Morgunblaðið - 01.02.1994, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRUAR 1994
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar:
691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði
innanlands. i lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið.
Vandi Peresar og
Arafats
rátt fyrir löng fundarhöld
í svissneska bænum
Davos um helgina tókst þeim
Shimon Peres, utanríkisráð-
herra ísraels, og Yasser Ara-
fat, leiðtoga Frelsissamtaka
Palestínu (PLO), ekki að ná
en^anlegu samkomulagi um
framkvæmd friðarsamkomu-
lagsins frá í september í fyrra.
Meginatriði þess sam-
komulags var að Palestínu-
menn fái takmarkaða sjálfs-
stjórn á Gaza-svæðinu og í
kringum borgina Jeríkó á
Vesturbakkanum. Þessi land-
svæði, þai*' sem búa um tvær
milljónir Palestínumanna,
voru hernumin af ísraelum í
sexdagastríðinu árið 1967 og
samkvæmt friðarsamkomu-
laginu áttu hersveitir þeirra
að vera búnar að yfirgefa þau
þann 13. desember sl.
Deiluaðilar hafa hins vegar
ekki náð saman um hvernig
útfæra eigi samkomulagið
enda mörg og flókin mál sem
taka verður afstöðu til. Til
dæmis hversu stór sjálfs-
stjórnarsvæði eigi að vera,
hvernig skuli haga landa-
mæraeftirliti og löggæslu og
ýmsum öðrum framkvæmda-
atriðum. ísraelskar hersveitir
er því enn að finna á Gaza og
í Jeríkó þó að vonast sé til
að þær hverfi á brott í síðasta
lagi þann 13. apríl. Forsenda
þess er þó að samkomulag
náist um framkvæmd friðar-
samkomulagsins á allra
næstu dögum.
Fundur þeirra Peresar og
Arafats í Davos, í tengslum
við Alþjóða efnahagsráð-
stefnuna, var sá annar á einni
viku. Helgina áður höfðu þeir
átt langan fund í Ósló þar sem
þeir voru báðir viðstaddir út-
för Johans Jörgens Holst, ut-
anríkisráðherra Noregs, en
það var ekki síst fyrir hans
tilstuðlan að Palestínumenn
og ísraelar náðu saman. Þeim
tókst ekki að ná saman um
öll atriði í Ósló og ekki heldur
að ljúka málinu í Davos þó
svo að vel virðist hafa miðað
í 'samkomulagsátt. Hefur ver-
ið boðaður annar fundur í
Kaíró í Egyptalandi næst-
komandi sunnudag.
Augu umheimsins beinast
nú að þeim Peres og Arafat.
Samkomulag þeirra um frið í
Mið-Austurlöndum var óvænt
og því hefur alls staðar verið
fagnað sem sögulegu. ísrael-
ar hafa átt í erjum við arab-
ískar nágrannaþjóðir sínar frá
stofnun Israelsríkis árið 1948.
Hingað til hafa einungis
Egyptar verið reiðubúnir að
undirrita friðarsamkomulag
við ísraela. í kjölfar Ósló-
samkomulagsins hafa Jórdan-
ir og jafnvel Sýrlendingar
verið reiðubúnir til að taka
upp samningaviðræður við
ísraela. Utkoman úr þeim við-
ræðum ræðst hins vegar auð-
vitað af því hvernig tekst til
með stofnun sjálfsstjórnar-
svæðanna á hernumdu svæð-
unum.
Og ekki nóg með það. Líkt
og Peres sagði á blaðamanna-
fundi hans og Arafats í Davos
þá snýst málið ekki einungis
um Mið-Austurlönd. Það er
trú margra að ef hægt er að
finna lausn á hinni hatrömmu
og blóðugu deilu ísraela og
araba, sem leitt hefur af sér
margar styijaldir á undan-
förnum áratugum, þá sé hægt
að finna lausn á öllum öðrum
deilumálum sem hijá heims-
byggðina. Það væri því gífur-
legt áfall ef Peres og Arafat
næðu ekki samkomulagi.
Tíminn er hins vegar
naumur. Eftir því sem sam-
komulag dregst á langinn
eykst andstaðan jafnt meðal
ísraela sem Palestínumanna.
Ófriður undanfarinna ára hef-
ur sett mark sitt á samskipti
þessara þjóða og reyna öfga-
hópar nú að kynda undir þá
djúpstæðu tortryggni, sem
óneitanlega er til staðar.
í Davos, þar sem saman
voru komnir margir af helstu
forystumönnum heimsins á
sviði viðskipta og stjórnmála,
lýsti Peres þeirri framtíðarsýn
sinni og Arafats að Mið-Aust-
urlönd myndu þróast í svæði
er einkenndist af friðþ rétt-
læti og framþróun. I stað
þess að eyða óhemju miklu
fjármagni í vopn myndu ríkin
þar vinna saman að því að
byggja upp öflugt og blómstr-
andi efnahagssvæði. Erfið-
leikar undanfarinna vikna í
viðræðunum sýna að það
verður ekki auðhlaupið að
breyta málum í Mið-Austur-
löndum þrátt fyrir friðar-
samninga og góðan vilja. Með
því að ná saman um fram-
kvæmd friðarsamkomulags-
ins myndu þeir Peres og Ara-
fat aftur á móti sýna fram á
að það væri ekki ómögulegt.
PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS V
Mikil þátttaka í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Njarðvík
Jónína Sanders fékk
kosningu í annað sætið
KeHavík.
MIKIL þátttaka og endurnýjun einkenndi prófkjör Sjálfstæðisflokksins
í Njarðvík sem fram fór á laugardaginn. Oddviti flokksins, Ingólfur
Bárðarson, var sá eini af bæjarfulltrúum flokksins sem hélt sinu sæti
frá síðustu kosningum. Kristbjörn Albertsson sem skipaði annað sætið
hafnaði nú í þriðja sæti og Valþór Söring Jónsson sem skipaði þriðja
sætið varð í sjötta sæti. Jónína Sanders, hjúkrunarfræðingur kom sá
og sigraði. Hún sóttist eftir öðru sætinu á listanum sem hún fékk auk
þess að fá flest atkvæði allra frambjóðenda eða 87,9%. Fjórða sætið
hlaut svo Böðvar Jónsson, fasteignasölumaður.
Mjög góð kjörsókn var í prófkjör-
inu sem var ætlað stuðningsmönnum
flokksins og greiddu 413 atkvæði,
þar af voru 9 seðlar ógildir. Fyrir
síðustu bæjar og sveitarstjórnar-
kosningar var listinn ákveðinn af
uppstillingarnefnd. Prófkjör fór síð-
ast fram árið 1986 og þá kusu 210.
í síðustu bæjar- og -sveitarstjórna-
kosningum fékk Sjálfstæðisflokkur-
inn 508 atkvæði og 3 bæjarfulltrúa.
Flokkurinn skipar nú meirhluta
ásamt fulltrúa Alþýðubandalags.
Eigum mikla möguleika
„Ég er ánægður með minn hlut,
því það má segja að þetta hafi verið
varnarsigur hjá mér. Það voru marg-
ir kallaðir og eðlilegt að ungt fólk
vildi skipta þeim eldri út,“ sagði Ing-
ólfur Bárðarson sem varð í fyrsta
sæti. „Annars finnst mér gott
mannaval einkenna listann og ég tel
NJARÐVÍK
að flokkurinn eigi mikia möguleika
sé haldið rétt á spilunum,“ sagði
Ingólfur Bárðarson ennfremur.
Jónína Sanders sagðist vera mjög
ánægð með sína útkomu og sagðist
jafnframt vilja þakka stuðnings-
mönnum sínum fyrir glæsilega kosn-
ingu. „Ég gerði mér vonir um góðan
stuðning og fann síðan mikinn með-
byr. Þátttakan í prófkjörinu er at-
hyglisverð og það er greinileg upp-
sveifla hjá flokknum," sagði Jónína
Sanders.
„Ég tel þetta viðunandi niðurstöðu
en er ekki ánægður með minn hlut,
því ég stefndi á eitt af tveim efstu
sætunum,“ sagði Kristbjörn Alberts-
son sem skipaði annað sætið á listan-
um í síðustu kosningum.
Böðvar Jónsson sagðist hafa
stefnt að því að ná 3. til 4. sæti og
væri ánægður með kjör sitt í það
fjórða. Hann sagði að ákveðin end-
urnýjun yrði á listanum og væri allt
gott um það að segja.
Var beggja blands
Valþór Söring Jónsson bæjarfull-
trúi sem skipaði þriðja sætið í síð-
ustu kosningum varð í sjötta sæti.
Hann sagðist hafa farið með efa-
semdir til þessa prófkjörs, hugur sinn
hefði verið beggja blands og hann
ekkert gert sér til framdráttar í próf-
kjörsslagnum. Sigurvegararnir
hefðu unnið vel og skipulega og þeir
hefðu uppskorið í samræmi við það.
Valþór sagðist þó geta vel við unað
og að hann væri ánægður með hvern-
ig skipast hefði á iistann.
-BB
1.360 fleiri þátttake
34 atl
tveim
Niðurstöður prófkjörs Sjálfstæðisflokksins
Atkvæði
1. Ingólfur Bárðarson 1. 129 1.-2. 1.-3. Alls 1.-4. 233 Hlutf. 57,5%
2. Jónína A. Sanders 54 243 356 87,9%
3. Kristbjörn Albertsson 76 123 192 240 59,2%
4. Böðvar Jónsson 24 70 157 239 59,1%
5. Árni Ingi Stefánsson 78 116 164 220 54,4%
6. Valþór Söring Jónsson 9 42 96 156 38,6%
7. Jakob Sigvaldi Sigurðsson 20 29 50 86 21,3%
8. Guðjón Omar Hauksson 14 28 52 86 21,3%
Magnús Gunnai
MAGNÚS Gunnarsson hlaut flest atk
flokksins í Hafnarfirði, sem fram fc
son varð í 2. sæti, í 3. sæti varð E
varð Valgerður Sigurðardóttir og í
en. 3.496 manns tóku þátt í prófkjörii
ur en við síðasta prófkjör.
