Morgunblaðið - 19.01.1994, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 19.01.1994, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JANUAR 1994 19 Rakel Ósk Halldórsdóttir dró út nöfn vinningshafa í áramótagetraun Morgunblaðsins og eins og sést á myndinni bárust margar lausnir. Dregið í áramótaget- raun Morgunblaðsins Margar lausnir bárust í áramótagetraun Morgunblaðsins. Get- raunin skiptist í barnagetraun, unglingagetraun og fullorðinsget- raun. Þrenn verðlaun eru veitt fyrir hvern flokk auk þess sem allir vinningshafar fá Morgunblaðsúr. Morgunblaðið þakkar les- endum sínum góða þátttöku í áramótagetrauninni. Vinningshaf- arnir sem dregnir voru úr innsendum lausnum eru eftirtaldir: Barnagetraun 1. Viktor og Katrín, 6 ára, Brekkubyggð 45, Garðab. — Skíðavörur að andvirði 15.000 kr. frá Hummel-búðinni. 2. Guðný Pálsdóttir, 7 ára, Neshaga 14, Reykjavík. — Barnabækur að eig- in vali frá Máli og menningu að andvirði 8.000 kr. 3. María Björk Birkisdóttir, 6 ára, Fálkagötu 15, Reykjavík. — Geisladiskar að eigin vali frá Skifunni að andvirði 5.000 kr. Unglingagetraun 1. Kristín María Birgisdóttir, 13 ára, Dalbraut 3, Grindavík. — Fatnaður að eigin vali frá Levi’s-búðinni, Laugavegi, að andvirði 15.000 kr. 2. Bryndís Kristjánsdóttir, 15 ára, Borg- arholti, Biskupstungum. — Bækur að eigin vali frá Máli og menningu að andvirði 8.000 kr. 3. Guðrún Rúnarsdóttir, 15 ára, Hæðargerði 31, Reyðar- firði. — Geisladiskar að eigin vali frá Skífunni að andvirði 5.000 kr. Fullorðinsgetraun 1. Kristín Bjarnadóttir, 50 ára, Smáraflöt 30, Garðabæ. — Nýja Times-Atlas 'bókin frá Máli og menningu. 2. Ellý Guðjohnsen, 35 ára, Reynimel 31, Reykjavík. — Málsverður á Skólabrú að andvirði 10.000 kr. 3. Jón Sigurðsson, 63 ára, Lækjargötu 4, Hvammstanga. — Geisladiskar að eigin vali frá Skífunni að andvirði 5.000 kr. Rétt svör við áramótagetraun Undirmönn- um á tveim- ur Samherja- togurum sagt upp ÖLLUM undirmönnum á Margréti EA og Oddeyri EA, togurum Sam- heija á Akureyri, var sagt upp störfum á mánudaginn. Togararn- ir hafa verið á svokölluðum tvíbur- atrollveiðum undanfarna mánuði og snýst ágreiningurinnum það hvernig skipta eigi aflaverðmæti milli þeirra tveggja skipa sem hlut eiga að veiðum hveiju sinni. Eng- inn kjarasamningur hefur verið i gildi um slíkar veiðar og viðræður um mmálið sigldu í strand sl haust, að sögn Konráðs Alfreðssonar for- manns SJómananfélags Eyjafjarð- ar. Engar viðræður hafa farið fram í deilunni. Þorsteinn Már Baldvinsson framkvæmdastjóri Samheija sagðist ekki skilja hvert sjómannafélagið væri að fara í þessu máli. „Við munum skoða okkar mál í rólegheitunum, en töldum okkar skylt að segja upp undirmönnunum upp á meðan staðan er eins óljós og hún er,“ sagði Þorsteinn. Forsvarsmenn Sjómannafélags Eyjafjarðar kröfðust þess á mánu- daginn að gert yrði upp við sjómann samkvæmt samningum sem gilda fyrir frystitogara en því vildu Sam- heijamenn ekki una að sögn Konráðs Alfreðssonar. „Afli er miklu meiri í þessum veiðum en ekki bætt við mannskap um borð. Vinnuálagið hef- ur því aukist en sjómenn bera minna úr býtum,“ sagði Konráð. Áhöfn þess skips á tvíburatrollveið- um sem tekur aflann um borð hefur fengið rúm 80% í sinn hlut, en innan við 20% hafa komið í hlut dráttarbáts- ins, þ.e. til að greiða laun og rekst- ur. Þorsteinn Már Baldvinsson sagði að síðastliðið sumar þegar skipin skiptust á að taka trollið um borð hefði verðmæti verið skipt jafnt milli áhafna skipanna. Nú væri það ein- göngu annað skipið sem tæki aflann. „Við höfum haldið því fram að miðað við þann árangur sem við höfum náð við þessar veiðar hafi mannskapurinn fengið allt að 50% hærri laun, en ef þeir hefðu verið einir. Við teljum því að um verulega kauphækkun sé að ræða, en auðvitað er einnig um meiri vinnu að ræða,“ sagði Þorsteinn. -------------------- Iðnaðarnefnd í heimsókn IÐNAÐARNEFND Alþingis undir forsæti Svavars Gestssonar mun eiga fund með fólki í atvinnuleit í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju í dag, miðvikudag, en þar er opið hús milli kl. 15 og 18. Þess er vænst að sem flestir sem nú eru án atvinnu noti þetta tæki- færi til að hlýða á mál nefndarmanna þegar staða iðnfyrirtækja í bænum og atvinnusköpun í iðnaði verða sér- staklega til umræðu, en sennilega hafa fáir ef nokkrir staðir á landinu misst jafn mörg störf í þjónustu- og