Morgunblaðið - 01.02.1994, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRUAR 1994
Forsætisráðherra um afnám aðstöðugjalds
Ahrif komu fram
í lægra verðlagi
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir, að áætlað sé að af-
nám aðstöðugjalds hafi leitt til þess að framfærsluvísitala
varð 1-1,5% lægri á síðasta ári en ella hefði verið. Það þýði
að staða heimilanna hafi batnað um sem svarar 3 milljörðum
króna.
Þetta kom fram í vari við
spurningu Rannveigar Guð-
mundsdóttir þingmanns Alþýðu-
flokksins á Alþingi á mánudag.
Davíð Oddsson sagði að með af-
námi aðstöðugjalds hafi verið létt
5 milljarða króna álögum af fyrir-
tækjum, ef miðað væri við inn-
heimtu gjaldsins. Þetta hafi mörg
fyrirtæki nýtt sér til að halda
vöruverði óbréyttu þrátt fyrir
hærra innkaupsverð, m.a. vegna
gengisfellinga og því hafi áhrif
gengisfellingarinnar í lok ársins
1992 á vöruverð orðið mun minni
en óttast var. Önnur fyrirtæki
hefðu nýtt sér þetta til að styrkja
stöðu sína, einkum í greinum þar
sem samkeppni ér lítil.
Kristinn H. Gunnarsson þing-
maður Alþýðubandalagsins sagði,
að samkvæmt upplýsingum for-
sætisráðherra hefði 5 milljörðum
verið létt af fyrirtækjum en 3
milljarðar hefðu komið fram í
bættum hag neytenda, sem þýddi
að um hefði verið að ræða 2 millj-
arða skattahækkun á neytendur.
Davíð Oddsson sagði, að það hefði
verið yfirlýst markmið með af-
námi aðstöðugjaldsins að létta
álögum af fyrirtækjum og færa
þau yfir á einstaklinga til að
styrkja stöðu atvinnulífsins.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
AndvariVE 100
EINS og áður segir voru skemmdir á Andvara kannaðar á Akur-
eyri á sunnudag, þar sem myndin var tekin. Andvari er 300 tonna
og 6 ára gamalt rækjuskip en x frétt Morgunblaðsins á laugardag
var mynd af gamla Andvara, 126 tonna skipi.
Andvari
á veiðar
RÆKJUSKIPIÐ Andvari VE
100 er komið á veiðar eftir
að skemmdir skipsins voru
kannaðar á Akureyri á sunnu-
dag. Þær reyndust ekki miklar
og verður gert við skipið um
leið og varahlutir berast. Skip-
ið tók niðri í svai*tabyl við
Grímsey á laugardagsmorgun.
Jóhann Halldórsson, skip-
stjóri, sagði að um leið og veður
lægði hefði verið haldið frá
Grímsey og komið til Akureyrar
um kl. 9 á sunnudagsmorgun.
Reyndist slingubretti skemmt,
botnstykki horfið og dældir á
einum eða tveimur stöðum á
botninum. Hann sagði að þar
sem skemmdirnar hefðu ekki
reynst miklar hefði verið haldið
á veiðar að nýju samdægurs og
yrði skemmdirnar lagfærðar um
leið og botnstykki fengist. And-
vari er á rækjuveiðum í Eyjafarð-
arál.
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 1. FEBRUAR
YFIRLIT: Skammt suður af Vestmannaeyjum er 970 mb smálægð sem
fer norðnorðaustur, en yfir vestanverðu Grænlandshafi er 954 mb lægð
sem fer norðaustur.
STORMVIÐVÖRUN: Búist er við stormi á Austurdjúpi, Færeyjadjúpi
Suðurdjúpi og Suðvesturdjúpi.
SPÁ: Suðvestankaldi eða stinningskaldi víðast hvar á landinu. Él eða
slydduvél um sunnan- og vestanvert landið en annars staðar skúrir.
Hiti +3 til 3 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Suðvestanátt með hvössum éljum sunnan-
og vestanlands en hægari vindi og björtu veðri norðanlands og austan.
Frost á bilinu 3 til 15 stig.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Breytileg og svo norðlæg átt og él á víð og
dreif um mest allt land, þó síst á Suðaustur- og Austurlandi. Frost á
bilínu 2 til 10 stig.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Búast má við áframhaldandi umhleypingum
og hita víða nólægt frostmarki.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30. 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22.30. Svarsími Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600.
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað
r r r * r * * * *
r r * / * *
r r r r * r * * *
Rigning Slydda Snjókoma Skúrir Slydduél
V
$
Alskýjað
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig
10° Hitastig
Súld
Þoka '
V
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígær)
Greiðfært er um vegi á Suöur-, Suðvestur- og Vesturlandi allt til Reyk-
hóla. Fært er frá Brjánslæk til Patreksfjarðar og Bjldudals. Botns- og
Breiðadalsheiðar eru færar en Steingrímsfjarðarheiði er ófær. Batta-
brekka erfær og fært erum Holtavörðuheiði og um Norður- og Norðaust-
urland. Mývatns- og Möðrudalsöræfi eru ófær. Fært er um Fjarðarheiði
og Oddsskarð og með ströndinni tilReykjavíkur. Mjög víða um land er
mikil hálka.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
f grænnilínu 99-6315. Vegagerðín.
