Morgunblaðið - 19.01.1994, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 19.01.1994, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 1994 SKÍÐI Rögnvaldur náði ÓL-lágmarkinu Fjórir íslendingar hafa náð lágmarki Ólympíunefndar íslands RÖGNVALDUR Ingþórsson, skíðagöngumaður frá Akureyri sem býr í Svíþjóð, náði um helgina lágmarki því sem ^ÓIympíunefnd íslands setti sem skilyrði fyrir þátttöku á Ólympíuleikana í Lillehammer. Hann tók þátt í heimsbikar- móti sem fram fór á Hoimen- kollen í Oslo á laugardaginn og fékk 83,6 Alþjóðlega punkta fyrir árangur sinn, en lágmark Olympíunefndar er 85 punktar. Rögnvaldur sagðist vera ánægð- ur með að hafa náð lágmark- Grindavík íúrslit Stúlkurnar úr Grindavík tryggðu sér rétt til að spila til úrslita við ÍBK í bikarkeppnin kvenna með ■■■■■■ því að leggja KR að 'Frímann velli 46:35 í Grinda- Ólafsson svík. „Þetta er mik- skrllar ilvægasti sigur á ferlinum," sagði Stefanía Jónsdóttir, fyrirliði UMFG eftir leikinn. „Leikurinn vannst fyrst og fremst á baráttu. Eftir að hafa verið mjög stressaðar í fyrri hálfleik komum við yfirvegaðri í seinni. Mér líst vel á að spila til úrslita við ÍBK, þær hafa mikla reynslu en við erum hungraðar í titil og gerum okkar besta.“ Mikill barningur var á liðunum í fyrri hálfleik, spiluðu fast í vörninni og gerðu mörg mistök í sókninni. KR komst í 16:10 eftir 15 mínútna leik en heimastúlkur náðu að jafna og komast yfír fyrir hlé. Sterk svæðisvörn Grindvíkinga sló KR út af laginu í upphafi seinni hálfleiks og þær skoruðu ekki fyrr en eftir rúmlega 9 mínútur á meðan UMFG skoraði 8 og náði 11 stiga forystu sem þær létu ekki af hendi. Heimastúlkur fögnuðu gríðar- lega enda í fyrsta sinn sem þær leika til úrslita í keppninni. Lið þeirra var jafnt og barðist af krafti með Önnu Dís og Svanhildi einráð- ar undir körfunni og Hafdísi Haf- -»berg náði sér vel á strik í sókn- inni. María og Stefanía stjórnuðu sóknaraðgerðum og voru vel að sigrinum komnar en KR stúlkur létu slá sig út af laginu í sókninni og náðu sér ekki á strik. Guðbjörg Norfjörð var þeirra best og reyndar sú eina sem eitthvað kvað að í seinni hálfleik. inu á síðustu stundu. „Þetta var síðasta mótið fyrir Ólympíuleika sem hægt var að reyna við lágmark- ið og má því segja að ég hafi slopp- ið fyrir horn. Það mátti varla tæp- ara standa. Ég er mjög ánægður með þessa göngu því ég var kvefað- ur og ekki vel upplagður í göngunni — ekki í toppformi. Ég veit að ég get gert mun betur,“ sagði Rögn- valdur, sem nú ætlar að undirbúa sig af kappi fyrir leikana. Keppt var í 15 km göngu með frjálsri aðferð í Oslo. Sigurvegari var göngukappinn frægi, Vladimir Júlíus kjörinn formaður Gísli Halldórsson hætti eftir 21 ár, en var kjör- inn heiðursformaður JÚLÍUS Hafstein var einróma kjörinn fprmaður Ólympíu- nefndar íslands á ársfundi hennar í gærkvöldi. Gísli Hall- dórsson gaf ekki kost á sér áfram eftir að hafa gegnt starf- inu í 21 ár, en var kjörinn heið- ursformaður nefndarinnar. Stjóm Ólympíunefndar var kjörin til fjögurra ára á aðalfundinum í fyrra, en þá félist Gísli á að vera áfram formaður í eitt ár til viðbótar og ítrekaði í gærkvöldi að tímabili sínu væri lokið. Júlíus var einn í kjöri og var kjörinn með lófaklappi. Hann var áður 2. varaformaður nefndarinn- ar, en Ellert B. Schram, forseti íþróttasambands Islands og 1. vara- formaður Óí, greindi frá því að ákveð- ið hefði verið að kjósa ekki 2. varafor- mann í stað Júlíusar fyrr en að loknu kjörtímabilinu, sem lýkur 1997. Júlíus þakkaði traustið og sagðist taka við mjög vandasömu eri spenn- andi starfí. Miklir möguleikar væru framundan og áfram yrði unnið að framgangi ÓI og ólympíuhugsjónar- innar. Verkefni nefndarinnar væru meiri en fyrri nefndar — þátttaka í vetrar- og sumarólympíuleikum, Smáþjóðaleikum í Lúxemborg og skipulagning sömu leika á íslandi 1997. Síðast en ekki síst hefði Óí sótt um og