Morgunblaðið - 19.01.1994, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JANUAR 1994
Kiwanishreyfing-
in á Islandi 30 ára
eftir Bjarna B.
Ásgeirsson og
Þorbjörn Karlsson
Kiwanishreyfingin, ein af stærstu
þjónustuhreyfíngum heimsins í dag,
telst vera stofnuð hinn 21. janúar
1915, þegar fyrsti Kiwanisklúbbur-
inn var stofnaður í Detroit, Michigan
í Bandaríkjunum. Hreyfingin á því
79 ára afmæli um þessar mundir.
Heimildir telja nafn hreyfingarinn-
ar fengið úr indíánamállýsku, og
hafi það í upphafí verið þrjú orð:
Nunc-Kee-wanis. Fyrsta orðið Nunc
hafí síðan verið fellt niður, og hin
tvö, Kee-wanis, svo dregin saman í
eitt orð eins og við þekkjum það í
dag, Kiwanis. Hafa miklar vanga-
veltur verið um merkingu orðsins,
en upphaflega skýringin var sú, að
það þýddi við eigum viðskipti, sem
í byijun var kannski í anda félags-
skaparins, því að margir voru félag-
arnir úr viðskiptaheiminum. Síðari
athuganir hafa hins vegar leitt í ljós,
að upphafleg merking orðanna væri
í raun við höfum hátt eða við látum
illa, en það hefur brautryðjendum
líklega ekki þótt viðeigandi skýring
á nafni svo virðulegs félagsskapar.
Orðabækur í dag fara jafnvel í kring-
um þessa merkingu nafnsins og segja
það þýða að láta vita af sér, sem
má til sanns vegar færa, því að vissu-
lega láta menn vita af sér með því
að hafa hátt.
Kiwanishreyfingin breiddist hratt
út - fyrst um Bandaríkin, aðallega
norðausturhlutann, og á fyrsta árs-
þingi klúbbanna í Cleveland, Ohio,
árið 1916 var stofnað Landssamband
Kiwanisklúbba („National Kiwanis
Clubs“). Ekki leið á löngu, að Kanada
bættist í hópinn, sem varð á síðari
hluta ársins 1916. Þegar kom að
öðru ársþingi hreyfingarinnar í
Detroit 1917 voru kanadísku klúb-
barnir orðnir fjórir, og var nafninu
þá breytt i Kiwanis International,
sem hreyfingin heitir enn í dag. Það
var þó ekki fyrr en á ársþingi hreyf-
ingarinnar í Toronto í Kanada árið
1961, að hreyfingin varð í raun al-
þjóðleg. Þar var sem sé samþykkt
að vinna að stofnun nýrra klúbba
utan Bandaríkjanna og Kanada.
Fyrstu nýju Kiwanislöndin voru Mex-
íkó og Bahamaeyjar, sem bættust í
hópinn 1962. Til Evrópu barst hreyf-
ingin með stofnun fyrsta klúbbsins
í Vínarborg 25. febrúar 1963. A því
ári voru stofnaðir 7 klúbbar í Evrópu-
löndum, þar af 4 í Sviss, og í Aust-
urríki, Þýskalandi og Belgíu einn í
hveiju landi. Á næsta ári, 1964,
koma svo fyrstu Norðurlandaklúbb-
amir, í Ósló 10. janúar og Hekla í
Reykjavík 14. janúar 1964.
Má með sanni segja, að Kiwanis-
hreyfingin sé alþjóðleg. Félagafjöld-
inn er um 325.000 í 9.000 klúbbum
í öllum heimsálfum. í Evrópu erú
um 26.500 félagar í 900 Kiwanis-
klúbbum, sem starfa í 8 umdæmum.
Á síðustu árum hafa Austur-Evrópu-
löndin opnast og eru starfandi klúb-
bar í Ungveijalandi, Tékkóslóvakíu,
Rússlandi og Rúmeníu.
