Morgunblaðið - 01.02.1994, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRUAR 1994
19
JíeWiiM
-sctur brag í sérhvern dag!
Södahl diskamottur og sendi hér
□ Eg vil gjarnan fá _
meö_______toppa af Merrild 500 g.
□ Ég vil gjarnan fá greitt fyrir meöfylgjandi _
samtals_______kr.
□ Ég vil gjarnan fá Södahl dúk og sendi hér meö 20 toppa
og 990 kr. ávísun.
. toppa
og Finnboga Rút, gegn dulbúnum
iilyrðum náins skyldmennis í þeirra
garð.
Á sagnfræðilegum grundvelli,
þar sem öll málsskjöl eru lögð fram,
og staðreyndir krufnar til mergjar,
er hægt að ræða stjórnmálasögu
við réttsýna og sanngjarna menn.
Utanríkisráðherra Islands, Jón
Baldvin Hannibalsson, hefur dæmt
sig úr leik á slíkum vettvangi, sak-
ir ofstækis og mannfyrirlitningar,
sem hann er greinilega haldinn af,
en sakar aðra um í þessari endemis-
grein sinni. Þess vegna fer líklega
bezt á því, að láta hann óáreittan
við að hugleiða frekar með sjálfum
sér þau brigzlyrði, m.a. svik og
landráð, sem honum eru svo einkar
hugleikin nú um þessar mundir, —
og leyfa um leið samvizkunni að
naga í friði.
Höfundur er cand. mag.
Samvizkubit utanríkisrádherra
eftir Einar Laxness
Þrátt fyrir allt virðist enn einhver
vottur eftir af samvizku í utanríkis-
ráðherra íslands, Jóni Baldvini
Hannibalssyni. Til þess bendir
ramakvein, sem hann rekur upp í
furðulegri grein í nýútkomnu blaði,
Eintaki, 1. tbl., 20. jan. sl. Undirrit-
aður getur ekki látið hjá líða að
gera athugasemd.
Veit utanríkisráðherra upp á sig
einhverja skömm? Er hann að hugsa
til þeirra daga, þegar hann og náin
skyldmenni hans, vinir og félagar,
voru á grundvelli heiðarlegra hug-
sjóna að vara íslendinga við erlend-
um herstöðvum á íslenzkri grund,
vegna þess að þær mundu menga
land og þjóð í bráð og lengd?
Getur verið, að bit samvizkunnar
ónáði svona hroðalega utanríkisráð-
herrann, þegar hann er að hugsa
til þess að hafa setið lon og don á
leynifundum með bandarískum
ráðamönnum, í því skyni að fá þá
ofan af áformum um að draga úr
vægi herstöðvarinnar á Keflavíkur-
flugvelli, — fá þá ofan af þeirri
„ósvinnu" að fækka hermönnum,
fækka herflugvélum, draga úr her-
æfingum o.s.frv.? Og jafnframt að
fá þá tækifæri til að draga þannig
úr gamalkunnu og umdeildu her-
mangi, sem þessi ráðherra þekkir
orðið betur en nokkur annar.
Er það í slíkum hugleiðingum,
sem utanríkisráðherranum koma
orð, eins og blekkingar, lygar, svik,
jafnvel landráð, í hug, og síðan I
„smekkvísi" sinni og alræmdum
ráðherrasjálfbirgingi tengir brigzl-
yrðin við Halldór Laxness, rithöf-
und? Látum svo vera, að Jón Bald-
vin Hannibalsson standi í þeirri trú,
að hann geti slegið sig til riddara
á því hvað eftir annað' að hrakyrða
hinn aldna rithöfund með ruddalegu
orðbragði. Hann lýsir bezt með því
eigin sálarlífi.
Hitt er annað mál, sem minna
má utanríkisráðherrann á í þessu
sambandi, og vert er að rifja upp,
að ásakanir hans um ávirðingar
annarra, geta hitt ýmsa fyrir, jafn-
vel þá, sem hann nú kallar „ær-
lega“ stjórnmálamenn. Ég vil aðeins
minna á tvo menn í þeim hópi, sem
standa nokkuð nærri utanríkisráð-
herranum sjálfum: Föður ráðherr-
ans, Hannibal Valdimarsson, og
föðurbróður, Finnboga Rút Valde-
marsson, en þann síðarnefna taldi
ráðherrann átrúnaðargoð sitt og
sérstakan lærimeistara.
Þessir ágætu menn voru nefni-
lega um tuttugu ára skeið í fremstu
víglínu þeirra, sem börðust gegn
erlendum herstöðvum í landinu.