fengið fund forystumanna ólympíunefnda Evrópu (AENOC), sem verður í Reykjavík í vor. Smirnov frá Kasakstan, og gekk hann vegalengdina á 36,44 mínút- um. Rögnvaldur varð í 86. sæti af 99 keppendum sem komust í mark og var tími hans 42,08 mínútur. Sigurgeir Svavarsson og Ólafur Björnsson frá Ólafsfírði tóku einnig þátt í göngunni. Sigurgeir hafnaði í 89. sæti á 42,45 mínútum og fékk fyrir það 93,3 punkta, en Ölafur náði sér ekki á strik og varð í 96. sæti á 46.28 mínútum. Rögnvaldur er fjórði íslending- urinn til að ná lágmörkum fyrir leikana í Lillehammer. Hinir eru; ^■jóðveijinn Michael Stich, sem er í öðru sæti á heimsafreka- listanum, og Petr Korda frá Tékk- landi, sem er í áttunda sæti, féllu úr keppni í 1. umferð á Opna ástr- alska meistaramótinu í tennis, sem nú stendur yfir í Melbourne. Stich tapaði fyrir Bandaríkjamanninum MaliVai-Washington (nr. 26) 7-6, 6-3, 3-6, 6-2, en Svíinn Thomas Nýkjörinn formaður minnti á að Gísli hefði starfað óslitið fyrir íþrótta- hreyfínguna síðan hann var kjörinn í stjóm Iþróttabandalags Reykjavíkur 1944 og því væru mikil tímamót, þegar hann hætti. Gísli hefði alla tíð verið í fremstu röð forystumanna hreyfíngarinnar og ætti glæsilegan feril að baki. Gísli sagði að nóg væri af afbragðs íþróttamönnum og forystumönnum og því væri góður grundvöllur til að 1 Rögnvaldur Ingþórsson Daníel Jakobsson göngumaður frá ísafirði og þau Ásta Halldórsdóttir frá ísafirði og Kristinn Björnsson frá Ólafsfirði en þau keppa bæði í alpagreinum. Enqvist vann Korda 6-3, 6-4, 7-6. Stich, sem er 25 ára og leiddi Þjóðverja til sigurs í Davis-bikarn- um í síðasta mánuði, sagði að and- lega hliðin hefði ekki verið í lagi. „Ég var ekki með sjálfum mér og stundum vissi ég ekki hvernig stað- an var, sem segir að andlegur styrk- ur var ekki mikill. Ég lék einfald- lega illa.“ starfa vel og mikið i framtíðinni. Hann þakkaði sýndan heiður, en sam- starfsaðilar hans innan Óí, ÍSÍ og sérsambanda færðu honum sérstaka gjöf í kvöldverðarboði í gærkvöldi. Velta ÓI á síðasta ári var tæplega 12 milljónir og var hagnaður um 1,7 milljónir. Fjárhagsáætlun, sem gerir ráð fyrir 18,7 millj. kr. veltu, var samþykkt án mótatkvæða sem og ýmsar lagabreytingar, m.a. heimild til að kjósa heiðursformann. Daníel réttá efftir Smimov Daníel Jakobsson, skíðagöngu- maður, náði áttunda besta tímanum í 4x10 km boðgöngu sem fram fór í Storvik í Svíþjóð í síð- ustu viku. Hann keppti með félagi sínu Ásarna í göngunni. Torgny Mogren náði besta braut- artímanum en Vladimir Smirnov sem var í sigursveitinni, var með þriðja besta tímann. Daníel var tæplega einn og hálfri mínútu á eftir Mogren en aðeins 56 sekúnd- um á eftir Smirnov, sem nú hefur afgerandi forystu í heimsbikar- keppninni. „Ég er mjög ánægður með þessa göngu og árangurinn sýnir að ég er í góðri æfíngu. Þetta er ein besta gangan mín í vetur,“ sagði Daníel sem átti að keppa í 30 km göngu á sænska meistaramótinu í gær en var frestað vegna kulda. Hann á að keppa í 15 km göngu á morgun og er sú ganga liður í sænska meist- aramótinu. ÚRSLIT Skíði Crans Montana, Sviss: Stórsvig karla: 1. Jan EinarThorsen (Noregi)....2:32.83 (1:16.88/1:15.95) ■Þetta var fyrsti sigur Thorsen í stórsvigi en þess má geta að Norðmenn hafa sigrað í fjórum af sjö síðustu mótum sem undir- strikar enn frekar yfirburði þeirra í alpa- greinum karla. 2. Mitja Kunc (Slóveníu)........2:32.93 (1:17.02/1:15.91) 3. Rainer Salzgeber (Austurríki) ....2:33.44 (1:16.78/1:16.66) 4. Alberto Tomba (Italíu).......2:33.73 (1:18.22/1:15.51) ■Tomba náði besta tímanum í síðari um- ferð og lyfti sér upp úr 11. sæti í það fjórða. Hann sagðist nú ætla að taka sér frí frá keppni í tvær vikur til að undirbúa sig fyr- ir Olympíuleikana. 