Morgunblaðið - 19.01.1994, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 19.01.1994, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 1994 41 Upplýsing- ar óskast VIÐ óskum eftir upplýsingum um heimilisfang Sigurðar Th. Þorlákssonar í sambandi við 25 ára afmæii Myntsafnarafélags íslands, hann var stjómarmað- ur og stofnandi Myntsafnarafé- lagsins. Við vitum að hann er búsett- ur einhversstaðar í Kaup- mannahöfn. Við félagsmenn í MÍ viljum votta honum virðingu og þakklæti okkar fyrir velunn- ið brautryðjanda starf í þágu Myntsafnarafélagsins, og óska honum og félaginu alira heilla með aldarfjórðungs starfið. Félagsmenn í Myntsafnara- félagi íslands, pósthólf 5024, Reykjavík. Framboð og lítarháttur Frá Hrafni Ingimundarsyni: ÁSTÆÐAN fyrir þessum skrifum mínum er sú að þriðjudaginn 11. jan. síðastliðinn hlustaði ég á þátt Hallgríms á Bylgjunni, og því mið- ur skammaðist ég mín fyrir að vera íslendingur þegar sumir hlustendur hringdu inn og tjáðu sig um framboð Amal Rún í próf- kjöri Sjálfstæðisflokksins. Það er ákaflega hættuleg og lágkúruleg umræða þegar litar- háttur, sómalskur uppruni, staða eða sex ára ríkisborgararéttur skipta orðið aðalmáli. Maður spyr sig hvað hefur brugðist í uppeldi okkar. Allir sem búa og starfa á ís- landi eru hluti af samfélaginu og varðar hvemig því er háttað. Því fleiri sem gefa kost á sér til starfa fyrir samfélagið því betra. Ég hef þá skoðun að flest af því fólki sem gefur kost á sér í pólitík vilji samfé- laginu vel, þótt skoðanamunur sé um leiðir. Því á umræðan að vera á á pólitískum grunni í stað þess að níða og rægja það fólk sem vill starfa í okkar þágu. Vilji fólk hafa áhrif á listann er um að gera að taka þátt í prófkjörinu. Lýðræðislegri getur svona listi varla orðið. Reyndar fínnst mér það að Amal Rún skuli bjóða sig fram staðfesta þá skoðun mína að Sjálfstæðisflokkurinn sé breiðfylk- ing sem rúmi alla. HRAFN INGIMUNDARSON, Brekkubyggð 32, Garðabæ. Pennavinir FJÓRTÁN ára Ghanapiltur sem safnar barmnálum, límmiðum, út- lendum peningaseðlum og frímerkj- um: Frank Nyedwalah, P.O. Box 26, KAde, E/Region, Ghana. FINNSK 22 ára stúlka vill skrifast á við 20-24 ára stúlkur. Knstiina Isomaki, Lammelantie 41, 29750 Pohgjansaha, Finland. SAUTJÁN ára Tanzamupiltur með áhuga á kvikmyndum, tónlist, dansi, sundi og náminu sem hann stundar: Fortunatus Paschal, Mawenzi Sec. School, Box 478, Moshi, Tanzania. EINHLEYPUR 35 ára bandarískur karlmaður, bindindismaður á áfengi og tóbak og býr skammt frá höfuð- borginni, vill skrifast á við 25-40 ára einhleypar konun Mark Davenport, 4105 Fielding St., Alexandria, Virginia 22309, U.S.A. VELVAKANDI UPPLYSINGAR ÓSKAST Á ÁRUNUM 1948 og 1949 var Aðalbjörg M. Kjerúlf sjúklingur á lyflækningadeild Landspítal- ans. Þeir sem muna eftir henni þar eru beðnir að hringja í síma 97-12031. TAPAÐ/FUNDIÐ Fflófax tapaðist FILÓFAX tapaðist í strætisvagni í norðurbænum í Hafiiarfirði þriðjudaginn 11. janúar sl. Finnandi vinsamlega hringi í síma 50602. Eyrnalokkur tapaðist EYRNALOKKUR tapaðist, gyllt- ur með marglitum kúlum á, á Nesvegi eða Selbraut miðviku- daginn 12. janúar. Eigandinn saknar eymalokksins sárlega og er finnandi vinsamlega beðinn að hringja í síma 23736. Fundar- laun. Til viðskiptavina Þvottahúss A. Smith ÞVOTTAHÚS A. Smith við Berg- st^ðastræti vill koma