Morgunblaðið - 19.01.1994, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 19.01.1994, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 1994 27 I I ! I í I I I I I 4 4 4 1 Framsóknarfélögin í Kópavogi Framboðslisti samþykktur Á FJÖLMENNUM fundi fulítrúaráðs framsóknarfélaganna í Kópa- vogi, mánudaginn 17. janúar, var samþykktur svohljóðandi framboðs- listi fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor: 1. Sigurður Geirdal, bæjarstjóri, 2. Páll Magnússon, guðfræðinemi, Hansína Björgvinsdóttir, kennari, 4. Sigrún Ingólfsdóttir, íþrótta- kennari, 5. Stefán Arngrímsson, deildarstjóri, 6. Ómar Stefánsson, íþróttakennari, 7. Einar Tómasson, nemi, 8. Sigríður Jóhannsdóttir, tækniteiknari, 9. Sigríður Jónas- dóttir, varðstjóri, 10. Dagný S. Sig-- urmundsdóttir, nemi, 11. Hrafn Harðarson, bæjarbókavörður, 12. Kristján P. Ingimundarson, fram- kvæmdastjóri, 13. Inga Krist- mundsdóttir, húsmóðir, 14. Bima Árnadóttir, húsmóðir, 15. Hallgrím- ur Pétursson, húsasmíðameistari, 16. Þóra Guðnadóttir, skrifstofu- stjóri, 17. Skúli Skúlason, vélfræð- ingur, 18. Þorvaldur Guðmundsson, matstæknir, 19. Hulda Pétursdóttir, verslunarmaður, 20. Ragnar Snorri Magnússon, frv. bæjarfulltrúi, 21. Haukur Hannesson, verkstjóri, og 22. Sigurbjörg Björgvinsdóttir, for- stöðumaður. Listinn er ákveðinn að undan- genginni skoðanakönnun og er upp- röðun efstu manna í samræmi við niðurstöður hennar. í þeirri könnun fékk Sigurður Geirdal 82,5% at- kvæða í fyrsta sæti, Páll Magnús- son 77,5% atkvæða í 1.-2. sæti og Hansína Björgvinsdóttir fékk 62,5% í 1.-3. sæti. Á fulltrúaráðsfundin- um var ofangreindur listi einróma samþykktur mótatkvæðalaust. firidsshófim NÝ NÁMSKEIÐ hefjast 24. og 25. janúar ( Bridsskólanumer boðið upp á námskeið fyrir byrjendur og eins þá sem lengra eru komnir en vilja bæta sig á hinum ýmsu sviðum spilsins; í sögnum, úrspili og vörn. Hvort námskeið um sig stendur yfir í 10 vikur, eitt kvöld í viku. Byrjendanámskeiðin eru á þriðjudagskvöldum milli kl. 20.00 og 23.00 en framhaldsnámskeiðin á mánudagskvöldum frá kl. 20.00-23.30. Kennt er í fundarsal starfsmannafélagsins Sóknar, Skipholti 50a. Það er fólk á öllum aldri og af báðum kynjum sem sækir skólann og eru venju- lega 20-25 manns í hvorum hópi. Ekki er nauðsynlegt að hafa með sér spila- félaga. Kennsla er byggð upp á fyrirlestrum, sérvöldum æfingaspilum og frjálsri spila- mennsku undir leiösögn. Kennslugögn fylgja báðum námskeiðum. Kennari er Guðmundur Páll Arnarson. Frekari upplýsingar og innritun ■ síma 812607 milli kl. 14.00 og 18.00 alla daga. Athugasemd MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Gylfa Kristinssyni, deildarstjóra í félagsmálaráðuneytinu: í Morgunblaðinu laugardaginn, 15. janúar birtist grein eftir Friðrik Haraldsson, leiðsögumann og farar- stjóra. í greininni fjallar Friðrik um útgáfu atvinnuleyfa til útlendinga til að starfa hérlendis sem leiðsögu: menn með erlendum ferðahópum. í greininni er að finna rangfærslur og er vegið að félagsmálaráðherra á mjög ósmekklegan hátt. Þessi hluti greinar Friðriks dæmir sig sjálfur og er ekki svaraverður. í greininni er einnig gefið í skyn að félagsmála- ráðuneytið hafi ekki farið að lögum við útgáfu atvinnuleyfa vegna ráðn- ingar á erlendum leiðsögumönnum. Vegna þeirra ásakana vill ráðuneyt- ið taka eftirfarandi fram: 1. Félagsmálaráðuneytinu barst bréf frá umboðsmanni Alþingis, dags. 9. nóvember 