Morgunblaðið - 01.02.1994, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1994
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Fóðursiló fauk um koll á bænum Velli í óveðrinu.
Hvolsvöllur
Skemmdir á mann-
virkjum vegna óveðurs
Hvolsvelli.
TALSVERÐAR skemmdir urðu á mannvirkjum á Hvolsvelli og
nágrenni í óveðrinu aðfaranótt sl. laugardags. Gekk á með glóru-
lausum byl og miklu hvassviðri alla nóttina fram að hádegi á
sunnudag með tilheyrandi ófærð.
Stór gámur fór af stað við ný-
byggingu Rarik á Hvolsveili, lenti á
húsinu og skemmdi all nokkuð. Þá
fauk ruslagámur sem staðsettur var
við vegamót í svokölluðum Vall-
arkrók. Fauk hann um 100 metra
yfir girðingu framhjá sumarbústað
og lenti út á túni fyrir neðan veg.
Á bænum Velli fauk m.a. fóðursíló.
Einhveijar skemmdir urðu á þaki á
nýbyggðu fjölbýlishúsi á Hvolsvelli.
Af þessu má ráða að veðurhæð hef-
ur orðið mjög mikil.
Þá má reikna með gróður-
ákemmdum þar sem þungur krapi
fraus á tijám og má víða sjá löskuð
tré í húsagörðum. Að sögn löregl-
unnar á Hvolsvelli virðist sem veðr-
ið hafí verið einna verst í kringum
Hvolsvöll því ekki var vitað um nein-
ar umtalsverðar skemmdir á mann-
virkjum annars staðar í sýslunni.
- S.Ó.K.
Nýr veitinga-
staður á Suð-
urlandsbraut
NYR veitingastaður, Verdi, að
Suðurlandsbraut 14 (í húsi Bif-
reiða og Iandbúnaðarvéla) var
opnaður fyrir skömmu.
Verdi er veitingastaður fyrir
alla fjölskylduna með fjölbreyttan
matseðil sem á eru m.a. pasta,
pizzur, fiskur, steikur og smárétt-
ir. í hádeginu er boðið upp á pasta,
pizzur, súpur og salatbar á 750
kr. Kaffi fylgir með.
Framkvæmdastjóri staðarins er
Konráð Arnmundsson.
Islenskar frímerkjabók-
menntir á heimssýningn
Tvö stór silfur, fjögur silfur og eitt silfrað brons
Laugarhóli.
HEIMSSÝNINGIN „Hafnia-1994“ á vegum FÍT, eða Alþjóðasam-
taka frímerkjasafnara var haldin í Bella Center í Kaupmannahöfn
dagana 26.-30. janúar. Sýningarefnið var bókmenntir og nútímafrí-
merki eða söfnun nýrra frímerkja. Til þessarar sýningar sendi
Island sjö mismunadi sýningarefni í bókmenntadeild sem skiluðu
heim tvennum stórum silfurverðlaunum, fjórum silfurverðlaunum
og einum silfruðum bronsverðlaunum.
Það voru bækurnar „Exploring
Iceland through its Stamps" eftir
Don Brand, útgefin af Iceland
Review. „Island postaxt eset I
prioben 1939-1945“ eftir Kristian
Hopballe og Ólaf Elíasson, útgef-
inn af Forlaget 5F. „íslensk frí-
merkjasöfnun og póstsaga, heim-
ildaskrár, eftir Rannveigu Gísla-
dóttur, útgefandi Háskólaútgáfan.
„íslensk frímerki 1994“ eftir Sig-
urð H. Þorsteinsson. Útgefandi
ísafoldaprentsmjðja. „Pósthús og
bréfhirðingar á íslandi" eftir Þór
Þorsteins. Útgefandi er Klúbbur
Skandinavíusafnara. „íslenskir
stimplar, brúar-, rúllu- og vél-
stimþlar", eftir Þór Þorsteins, gef-
in út af Landssambandi íslenskra
frímerkjasafnara. Loks voru einn-
ig frímerkjaþættir úr dagblaðinu
Degi á Akureyri eftir Sigurð H.
Þorsteinsson.
Við dóm slíkra bókmennta er
hægt að fá hæst 100 stig fyrir
útgefið verk. Nefnd dómara fer
yfir hvert verk og gefur því síðan
stig sem verðlaunin eru bundin af.