VEÐUR VÍÐA
kl. 12.00 í gær
UM HEIM
að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 2 alskýjað
Reykjavlk S rigning
Bergen 2 skýjað
Helsinki +15 léttskýjað
Kaupmannahöfn 3 léttskýjað
Narssarssuaq +11 skafrenningur
Nuuk +16 snjókoma
Oslé +4 skýjað
Stokkhólmur +2 skýjað
Þórshöfn 1
Algarve 14 skýjað
Amsterdam 6 alskýjað
Barcelona vantar
Berlín 4 skýjað
Chicago +11 iéttskýjað
Feneyjar 4 þokumóða
Frankfurt S skýjað
Glasgow 6 rigning
Hamborg 5 skúr
London 7 skýjað
Los Angeles 16 alskýjað
Lúxemborg 1 heiðskírt
Madrid 12 heiðskirt
Malaga vantar
Mallorca 9 léttskýjað
Montreal +18 lóttskýjað
New York +2 skýjað
Orlando 18 skýjað
París 6 skýjað
Madelra 15 léttskýjað
Róm 12 heiðskírt
Vín 5 iéttskýjað
Washington 3 léttskýjað
Wlnnipeg +15 snjókoma
IDAG kl. 12.00
Heimíld: Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurspó kl. 16.30 í gær)
Sjávarútvegsráðherra
ræðir við Gro Harlem
Fer í opinbera heimsókn til Noregs á morgun
ÞORSTEINN Pálsson sjávarút-
vegsráðherra mun hitta Gro
Harlem Bnmdtland forsætisráð-
herra Noregs að máli í opinberri
heimsókn sinni til Noregs sem
Hveragerði
Húsnæði Tí-
volís til sölu
HÚSEIGNIN við Austur-
mörk 24 í Hveragerði er til
sölu en þar var Tívolíið rek-
ið til skamms tíma.
Húsnæðið, sem er i eigu
Búnaðarbankans, var byggt
árið 1987 og er selt án tækja.
Það er 6.245 m2’ að stærð og
stendur á eignar- og leigulóð
og á að seljast fyrir 11 milljón-
ir króna.
hefst á morgun. Brundtland ósk-
aði eftir að hitta Þorstein að
máli í heimsókn hans og mun það
vera nokkuð óvenjulegt að for-
sætisráðherrar ríkja óski eftir
slíkum fundum í opinberum
heimsóknum fagráðherra.
Þorsteinn Pálsson sagðist í sam-
tali við Morgunblaðið ekki vita hvað
Gro Harlem Brundtland vilji ræða,
en búist er við að umræðuefnið
verði Smugumálið og að norski for-
sætisráðherrann vilji þrýsta á ís-
lendinga að þeir fari sér hægt í að
senda fiskiskip í Barentshaf.
Heimsókn Þorsteins til Noregs
hefst í dag, eins og áður sagði, og
verður fundur hans með norska
forsætisráðherranum fyrstur á dag-
skrá heimsóknarinnar. Þorsteinn
mun einnig ræða við Jan Henry T.
Olsen sjávarútvegsráðherra Nor-
egs. Þá hittir hann að máli fulltrúa
frá hagsmunasamtökum innan
sjávarútvegsins og atvinnumála-
nefnd Stórþingsins.
Jakobína Sigurð-
ardóttir látin
JAKOBÍNA Sigurðardóttir rit-
höfundur lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri sl. laug-
ardag. Jakobína Sigurðardóttir
fæddist í Hælavík í Sléttuhreppi,
N-ísafjarðarsýslu, 8. júlí árið 1918
og var því á 76. aldursári þegar
hún lést. Foreldrar Jakobínu voru
Stefanía Halidóra Guðnadóttir hús-
móðir og Sigurður Sigurðsson,
bóndi og símstöðvarstjóri.
Jakobína stundaði nám í einka-
kennslu og einn vetur í Kennara-
skólanum. Hún dvaldist uppkomin
14 ár sunnanlands og fluttist árið
1949 að Garði í Mývatnssveit. Þar
var hún húsfreyja síðan.
Eftirtaldar skáldsögur hafa
komið út eftir Jakobínu: Sagan af
Snæbjörtu Eldsdóttur og Ketilríði
Kotungsdóttur, 1959. Dægurvísa,
1965. Snaran, 1968. Lifandi vatn-
ið, 1974. í sama klefa, 1981. Smá-
sagnasöfn eru Púnktur á skökkum
stað, 1964. Sjö vindur gráar, 1970,
og Vegurinn upp á fjallið, 1990.
Eftir hana kom út ljóðabókin Kvæði
árið 1960.
Jakobína hlaut fjölmargar viður-
kenningar fyrir ritstörf sín. Hún
naut heiðurslauna Alþingis, og var
m.a. kjörin heiðursfélagi Rithöf-
undasambands íslands árið 1990.
Þá fékk hún styrk fithöfundasjóðs
ríkisútvarpsins. Bækur hennar
voru tvisvar tilnefndar tii bók-
menntaverðlauna Norðurlanda-
ráðs.
Eiginmaður Jakobínu er Þor-
grímur Starri Björgvinsson, bóndi,
Garði. Þau eignuðust fjögur börn.