Morgunblaðið - 19.01.1994, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 19.01.1994, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 1994 Frumsýning HERRA JONES Jann - hvatvís, óábyrgur, ómót- stæðilegur. Hún - vel gefín, virt, einlæg. Þau drógust saman íins og tveir seglar en hvorugt hugsaði um afíeiðingarnar. Mr. Jones er spennandi en umfram allt góð mynd m óvenjulegt efni. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.10. Í NÝJU OG STÓRGLÆSILEGU STJÖRNUBÍÓI Öld sakleysisins JANIEL U.Vi-UVv'IS MiCHfil? rfilfHR WiNONA kvDLR fcu:íc \ k:»T tiiiXM: KtflKH rtCIOU gerð eftir Pulitzer-verðlaunaskáld- sögu Edith Wharton. Besta mynd ársins. “ A.I.MBL.+ + +H.K.DV ★ ★ ★ RÚV. Tilnefnd til 4 Golden Globe-verðlauna. DANIEl DAY-LEWIS, MICHELLE PFEIFFER OG WINONA RYDER i STÓRMYND MARTINS SCOR- SESE. EINSTÖK STÓRMYND SEM SPÁÐ ER ÓSK- ARSVERÐLAUNUM. Sýnd kl. 4.45 og 9. gWWfflWtfglTff! Sýnd kl. 7.10 og 11.30. PTTTgTTTT ISLENSKA OPERAN sfmi 11475 eftir Pjotr I. Tsjajkovskí. Texti eftir Púshkín í þýðingu Þorstéins Gylfasonar. Sýning laugardaginn 22. janúar kl. 20. Sýning laugardaginn 29. janúar kl. 20. Miðasalan er opin frá kl. 15-19 daglega, sýningardaga til kl. 20. Sími 11475 - Greiðslukortaþjónusta. MUNIÐ GJAFAKORTIN OKKAR! Héðlntiítlni, Seliavegl 2, S. 12233 • KONUR OG STRIÐ i verkum Aristófanesar, Evripídesar og Sófóklesar. Leikstjóri Marek Kostrewski 4. sýn. fim. 20/1 kl. 20. Sýn. lau. 22/1 kl. 20. Sýn. sun. 23/1 kl. 20. Miðapantanir allan sólarhringlnn. Simi 12233. Leiðin til fyrir- heitna landsins Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Bíóborgin/Bíóhöllin Leikstjóri Clint Eastwo- od. Handrit John Lee Hancock. Kvikmynda- taka Jack N. Green. Klipping Joel Cox. Tón- list Lennie Niehaus. Sviðsmynd Henry Bumstead. Aðalleikend- ur Kevin Costner, Clint Eastwood, Laura Dern, T.J. Lowther, Keith Szarabajka. Bandarísk. Warner Bros 1993. Eftir velheppnaðan flótta tekur strokufanginn Butch Haynes ásamt fé- laga sínum (Keith Szarabajka) hinn sjö ára gamla Philip (T.J. Lowt- her) í gíslingu. Butch verð- ur fljótlega að losa sig við félagann en með Butch og Philip myndast sérstæð vinátta. Glæpamaðurinn sér ýmislegt í fari drengs- ins sem minnir á hans eig- in, ömurlegu æsku og með þeim tekst nánast föð- ur/sonarsamband. Þessi óvenjulegi félagsskapur lendir í ýmsum ævintýrum á æsilegum flótta undan réttvísinni þar sem Red Garnett (Clint Eastwood) fer í fararbroddi, gamal- reyndur lögreglumaður sem hafði átt þátt í að koma Haynes undir manna hendur á árum áður. Leið þeirra, en Haynes hyggst flýja til Alaska, liggur að síðustu á bóndabæ þar sem þeir fá næturgistingu. Þar gerast þeir atburðir sem leiða til endalokanna, víðsfjarri fyrirheitna land- inu. Lengst af er Fullkominn heimur á léttari nótunum, stundum meinfyndin þó með ísköldum undirtón sém kemur uppá yfírborðið í örfáum atriðum. En á bóndabænum lætur Eastwood sprengjuna falla og gamanið gránar. Nokk- ur, einföld atriði sýna okk- ur inní heim sjúks manns sökum langvarandi betrunarhúsavistar en þó fyrst og fremst ömurlegrar bernsku í New Orleans þar sem mamman vann fyrir sér á hóruhúsi og faðirinn var ofbeldisfullur smá- glæpamaður sem yfírgaf mæðginin meðan sonurinn var á barnsaldri. Þetta skýrir Eastwood