1993, þar sem óskað var eftir upplýsingum um aðgerðir sem gripið hafi verið til í framhaldi af áliti umboðsmanns í máli Félags leiðsögumanna (mál nr. 669/1992). Þetta mál íjallaði um kvörtun félagsins yfir því að ekki hafi verið fylgt ákvæðum laga nr. 26/1982, um atvinnuréttindi útlend- inga, vegna ráðningar á erlendum leiðsögumönnum. I áliti Umboðs- manns voru gerðar athugasemdir við útgáfu atvinnuleyfa vegna starfa erlendra leiðsögumanna hérlendis. Félagsmálaráðuneytið svaraði fyrir- spum umboðsmanns Alþingis með bréfi dags. 12. nóvember sl. í bref- inu er upplýst að við útgáfu atvinnu- leyfa vegna erlendra leiðsögumanna sumarið 1993 hafi verið tekið fullt tillit til ábendinga umboðsmanns. Fram kemur að ráðuneytið hafi hald- ið fund um þetta málefni 17. maí sl. Til fundarins vom boðaðir fulltrú- ar Félags leiðsögumanna, Félags íslenskra ferðaskrifstofa, útlend- ingaeftirlits, dómsmálaráðuneytis, Ferðaskrifstofu BSÍ og samgöngu- ráðuneytis. Allir framangreindir að- ' ilar sendu fulltrúa á fundinn nema samgönguráðuneytið en því vom síð- ar kynntar helstu niðurstöður. 2. Á fundinum 17. maí sl. var farið yfir fyrirkomulag á útgáfu at- vinnuleyfa vegna erlendra leiðsögu- manna sem hygðust starfa á Islandi sumarið 1993. Aðilum var gerð grein fyrir áliti umboðsmanns Alþingis varðandi útgáfu atvinnuleyfa og að framkvæmdin yrði í samræmi við það. I þessu fólst að félagsmálaráðu- neytið veitti ekki atvinnuleyfi fyrr en útlendingaeftirlit hefði gefið út dvalarleyfi. Leyfín vom veitt at- vinnurekanda vegna tiltekins ein- staklings. Sérstök nefnd á vegum samgönguráðuneytisins fékk um- sóknir um atvinnu- og dvalarleyfi vegna erlendra leiðsögumanna til umsagnar áður en þær vom af- greiddar af útlendingaeftirliti og fé- lagsmálaráðuneyti. í nefnd sam- gönguráðuneytisins sat fulltrúi Fé- lags leiðsögumanna, 3. Þess skal getið að félagsmála- ráðuneytinu bámst umsóknir frá 10 aðilum um atvinnuleyfi fyrir 68 er- lenda einstaklinga til að starfa sem leiðsögumenn hérlendis sumarið 1993. Ráðuneytið fór að öllu leyti eftir umsögn framangreindrar nefndar samgönguráðuneytis. í samræmi við það vom veitt leyfi til að ráða 58 einstaklinga. Synjað var um heimild til ráðningar í 10 tilvik- um. 4. Ráðuneytið hélt annan fundmeð sömu aðilum og að framan greinir 1. september sL Markmið þess fund- ar var að ræða reynsluna af því fyrir- komulagi sem gilti sumarið 1993 um atvinnuleyfi vegna ráðningar er- lendra leiðsögumanna. 5. Þess skal getið að viðbrögð umboðsmanns Alþingis við framan- greindum upplýsingum félagsmála- ráðuneytis vom þau að þær gæfu ekki tilefni til athugasemda. Þetta kemur fram í bréfi umboðsmanns til ráðuneytisins, dags. 17. nóvember sl. li HAFNFIRÐINGAR Skarphéðinn Orri Bjömsson Kristinn Amar Valgeröur Jóhannesson SigurðardóUir Jónasson Öm Tryggvi Ragnheiður Johnsen Kristjánsdóttir Jón Gestur Gunnar Ásdís ÞorgilsÓttar Konráðsdóttir Mathiesen Ólafur Þór Sigurður Einarsson Viggósson Magnússon Magnús Gunnarsson Þórunn Jóhann G. Sigþórsdóttir Bergþórsson Björk Pétursdóttir Magnús Ágúst Sindri Karisson Gunnar Beinteinsson Kjaransson Torfason Sverrisson Ellert Borgar Þorvaldsson Þórður Rafn Stefánsson Gissur Guðmundsson Helga Ragnheiður Stefánsdóttir Fjölmennið á kynningu frambjóðenda íprófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Skútunni við Hólshraun íkvöld 19. janúarkl. 20.00.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.