Morgunblaðið - 01.02.1994, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 01.02.1994, Qupperneq 18
18_____________MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1994_ Iþróttadrykkurinn er vatn! eftir Jón Gíslason Þeim sem leggja stund á keppnisíþróttir eða aðra líkams- rækt er flestum kunnugt um mikil- vægi þess að bæta vökvatap lík- amans. Það vefst hins vegar fyrir mörgum hvaða drykk best er að velja og um leið á hvaða tíma eða hve oft skuli drukkið og hversu mikið í einu. Auk þess er ýmist ráðlagt að drekka volga eða kalda drykki og því ekki nema von að fólk þreytist af ráðum „spekinga" ekki síður en af þeirri eðlile'gu áreynslu sem fylgir og er mark- mið íþróttaiðkunar og annarrar hreyfingar. Ekki er nokkur vafi á að marg- ir leggja út í óþarfa fyrirhöfn og kostnað með því að blanda sykri eða blöndu af sykri og öðrum efn- um í hið góða íslenska vatn, eða kaupa tilbúna íþróttadrykki. Slíkt gagnast helst þeim sem stunda mikla og langvarandi áreynslu og er því vart fyrirhafnarinnar virði fyrir þá sem stunda almennings- íþróttir. Vatnið er best Hlutverk íþróttadrykkja er að bæta vökvatap og tap orkuefna og salta (steinefna) sem á sér stað við langvinna líkamsáreynslu. Notkun þessara drykkja er hins vegar orðin mun víðtækari en þörf er á. Orkuforði líkamans er að öllu jöfnu nægur til áreynslu sem varir allt að einni klukkustund og þann tíma sem slík líkamshreyfing stendur yfir er mikilvægast að bæta vökvatap. Þá er hreint vatn einn besti kosturinn sem völ er á, þar sem það nýtist fljótt og vel til að bæta það tap sem tapast með svita og við öndun. Ef vök- vatap er ekki bætt dregur úr af- köstum og getur þetta haft veru- leg áhrif á getu fólks ef vökvatap er mikið. Best er að drekka 1-2 dl (100-200 ml) áður en hreyfing hefst og síðan er ágætt að miða * við að svipað magn sé drukkið á 15-20 mínútna fresti. Ef ekki er um langvinna áreynslu að ræða eru í raun lítil haldbær rök fyrir að ráðleggja annan „íþróttadrykk“ en hreint vatn, en má það vera kalt? Lengi vel hefur verið ráðlagt að drekka volgan drykk, en síðari tíma rannsóknir benda til þess að kaldari drykkir (5-10°C) nýtist hraðar og séu því betri kostur. Hressandi kranavatni á því enginn að fúlsa við. Mataræði Til að byggja upp orkuforða lík- amans er best að borða kolvetna- ríka fæðu sem einnig er næringar- rík að öðru leyti þannig að þörf fyrir bætiefni sé einnig fullnægt. Þar eru afurðir úr jurtaríkinu mik- ilvægastar og má sem dæmi nefna brauð og annan kornmat, kartöfl- „Hressandi kranavatni á því enginn að fúlsa við.“ ur, gulrætur og annað grænmeti og ávexti. Sykur er líka kolvetni, en mikil neysla á sykri leiðir til þess að vítamín og steinefni verða af skornum skammti. Kannanir á mataræði sýna að neysla sykurs er of mikil hér á landi og á þetta ekki síður við um íþróttafólk en aðra. Ástæðan getur verið óregla á mataræði vegna mikilla æfmga, sem leiðir til meiri neyslu á kexi og öðru sem auðvelt er að grípa til, en einnig má benda á að fram- boð neysluvara í íþróttahúsum og við önnur íþróttamannvirki stuðlar ekki að góðu mataræði. Uppeldishlutverk íþróttahreyf- ingarinnar og ábyrgð á þroska barna og