Morgunblaðið - 19.01.1994, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 19.01.1994, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 1994 39 STÆRSTA TJALDIÐMEÐ HX „Dásamleg. Matt Dill- on er frábær. Anna- bella Sciorra rænir hjarta þínu.“ (wnwk Rad- io, New York) „Stórkostleg, frammistaða leikar- anna er svo hjartnæm að þú finnur til með öllum persónunum.“ (Los Angeles Times) „3 1/2 af 4 stjörnum. Þess virði að sjá... Fyrsta ósvikna IMew York-ástarsagan í mörg ár.“ (The Boston Globe) „Yndislega rómantísk gamanmynd, ætti að höfða til „Sleepless in Seattle“-áhorf- enda.“ (Barry Normann, Film '93) Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Síðasti dagur í A-sal MAÐUR ÁN ANDLITS ★ ★ ★ A.I. MBL. „Ein besta mynd ársins 1993. Mel Gib- son er stórkostlegur leikari og hæfi- leikaríkur leikstjóri." New York Post. Aðalhlutverk: Mel Gibson og Nick Stahl. Leikstjóri: Mel Gibson. Sýnd kl. 4.50,6.50,9 og 11.10 Stepping Razor, Red X. Maðurinn, tónlistin og morðið. Stórbrotin mynd um Reaggie meistarann Peter Tosh. HVfTATiALDIB Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Fjölskyldumynd fyriralla TIL VESTURS ★ * * G.E. DV. Aðalhlutverk: Gabriel Byrne, Ellen Barkin. Sýnd kl. 5, 7, 9, og 11. PÍANÓ Sigurvegari Cannes- hátíðarinnar 1993 „Píanó, fimm stjörnur af fjórum mögulegum.“ ★ ★ ★ ★ ★ G.Ó. Pressan Aöalhlutverk: Holly Hunter, Sam Neill og Harvey Keitel. Sýnd kl. 4.50, 6.50, 9 og 11.10. „Gunnlaugsson vág in i barndomslandet ár rakare án de flestas." Elisabet Sörensen, Svenska Dagbladet. „Pojkdrömmar ár en oerhört chármerande och kánslig film som jag tycker ár váldigt bra.“ Nils Peter Sundgren, Gomorgon TV ★ ★ ★ ★ íslenskt - já takk! Sýnd kl. 5,7,9 og 11. „Ég hvet alla sem vilja sjá eitthvað nýtt að drífa sig i bíó og sjá Hin helgu vé. Þetta er yndisleg Irtil saga sem ég hefði ails ekki viljað missa af!“ Bíógestur. „Hrrfandi, spennandi, eró- tísk.“ Alþýðublaðið. „...hans besta mynd til þessa ef ekki besta ís- lenska kvikmynd sem gerð hefur verið seinni árin.“ Morgunblaðið. ★ ★★1/2„MÖST“ Pressan Áskorendaeinvígi FIDE hafin Þeir ungu byrja vel Skák_____________ Margeir Pétursson UM HELGINA hófst fyrsta um- ferð áskorendaeinvígjanna í skák í Wijk aan Zee í Hollandi. Þau eru hefðbundinn liður í FIDE-heimsmeistarakeppninni, en eru nú í harðri samkeppni við atvinnumannasamband Kasp- arovs og Shorts. Úrslit í fyrstu skákunum voru í samræmi við væntingar. Gata Kamskí, 19 ára, var peði undir í fyrstu skák sinni við Hollendinginn Paul Van der Sterren, 37 ára. En í tímaþröng lék Hollendingurinn sig í mát. Leóníd Júdasín, 34 ára, frá ísra- el, fataðist einnig vörnin gegn Rússanum Vladímír Kramnik, 17 ára. Kramnik vann með glæsi- legri drottningarfórn. Þá vann Rússinn Valerí Salov, 29 ára, endataflssigur á landa sínum Alexander Khalifman, 27 ára. Öðrum skákum lauk með jafn- tefli. Hollendingnum Jan Timman, 42ja ára, tókst ekki að knýja fram sigur með hvítu gegn tvítuga Frakkannum Joel Lautier. Tvísýn skák Michaels Adams, 22ja ára Englendings, og Boris Gelfands, 25 ára Hvit-Rússa, varð 45 leikir. Stigahæsti keppandinn, Indveijinn Vyswanathan Anand, 24 ára, komst ekkert áfram gegn traustri vörn Artúrs Júsupovs, 33ja ára. Skákin varð aðeins 27 leikir og aldr- ei þessu vant notaði Anand meiri tíma en Júsupov og var næstum því lentur í tímahraki. Tefldar verða átta skákir í hveiju einvígi. Eftir