Morgunblaðið - 01.02.1994, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1994
27
Sigldu
skútu 521
sjómílu á
sólarhriiig’
London. Reuter.
BROTIÐ var blað í siglingasög-
unni í síðustu viku er skútan
ENZA lagði að baki 520,9 sjómílur
eða 962,6 kílómetra, á einum sól-
arhring eða 40,1 kílómetra á
klukkustund. Eftir aðeins 10 daga
siglingu er skútan fjórum dögum
á undan áætlun í kapphlaupi
tveggja skúta um að sigla um-
hverfis jörðina án viðkomu á leið-
inni á innan við 79 dögum.
ENZA sló aðeins rúmlega mánað-
argamalt hraðamet nýsjálenskrar
skútu, Intrurh Justitia, sem sigldi 425
mílur á 24 tímum á öðrum legg
Whitbread-siglingakeppninnar, á
leiðinni frá Uruguay til Ástralíu.
ENZA er 92ja feta tvíbytna undir
stjórn tveggja skútustjóra, Bretans
Robin Knox-Johnston og Nýsjálend-
ingsins Peter Blake. Hún lagði af
stað í hnattsiglinguna fyrir 10 dögum
ásamt frönsku skútunni Lyonnaise
des Eaux-Dumez. Hófst keppnin við
rás- og endamarkslínu í Ermarsundi
sem markast af beinni línu frá
frönsku eynni Ouessant og Lizard-
tanga, syðsta odda Bretlands.
A fimmtudag var ENZA 980 mílur
á undan áætlun og komin í gegnum
lognbeltið nærri miðbaug. Var Ly-
onnaise, sem lýtur stjórn franska
skútustjórans Oliviers de Kersauson,
120 mílum á eftir ENZA. Hafa skút-
urnar lagt meira en 400 mílur að
baki á hveijum degi nema tvo. Sk-út-
urnar reyna að bæta met franska
skútustjórans Bruno Peyron sem
sigldi sömu leið umhverfis jörðina á
79 dögum og 6 klukkustundum.
Reuter
Skyndiverkföll í Þýskalandi
ÞÁTTTAKENDUR í skyndiverkfalli málmiðnaðarmanna í Þýskalandi
með borða þar sem gefið er til kynna að verið sé að vara atvinnurek-
endur við. Verkamenn krefjast hærri launa auk fleiri kjarabóta og
var vinna lögð niður í mörgum sambandsríkjum.
Hægrimenn í Dialds-
flokknum styðja
við bakið á Major
London. Reuter.
MIKLAR umræður hafa verið í Bretlandi undanfarnar vikum um fram-
tíðarmöguleika Johns Majors forsætisráðherra og hafa margir stjórn-
málaskýrendur spáð því að hann muni ekki endast árið í embæfti.
Margt bendir hins vegar til að hægrimenn í flokknum, sem gagnrýnt
hafa Major harðlega, ætli að styðja við bakið á honum. Óttast þeir að
ef Major hrökklist frá muni Kenneth Clarke fjármálaráðherra, sem
er úr vinstriarmi Hokksins, taka við forsætisráðherraembættinu.
George Gardiner, einn af áhrifa-
mestu þingmönnunum í hægri armi
íhaldsflokksins, sagði í gær að hann
og nokkrir skoðanabræður hans hefðu
sett saman eins konar „stefnuskrá",
sem þeir teldu að Major ætti að fylgja.
Ætla þeir að kynna stefnuskrána á
fundi með forsætisráðherranum í dag.
Þj óðaratkvæðagreiðsla í Mið-Asíuríkinu Kírgístan
Umbótasinnaður forseti
vinnur yfirburðasigur
Bíshck í Kírgístan. Reuter.
FORSETI Kírgístans, Askar Akajev, vann yfirburðasigur um helgina
er kjósendur voru spurðir hvort hann ætti að fá að ljúka kjörtímabili
sínu og sitja fram á árið 1996. Bráðabirgðatölur benda til þess að
hann hafi fengið rúmlega 96% atkvæða. Akajev hefur beitt sér fyrir
róttækum umbótum I átt til markaðsbúskapar en þingið sein skipað
er fulltrúum er kjörnir voru á sovétskeiðinu, hefur þybbast við og
knúði m.a. fram afsögn ríkisstjórnarinnar í fyrra í óþökk forsetans.
Kírgístan er ijöllótt land í Mið- efnahagsins. Talsmaður forsetans,
Asíu, fátækt að náttúruauðæfum.
