Morgunblaðið - 19.01.1994, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 1994
*
Ast er...
kk
. .. að hafa mynd af hon-
um á skrifborðinu og ást
til hans í hjartanu.
TM Reg. U.S Pat Otf,—all rights reserved
® 1994 Los Angeles Times Syndicate
Áður en við byrjum skuluð
þið slá þann sem stendur við
hliðina á ykkur hressilega.
Jú, við höfum haft bíla í þess-
um verðflokki, en við seldum
þann síðasta árið 1951.
HÖGNI HREKKVlSI
„ hakik) hagnadist i/e~L 'A
SCMBAUHASA /HNIMG MUM
BREF TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329
Skrifað til Víkverja
Frá Eiríki Sigurðssyni:
Undirritaður hefur að staðaldri eins
og fjölmargir landsmenn fylgst með
skrifum Víkverja í Morgunblaðinu.
Mesta athygli mína hafa þó eðlilega
vakið þættir er fjalla hafa um mál-
efni neytenda, þar sem ég á hags-
muna og jafnframt skyldum að gæta
sem ábyrgðarmaður 10—11 verslan-
anna.
Það er skoðun mín að öll umfjöllun
þar sem athygli er vakin á ólíkum
málefnum og tekið á málum út frá
sjónarmiðum og forsendum hins al-
menna borgara eða neytenda gerist
æ nauðsynlegri, eftir því sem hið
daglega líf okkar og umhverfi verður
vélrænna.
Ég vil því sérstaklega þakka um-
fjöllun um rangt verð á kartöflum í
10-11 verslun í Mbl. 4. janúar sl.
Hér vekur Víkjyeiji nefnilega athygli
á þörfu máli. Ég leyfi mér af þessu
tilefni að fjalla hér örlítið um þetta
efni, enda varðar það hag neytenda
verulega, eins og Víkveiji bendir á.
Þeir sem til þekkja, vita að strika-
merkingar eru notaðar til verðmerk-
inga í 10-11 verslunum og víðar. Þær
hafa ýmsa kosti eins og menn vita;
öryggi í meðferð talna, t.d. við inn-
stimplun (þrátt fyrir alltí), vinnslu-
hraða, hagkvæmni í birgðahaldi,
pantanagerð, beintengingu við móð-
urtölvu o.s.frv. Sem dæmi má nefna
að án strikamerkinganna hefði verið
ómögulegt að koma því við að opna
10-11 verslanir kl. 17. hinn 2. janúar
eftir vörutalningu og virðisaukaskatt-
breytingar þegar ýmsar aðrar versl-
anir opnuðu ekki fyrr en 3. eða 4.
janúar. En því miður er ekki öll sag-
an sögð.
Strikamerkingakerfinu fylgja líka
nefnilega ókostir. Dæmið um kartöfl-
urnar sýnir einn þeirra. Til að skýra
það skal upplýst að 10-11 verslanirn-
ar buðu 3 tegundir af kartöflum nú
um jólin; jólakartöflur (stærri) á 348
kr. kg, venjulegar kartöflur á 298 kr.
og ódýrari flokk á 199 kr. Mistökin
í þessu tilviki felast í rangri staðsetn-
ingu, þ.e. vara með strikamerki sem
táknar 348 kr. er sett við verðskilti
298 kr. kartaflna. Vélræni þátturinn
stendur sig, en bér bregst mannlegi
þátturinn. Því miður er þetta þekkt
vandamál þar sem strikamerkingar
eru notaðar. En sem betur fer upp-
götvast þessi mistök fljótt eftir ábend-
ingu viðskiptavinar.
Meginástæða vandans er að varan
sjálf sýnir ekki verð, heldur tákn.
Verðið er neytandanum ætlað að lesa
af vöruhillum og við staðsetningu
vörunnar. Það kynni að virðast auð-
velt að bæta úr þessu með því að
verðmerkja sjálfa vöruna, en svo er
þó ekki.