Ragnheiður Kristjánsdóttir lenti í
6. sæti, Árni Sverrisson í 7. sæti,
Magnús Kjartansson í 8. sæti, Gissur
Guðmundsson í 9. sæti, Helga R. Stef-
Sjautján tóku þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á ísafirði
Þorsteinn Jóhannesson með
yfirburðakosningu í fyrsta sæti
ísafirði.
MIKIL þátttaka var í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins á ísafirði um
helgina. Á laugardag og sunnudag
kusu 673, en 532 greiddu D-listan-
um atkvæði við síðustu kosningar.
Þorsteinn Jóhannesson yfirlæknir
hlaut 334 atkvæði í fyrsta sætið,
en Haildór Jónsson útgerðartæknir
kom næstur með 141 atkvæði. Þeir
voru ekki á lista flokksins við síð-
ustu kosningar.
Þorsteinn, Halldór og Kolbrún Hall-
dórsdóttir fiskvinnslukona og bæjar-
fulltrúi I-listans hlutu bindandi kosn-
ingar með yfír 50% greiddra atkvæða.
Kjörnefnd hefur ákveðið að birta
aðeins röð og atkvæðamagn fimm
efstu sætin en samkvæmt áreiðanleg-
um heimildum er röðin eins og kemur
fram á meðfylgjandi yfirliti. Sam-
kvæmt öðrum heimildum sem frétta-
ritari telur áreiðanlegar var fylgi
næstu þriggja það mikið og líkt, að
ætla má að þeim verði boðið að sitja
þau sæti.
Samkvæmt félagatöium voru 442
skráðir félagar í fjórum sjálfstæðisfé-
lögum þegar kjörið hófst. 93 gengu í
félögin á meðan kjörið stóð yfir, þar
af 46 í Fylki FUS, og 269 skrifuðu
undir stuðningsyfirlýsingu, samtals
804. Kosningaþátttaka var því 83,71%
fóiks á aldrinum 16 til 101 árs.
I kosningunum 1990 buðu Sjálf-
stæðismenn fram í tvennu lagi. Þá
fékk D-listinn 532 atkvæði og þijá
menn kjörna og I-listi 328 atkvæði
og tvo menn kjörna. Tilraun þessara
tveggja lista til meirihlutasamstarfs
fór fljótlega út um þúfur og hefur
D-listinn verið í meirihlutasamstarfi
við Alþýðubandaiag og Framsóknar-
flokk.
Undir eins merki
Þorsteinn Jóhannesson sagðist í
viðtali við blaðið vera mjög ánægður
með kjörið og taldi mikla þátttöku
sýna áhuga ísfirðinga á að hafa áhrif
á gang stjórnmála í bænum. Hann
sagði það fagnaðarefni að nú gengu
sjálfstæðismenn fram undir einu
merki og sagðist hlakka til að vinna
með þeim sem með honum veldust á
listann og öðrum sjálfstæðismönnum
að uppbyggingu og framförum á
Isafirði.
Halldór Jónsson sagðist hafa stefnt
ÍSAFJÖRÐUR
í upphafi að kjöri í efsta sæti en væri
mjög ánægður með niðurstöðuna.
Hann sagði að kosningaþátttakan
væri með ólíkindum og sagðist vona
að allir þessir dyggu stuðningsmenn
skiluðu sér í kosningunum í vor. Hann
sagðist vera mjög ánægður með úrslit-
in og sagðist hlakka til að starfa með
nýjum og glæsilegum leiðtoga.
Kolbrún Halldórsdóttir sagðist
mjög ánægð með úrslitin. Hún sagðist
hafa gefið kost á sér fyrst og fremst
til að vinna og þótt hún hafi Iátið að
því liggja að hún væri tilbúin að taka
fyrsta sætið væri hún mjög ánægð
með niðurstöðuna. Hún sagðist vilja
þakka fóiki fyrir góða þátttöku og
sagðist vona að þetta sýndi að sjálf-
stæðismenn vildu vinna saman.
Úlfar.
Niðurstöður prófkjörs Sjálfstæðisflokksins
Atkvæði Alls Hlutf.
1. 1.-2. 1.-3. 1.-4. 1.-5.
1. Þorsteinn Jóhannesson 334 530 80,42%
2. Halldór Jónsson 141 217 361 54,78%
3. Kolbrún Halldórsdóttir 76 201 278 359 54,48%
4. Pétur H.R. Sigurðsson 45 104 172 224 250 37,94%
5. Ragnheiður Hákonardóttir 8 79 153 218 276 41,88%
Röð annarra frambjóðenda: 6. Kristján Kristjánsson, 7. Björgvin Arnar
Björgvinsson, 8. Signý Rósantsdóttir, 9. Marsellíus Sveinbjörnsson, 10. Ein-
ar Axelsson, 11. Finnbogi Rútur Jóhannesson, 12. Bjarndís Friðriksdóttir,
13. Sævar Gestsson, 14. Elízabeth Einarsdóttir, 15. Örn Torfason, 16. Björn
Helgason, 17. Jóhann Ólafson.