Morgunblaðið - 19.01.1994, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 19.01.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JANUAR 1994 17 Morgunblaðið/Júlíus Bíll valt ofan ílæk KONA slasaðist þegar bíll, sem hún ók eftir Hafnarfjarðarvegi, valt yfir vegrið og hafnaði á hvolfi ofan í Kópavogslæknum. Þetta gerðist um klukkan 15. Konan, sem ók bílnum, var flutt á slysadeild með sjúkrabíl. Að sögn læknis á slysadeild var hún ekki mikið slösuð og fékk að fara heim að lokinni skoðun og aðhlynningu. Prófkjör Sjálfstœðisflokksins veijum STERKA foryst • Skrifstofa stuðninysmanna ■ Vesturgötu 2. (Álafosstiúsinu) ■ • Símar 16560 og 16561 - Opið 10-22 - STARFSEMI Stjórnarnefndar um almenningssamgöngur hef- ur verið flutt í gamla Morgun- blaðshúsið í Aðalstræti 6, og að sögn Sveins Andra Sveinssonar formanns nefndarinnar hefur að minnsta kosti í bili verið horfið frá því að innrétta hús- næði undir starfsemina í Mjótld eins og til stóð. Sveinn Andri sagði að ástæða þess að horfið hefði verið frá því að innrétta húsnæði undir starf- semi nefndarinnar í Mjódd væri sú að viðræður um hugsanlegt samstarf við Almenningsvagna BS væru að hefjast. Stjórnarnefnd um almennings- samgöngur gegnir því hlutverki að viðhalda og móta almenna stefnu í samgöngumálum. Auk þess annast hún samskipti við stjóm Strætisvagna Reykjavíkur hf. fyrir hönd borgaryfirvalda og tekur allar ákvarðanir varðandi fargjöld og leiðakerfi strætis- vagna. Rýmt fyrir Lýðveldis- garðinum BORGARRÁÐ samþykkti í gær sölu á húsinu að Hverfisgötu 23, en þar á lóðinni á svonefnd- ur Lýðveldisgarður að vera. Húsið verður flutt á lóðina að Vesturgötu 5A. Tuttugu og eitt tilboð barst í húsið, en það var selt þeim sem átti þriðja hæsta tilboð, eftir að tveir hæstbjóðendur höfðu dregið tilboð sín til baka. Söluverð húss- ins er 1,9 milljónir króna. Húsið verður flutt að Vesturgötu fyrir 1. mars. Ingu Jónu f sætlð Stuðningsmenn Nýr formaður Kvikmyndasjóðs Uthlutunar að vænta fyrir helgí NÝSKIPUÐ stjórn Kvikmyndasjóðs hittist í hádeginu í dag til að fjalla um starfs- og fjárhagsáætlun sjóðsins á árinu. í framhaldi af því kemur úthlutunarnefnd saman og síðan hittist hópurinn allur og tilkynnir hvaða verkefni hljóta styrki. Það verða þó varla mörg þeirra 132 sem sótt var um fjármagn til, sjóðurinn hefur væntan- lega rúmar fimmtíu milljónir til úthlutunar. Vilhjálmur Egilsson alþingismaður var í gær skipaður formaður stjórnar hans. Menntamálaráðherra skipar arinsson, Ingibjörg Briem og stjórn Kvikmyndasjóðs á þriggja ára fresti með hliðsjón af tillögum aðildarfélaganna fjögurra. For- manninn finnur hann síðan án til- nefningar. Það tók nokkurn tíma í þetta sinn og því hefur úthlutun dregist, en miðað hefur verið við 15. janúar. Anna María Karlsdótt- ir starfsmaður kvikmyndasjóðs segir líkur til að skýrt verði frá niðurstöðu úthlutunarnefndar á morgun eða föstudag. í stjórn Kvikmyndasjóðs sitja auk formannsins Ari Kristinsson, Samtökum kvikmyndaframleið- enda, Eiríkur Thorsteinsson, Fé- lagi kvikmyndagerðarmanna, Ein- ar Kárason, Bandalagi íslenskra listamanna, og Jón Ólafsson, Fé- lagi kvikmyndahúsaeigenda. I út- hlutunarnefnd, sem starfað hefur frá því umsóknarfrestur rann út í miðjum nóvember, sitja Árni Þór- Ragnheiður Steindórsdóttir. Framlög lækka Framlög til Kvikmyndasjóðs af fjárlögum ársins lækkuðu um tíu milljónir króna frá fyrra ári, úr 111 í 101 milljón. Að auki er nú gert ráð fyrir að sjóðurinn kosti rekstur Kvikmyndasafnsins, sem fram til þessa hefur fengið sérstaka fjár- veitingu. Hún nam 8,7 milljónum 1993 og nú gæti safnið þurft 9,9 milljónir samkvæmt upplýsingum blaðsins. Þar með færðust pening- ar sjóðsins niður í 91 milljón og ýmsir liðir koma þá til frádráttar þar til rúmar fimmtíu milljónir standa eftir til úthlutunar. Stjórnarnefnd um al- menningssamgöngur Starfsemin flutt í Aðal- stræti 6

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.