unglinga er mikil og helst í hendur við þá ábyrgð sem hvílir á foreldrum og skólum. Á síðari árum hefur aukin áhersla verið lögð á fræðslu um mataræði og íþróttir og_nú er til dæmis boð- ið upp á samlokur og hreinan safa í mörgum íþróttahúsum. Það er óskandi að vörur sem þessar verði í auknum mæli fyrir valinu í stað gosdrykkja og sælgætis, sem mestu hafa ráðið í framboði neysluvara á slíkum stöðum. En betur má ef duga skal. Ekkert er einfaldara en að bjóða ávexti til sölu og jafnvel aðra kolvetnaríka fæðu og ef fræðsla fylgir samhliða ættu slíkar vörur að ná til barna, unglinga og annarra sem stunda líkamsþjálfun. Að velja drykk Eitt af því sem þarf að bæta í íþróttahúsum og öðrum íþrótta- mannvirkjum er aðgangur að hreinú vatni. Gosdrykkir innihalda mikinn sykur (10-12%) og það sama gildir reyndar einnig um hreinan safa, þannig að þessa drykki á ekki að nota fyrir eða á meðan á þjálfun eða keppni stend- ur. Til samanburðar má nefna að algengt er að íþróttadrykkir inni- haldi 5-6% sykur og er reynt að Um „persónulegar og póli- tískar árásir“ á Júlíus Hafstein eftirÞráin Bertelsson í Morgunblaðinu síðastliðinn sunnudag sakar Júlíus Hafstein borgarfulltrúi og formaður Lýð- veldishátíðarnefndar Reykj avikur- borgar mig um tvennt: í fyrsta lagi segir Júlíus: „Frá mínum bæjardyrum séð eru þetta bæði persónulegar og pólitískar árásir á mig sem ég vona að sjálf- stæðismenn sjái í gegnum.“ (Let- urbr. mín. Þ.B.) Ég á fremur erfitt með að átta mig á því hvað Júlíus á við með þessu orðalagi, en þykist þó skilja að hann vilji heldur að sjálfstæðis- menn sjái í gegnum mig en sig. Ef hann á við ályktun Rithöf- undasambandsins um mál Örnólfs Árnasonar, fyrram formanns Leikskáldafélags íslands og vara- forseta Alþjóðasamtaka leik- skálda, eða fyrirspurnir varðandi það efni, þá vil ég fullvissa hann um að þar er engar ásásir að fínna heldur er einvörðungu verið að taka upp hanskann fyrir listamann sem hefur orðið fyrir árás. Og í því tilviki er árásarmaðurinn eng- inn annar en Júlíus sjálfur, enda hefur hann margítrekað að hann beri alla ábyrgð á árásinni. Það á aðeins eftir að leiða í ljós í hveiju sú ábyrgð er fólgin. Ef hann á hins vegar við þau orð mín í Morgunblaðinu að íslend- ingum hafi alla tíð fundist lítið til um greind þeirra manna sem stunda hestaskipti útí miðjum ám þá vora þau ekki persónuleg árás á Júlíus heldur almenn sannindi sem eiga ekki frekar við Júlíus heldur en aðra stjórnmálamenn eða fólk yfirleitt. í öðra lagi segir Júlíus að sér þyki miður hvernig Rithöfunda- sambandið hafi sent Indriða G. Þorsteinssyni „tóninn með þeim hætti sem formaður gerði með ummælum sínum“. Mér brá þegar ég las þetta og hélt að blaðamaðurinn hefði haft eitthvað rangt eftir mér í viðtali og flýtti mér að líta í blaðið. En þar skeikaði engu. Þarna stendur svart á hvítu að ég kallaði Indriða G. Þorsteinsson „mætan rithöf- und“ og sný ég ekki aftur með það. En Júlíusi til upplýsingar sló ég orðinu upp í íslenskri orðsifja- bók sem er útgefin af Orðabók Háskólans og þar stendur: „Ágætur, í miklum metum; og í sams. verðmætur. “ Þetta er nú tónninn sem ég fyrir hönd Rithöf- undasambands íslands