Verslanir eins og 10-11 sem hafa
lágverðstefnu og eru því í harðri sam-
keppni hvað varðar vöruverð, inn-
kaupaumhverfi og aðra þjónustu,
þurfa að fylgjast mjög nákvæmlega
með verði keppinautanna á hveijum
degi, jafnvel oft á dag. Þær verða
þvi að hafa tæknilegt svigrúm til að
bregðast strax við, lækka vöruverð
ef svo ber undir, til að standa sig í
samkeppninni. Vöruverð myndast
ekki lengur eingöngu með því að
leggja tiltekna álagningu á heildsölu-
verð, heldur hefur samkeppnin veru-
lega mótandi áhrif. Hagkvæm inn-
kaup og rekstur hafa að sjálfsögðu
einnig mikið að segja. Auðvitað er
tilgangurinn sá að neytandinn sjái sér
í hag að gera sín innkaup þar sem
verðið er lægst, slíkt er fijáls sam-
keppni í sinni bestu mynd.
Ofanritað er alls ekki skrifað til
að bera blak af þeim mistökum sem
hér að ofan eru nefnd. Það er skylda
mín að biðjast afsökunar á þeim og
er það gert hér með. Þegar hafa ver-
ið gerðar ráðstafanir til að slíkt endur-
taki sig ekki og öryggiskerfið aukið.
Sem lokaorð standa eftir þessi mik-
ilvægu sannindi, þegar til lengri tíma
er litið, að mati undirritaðs: Neyt-
andi, meðvitaður um vöruverð hefur
mótandi áhrif. Jafnt í aðhaldi sínu
og með því að gera heimilisinnkaup
sín þar sem hann telur hag sínum
best borgið.
Enginn kaupmaður hefur hag af
þvi að selja vöru sína á röngu verði.
Góður kaupmaður hefur hag af því
að selja hana á sem lægstu verði!
EIRÍKUR SIGURÐSSON,
10-11/Vöruveltan hf.
Es.
Eftir að framanritað var sett saman
hefur athygli mín borist að grein
Víkveija í Mbl. 11. janúar 1994. Ég
leyfi mér að nota tækifærið og gera
vinsamlega athugasemd:
í grein Víkveija er settur fram
samanburður og vangaveitur um
þjónustu, vöruval og ekki síst vöru-
verð hjá Hagkaupsverslunum ann-
arsvegar og 10-11 verslunum hins-
vegar. Allir sjá að hugtök eins og
þjónusta og vöruval eru afstæð og
jafnvel persónubundin hvetju sinni
og sjálfsagt að velta slíkum málum
fram og til baka.
Öðru máli gegnir um vöruverð.
Vöruverð er ekki afstætt, þar tala
tölurnar einar. í þessu ljósi vekur
fulljTðingin ... Verðlag í 10-11
verslunum er hærra en í Hagkaups-
verslunum enda 10-11 verslanir
opnar lengur o.s.frv." undrun mína.
Nú er það svo að það er mikilvægur
hluti af starfi mínu að fylgjast með
verðlagi í helstu samkeppnisverslun-
um, en engin launung er að þær eru
helst Hagkaupsverslanir ásamt Bón-
usverslunum í sumum tilvikum (vöru-
flokkum). Tilgangurinn er auðvitað
að reyna að standa sig vel í verðsam-
keppni við þessar verslanir. Sam-
kvæmt síðustu verðkönnun Neyt-
endasamtakanna í matvöruverslun-
um, sem að vísu var framkvæmd sl.
haust er að sjá að bærilega hafi til
tekist, en þar mælist 10-11 verslun-
in Glæsibæ með lægra vöruverð en
Hagkaupsverslanir. Daglegur sam-
anburður minn á vöruverði matvöru-
verslana segir mér að svo sé enn,
svo ekki sé meira sagt.
Þess vegna varð ég hissa við ofan-
greinda fullyrðingu og vil því spyija:
Hvaða upplýsingar eru hér að baki?
Er það eigin verðsamanburður, verð-
tilfinning Víkverja (sem enginn
skyldi gera lítið úr)? Eru það aðrar
verðkannanir? Vill Víkveiji nú ekki
í fullri vinsemd upplýsa þá sem fylgj-
ast vilja grannt með þessum málum,
hvemig hann kemst að svona niður-
stöðu?
Þetta tilskrif er orðið ölu lengra
en til stóð í upphafi og er beðist
velvirðingar á því. Lokaorðin í fyrra
bréfi mínu eiga einnig við þetta bréf
að því viðbættu að rétt verðvitund
neytandans verður aðeins vakin með
réttum upplýsingum. Hér sinnir Vík-
veiji mikilvægu hlutverki, sem ber
að þakka.
Með bestu þökkum fyrir athyglina.