inná býl- inu þar sem húsbóndinn leggur hendur á ungt barnabarn sitt og gamal- kunn kreóla-danstónlist er sett á fóninn. Hér knýr fortíð Haynes dyra, í þessu magnaða atriði er persón- an útskýrð og hvorki leik- stjóranum né leikurunum fatast. Hér breytir myndin gjörsamlega um stefnu frá því að vera kunnugleg og kaldhæðin, oft gamansöm spennumynd í háalvarleg- an sálfræðiþriller. Þannnig verður hennar minnst, sá kafli stendur uppúr. Sjálf- sagt hefur einhver óskað þess að kvikmyndagerðar- mennirnir hefðu sent sig heim léttari í lund, en Eastwood ársins 1994 er ekki á þeim skónum að fegra ofbeldið. Það er ljótt og grátt hér eins og í Hin- um vægðarlausu Þó að þessi snögga veðrabreyting komi óþyrmilega á óvart þá hefði handritshöfundurinn gert betur með því að leggja sig ekki jafn oft í líma yfir bröndurunum og úndir lokin svo mikilli til- fínningasemi að jaðrar við væmni. Þá hefðum við fengið að sjá betri og jafn- ari en vissulega alvarlegri mynd. En ekki jafn líklegri til vinsælda, ætli það hafi ekki ráðið för. Þá hefði hún mátt kynnast klippiborðinu mun betur og ýmislegt má fínna að sumum söguflétt- unum og persónunum ef grannt er skoðað. Þrátt fyrir gallana er Fuilkominn heimur engu að síður oftar mikilfengleg, langt yfir meðallagi og verður vafa- laust ein af minnisstæðari myndum ársins. Það skyldi engan undra þegar haft er í huga að tvær af stærstu stjömum aldarinn- ar eru inanborðs. Leik- stjórn Eastwoods er mark- viss og kunnáttusamleg, best sem fyrr í alvarlegri atriðum, átökum og spennu. Spaugsemi lætur honum ekki eins vel líkt og kemur fram í „rússí- banaatriðinu". Hann er stórkostlegur sögumaður framvindan yfirleitt góð, mörg atriðin afbragðsvel gerð líkt og þjófnaðurinn á Fordinu, kynþorsti á veg- akrá, ofl. Costner sýnir það afdráttarlaust að hann á jafn auðvelt með að skapa kaldriijaða glæpamenn og alla þá „góðu gæja“ sem hann er kunnastur fyrir. Eastwood hefur ekkert fyrir hlutverki sem hann hefur kunnað utanbókar í áratugi en er furðu mikið utanveltu í sögunni. Með- leikararnir eru í bak- grunni, tveir skera sig úr; fólsleg og fúl skytta úr alríkislögreglunni og Szarabajka sem illmennið, strokufélaginn. Kvik- myndataka, tónlist og klipping, að maður tali ekki um óaðfínnanlega sviðsmynd og muni (mynd- in gerist 1963) setja svo punktinn yfír iið, og Eastwood á hér að baki eina af sínum betri mynd- um - þó seint teljist hún fullkomin. £4 LEIKFEL. AKUREYRAR s.96-24073 • GÓÐVERKIN KALLA! eftlr Ármann Guft- mundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason. Fös. 21. jan. kl. 20.30 - lau. 22. jan. kt. 20.30. Fáein sæti laus. • BAR PAR eftir Jim Cartwrlght Frums. lau. 22. jan. kl. 20.30 uppselt - sun. 23. jan. kl. 20.30 uppselt - fös. 28. jan kl. 20.30 - lau. 29. jan. kl. 20.30. Aðalmiöasalan í Samkomuhúsinu er opin alla virka daga nema mánudaga kl. 14-18 og fram að sýningu sýningardaga. Ósóttar pantanir að Bar pari seldar í miðasölunni í Þorpinu frá kl. 19 sýningardaga. Símsvari tekur við miðapöntunum utan opnunar- tíma. - Greiðslukortaþjónusta. WOÐLEIKHUSIÐ sími 11200 Smfðaverkstæðið kl. 20.30: • BLOÐBRULLAUP eftir Federico Garcia Lorca VlnflRTÓnLtlKflP llflSKÓLflblÓI UPPSELT 20. OG 22. JANÚAR fát k i UPPSELT FÖSTUDAGINN 21. JANÚAR, KL. 