Upphaf Kiwanis á íslandi
Til íslands barst Kiwanishreyfing-
in frá borginni Tallahassee í Flórída,
en þar var búsettur íslendingur að
nafni Hilmar Skagfield, sem var virk-
ur félagi í Kiwanisklúbbi borgarinn-
ar. Þegar útbreiðsla hreyfingarinnar
hófst í Evrópu árið 1963 ákvað hann
að athuga möguleika á stofnun
Kiwanisklúbbs á íslandi. Leitaði
Hilmar til Einars A. Jónssonar, að-
alféhirðis Sparisjóðs Reykjavíkur og
nágrennis, sem þegar fékk mikinn
áhuga á málinu og hóf undirbúning
að stofnun klúbbs í Reykjavík. Fékk
hanm' lið með sér nokkra félaga sína,
sem stunduðu gufuböð í íþróttahúsi
Jóns Þorsteinssonar. Fóru fyrstu
undirbúningsfundimir fram í gufu-
baðsklefum íþróttahússins við Lind-
argötu haustið 1963, og má segja
að þar sé vagga Kiwanishreyfingar-
innar á íslandi.
Formlegur stofnfundur var hald-
inn 14. janúar 1964 og hlaut klúbb-
urinn nafnið Kiwanisklúbburinn
Hekla. Frá þeim degi hefur klúbbur-
inn verið fullgildur Kiwanisklúbbur
samkvæmt reglum Kiwanishreyfing-
arinnar, hinn níundi í röð evrópskra
Kiwanisklúbba. Klúbburinn óx hratt
í byijun og voru félagar orðnir um
50 í maí 1964 og um 75 í október
sama ár. Og með vaxandi ásókn
manna um inngöngu í klúbbinn gerðu
menn sér grein fyrir því, að full þörf
væri fyrir annan Kiwanisklúbb -
nokkuð, sem engan óraði fyrir í byij-
un, þegar undirbúningur hófst að
stofnun Heklu.
Vöxtur Kiwanis á íslandi
Hinn 13. nóvember 1965 var hald-
inn fyrsti undirbúningsfundur að
stofnun klúbbs nr. 2 á Islandi, Kiw-
anisklúbbsins Kötlu í Reykjavík, rétt-
um tveim árum eftir að fyrsti fundur-
inn í Heklu hafði verið haldinn. Form-
legur stofnfundur Kötlu var svo hald-
inn 31. mars 1966 og er klúbburinn
hinn 25. í Evrópu, sem þýðir, að á
þeim tveim árum, sem liðin voru frá
stofnun Heklu höfðu 15 Kiwanis-
klúbbar bæst í hópinn í Evrópu.
Með stofnun Kötlu hófst líklega
mesta vaxtarskeið í sögu Kiwanis á
nokkrum stað í heiminum. Hér eru
nú 48 klúbbar með um 1.320 félögum
eða um 1 félagi á hveija 200 íbúa.
í Vestur-Evrópu, þar sem íbúafjöld-
inn er um 350 milljónir, er 1 félagi
á hveija 13.000 íbúa. íslenskir Kiw-
Launagr eiðendur!
Launamiðum
ber að skila
í síðasta lagi
21. janúar
Allir sem greitt hafa laun á árinu 1993 eiga að skila launamiðum
ásamt launaframtali á þartil gerðum eyðublöðum til skattstjóra.
mmm mmm vmmm wmmm mamm. mmm
ATH! Þeir sem fengu tímabundna endurgreiðslu trygginga-
gjalds á síðastliðnu ári þurfa að endurgreiða þá fjárhæð ásamt
dráttarvöxtum skili þeir ekki launaframtali og launamiðum
á réttum tíma.
Skilafrestur
rennur út
21. janúar
RSK
RÍKISSKATTSTJ ÓRI
Einar A. Jónsson aðalhvatamað-
ur að stofnun Kiwanishreyfing-
arinnar á Islandi og fyrsti for-
seti Kiwanisklúbbsins Heklu.
„Kiwanishreyfingin er
þjónustuhreyfing, sem
hefur að markmiði að
þjóna því samfélagi,
sem við búum í og að
rétta hjálparhönd þeim,
sem minna mega sín og
hjálpar eru þurfi.“
anismenn eru sem sé um 75 sinnum
fleiri en í Vestur-Evrópu sem heild
samkvæmt höfðatölureglunni, sem
svíkur ekki hér fremur en endranær.