Finnbogi Rútur var auk þess þing-
maður Sósíalistaflokksins („komm-
únista") í sjö ár (1949-56). Báðir
voru þeir bræður, löngum stundum,
ágréiningslítið, nánir samstarfs-
menn Einars Olgeirssonar, Brynj-
ólfs Bjarnasonar, Lúðvíks Jóseps-
sonar og annarra sósíalista. Finn-
bogi Rútur var svo fulltrúi Sósíal-
istaflokksins, og síðar Alþýðu-
bandalagsins í utanríkismálanefnd
Alþingis, og því aðaltalsmaður
þeirra í utanríkismálum á þingi! Þar
hélt hann uppi merki þeirra, sem
vöruðu við afleiðingum hersetu á
íslandi.
Tímarnir breytast og mennirnir
með. Ný manngerð er komin fram
á vettvangi stjórnmálabaráttunnar
í gervi utanríkisráðherra íslands,
Jón Baldvin Hannibalsson, sem
sjálfur þóttist róttækari en flestir
„ærlegir" stjórnmálamenn á sokka-
bandsárum sínum, jafnvel eiga sér
„hugsjónir". Hann átti þess kost
nú sem utanríkisráðherra, í góðri
samvinnu við Bandaríkjamenn, að
minnka umsvifin í herstöðinni og
fylgja fram boðskap lærimeistara
síns, Finnboga Rúts.
En — hvað hefur gerzt? Pilturinn
er orðinn „kaþólskari en páfinn",
hann hefur tekið trú á „aronsk-
una“, sem flestir fyrirlitu áður, og
hermangið nýtur sérstakrar vernd-
ar hans. Er pilturinn umskiptingur?
Hann virðist ganga gegn öllu því
sem góðir foreldrar og frændur
„Nú síðast finnur utan-
ríkisráðherra sérstaka
hvöt hjá sér til þess
að ausa óhróðri yfir
nóbelsskáld þjóðar-
innar, kallar hann
„dómgreindarlausan
fáráðling“.“
hafa innrætt honum í uppeldinu.
Hann virðist orðinn hugsjónalaus
valdastreitumaður.
Nú síðast finnur utanríkisráð-
herra sérstaka hvöt hjá sér til þess
Heimilisfang:
Póstnúmer:..
Skrifíb meb prentstöfum
Merrild Kaffi Pósthólf 4132 124 Reykjavík
-----------------------------------------------------------------1
að ausa óhróðri yfir nóbelsskáld
þjóðarinnar, kallar hann „dóm-
greindarlausan fáráðling" (þann
dóm fær einnig annað nóbelsskáld
hjá honum, Knut Hamsun), og jafn-
ar honum við fjöldamorðingja,
brennuvarga og landráðamenn.
Þótt bækur Halldórs Laxness,
meira en hálft hundrað, tali sínu
máli, og greini frá viðhorfum hans
á löngum og viðburðaríkum
„skáldatíma", rennur mér auðvitað
blóðið til skyldunnar að bera hönd
fyrir höfuð föður mínum, aldur-
hnignum og sjúkum, gegn hrakyrð-
um pólitískra götustráka og lodd-
ara. Ég skal líka glaður taka að
mér, ef þörf krefur, að bera í bæti-
fláka fyrir ærlega stjórnmálamenn
og hugsjónamenn, eins og Hannibal
Einar Laxness
Safnabu Merrild toppum og
skreyttu borbib þitt
Nafn:
Þegar þú kaupir Merrild kaffipakka færðu ný-
malað gæðakaffi. Með því að safna toppunum
geturðu nú skreytt borðið með
nýjum og skemmtilegum
diskamottum frá Södahl eða
dúk með sama munstri. Þú
þarft aðeins að senda okkur
toppana af rauðum Merrild eða
Merrild Light. Með því að safna
5 til 40 toppum færð þú allt að 8 diska-
mottur frá Södahl og fyrir aðra 20 toppa
og 990 kr. ávísun færð þú dúk. Ef þú vilt fá
andvirðið borgað út sendum við þér ávísun,
hver toppur er 20 kr. virði. Tilboðið
stendur til 15. ágúst 1994. Sendu
seðilinn með nafni þínu. og
heimilisfangi ásamt toppunum.
Hvert heimili má í mesta lagi
senda inn 40 toppa og einn
miða. Klipptu toppinn af rauðum
Merrild eða Merrild Light kaffipakka ef
þig langar í kaupbæti með góðu kaffi.
Merrild kaffi
Pósthólf 4132
1 24 Reykjavík
Utanáskriftin er: