Morgunblaðið - 19.01.1994, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. .IANÚAR 1994
Samþykktir landsfundar -
Hvað með framkvæmdir
eftir Guðmund
Hallvarðsson
Nýlega var frá þvi greint í dagblöð-
um að samgönguráðherra hefði skip-
að nefnd til að kanna hagkvæmni
þess að sameina Siglingamálastofn-
unina og Vita- og hafnarmálastofn-
un. Ekki hefur komið fram hjá nefnd-
inni hagkvæmni á samruna þessara
ríkisfyrirtækja enda hefur nefndin
ekki lokið störfum þá þessi tilskrif
mín eru sett á blað, en nefndin er
einkum að kanna þennan kost með
langtímasjónarmið í 'huga, segir
deildarstjóri í samgönguráðuneytinu.
En málið er allt nokkuð sérkenni-
legt einkum þegar það er haft í
huga að sérstök atkvæðagreiðsla fór
fram að ósk samgönguráðherra um
samruna Landhelgisgæslunnar og
vitamála á sl. landsfundi Sjálfstæðis-
flokksins.
í drögum að ályktunum 31. lands-
fundar Sjálfstæðisflokksins í október
sl. kom fram í ályktun nefndar sem
Qallaði um samgöngu-, fjarskipta-
og ferðamál m.a.: Rekstur vita verði
færður undir stjóm og rekstur Land-
helgisgæslunnar.
I þeirri nefnd sem landsfundur
kaus og fjallaði um þessi drög er
kveðið enn fastar að og þar segir:
Rekstur vita verði færður til Land-
helgisgæslunnar. Af „óskiljanlegum"
ástæðum tók þessi texti nokkrum
breytingum í prentun og á borð lands-
fundarfulltrúa var nú þessi texti orð-
inn svohljóðandi: Kannað verði hvort
hagkvæmt sé að færa rekstur vita
til Landhelgisgæslunnar.
Með hliðsjón af þeirri samþykkt
nefndar landsfundar sem fjallaði um
samskipta-, fjarskipta- og ferðamál
benti ég á þann mismun sem þarna
hefði orðið á og taldi rétt og eðlilegt
að samþykkt nefndarinnar stæði.
Samgönguráðherra taldi rétt að
orðalag það sem á síðasta skjali stóð
ætti að vera óbreytt, að öðrum kosti
óskaði hann eftir atkvæðagreiðslu
um málið. Um 1.100 manns voru í
salnum þegar atkvæðagreiðslan fór
fram og var tillaga samgönguráð-
herra felld með yfirgnæfandi meiri-
hluta, en tillagan „Rekstur vita verði
færður til Landhelgisgæslunnar"
skyldi standa sem landsfundarsam-
þykkt Sjálfstæðisflokksins.
„Það er lenska í íslensk-
um stjórnmálum að
panta niðurstöðu fyrir-
fram þá skipaðar eru
nefndir.“
Sararuni ríkisfyrirtækja
Um langan tíma hafa samtök sjó-
manna, Farmannasambandið, Sjó-
mannasambandið og þing Fiskifé-
lags íslands, hvar m.a. sjómenn og
útgerðarmenn þinga, sent frá sér
samþykktir þess efnis að Landhelg-
isgæslan taki við hlutverki Vita-
stofnunar. Sú aðgerð renni traustari
stoðum undir starfsemi gæslunnar
auk þess sem sjálfsagt og eðlilegt
sé að notendur vitanna, sæfarendur
við íslancC geti verið vissir um að
stöðugt og gott eftirlit sé með ljós-
homum þeirra.
Nú bregður hinsvegar svo við að
samgönguráðherra leggur ofurkapp
á að sameina Siglingamálastofnun
og Vita- og hafnarmálastofnun sem
hafa þó svo gjörsamlega ólíkum
skyldum að gegna, hvar hagsmunir
hafna geta stangast á við kröfu Sigl-
ingamálastofnunar um t.d. stöðvun
á skipi í höfn. Og enn eru menn
fastir í þeim farvegi að meginmálið
sé að sinna vitaþjónustunni frá landi,
en þáttur sæfarenda við ísland,
þeirra er nota, sé allt að því aukaat-
riði.
í allri umræðunni um samruna
ríkisfyrirtækja og hagræðingar í
rekstri sem áform ríkisstjórnarinnar
eru jú um, virðist sem a.m.k. einn
þröskuldur sé í vegi. Ef hagræða á
með samruna ríkisfyrirtækja verða
þau að falla undir sama ráðuneyti,
annars fer í gang eitthvert óskiljan-
legt tregðulögmál.
Á síðustu starfsdögum Alþingis
fyrir jól flutti formaður fjárlaga-
nefndar ræðu hvar hann kom inn á
rekstur ríkisfyrirtækja, hagræðingu
og sparnað. Þar kom margt athyglis-
vert fram, m.a. það að hann taldi
eðlilegt að Vitamálastofnun yrði
sameinuð Landhelgisgæslunni og
Hafnarmálastofnun yrði sameinuð
Vegagerð ríkisins. Ég tek heilshugar
undir þessa skoðun Sigbjörns Gunn-
arssonar alþm., formanns fjárlaga-
Innilegar þakkir til þeirra jjölmörgu sem
glöddu mig meö heimsóknum, gjöfum og hlýj-
um kveðjum á 90 ára afmœli mínu 4. janúar sl.