úrvinnsluiðnaði og Akureyri á undan- förnum árum sem án efa ræður mestu um það mikla atvinnuleysi sem þar er nú. Reiknað er með að nefndarmenn komi í Safnaðarheimilið kl. 16 og munu fulltrúar hefja umræðuna og síðan svara fyrirspurnum. Samverustundin hefst kl. 15 og verður þá kaffi og brauð á borðum þátttakendum að kostnaðarlausu. Allir eru velkomnir, bæði þeir sem eru án atvinnu og þeir sem sérstakan áhuga hafa á málefnum iðnaðarins og vilja heyra hvað iðnaðarnefnd hefur fram að færa. Ýmis gögn liggja frammi í miðstöð- inni fyrir fólk í atvinnuleit, en nánari upplýsingar eru gefnar í síma milli kl. 15 og 17 á þriðjudögum og föstu- dögum. Barnagetraun, 5-11 ára 1. ÍBK varð íslands- og bikarmeistari bæði í karla- og kvennaflokki. 2. Pabbi Ronju ræningjadóttur heitir Matthías. 3. Kvikmyndin um risaeðlur sem vakti at- hygli heitir Júragarðurinn. 4. Svala Björk Arnardóttir var kjörin feg- urðardrottning ársins 1993. 5. Rússar urðu heimsmeistarar í handknatt- leik karla á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð. 6. Guðmundur Árni Stefánsson tók við embætti heilbrigðisráðherra. 7. Læðan sem ofsækir Högna hrekkvísa heit- ir Bína brjálaða. 8. Rússneska þinghúsið er kallað Hvíta húsið. 9. Hljómsveitin sem Stefán Hilmarsson stofn- aði á árinu heitir Pláhnetan. 10. Barnsfaðir Whitney Houston heitir Bobby Brown. Unglingagetraun, 12-17 ára 1. Bandaríski kvikmyndaleikarinn ungi sem lést á síðasta ári—heitir River Phoenix. 2. 1. desember síðastliðinn voru liðin 75 ár frá því íslendingar urðu fullvalda þjóð. 3. Þórður Guðjónsson, ÍA, gerði flest mörk í fyrstu deild karla í knattspyrnu. 4. Hermann kvaddi á síðasta ári vegna þess að höfundur hans gat ekki haldið áfram að teikna af heilsufarsástæðum. 5. Svæðið þar sem íslendingar stunduðu umdeildar fiskveiðar er kallað Smugan. 6. Þorbergur Aðalsteinsson hyggur á framboð í borgarstjórnarkosningum fyrir Sjálfstæðis- flokkinn. 7. Það þótti athyglisvert við samdrátt Naruhit- os krónprins Japans og Masako Owada að hún var lengi treg til en prinsinn gafst ekki upp heldur hringdi á nóttu sem degi uns hún féllst á stefnumót. 8. Bandarískir löggæslumenn sátu í tvo mán- uði um sértrúarsöfnuð Davids Koresh. 9. Julia Roberts og Lyle Lovett voru ber- fætt er þau giftust. 10. Þjóðverjar urðu heimsmeistarar í hand- knattleik kvenna. Fullorðinsgetraun, 18 ára og eldri 1. Buckingham-höll var opnuð til sýnis al- menningi. 2. Aflinn í Smugunni á síðasta ári varð 9.000 tonn. 3. Jóni Sigurðssyni bauðst bankastjórastaða í Norræna fjárfestingabankanum. 4. Fyrstur útlendinga til að klæðast landsliðs- peysunni í knattspyrnu varð Izudin Daði Dervic. 5. Það var landsliðið undir 21 árs í hand- knattleik sem varð Norðurlandameistari í ágúst. 6. Kristján Helgason varð heimsmeistari unglinga í snóker. 7. Skorað var á Vigdísi Finnbogadóttur að undirrita ekki lög um EES. 8. Það var rafmagnsleysi sem olli því að ekki var hægt að afgréiða viðskiptavini ÁTVR fyrir sex dag nokkurn í febrúar síðastliðnum. 9. Það var auglýsing um að blöð Samútgáf- unnar væru góð páskalesning sem varð forstöðumanni Betels tilefni til að lýsa því yfir að um ferlegan páskaboðskap væri að ræða. 10. Það sem varð konunum tveimur að falli sem Bill Clinton ætlaði að tilnefna til embætt- is dómsmálaráðherra var að þær höfðu ráð- ið ólöglega innflytjendur til að gæta barna sinna. 11. Toni Morrisson hlaut bókmenntaverð- laun Nóbels. 12. Það var talið hafa úrslitaáhrif á andrúms- loftið við samningaborð ísraela og Palestínu- manna að fjögurra ára gamall sonur sátta- seinjarans var jafnan með föður sínum. 13. Eiginkona bandaríska varaforsetans heit- ir Tipper Gore. 14. Nýjasta kvikmynd Hrafns Gunnlaugsson- ar heitir Hin helgu vé. 15. Ólympíuleikarnir árið 2000 verða í Sydn- ey í Ástralíu. 16. Póstur og sími kennir hugbúnaði frá Ericsson um tíðar bilanir. 17. Sýning á verkum Auguste Rodins var sett upp á Kjarvalsstöðum. 18. Ágreiningurinn um debetkortin snýst um það að kaupmenn telja þjónustugjöld banka of há. 19. Sá fatlaði íþróttamaður sem á árinu var valinn til að keppa í landsliði ófatlaðra íslend- inga er Geir Sverrisson. 20. Það varð danska forsætisráðherranum að falli að hann þagði yfir upplýsingum í Tamílamálinu svokallaða. 21. Nýja platan hennar Bjarkar Guðmunds- dóttur heitir Debut. (Fréttatilkynning.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.