eftirfarandi á framfæri: Viðskiptavinir okkar sem sótt hafa dúka til okkar dag- ana 7. janúar til 14. janúar eru vinsamlegast beðnir að athuga í pakkana sína hvort þar gæti ver- ið dúkur sem óvart fór með, en þið eigið ekki. Dúkurinn, sem er 2,15 m á lengd, er handsaumaður grískur dúkur úr mjög þunnu líni. Hans er sárlega saknað af eiganda sín- um. Síminn í þvottahúsinu er 17140. Hálfesti tapaðist GYLLT hálsfesti tapaðist fimmtudaginn 6. janúar sl. á gönguferð um vesturbæinn. Finnandi vinsamlega hafi sam- band í síma 13977 um helgar, Gullhringur týndist FALLEGUR gullhringur týndist sl. laugardagskvöld á leiðinni frá Fjörukránni og upp á Brekkugötu í Hafnarfirði. Finnandi vinsam- lega hringi í síma 654387. Gleraugu töpuðust KRINGLOTT gulllituð gleraugu með brúnu plasti á spöngum töp- uðust í Ingólfskaffi sl. föstudag. Missir þeirra er tilfinnanlegur fyrir eigandann því í þeim eru sérstök og sérpöntuð sjóngler. Hafí einhver fundið gleraugun er hann vinsamlega beðinn að hringja í síma 626530 á daginn eða í síma 26648 á kvöldin. Fund- arlaun. GÆLUDYR Labrador/Golden Retriever hvolpar FTMM 6 vikna gamlir hvolpar af Labrador/Golden Retriever kyni fást gefins. Einungis góð heimili koma til greina. Upplýsingar eru í síma 674627. Síamsköttur tapaðist SÍAMSKÖTTUR, bluepoint, tap- aðist frá Hlíðarhjalla 53 föstu- daginn 14. janúar sl. um fimm- leytið. Hann er eymamerktur, Y-3054. Þeir sem hafa séð hann eða vita hvar hann er eru vinsam- lega beðnir að hringja í vinnusíma 629470 eða heimasíma 46170. Ólöf. Læða tapaðist SVÖRT ómerkt læða, 17 ára gömul, hvarf frá Hraunhoiti við Álftanesveg þann 13. janúar sl. Hún er feldþykk, kringluleit í framan og sum veiðihárin orðin grá. Hafi einhver orðið hennar var er hann vinsamlega beðinn að hafa samband í síma 657221 eftir vinnutíma. Þursi týndist frá Álftanesi ÞURSI er brúnbröndóttur högni og fór frá Álftanesi þann 9. jan- úar sl. Þegar hann hvarf var hann með rauða og gráa ól með jámhólk, en merkimiðinn og skrúfan vom dottin úr honum. Hann þekkir nafnið sitL Allir þeir sem hafa orðið ferða hans varir eru beðnir að láta Guðrúnu eða Rafn, Sjávargötu 28, Álfta- nesi, vita og síminn hjá þeim er 652309. Köttur á flækingi ÞESSI fressköttur hefur verið á flækingi neðst á Laugateigi og Hofteigi síðan í haust. Eins og sjá má er hann bröndóttur ofan á höfði, á rófu og á baki en hvít- ur á kvið og fótum. Hann mjálm- ar óvenju hátt. Upplýsingar fást í síma 681153. Kosningaskrifstofa Júlíus Hafstein borgar- fulltrúi hefur opnað kosningaskrifstofu vegna prófkjörs sjálfstæðismanna 30. og 31. janúar nk. á Suðurlandsbraut 50 (bláu húsi við Faxafen). Skrifstofan er opin mánudaga til föstudaga kl. 14-22 en laugardaga og sunnudaga kl. 13-18. Sími681056. Styðjum Júlíus í 2. sætið Stuðningsmenn. Hailarmúla • Kringtunni • Austurstræti KÍNAKVÖLÞ verður á Sjanghæ, Laugavegi 28, fimmtudaginn 20. janúar kl. 19.00. Unnur Guðjónsdóttir, balleltmeistari, sér um dagskrá, sýnir kínverskan „konkúbínuu dans og Tai-Chi Juan og í* myndir frá Kína auk þess sem hún kynnir ferðir til Balí - Ástralíu - Singapúr í febrúar og til Kína 13. maí. Gómsæt fjögurra rétta kínversk máltíð verður borin á borð en verðið er kr. 1.200,- á mann. Borðapantanir hjá Sjanghæ. MstsÖlublad á hverfwn degi!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.