Sérstakar þakkir til barna minna og fjöl-
skyldna þeirra sem áttu stóran þátt í aÖ gera
okkur hjónum daginn ógleymanlegan.
GuÖ blessi ykkur öll.
Valdemar Kristinsson,
Núpi. /
EGLA
- röð ogregla
Margir litir margar stærðir.
Þessi vinsælu bréfabindi fást í öllum
helstu bókaverslunum landsins.
Múlalundur
Vinnustofa SÍBS
Símar: 628450 688420 688459
Fax 28819
^sl0sk1
Styrk forysta
borgarstjóra
eftirPál Gíslason
Þegar Markús Örn Antonsson var
kosinn borgarstjóri fyrir tæpum 3
árum, fannst sumum að verið væri
að velja mann, sem kæmi nýr og
óreyndur í þessa ábyrgðarmiklu
stöðu.
Við, sem lengi höfum starfað að
borgarmálum, vissum betur, því að
Markús Örn var búinn að gegna
borgarfulltrúastarfi í 15 ár. Þar af
sat hann í borgarráði í 6 ár og var
síðast forseti borgarstjórnar. Á
þeim tíma gegndi hann forystu í
mörgum málaflokkum. Þar má
nefna æskulýðsmál, félagsmál,
fræðslumál og ferðamál.
Það voru liðin 5 ár frá því þessum
störfum lauk og þar til borgar-
stjómarflokkur Sjálfstæðismanna
kallaði aftur á Markús Örn til starfa
og kaus hann einróma borgarstjóra.
Það höfðu verið skiptar skoðanir
um það í flokknum hver skyldi taka
við af Davíð Oddssyni, þáverandi
borgarstjóra, þegar hann tók við
forystu ríkisstjórnar og gerðist for-
sætisráðherra núverandi ríkis-
stjórnar.
Þá kom upp sú hugmynd að velja
Markús Örn Antonsson, þáverandi
útvarpsstjóra, í stað Davíðs. Þetta
var ekki að ófyrirsynju, því eins og
áður er getið vissum við um hæfí-
leika Markúsar Arnar og kunnáttu
hans á borgarmálum, sem borgar-
stjóri þarf að taka á.
Markús Örn hefur ekki brugðist
trausti okkar. Hann sýndi strax
færni og kunnáttu í starfinu og var
fljótur að setja sig inn i þau marg-
háttuðu mál og erindi, sem borgar-
stjóri þarf að taka afstöðu til.
Hann hefur líka haft frumkvæði
að ýmsum nýmælum í rekstri borg-
arinnar, svo sem Aflvaka Reykja-
víkur, enda er það eitt af mikilvæg-
ustu málum borgarbúa að atvinna
sé sem mest og best. Hann hefur
beitt sér fyrir að borgin haldi fram-
kvæmdum í hámarki til að styrkja
atvinnulífið. Þá hefur hann lagt
áherslu á að námsfólk á öllum aldri
fái sumarvinnu, sem hefur svo
mikla fjárhagslega og uppeldislega
þýðingu.
Guðmundur Hallvarðsson
nefndar, og hvað varðar hafnarmál
og vegamál þá er jú vegagerðin
búin að taka í sínar hendur rekstur
á flóabátum og ferjum og sú spurn-
ing vaknar hjá leikmanni hvort stór
munur sé á brúargerð eða hafnar-
gerð. Þá er tillagan ekki fráleit hvað
þessi fyrirtæki varðar í ljósi þeirra
staðreynda að hafnargerð fer minnk-
andi og sveitarfélögin eru að taka
til sín í vaxandi mæli verkefni sem
ríkið taldi sig þurfa að hafa forsjá
með og það á einnig við um hafnar-
gerðir.
Að lokum
Það er athyglisvert að skoða
Markús Örn Antonsson
Of langt mál yrði að telja upp
fleiri af þeim mörgu verkefnum,
sem leyst hafa verið, en í starfi
borgarstjóra hefur Markús Örn
reynst frábær og sýnt að hann get-
ur brugðist við eins og best er
hverju sinni.
Nú þegar vinstra liðið ætlar að
fylkja sér móti Sjálfstæðisflokknum
í kosningunum í vor, ríður á að við
Sjálfstæðismenn fylkjum líka liði
og stöndum saman undir styrkri
forystu.
Það er því mikilvægt að við sýn-
um það nú í prófkjörinu, með því
að veita Markúsi Erni eindreginn
stuðning í fyrsta sæti lista okkar,
að við erum tilbúin að beijast undir
forystu hans, sem hefur sýnt í verki
að hann hefur hæfileika og kunn-
áttu til að leiða okkur til sigurs.
Það er ekki bara sigur Sjálf-
stæðisflokksins, — það er sigur
borgarinnar okkar.
Sporin frá 1978-1982 hræða.
Aldrei aftur vinstri villu.
Sjálfstæðismenn, vörn borgar-
innar er hafin með því að fylkja
okkur öll um Markús Örn í 1. sæti
lista okkar og veita honum góða
kosningu.
Höfundur er læknir.
SANYL *
Þakrennur fyrir
íslenska veðráttu
f ALFABORG "
KNARRARVOGI 4 • * 686755