Morgunblaðið - 19.01.1994, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 19.01.1994, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JANUAR 1994 9 Ný sending frá Frakklandi Utsalan áfram á haustvörum. TESS NE NEÐST VIÐ DUNHAGA, S. 622230. Opiðvirka daga kl.9-18, laugardaga kl. 10-14. Eitt áreiðanlegasta spamaöarformiö í þrjá áratugi í nærri þrjá áratugi hafa spariskírteini ríkissjóðs verið ein öruggustu verðbréfin á markaðnum. Og þau eru alltaf jafn vinsæl sparnaðarleið enda fá verðbréf sem standa þeim jafnfætis í öryggi, arðsemi og sveigjanleika: Þú getur komið í Þjónustumiðstöö ríkisverðbréfa og keypt spariskírteini fyrir litlar sem stórar fjárhæðir í almennri sölu. Þú getur tekið þátt í mánaðarlegum útboðum á spariskírteinum með aðstoð starfsfólks Þ j ónustumiðstöð varinnar. Þú getur keypt spariskírteini í mánaðarlegri áskrift og þannig sparað reglulega á afar þægilegan hátt. Gulltryggðu sparnaðinn með spariskírteinum ríkissjóðs. ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ RÍKISVERÐBRÉFA Hverfisgötu 6, sími 91-626040 Indriði Pálsson, stjórnarfor- maður Hf. Eimskipafélags ís- lands. Öryggi og forræði f siglingum Eimskipafélag íslands, hlutafélag, var stofnað 17. janúar 1914. Markmiðið var, eins og Indriði Pálsson stjórnarformaður félagsins komst að orði á 80 ára afmæli félagsins, „að tryggja íslandi frelsi, öryggi og forræði í samgöngum til og frá landinu". Aflgjafí framfara Indriði Pálsson komst m.a. svo að orði í 80 ára afmælisfagnaði Eimskips: „A þessu ári minnumst við Islendingar stórra sögulegra viðburða hér á iandi. Ber þar að sjálf- sögðu hæst 50 ára afmæli lýðveldisstofnunar á Is- landi, þann 17. júni 1944. í dag erum við hér saman komin til að minn- ast þess merka atburðar þegar íslenzka . þjóðin sameinaðist hinn 17. janú- ar 1914 um stofnun Hf. Eimskipafélags Islands. Þessi atburður markaði þáttaskil í baráttu íslend- inga fyrir sjálfsforræði í siglingum til og frá land- inu og varð þegar í upp- hafi mikill aflgjafi í öllum framfara- og hagsmuna- málum þjóðarinnar. Þetta var áfangi að fullveldi hennar og síðan stofnun lýðveldisins ... Fámennur hópur dugn- aðar- og hugsjónamanna fékk tilliðs við sig mikinn fjölda Islendinga, austan hafs og vestan, úr öllum stéttum og starfsgrein- um, neitaði að lúta lengur forsjá erlendra manna og stofnaði fyrsta almenn- ingshlutafélagið á íslandi, Hf. Eimskipafélag ís- lands. Það sem réði úrslitum hversu vel til tókst var frelsisþrá og samstaða þjóðarinnar, ásamt mark- vissri forystu þeirra, sem í fylkingarbrjósti stóðu. Siglingar eru eyþjóð nauðsyn „Saga siglinga íslend- inga er jafngömul sögu þjóðarinnar. Þeir sem landið námu voru braut- ryðjendur í sjóferðum þess tima. Þamúg tengj- ast uppruni Islands- byggðar og upphaf sigl- inga óijúfanlegum bönd- um ... Þeir fnnnkvöðlar sem á öðrum áratug þessarar aldar stóðu að undirbún- ingi og stofnun Eimskipa- félagsins sýndu um flest einstætt frumkvæði og hyggindi. Þetta kemur skýrt fram í stofnskrá Eimskipafélagsins en þar segir meðal annars: Þá verður ferðum sljómað af innlendum mönnum, sem þekkja landíhagi og þarfir við- skiptalífs vors.“ Þvi má segja að allt frá stofnun félagsins hafi leiðai'ljós stjórnenda ver- ið að sinna þörfum og óskum viðskiptavina sinna hér á landi ...