5. Kjetil Andre Aamodt (Noregi) ....2:33.80 (1:17.80/1:16.00) 6. Bernard Gstrein (Austurríki).2:33.85 (1:17.76/1:16.09) 7. Steve Locher (Sviss)........2:34.05 (1:17.58/1:16.47) 8. Marc Girardelli (Lúxemborg).2:34.19 (1:17.83/1:16.36) Staðan í stórsviginu: 1. Aamodt...........................362 2. Mayer............................336 3. Franck Piccard...................314 4. Nyberg...........................284 5. Locher...........................280 5. Von Grúnigen.....................280 Staðan í stigakeppninni: 1. Aamodt.........................832 2. Mader...........................652 3. Tomba...........................564 4. Girardelli .....................523 5. Thomas Stangassinger (Austur.).405 6. Gstrein.........................374 7. Mayer...........................373 8. Jure Kosir (Slóveníu)..........351 9. Von Grúnigen....................350 10. Thorsen.........................348 11. Finn Christian Jagge (Noregi)...344 Skautar EM í listhlaupi á skautum Kaupmannahöfn: ísdans, staðan eftir tvær skylduæfingar: (Telja 10% af heildarkeppninni): stig 1. M. Usova/A. Zhulin (Rússlandi) ....0.4 2.0. Gritschuk/E. Platov (Rússlandi)....1.0 2. J. Torvill/C. Dean (Bretiandi).....1.0 4. A. Krylova/V. Fedorov (Rússlandi)....1.8 4. S. Rahkamo/P. Kokko (Finnlandi)......1.8 6. S. Moniotte/P. Lavanchy (Frakklandi) 2.4 7.1. Romanova/I. Yaroshenko (Úkraí.).. 2.8 f kvöld Handknattleikur 1. deild kvenna: Austurberg: Fylkir - Stjarnan.18 Kaplakriki: FH - Víkingur.....18 Strandgata: Haukar - Fram..18.30 Hlíðarendi: Valur - Ármann....20 2. dcild karla: Strandgata: ÍH - Grótta.......20 Óí styrkir fimm sérsambönd Fulltrúar á aðalfundi Ólympíip nefndar samþykktu tillögu Óí um að styrkja fimm sérsambönd vegna undirbúnings fyrir Óiympíu- leikana í Atlanta 1996. Badminton- sambandið fær 400.000 krónur og Júdósambandið sömu upphæð, Fijálsíþróttasambandið og Hand- knattleikssambandið fá 1.500.000 kr. hvort og Sundsambandið 1,2 milljónir. Mikil umræða var um þessa til- lögu og var bent á að með þessu væri verið að draga sérsambönd í dilka. Eggert Magnússón, formaður Knattspyrnusambandsins, sagði að fleiri sérsambönd eyddu miklum peningum til að reyna að komast á ólympíuleika og nefndi í því sam- bandi að KSÍ hefði lagt 9,5 milljón- ir í þennan lið á síðasta ári. Hann lagði til að önnur sérsambönd ættu einnig að eiga möguleika á styrk frá OI og sagði Ellert B. Schram, 1. varaformaður, að stjórnin ætti að taka tilmælin til athugunar sem og ábendingu frá Hákoni Emi Hall- dórssyni, varamanni stjómar, sem vildi að frekari styrkveitingar yrðu endurskoðaðar, þegar nær drægi keppni og ljóst hveijir tryggðu sér keppnisrétt. Átta manna fylgdar- lið til Lillehammer Gísli Halldórsson, fráfarandi formaður Ólympíunefndar íslands, greindi m.a. frá því í ársskýrslu sinni í gærkvöidi að ákveðið hefði verið að senda átta manna fylgdarlið með íslensku keppendunum á Ólympíuleik- ana í Lillehammer í Noregi. Sigurður Einarsson, formaður Skíðasambands íslands, verður farar- stjóri. Þjálfari alpagreina verður Norðmaðurinn Svein Bye og þjálfari fyr- ir göngu Svíinn Bo Erikson. Aðrir aðstoðarmenn verða: Anders ísaksson frá Svíþjóð, Sigurveig Gunnarsdóttir, sjúkraþjálfari frá ísafírði og Ámi Þór Árnason, sem býr í Svíþjóð og hefur verið Ástu Halldórsdóttur til aðstoðar í vetur. Nýkjörinn formaður Ólympíunefndar íslands, Júlíus Hafstein, og Ari Bergmann, ritari Ólympíunefndar, verða fulltrúar Ólymp- íunefndar Islands í Lillehammer við upphaf leikanna. Eins og kemur fram á öðrum stað á síðunni hafa fjórir íslenskir kepp- endur tryggt sér þátttökurétt á leikunum í Lillehammer. KORFUBOLTI OLYMPIUNEFND ISLANDS Morgunblaðið/Kristinn Júlíus Hafstein til hægri var kjörinn formaður Ólympíunefndar íslands á aðalfundinum í gærkvöldi. Gísli Halldórsson gaf ekki áfram kost á sér. en var kjörinn heiðursformaður. Til vinstri er Ellert B. Schram, formaður ÍSÍ og 1. varaformaður Óí. TENNIS / OPNA ASTRALSKA Michael Stich og Korda úr leik

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.