Niðurstöður dómnefndar sem birt-
ar voru á laugardagskvöld voru
þær að bók Don Brandt fékk 73
stig og þar með silfurmedalíip bók
þeirra Kristian Hopballe og Ölafs
Elíassonar fékk 77 stig og stórt
silfur, bók Rannveigar Gísladóttur
hlaut 78 stig og stórt silfur, bæk-
ur Þórs Þorsteins fengu 70 stig
hvor og sitt silfrið hvor þar með.
Bók Sigurðar H. Þorsteinssonar
fékk 71 stig og silfur en frímerkja-
þættir hans úr Degi á Akureyri
fengu 66 stig og silfrað brons.
Umboðsmaður sýningarinnar á
íslandi var Ólafur N. Elíasson,
verkfræðingur.
' Landssamband íslenskra frí-
merkjasafnara gaf heiðursverð-
laun til sýningarinnar. Þau hlaut
frímerkjaþáttahöfundur að nafni
Michael Nowlan, fyrir þætti sína
í Canadian Stamp News sem nefn-
ast „Phiiatelic Book Shelf“, það
sýningarefni hlaut 74 stig sem var
það hæsta sem veitt var i þeim
flokki, þ.e.a.s. fyrir þáttahöfunda.
Auk þessarar heimssýningar
var einnig sýningin „Ferie-94“ í
Bella Center þessa sömu daga.
Aðsókn að sýningunni mun hafa
farið yfir 100.000 gesti. Aðgangur
var 45 danskar krónur. Þá tók
frímerkjasala Póstmálastofnunar
einnig þátt með sölubása á sýning-
unni.
íslenska þátttakan og þá sér-
staklega árangurinn vakti athygli
á sýningunni. Kom það af því að
fyrir neðan silfurbrons eru enn tvö
stig í verðlaunum, brons, diplom
og síðan þátttökuskjal að lokum.
- S.H.Þ.
Frá veitingastaðnum Verdi, Suðurlandsbraut 14.
RAÐAUGi YSINGAR
19 ára stúlka
óskar eftir að gæta barna og sinna heimilis-
störfum ef með þarf. Hefur mikla reynslu og
reykir ekki.
Umsóknir sendist auglýsingdeild Mbl. merkt-
ar: F - 10639".
Fjármálaþjónusta
Endurskipulagning fjármála, gerð rekstrar-
og greiðsluáætlana, bókhald, ársuppgjör og
skattaskýrslur fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Víðtæk reynsla.
Sími 91-19096, fax 91-19046.
Málverk eftir Þorvald
Skúlason
Fyrir viðskiptavin okkar í Danmörku leiturn
við að myndum eftir Þorvald Skúlason.
Vinsamlegast hafið samband sem fyrst.
BORG
Sími 24211.
50. árshátíð Stangaveiði-
félags Reykjavíkur
Örfáir miðar eftir.
Pantanir óskast sóttar á skrifstofu félagsins.
Skemmtinefnd.
Meðal gefenda vinninga:
Jónasson ■
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtalinni eign verður háð á henni sjálfri
sem hér segir:
Hafnarbraut 20, Hólmavík, þinglýst eign Sigurðar G. Sveinssonar,
eftir kröfu Skilvíss hf., (slenskrar dreifingar hf., Brunabótafélags Is-
lands, Hauks Classens, Hólmavíkurhrepps, Búnaðarbanka íslands
og innheimtumanns ríkissjóðs, miðvikudaginn 9. febrúar 1994, kl.
14.00.
Sýslumaðurinn á Hólmavík,
31. janúar 1994.
Rikarður Másson.
Til leigu
Glæsilegt ca 300 fm verslunarhúsnæði í
Múlahverfi til leigu. Húsnæðið er með góðri
innkeyrsluhurð og stórum sýningargluggum.
Upplýsingar í síma 622991 á skrifstofutíma
og á kvöldin í síma 77430.
Heimilisrafstöð
- 6 kílówött til sölu
Lister, diesel, í góðu lagi. Verð 100 þús.
Upplýsingar í síma 91-667024.
I.O.O.F. Rb.4 = 143218 - E.l.
□ HLlN 5994020119 VI 2 Frl.
□ EDDA 5994020119 II 3 Frl.
auglýsingar
FERÐAFÉLAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 SÍMI 682533
Þriðjudagskvöld 1. febrúar
kl. 20.30.
Opið hús Mörkinni 6
(risi)
Jón Viðar Sigurðsson mætir og
spjallar um Esjuna í tilefni Esju-
gönguársins 1994. Allir vel-
komnir, félagar sem aðrir. Komið
í góðan félagsskap. Heitt á könn-
unni. Nýja ferðaáætlunin liggur
frammi.
Ferðafélag Islands.