg siglingaleið Skipstjórinn segist hafa farið af stað frá Seyðisfirði klukkan sjö um morguninn í nokkuð slæmu veðri og slæmu skyggni. Hann segist hafa farið venjulega siglingaleið fyrir Gerpi og skömmu síðar hafi þeir fengið á sig mjög dimmt él svo lítið sem ekkert hafi sést fram á dekkið. Þá hafi dottið út myndin á ratsjánni vegna éljanna. Ekki hafi gengið að fá mynd aftur á hana og þá hafi hann kveikt á hinni ratsjánni, þó hún væri ekki í full- komnu lagi, og reynt að fá mynd á hana. Hann segist hafa setið í stólnum og verið með fótinn uppi á borðinu fyrir framan sig þar sem sjálfstýringshúsið er á meðan hann var að tryggja stefnu skipsins og telur sig hafa rekið fótinn í sjálf- stýringslúsina. Við það hafi orðið stefnubreyting sem hann hafi ekki orðið var við af því hann hafi ver- ið upptekinn við annað. Vélstjórinn sem verið hafði með skipstjóranum í brúnni hafði brugðið sér niður í kaffi og þegar hann varð var við að eitthvað væri athugavert við stefnu skipsins fór hann upp í brú og í sama mund og hann kom þangað kenndi skipið grunns í Vöðlavík. Skipstjórinn segist hafa litið upp þegar vélstjór- inn kom og þá séð sandinn fram- undan eða brotið og sett strax á fulla ferð aftur ábak en það hafi verið of seint. 50 gráðu stefnubreyting Fram kom að fulltrúi Siglinga- málastofnunar telur stefnubreyt- inguna hafa verið að lágmarki 50 gráður. Skipstjórinn var einn í brúnni síðustu 10-20 mínúturnar fyrir strandið og aðspurður í sjóréttinum sagðist hann telja öruggt að hann hafi ekki dottað. Ennfremur neit- aði hann því að verið gæti að hann hafi villst á Vöðlavík og Reyðar- firði. Aðspurður í sjóréttinum játaði Hörður því að eftir á að hyggja hefði verið rétt hjá honum að sigla bæði utar og hægar við þær að- stæður sem þarna voru. Fyrsta atkvæðagreiðslan í ann- arri umferð verður á Suðurnesjum 5. febrúar. Þá greiða íbúar Keflavík- ur, Njarðvíkur og Hafna atkvæði um sameiningu. 19. febrúar verður atkvæða- greiðsla á þremur stöðum, í Mýra- sýslu og á tveimur stöðum á suður- hluta Austurlands. Greidd verða atkvæði um sameiningu Breiðdals- hrepps og Stöðvarhrepps og verði hún samþykkt verða Stöðvarijörður og Breiðdalsvík í sama sveitarfélag- inu. íbúar Hafnar í Hornafirði og tveggja næstu hreppanna, Mýra- hrepps og Nesjahrepps, greiða at- kvæði um sameiningu sama dag. 19. febrúar verður einnig tillaga um sameiningu Borgarness, Borg- arhrepps, Stafholtstungna, _ Norður- árdals, Hraunhrepps og Álftanes- hrepps í Mýrasýslu borin undir at- kvæði. Síðasta atkvæðagreiðslan verður 19. mars þegar íbúar Glæsibæjar- hrepps, Öxnadalshrepps og Skriðu- hrepps í Eyjafirði greiða atkvæði um sameiningu þessara þriggja hreppa. Sameining ákveðin á tveimur stöðum Sameining fjögurra sveitarfélaga undir Jökli á Snæfellsnesi var sam- þykkt í atkvæðagreiðslunni í nóv- ember. Á grundvelli þeirrar at- kvæðagreiðslu hafa hreppsnefndir fimm hreppa í Dalasýslu einnig ákveðið að sameinast eftir sveitar- stjórnarkosningarnar í vor. Viðræður um sameiningu eru í gangi á nokkrum stöðum á landinu. Stærsta málið er hugsanleg samein- ing ísafjarðar, Suðureyrar, Flateyr- ar og fleiri sveitarfélaga í tengslum við Vestfjarðagöngin. -------» ♦ ♦-------- * Forseti Is- lands til Oslóar FORSETI íslands, Vigdís Finn- bogadóttir, heldur áleiðis til Ósló- ar í dag, 19. janúar, þar sem hún tekur þátt í alþjóðlegri umhverfis- ráðstefnu í boði Gro Harlem Brundtland, forsætisráðherra Noregs. Ráðstefnan fjallar um breytingar á framleiðslu- og neysluháttum í iðn- ríkjum heimsins og er haldin í tengls- um við starfsemi umhverfisnefndar Sameinuðu þjóðanna, sem stofnuð var í kjölfar umhverfisráðstefnunnar í Ríó. Forseti heldur fyrirlestur á ráðstefnunni fimmtudaginn 20. jan- úar. Frá Ósló fór forseti til Kaup- mannahafnar þar sem hún heldur annan fyrirlestur á alþjóðlegri ráð- stefnu sem fjallar um margvíslegan þjóðfélagslegan vanda sem steðjar að iðnríkjunum. ívið minni eftirspurn eftir laxveiðileyfum hjá SVFR Heldur minna er sótt í laxveiðileyfi sem Stangaveiðifélag Reykja- víkur hefur á sínum snærum í ár en í fyrra. Uthlutun leyfa stend- ur yfir um þessar mundir og sagði Jón Gunnar Borgþórsson fram- kvæmdastjóri SVFR í samtali við Morgunblaðið að sem fyrr væru þó ákveðin svæði afar vinsæl og nánast uppseld. Nefndi hann sem dæmi Elliðaárnar, Stóru-Laxá í Hreppum og viss tímabil í Norð- urá. Skýringuna á samdrættinum taldi Jón vera þá, að efnahags- ástandið hefði lítið batnað ef nokkuð og svo voru spár um góða veiði fyrir síðastliðið sumar mjög ákveðnar, en meiri óvissa virtist vera nú. Bjarni Júlíusson stjórnarmaður í SVFR sagði að ljóst væri að fé- lagsmenn sæktu mjög í þau svæði þar sem veiðivon væri góð, en verði í hóf stillt. Nefndi hann eins og Jón Gunnar Elliðaár, Stóru-Laxá og júlí og september í Norðurá. Stóra-Laxá vinsæl I „Stóra-Laxá rokselst. Dæmi er svæði 3 sem oft hefur verið þungt í sölu. Það er nú uppselt og færri komast að en vilja á neðstu svæðunum tveimur. Þá er mikil aðsókn á efsta svæðið. Afsláttartil- boðið í tvö af svæðum Sogsins hefur og mælst vel fyrir, svo og sú ákvörðun að bjóða ekki upp á fæði á aðalsvæði Hítarár eða í september á aðalsvæði Norðurár. Þá geta menn verið sáttir við um- sóknir á aðalsvæði Hítarár og í Gljúfurá og Tungufljótið er alltaf jafn vinsælt,“ bætti Bjarni við. mui yiiii Verð frá: . Leggings kr. 790,- Pils kr. 890,- Skyrtur kr. 990,- Buxur kr. 1.190,- Gallabuxurkr. 1.490,- Kjólar kr. 1.990,- Úlpur kr. 1.990,- Jakkar kr. 1.990,- Laugavegi ui, simi 21444.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.