að hafa tapað með hvitu í fyrstu skákunum er ekki hægt að búast við því að þeir Van der Sterren og Júdasín nái að veita þeim Kamskí og Kramnik mjög mikla mótstöðu. í síðustu keppni beið Júdasín algjört afhroð gegn ívantsjúk, tapaði '/2-4'/2 í fyrstu umferð. Taugarnar virðast ekki þola spennuna ef marka má fyrstu skák þeirra Kramniks: Hvítt: Leóníd Júdasín Svart: Vladímir Kramnik Sikileyjarvörn 1. e4 - c5 2. Rf3 - Rc6 3. d4 - cxd4 4. Rxd4 — Rf6 5. Rc3 — e5 6. Rdb5 - d6 7. Rd5 Mun algengara svar við tvíeggj- uðu Lasker-afbrigði svarts er 7. Bg5 7. — Rxd5 8. exd5 — Re7 9. a4 - Rf5 10. c3 - g6!? Sjaldséð og eftir næsta leik Júd- asíns hefur skákin vikið burt af troðnum slóðum. 11. Be2 - Bg7 12. 0-0 - 0-0 13. Db3 - He8 14. Db4 - e4 15. Bf4 - Be5 16. Bxe5 - Hxe5 17. Hadl - Rh4 18. Khl - Dg5 19. Hgl - Bg4 20. Bxg4 — Dxg4 21. Hdel - Df4 22. Dxd6? í miðtaflinu hefur hvítur sótt á miðborði og drottningarvæng, en Kramnik einblínir á hvíta kónginn. Hér verða Júdasín á afdrifarík mi- stök. Mun sterkara var 22. Rxd6 og það er allsendis óvíst að svarti takist að sýna fram á nægar bætur fyrir peðið. 22. - Rf5 23. Dc7 - e3! 24. Hxe3? Þrátt fyrir að eiga nægan tíma á klukkunni yfirsést Júdasín laglegt svar Kramniks og leikur af sér hrók. Nauðsynlegt var 24. h3, en eftir 24. — exf2 25. Dxe5 — Rg3+ 26. Kh2 - Rfl++ 27. Khl - fxel=D 28. Dxf4 - Rg3+ 29. Kh2 - Dxgl+! 30. Kxg3 hefur hvítur ekki fyllilega nægar bætur fyrir skipta- mun. Nú er 25. fxe3 auðvitað svarað með 25. — Rg3+! 26. hxg3 — Hh5 mát! Júdasín teflir nokkra leiki áfram með hrók undir: 25. Rd6 - He7 26. Rxf5 - gxf5 27. Dd6 - De5 28. Db4 - Hae8 29. Dh4 - f6 30. h3 - Dxd5 og Júdasín gafst upp. Opna mótið í Linares Eftir þokkalega byijun á opnu skákmóti í Linares á Spáni gekk fátt upp hjá íslensku keppendunum í síðustu umferðunum. Undirrituð- um tókst naumlega að sleppa á stig- um upp í eitt af verðlaunasætunum tíu og hlaut sex vinninga, en Helgi Ólafsson hlaut fimm og hálfan vinn- ing. Rússneskir skákmenn voru far- sælir, en stigahæstu keppendunum vegnaði afleitlega. Eistinn Jan Ehlvest mátti þannig sætta sig við aðeins fimm vinninga. Úrslitin urðu þessi: 1. P. Svidler, Rússlandi Vh v. 2. -5. Levin, Korneev og Ragozin, Rússlandi og A. Rodriguez, Kúbu 7 v. 6.-7. Sorin, Argentínu og Gonza- les, Mexíkó 6V2 v. 8.-13. Pogorelov, Rússlandi, Margeir Pétursson, Dimitrov, Búlgaríu, Foisor, Rúmeníu, Komljenovic, Króatíu og Spang- enberg, Argentínu, 6 v. o.s.frv. Helgarmót í Keflavík Um næstu helgi fer fram helgar- skákmót á vegum Tímaritsins Skákar í Keflavík. Tefldar verða atskákir, umhugsunartíminn er hálftími á keppanda, 11 umferðir eftir Monrád-kerfí. Mótið hefst föstudaginn 21. janúar kl. 20 og verða þá tefldar þijár umferðir en daginn eftir hefst keppnin kl. 13 og þá tefldar fimm umferðir. Mót- inu lýkur svo sunnudaginn 23. jan- úar og hefst taflið þá kl. 13. Að venju eru vegleg verðlaun í boði, siguvegarinn fær 60 þús. í sinn hlut. Auk þess eru veitt fjöl- mörg önnur verðlaun m.a. fyrir bestan árangur unglinga, kvenna, öldunga, heimamanna og drefibýl- ismanna.Skráning og upplýsingar um mótið eru veittar í símum 91- 31391, fax 91-31399. ÚTSALA 10-60 % AFSLÁTTUR Vetrarfatnaður, skíðagallar, dúnúlpur, »hUIHfllEl^P íþróttaskór, íþróttagallar o.fl. sportbúðin Ármúla 40 • Sími 813555 og 813655

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.