“. Samskiptin við umheiminn mikilvæg „Á undanförnum miss- erum hafa miklar breyt- ingar átt sér stað í átt til aukins frelsis í samskipt- um og viðskiptum milli landa. Vindar frelsis hafa á ný leikið um þjóðir, sem áður voru hnepptar í viðj- ar áætlunarbúskapar og miðstýringar. Þessum þjóðum hefur famast misjafnlega vel á leið sinni til bættra lífskjara á forsendum lýðræðis og markaðsbúskapar. Okkur íslendinga skiptir þessi þróun miklu máli. Við verðum ávallt að gæta hagsmuna okkar i samskiptum við aðrar þjóðir. I aukinni sam- keppni er áriðandi fyrir íslenzkt atvinnulíf að eiga öflugt, sveigjanlegt og hagkvæmt flutningafyr- irtæki, sem stjómað er af íslendingum sjálfum. Slíkt fyrirtæki vill Eim- skipafélagið vera ...“ Farvegur milliríkja- viðskipta „Markmið Eimskipafé- lagsins er að veita við- skiptavinum sinum trausta og hagkvæma flutningaþjónustu hér á landi og erlendis og auð- velda þeim þannig að ná betri árangri í viðskipt- um, sjálfum sér og þjóð- inni allri til heilla og hags- bóta. Ég vænti þess að Eimskipafélagsins biði mörg og stór verkefni í framtiðiimi. Þau ber að leysa með nýtingu þeirrar þekkingar og af þeirri hagkvæmni, sem bezt er fáanleg á hveijum tíma, þar sem atorka, framsýni og hagsmunir hluthafa, viðskiptavina og þjóðar- innar allrar em hafðir að leiðarljósi. En það verk- efni sem ávallt mun skipa öndvegi þjá félagjnu er: Að tryggja íslandi frelsi, öryggi og forræði í sam- göngum tíl og frá land- inu.“ ■ FYRSTA konukvöldið í Her- kastalanum einkennist af líkam- legri og andlegri hollustu á nýbyij- uðu ári þar sem m.a. næringafræð- ingur kemur í heimsókn. Konu- kvöldið er miðvikudaginn 19. janúar kl. 20.30. Ólafur Sæmundsson, næringafræðingur sem starfar hjá Mætti heldur fyrirlestur um áhrif mataræðis. Sæunn Þórisdóttir flytur hugvekju og mikið verður um söng. Einnig verða veitingar og happdrætti. ■ GRIKKLANDS VINA FÉLA G- IÐ Hellas heldur fund í Kornhlöð- unni við Bankastræti fimjnmtu- daginn 30. janúar kl. 20.30. Á fund- inum mun Svavar Hrafn Svavars- son flytja erindi um sófistana forngrísku. Svavar stundar nú framhaldsnám við háskóla í Banda- ríkjunum í klassískum fræðum og hefur einnig að undanförnu kennt þau sem stundakennari við Háskóla Islands. Á fundinum munu einnig verða kynntar áætlanir um ferðir til Grikklands sem félagið hyggst gangast fyrir á sumri komanda. Aðgangur er öllum heimill. SPEGILSJÓÐIR VÍB Oryggi frá upphafi til framtíðar Við ávöxtun verðbréfasjóða VIB hefur jafnan verið lögð megináhersla á öryggi, stöðugleika og góða ávöxtun. Stærstur hluti eigna sjóðanna er þannig ávaxtaður í skuldabréfum ríkis, sveitarfélaga og banka. ArsraUnávöxtun verðbréfasjóðanna hefur að meðaltali verið 8,2% síðastliðin fimm ár og stuðla lækkandi vextir undanfarið að áframhaldandi góðri ávöxtun sjóðanna. Hægt er að innleysa sjóðsbréfm hvenær sem er án innlausnargjalds. Þess í stað er greitt upphafsgjald við kaup í sjóðina. Bréfin eru fáanleg í hvaða einingum sem er. Spegilsjóðir VIB henta best til ávöxtunar sparifjár í eitt ár eða lengur. Ráðgjafar VIB veita frekari upplýsingar um SpegilsjóM VIB og einnig er hœgt ab fá sendar uppljsingar ípósti. Verið velkomin í VIB! VlB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. • Aðili að Verðbréfaþingi Islands • 1 Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími: 68 15 30. Myndsendir: 6815 26.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.