20.00 Hljómsveitarstjóri: Peter Guth Einsöngvari: Sigrún Hjálmtýsdóttir I Blómálfurinn sér um skreytingu á suiði SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS Frumsýn. fös. 21. jan., uppselt, - mið. 26. jan. - fim. 27. jan. Sýningin er ekki við hæfi barna. Ekki er unnt að hleypa gest- um í salinn eftir að sýning er hafin. Litla sviðíð kl. 20.00: • SEIÐUR SKUGGANNA eftir Lars Norén Fös. 21. jan. - sun. 23. jan. - fim. 27. jan. - sun. 30. jan. Ath. Ekki er unnt að hleypa gestum í salinn eftir að sýning er hafin. Stóra sviðið kl. 20.00: • MÁVURINN eftir Anton Tsjekhof 8. sýn. sun. 23. jan. - sun. 30. jan. - fös. 4. feb. • ALLIR SYNIR MÍNIR eftir Arthur Miller. Fim. 20. jan. - fös. 21. jan. - fim. 27. jan. • KJAFTAGANGUR eftir Neil Simon. Lau. 22. jan., örfá sæti laus, - fös. 28. jan., næstsfðasta sýning, - lau. 29. jan., sfðasta sýning. • SKILABOÐASKJÓÐAN eftir Þorvald Þorsteinsson Ævintýri með söngvum Sun. 23. jan. kl. 14, örfá sæti laus, lau. 29. jan. kl. 13, (ath. breyttan tfma), nokkur sæti laus, - sun. 30. jan. kl. 14, nokkur sæti laus, - sun. 6. feb. kl. 14 - sun. 6. feb. kl. 17. Miöasala Þjóöleikhússins er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Tekiö á móti símapöntunum virka daga frá kl. 10.00. Græna línan 996160. 312 BORGARLEIKHUSIÐ sfmi 680-680 <mj<» m IÆIKFELAG REYKJAVIKUR Stóra svið kl. 20: • EVA LUNA leikrit eftir Kjartan Ragnarsson og Óskar Jónasson unnið upp úr bók Isabel Allende. 6. sýn. fim. 20/1, græn kort gilda, uppselt, 7. sýn. fös. 21/1, hvít kort gilda, uppselt, 8. sýn. sun. 23/1, brún kort gilda, upp- selt, fim. 27/1 fáein sæti laus, fös. 28/1, uppselt, sun. 30/1, fáein sæti laus, fim. 3/2, fös. 4/2 uppselt, sun. 6/2. • RONJA RÆNINGJADÓTTIR e. Astrid Lindgren Sýn. sun. 23. jan. kl. 14 næst síðasta sýning. 60. sýn. sun. 30. jan. kl. 14. Síðasta sýning. • SPANSKFLUGAN e. Arnold og Bach Sýn. lau. 22/1, lau. 29/1. Fáar sýningar eftir. Litla svið kl. 20: • ELÍN HELENA e. Árna Ibsen Sýn. fös. 21/1, lau. 22/1. Ath.: Ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýning er hafin. Miðasalan er opin frá kl. 13-20 alla daga nema mánudaga. Tekið á móti miðapöntunum i sTma 680680 kl. 10-12 alla virka daga. Bréfasími 680383. - Greiðslukortaþjónusta. ■ VIÐSKIPTA VINUM Borgarkringlunnar gafst kostur á að eignast jólak- örfu Borgarkringlunnar í desember, sem innihélt jóla- gjöf frá hveiju einasta fyrir- tæki í Borgarkringlunni. Margrét Gísladóttir, Sel- vogsgötu 16 í Hafnarfirði, reyndist hinn heppni við- skiptavinur. Á myndinni eru f.v.: Þorbjörn Tjörvi Stefánsson, markaðsstjóri Borgarkringlunnar, Mar- grét Gísladóttir, vinnings- hafí, og Margrét Rögn- valdsdóttir, formaður markaðsnefndar Borgar- kringlunnar. ■ KÓR Átthagafélags Strandamanna er að hefja æfíngar að nýju eftir jólafrí. Æft er í Skaftfellingabúð, Laugavegi 178, á miðviku- dagskvöldum kl. 20.30 til 22.30. Æskilegt væri að bæta við fólki og er söng- elskum velkomið að líta inn á æfingar. í júní sl. fór kór- inn í 10 daga ferð til Finn- lands. Heimsótti hann m.a. vinabæi Hólmavíkur, Kustavi og Merimaasku sem eru á suðvesturströnd Finn- lands. Stjórnandi kórsins er Erla Þórólfsdóttir og for- maður Matthildur G. Sverrisdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.