sendi Ind- riða G. Þorsteinssyni. Fátt er þó með öllu iilt; þrátt fyrir þessar tvær rangfærslur um mig og minn málflutning tekst Júlíusi að koma tveimur stað- reyndum óbrengluðum til skila. Sú fyrri er sú staðreynd að ég er formaður Rithöfundasambands íslands. Nafn Júlíusar kom inn á mitt borð þegar Örnólfur Árnason sneri sér til Rithöfundasambands- ins vegna þess að Júlíus Hafstein bannaði flutning á verki Örnólfs sem Júlíus hafði sjálfur borið ábyrgð á að pantað væri hjá höf- undinum. Og ekki nóg með það! Júlíus bannaði flutning verksins - án þess að hafa kynnt sér efni þess. Af þessum sökum hef ég neyðst til að kynna mér embættis- störf Júlíusar Hafsteins og gera um það ályktanir og fyrirspurnir. Hin staðreyndin sem Júlíus fer rétt með er sú að ég er fyrrver- andi ritstjóri Þjóðviljans. Sú stað- reynd kemur hins vegar afskiptum mínum af embættisstörfum Júlíus- ar ekkert við. Ég er á móti vald- níðslu án tillits til stjórnmálaskoð- ana þeirra sem hana stunda. Og úr því að Júlíus er að reyna jað gera mig tortryggilegan í aug- um sjálfstæðismanna út af störf- um mínum við Þjóðviljann um tíma þá get ég bent honum á að blaða- mennsku byijaði ég að stunda á Ríkisútvarpinu, Sjónvarpinu, DV, Þjóðviljanum og Hestitium okkar, ýmist fastráðinn eða sem lausa- Inginn sér Þú elnn wslst Nær eigin hári kemstu ekki Höfum ýmsar gerðir af viðbótar hári, hártoppum, hárkollum fyrir konur og karla. í meira en fimmtán ár höfum við aflað okkur kunnáttu og reynslu á þessu sviði og þekkjum því nánast allt sem á markaðnum er. Sjón er sögu ríkari. Persónuleg þjónusta í fyllsta trúnaði. Nánari upplýsingar ef óskað er. RAKARA- OQ HÁRGRE1ÐSLUSTWAN GHEIFEKIV HRINQBRAUT119 * SÍMI mm Jón Gíslason haga samsetningu þessara drykkja þannig að vatn, sem að sjálfsögðu er megin uppistaða þeirra, nýtist sem best til að bæta vökvatap. Eins og áður er nefnt er hreint vatn hins vegar í flestum tilvikum besti „íþróttadrykkurinn“ og því er vel við hæfi að nú er unnið að því að hvetja til þess að drykkjar- vatnsskálum verði komi fyrir í íþróttamannvirkjum og skólum. Börn og unglingar læra fljótt að nota slíkar nýjungar og þá verður ásókn í aðra miður góða drykki eflaust minni en áður. Höfundur er næringarfræðingur og forstöðumaður lijá Hollustuvernd ríkisins. Þráinn Bertelsson „Ég- á fremur erfitt með að átta mig á því hvað Júlíus á við með þessu orðalagi, en þykist þó skilja að hann vilji held- ur að sjálfstæðismenn sjái í g-egnum mig en sig.“ maður. Ég geri ráð fyrir því að með því að taka störf mín við Þjóðvilj- ann um eins árs skeið út úr blaða- mannaferli mínum vilji Júlíus gefa í skyn að ég sé óður kommúnisti og hatist við alla sjálfstæðismenn, og hafi þess vegna í einhveiju heiftaræði farið að glefsa í Júlíus blásaklausan. Þetta er ekki rétt. Ég hef verið í tveimur stjórnmálaflokkum um dagana og gert stuttan stans í báðum, fyrst í Sjálfstæðisflokkn- um og síðar í Alþýðubandalaginu. Sem stendur er ég utanflokka og aðhyllist svipaðar skoðanir og stór hluti þjóðarinnar sem finnur engan flokk til að styðja í augnablikinu. Höfundur cr formaður Rithöfundasambands íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.