Yíkverji skrifar
að er undarlegt til þess að vita,
hversu stjórnmálamenn virðast
oft bráðir til þess að afskrifa það sem
sagt er um þá og þá umræðu sem
greint er frá í fjölmiðlum að fari fram
innan stjórnmálaflokkanna, sem eitt-
hvað sem sé „algjörlega úr lausu
lofti gripið", eða sem „kaffihúsa-
snakk“, svo vitnað sé orðrétt í um-
mæli Davíðs Oddssonar forsætisráð-
herra, í viðtali við Ingva Hrafn Jóns-
son á Stöð 2 sl. sunnudag. Raunar
virtist Víkveija sem hvorki Davíð né
Ingvi Hrafn hefðu í raun lesið þá
grein í sunnudagsblaði Morgunblaðs-
ins undir fyrirsögninni Haustkosn-
ingar?, sem þeir þó afgreiddu í sam-
einingu með ofangreindum hætti.
Ingvi Hrafn sagði orðrétt við forsæt-
isráðherra: „Kannski ekki úr vegi
Davíð, að spyija þig í framhaldi af
þessari frétt, ein af þessum lærðu
greinum Morgunblaðsins, um að þú
sért farinn að hugleiða að bjóða til,
boða til haustkosninga. Er eitthvað
til í þessu?" Forsætisráðherra svar-
aði: „Ekki svo mér sé kunnugt, að
ég sé farinn að hugleiða þetta og
reyndar er nú margt í þessari grein
þess eðlis, að ef það er satt, þá ætti
ég að vita það. Það er nú þannig að
þingrofsheimildin iiggur hjá mér,
hvílir hjá mér, en ég hef ekki neinar
slíkar vangaveltur. En reyndar sá
ég í þessari grein líka að hugsanlega
væri ég að hugsa um að efna til þing-
kosninga fyrir borgarstjórnar- og
sveitarstjórnakosningar, þá núna í
apríl. Þetta er allt úr lausu lofti grip-
ið og engin slík hugleiðing komið inn
í minn koll og ég hef hvergi rætt
slíka hluti, þannig að þetta er svona
kaffihúsasnakk, því miður.“ „Kaffi-
húsasnakk," endurtók fréttastjóri
Stöðvar 2 og sneri sér að næstu
spurningu.
XXX
Vel má vera, að umræður helstu
forystumanna stjómarflokk-
anna um það hvort flýta beri næstu
alþingiskosningum flokkist í huga
forsætisráðherrans sem „kaffihúsa-
snakk“, en það breytir engu um
það, að slík samtöl forystumanna
beggja stjórnarflokka hafa farið
fram að undanförnu. Um það er
forsætisráðherra sem öðrum for-
ystumönnum stjórnarflokkanna full-
kunnugt. Eins hlýtur honum að vera
kunnugd: um það, að hvergi nokkurs
staðar í áðurnefndri grein er minnst
einu orði á að hann væri „hugsan-
lega að hugsa um að efna til þing-
kosninga í vor“, né heldur er minnst
á það í áðurnefndri grein að hann
sé að hugleiða að efna til haustkosn-
inga. Það er yfirhöfuð ekki vikið
einu orði að því hvað forsætisráð-
herra kann að vera að hugleiða, en
hins vegar eru skoðanir og raddir
ákveðinna sjálfstæðismanna og.al-
þýðuflokksmanna endurspeglaðar í
greininni og mismunandi viðhorfum
lýst til tímasetningar næstu þing-
kosninga. Spurning fréttastjórans
og svör forsætisráðherra byggðust
því á röngum grunni.
xxx
Raunar er einungis ein afdráttar-
laus ályktun dregin í grein-
inni, en hún er sú, að þótt sumir sjálf-
stæðismenn telji, að Davíð Oddsson,
sem einn hefur þingrofsheimildina,
ætti að nýta sér hana hið fyrsta, og
efna til kosninga fyrir borgarstjórn-
arkosningar, þá sé afar ólíklegt að
sú verði niðurstaðan, þar sem aðrir
sjálfstæðismenn telji að „hefndar-
þorsti“ í garð krata, vegna samstarfs
þeirra við minnihlutaflokkana fyrir
borgarstjórnarkosningar, sé ekki
nægileg ástæða til þingrofs. Auk
þessa voru rakin þau atriði sem þykja
mæla með haustkosningum, jafn-
framt því sem rakin voru þau atriði
sem þykja mæla með að kosið verði
á þeim tíma, sem reglulegar kosning-
ar eiga að fara fram, vorið 1995.