Þjóðarframleiðsla minnkaði um 34%
í fyrra og þrátt fyrir viðleitni Akajevs
er aðeins búið að einkavæða um 15%
Imankadí Rísalíev, sagði í gær að
stefnt væri að því að hlutfallið yrði
komið í helming árið 1996. „Markmið
Kírgísa ætti að vera að líkjast sem
mest hinum siðuðu þjóðum Evrópu,"
sagði hann. Akajev, sem er fyrrver-
andi stærðfræðiprófessor, hefur fylgt
ráðum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins,
IMF, í efnahagsmálum og hlotið lof
fyrir á Vesturlöndum. Rísalíev taldi
kosningaúrslitin sanna að almenning-
ur vildi frekari umbætur en Akajev
vill gera Kírgístan að „Sviss Asíu“.
Kosningaþátttaka var um 95% og
fer tvennum sögum af því hvort hlut-
leysis var gætt.
Hefur þetta verið túlkað af sumum
dagblöðum í Bretlandi sem tilraun
hægrimanna til að rétta Major björg-
unarhring gegn því að hann taki í
auknum mæli undir sjónarmið þeirra.
Annar þekktur hægrimaður, Teb-
bit lávarður, sagði í sjónvarpsviðtali
á sunnudag að hann kysi fremur
Major sem forsætisráðherra en tnann
af vinstri væng flokksins. „Ég er
mjög fylgjandi því að Major verði
áfram í embætti, fram að næstu
kosningum og lengur," sagði Tebbit.
Hann sagði þó skilyrði þessa stuðn-
ings vera að Major sýndi meiri hörku
í Evrópumálunum.
Tebbit sagði Major hafa fengið
slæma pólitíska ráðgjöf að undan-
förnu og væri það hluti skýringarinn-
ar á því að hann hefur aldrei verið
óvinsælli en nú samkvæmt skoðana-
könnunum. í viðtali við The Times
um helgina sagði Norman Lamont,
fyrrum fjármálaráðherra, að Major
væri „linur og vonlaus". Hann lét
önnur þung ummæli falla í garð for-
ystumanna íhaldsflokksins en sagði
síðar að ranglega hefði verið háft
eftir honum og að viðtalið endurspe-
glaði ekki raunverulegar skoðanir
hans. íhaldsmenn hafa samt sem
áður brugðist hart við ummælum
Lamonts og kallaði einn þingmanna
flokksins ráðherrann fyrrverandi
„fyrirlitlega litla rottu“.
mmm
mmm
mwwmm,
/
_ T Fö5TUDAG^KVÖIP:
Ný HqóMSVErr
NýrMai;si;dii.i.
Þér veljið forrétt, aðalrétt og eftirrétt úr eftirtöldum réttum:
„GGI |SlÆ
OG
e
EÖ^fUDAGSKVÖþp OG EaUGADAGSKVÖÚD:
Ornárnaeon
.vd
gleður matargesti
og aðra sem
í íýrra fallinu með
song og frábærum=
gamanmálum
föstudags og
laugardagskvöld.
-C/í
Skemmtun, Dans og Fjölbreyit vae
AF ÞRIGGJA RÉTTA MATSEÐfl,
kr19 94
Forréttir:
ítölsk fiskisúpa með hvítlauksolíu-sósu og
ristuðum brauðsneiðum.
Humar og silungsfrauð með vanillu-saffransósu.
Risarækjur með kínversku sinnepi og fylltri hrísgrjónarúllu.
Pastarúllur fylltar með kjúkling og spínati.
Adalréttir:
Nautahiyggur með grænpiparsósu og fylltri bakaðri kartöflu.
Ofnbökuð grísasneið með hvítlauks-sinnepssósu,
englahárpasta og spergilkáli.
I Kalkúnabringa með spínatjafningi, brauðbúðing og trönuberjasultu.
Lambahiyggur með rósmarin-smjörsósu, polenta og eggaldinturni.
Glóðasteikt lúða með pasta og tómatbasilsósu.
Eftirréttir:
Grand Mamier ísterta með vanillusósu.
Smjördeigshálfmáni fylltur með eplum, hnetum og
rúsínum, borinn fram með kanilís.
Hvítsúkkulaði og jarðaberja lagterta.
Súkkulaði pralín ís með súkkulaðisósu.
Matrei&diuncuitari: Haukur VídÚMon
Upplýsingar og borðapantamr í síma: 689 686
mmmm