Og ef litið er til Bandaríkjanna, hei-
malands Kiwanishreyfingarinnar,
með um 260.000 Kiwanisféiaga og
260 milljónir íþúa, er 1 félagi á hveija
1.000 íbúa. Islenskir Kiwanismenn
eru því hlutfallslega fimmfalt fleiri
en bandarískir!
Þjónustu- og líknarverkefni
íslenskra Kiwanisklúbba
Kiwanishreyfmgin er þjónustu-
hreyfing, sem hefur að markmiði að
þjóna því samfélagi, sem við búum
í og að rétta hjálparhönd þeim, sem
minna mega sín og hjálpar eru þurfi.
Allstór hluti af starfi klúbbanna bein-
ist að því að vinna að þessu markm-
iði, og er það gert með ýmsu móti.
Hafa íslenskir Kiwanismenn unnið
margvísleg hjálparstörf, ýmist með
beinum peningagjöfum, tækjagjöfum
til sjúkrahúsa, heilsugæsiustöðva og
stofnana og alls konar vinnu og að-
stoð.
Fjár til framangreindra verkefna
afia kiúbbarnir á ýmsan hátt. Má
þar nefna sölu jólatijáa, flugelda,
sælgætis, fisks, harðfisks o.fl. Sums
staðar hafa þeir tekið að sér sérstök
verkefni, svo sem sorphirðu í sínu
bæjarfélagi, niðurrif og hreinsun
mótatimburs, o.s.frv.
Eitt verkefni er enn ótalið, sem
vakið hefur óskipta athygli, bæði
hérlendis og ekki síður meðal Kiw-
anismanna erlendis. Þetta er svokall-
aður K-dagur, sem haldinn hefur
verið einn laugardag í október þriðja
hvert ár allt frá árinu 1974. Þennan
dag sameinast allir Kiwanismenn í
landinu um fjáröflun með sölu K-lyk-
ilsins til sameiginlegs verkefnis, sem
samkvæmt reglum um K-dag skal
ákveðið sérstaklega hveiju sinni.
Hins vegar hafa málin þróast þann-
ig, að verkefnið hefur verið hið sama
á öllum þeim sjö K-dögum, sem hing-
að til hafa verið haldnir, enda þörfin
brýn. Verkefnið hefur verið unnið
undir kjörorðinu „Gleymum ekki geð-
sjúkum“, sem þarfnast ekki nánari
skýringar. Heildarupphæð þess fjár,
sem safnast hefur á K-degi fram til
þessa að frádregnum kostnaði, nem-
ur um 170 milljónum króna á nú-
virði, og hefur það fé runnið óskert
til styrktar ýmsum framkvæmdum í
þágu geðsjúkra, ýmist í Reykjavík
eða á Akureyri.
Skipulag Kiwanis-
hreyfingarinnar
Samkvæmt lögum Kiwanishreyf-
ingarinnar er uppbygging hennar
þannig, að klúbbar, þrír til tíu, mynda
saman svokölluð svæði („divisions"),
sem stjórnað er af svæðisstjóra („lie-
utenant governor"). Svæðin, a.m.k.
þijú, oftast fleiri, mynda síðan saman
umdæmi, sem stjórnað er af umdæ-
misstjóra. Umdæmisstjóri hefur sér
til aðstoðar umdæmisritara og um-
dæmisféhirði, en þeir ásamt svæðis-
stjórum, fráfarandi umdæmisstjóra
og verðandi umdæmisstjóra mynda
umdæmisstjórn. Umdæmin, sem í
dag eru 46 að tölu, dreifð um allan
heim, heyra undir heimsstjórn Kiw-
anis. Aðalskrifstofur hreyfingarinnar
eru í Indianapolis í Indiana, Banda-
ríkjunum, og þar hittist heimsstjóm
Kiwanis til funda þrisvar á ári.
Heimsstjórnin er skipuð heimsfor-
seta, fráfarandi heimsforseta, verð-
andi heimsforseta, féhirði, tveimur
varaforsetum og 12 meðstjómend-
um, alls 18 manns.
Æðsta vald í málefnum Kiwanis-
hreyfingarinnar er í höndum Heims-
þings Kiwanis, sem haldið er í
júní/júlí ár hvert, og er þingstaður
breytilegur. Oftast er þingið haldið
í Norður-Ameríku, en tvisvar hefur
það verið haldið í Evrópu: í Vínar-
borg í Austurríki 1983 og í Nice í
Suður-Frakklandi 1993. Hver klúbb-
ur á rétt á að senda tvo fulltrúa til
heimsþings, en auk þess eiga heims-
stjórnarmenn, fyrrverandi heimsfor-
setar, umdæmisstjórnarmenn og
fyrrverandi umdæmisstjórar rétt til
setu á þinginu. Heimsstjórn kemur
saman til fundar í sambandi við
heimsþingið, og eru stjórnarfundir
þannig íjórum sinnum á ári.
Evrópa varð sjálfstæð eining innan
Kiwanishreyfingarinnar árið 1968
með sérstaka stjórn og skrifstofu,
sem staðsett'er í Sviss. Fyrir stjórn-
inni fer Evrópuforseti, kosinn til eins
árs á Evrópuþingi Kiwanis.
íslenska umdæmið og erlent
samstarf
ísland varð sérstakt umdæmi árið
1971 og eru nú starfandi í landinu
48 klúbbar á 6 svæðum. Færeyjar
urðu hluti af umdæminu 1981 með
stofnun fyrsta Kiwanisklúbbsins þar,
en nú eru starfandi þar tveir klúb-
bar. Umdæmisstjóri Kiwanisum-
dæmisins Ísland-Færeyjar í dag er
Sæmundur Sæmundsson.
Fram til þessa hafa fjórir Evrópu-
forsetar verið úr röðum íslenskra
Kiwanismanna, og á yfirstandandi
starfsári er kjörforsetinn úr röðum
íslendinga. Verður Evrópuforseti því
íslendingur á næsta starfsári, 1994-
1995.
Evrópa hefur síðan 1976 átt einn
fulltrúa í heimsstjórninni. Frá 1988
hefur þessi fulltrúi verið Islendingur,
Eyjólfur Sigurðsson úr Heklu. Á
heimsþinginu í Nice í Frakklandi á
síðasta ári náði Eyjólfur kjöri sem
féhirðir heimsstjórnar fyrir yfir-
standandi starfsár, og er hann þar
með kominn hærra í metorðastiga
hreyfingarinnar er nokkur Evrópu-
maður hefur náð hingað til. Sam-
kvæmt hefð gengur féhirðir upp í
embætti kjörforseta heimsstjórnar
næsta starfsár og síðan í embætti
heimsforseta, sem Eyjólfur mun þá
að öllu óbreyttu gegna á starfsárinu
1995-1996.
Konur í Kiwanis
Kiwanishreyfingin var upphaflega
karlahreyfmg eða bræðrafélagsskap-
ur, lokaður konum. Á heimsþingi
Kiwanis árið 1987 var hins vegar
lögum hreyfingarinnar breytt á þann
veg, að hreyfingin er nú opin konum
jafnt sem körlum. Síðan hafa konur
látið talsvert til sín taka innan hreyf-
ingarinnar bæði í blönduðum klúbb-
um og í hreinum kvennaklúbbum.
Hér á landi eru nú starfandi þrír
kvennaklúbbar og auk þess eru fjór-
ir blandaðir klúbbar. Af klúbbunum
tveimur í Færeyjum er annar klúbb-
urinn kvennaklúbbur.
Eftirmáli
Hér að framan hefur saga Kiw-
anishreyfingarinnar og íslenska um-
dæmisins verið rakin í örstuttu máli.
Ljóst er, að íslenskir Kiwanismenn
hafa staðið sig með mikilli prýði í
starfinu heima fyrir, og í alþjóða-
starfinu hafa þeir ekki síður skilað
mjög góðum árangri. Engin ástæða
er til að ætla annað en að hér verði
framhald á, því að meðal íslenskra
Kiwanismanna er að finna einvalalið
dugmikilla og áhugasamra ungra
manna og kvenna, sem hafa alla
burði til að bera merki Kiwanis hátt
og láta að sér kveða í starfinu, bæði
hér heima og á erlendum vettvangi.
Við, sem þessar línur höfum ritað,
viljum nota tækifærið og færa ís-
lenskum Kiwanismönnum hamingju-
óskir á 30 ára afmælinu.